Fréttablaðið - 07.12.2004, Blaðsíða 49
29ÞRIÐJUDAGUR 7. desember 2004
Lynghálsi 4
Sími: 567 3300
Opið virka daga 9-18
www.hestarogmenn.is
Steinefna- og vitamin-vika
Tilboðsverð kr. 5.990 80 dagaskammtur
Við höfum gefið hrossum okkar Right Balance
bætiefnið og erum mjög ánægð með virkni þess. Við
höfum fundið umtalsverðan mun á styrk og vexti hófa.
Herdís og Indriði í Grafarkoti, Húnavatnsýslu
Afsláttur á saltsteinum
og FB fóðri
Úrvalshryssan Blæja frá Hólum
hefur verið seld til Svíþjóðar.
Kaupandi er Anna R. Danielsson
dýralæknir, seljandi Hólaskóli.
Blæja varð Íslandsmeistari í tölti
1999 og í öðru sæti í sömu grein á
LM 2000, knapi Egill Þórarinsson.
Það er stórfrétt út af fyrir sig að
svo afburðagóð hryssa skuli gefin
föl, ef ekki væri sá hængur á
gripnum að hún hefur verið úr-
skurðuð ófrjó og með varanlegt
mein á framfæti, sem sagt óhæf
til reiðar. Og þá er fréttin ekki
lengur sú að hryssan hafi verið
gefin föl, heldur sú að til skuli
vera kaupandi sem vill gefa stórfé
fyrir svo gallað hross.
Kaupverðið var 1,5 milljónir
króna, sem verður að teljast
býsna hátt verð fyrir hross sem
gagnast hvorki til undaneldis né
útreiða. Eftir því sem næst verður
komist er ætlun kaupandans að
halda Blæju sem eins konar heið-
urshross, sem venjulegt fólk
myndi einfaldlega kalla að fá sér
gæludýr. En er það virkilega svo?
Er ekki þarna á bak við löngun og
vissa um að geta gert betur en
kollegarnir?
Ingimar Jónsson, bóndi á Flugu-
mýri, sem hafði milligöngu um
kaupin, segist ekki geta fullyrt
um hver sé tilgangur Önnu. Þó
beri að hafa í huga að í Svíþjóð
séu mjög færir dýralæknar á
sviði hrossasjúkdóma og hún eygi
því kannski von um að hægt sé að
koma fyli í hryssuna. Ingimar
segir enn fremur að Blæja hafi lit-
ið mjög vel út þegar hún var sótt
að Hólum, spræk og algjörlega
óhölt að sjá, enda verið brúkunar-
laus í þrjú ár. Hann segir að marg-
ir hafi sýnt hryssunni áhuga eftir
að hún kom til Svíþjóðar, þ.á.m.
nokkrir þekktir knapar sem líti
hýru augu til þessarar snjöllu
keppnishryssu.
Þrá frá Hólum öll
Talandi um Hólaskóla þá má geta
þess að flaggskip hryssustofnsins
á búinu, Þrá frá Hólum, er fallin.
Hún eignaðist nokkrar mjög góð-
ar dætur um ævina en synir henn-
ar náðu því ekki að komast í hóp
úrvals stóðhesta. Reyndar hefur
enginn slíkur komið frá Hólum
um áraraðir en nú hillir undir
breytingar í því efni. Þrír álitlegir
folar á 4. og 5. vetri eru í tamn-
ingu. Efnilegastur er Brúnn und-
an Þilju frá Hólum og Nagla frá
Þúfu, sérlega glæsilegur, reistur
og háfættur, svartur. Annar undan
Þrennu frá Hólum og Kormáki frá
Flugumýri, mjúkur alhliða hestur,
jarpur, og svo er foli á 5. vetri
undan Þulu frá Hólum og Kraflari
frá Miðsitju, sem fór vel af stað í
fyrra og lofar góðu um framhald-
ið. ■
JENS EINARSSON FJALLAR UM HESTA OG HESTAMENNSKU
Á HESTBAKI
Gæludýr fyrir eina og hálfa milljón
B Í Ó M I Ð I Á
S E E D O F
N Ú Í B Í Ó
Vinningar verða afhentir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
Vinningar:
Miðar á Seed of Chucky
DVD myndir
Margt fleira.
Sendu SMS skeytið
JA SCF
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
9 . h v e r v i n n u r
BLÆJA FRÁ HÓLUM Blæja frá Hólum, knapi Egill Þórarinsson. Hryssan hefur verið
seld til Svíþjóðar.