Fréttablaðið - 03.09.2004, Qupperneq 1
AFVOPNUNARMÁL „Við höfum nú-
orðið nokkuð góða mynd af því
magni kjarnavopna sem til er í
heiminum. Við höfum ekki jafn
góða yfirsýn yfir efnavopn og enn
síður lífefnavopn. Til að mynda
eru fjögur svæði í Rússlandi sem
við höfum ekki enn fengið aðgang
að,“ segir Richard Lugar, formað-
ur utanríkismálanefndar öldunga-
deildar bandaríska þingsins.
Hann var gestur á fundi for-
manna utanríkismálanefnda
þinga Norðurlandanna og Eystra-
saltsríkjanna sem haldinn var í
gær.
Rússar hafa gert grein fyrir 40
þúsund tonnum af efnavopnum
sem geymd eru á sjö stöðum. „Í
einu efnavopnabyrgi í Rússlandi
eru 1,9 milljónir efnavopna –
sprengjur sem geymdar eru á
viðarhillum í timburgeymslum,“
segir Lugar. Í augnablikinu er
öryggisgæsla á svæðinu en öll
þessi efnavopn þarf að gera
óvirk, að sögn Lugar. Það er
vandasamt verk og mun að öllum
líkindum taka um sex ár. „Hér er
aðeins um að ræða eina geymslu-
stöð af sjö en þetta gefur góða
mynd af því gríðarlega verkefni
sem fram undan er,“ segir Lugar.
Eitt helsta vandamálið sem
takast þarf á við er sala og dreif-
ing Norður-Kóreumanna á hráefn-
um og sérþekkingu sem nýta má
til þess að framleiða kjarnorku-
vopn, að sögn Lugar. Hann segir
að jafnframt leiki ekki nokkur
vafi á því að Íranar séu með áætl-
un um smíði kjarnavopna þrátt
fyrir að þeir neiti því. Þá búi
Pakistanar og Indverjar yfir
kjarnavopnum og hafa landamæri
ríkjanna verið nefnd hættuleg-
asta svæði heims.
Sjá síðu 14.
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
FÖSTUDAGUR
LANDSLEIKUR Á VÍKINGSVELLI
Íslenska landsliðið í fótbolta skipað leik-
mönnum yngri en 21 árs leikur gegn
Búlgaríu á Víkingsvelli. Leikurinn, sem er
liður í undankeppni Evrópukeppninnar,
hefst klukkan 17.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
VÍÐA RIGNING EÐA SKÚRIR Horfur
á vaxandi vindi við norðausturströndina
síðdegis. Hiti víðast 10-15 stig. Sjá síðu 6.
3. september 2004 – 239. tölublað – 4. árgangur
RAFLOST FRÁ HÁSPENNUSTRENG
Starfsmaður Þjónustumiðstöðvar Hafnar-
fjarðar var heppinn að sleppa lifandi þegar
hann fékk raflost frá rifnum háspennustreng
í skurði sem hann vann í. Sjá síðu 2
DECODE KÆRT Lögfræðistofa í Banda-
ríkjunum hefur auglýst eftir fólki til þátt-
töku í málsókn á hendur stjórnendum
DeCode. Forstjóri DeCode gefur lítið fyrir
kæruna. Sjá síðu 2
ÓTTAST HAMFARIR Flórídabúar óttast
miklar hamfarir þegar fellibylurinn Frances
gengur á land í kvöld. Fólk ýmist flýr heimili
sín eða reynir að styrkja þau fyrir átökin
fram undan. Sjá síðu 6
VILJA LAGABREYTINGU Breyting á
lögum um nauðungarvistun og sviptingu
sjálfræðis mikið geðsjúkra er nauðsynleg,
að mati Geðhjálpar. Sjá síðu 10
Kvikmyndir 42
Tónlist 48
Leikhús 48
Myndlist 48
Íþróttir 34
Sjónvarp 52
nr. 35 2004
Í HVERRI VIKU
bíó heilabrot bækur fólk stjörnuspá matur
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
3.
- 9
. s
ep
tem
be
r
- hefur ekki séð son sinn í tvö ár
Rúnar Alexandersson
Dísir í krísu
- fjórar Dísardísir teknar tali
bragð • fjölbreytni • orka
grillaður kjúklingur
caprese og Toppur
599 kr.
+
Valur Gunnarsson
Robert Jackson
Laufey Ólafsdóttir
Hefur ekki séð son
sinn í tvö ár
birta
Rúnar Alexandersson:
▲Fylgir Fréttablaðinu dag
● Dísir í krísu ● Ljósanótt ● matur ● tilboð
María Björk Sverrisdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Er algjör matarfíkill
Ríkið gæti sparað
745 milljónir króna
Um 745 milljónir króna gætu sparast við útboð á fjarskiptaþjónustu ríkisins næðist sami árangur
og hjá Reykjavíkurborg. Lögum samkvæmt þarf ríkið ekki að leita hagstæðasta verðs og efla
samkeppni á fjarskiptamarkaði.
VIÐSKIPTI Ríkið gæti sparað allt að
hálfum milljarði króna í fjar-
skiptakostnað næðist sami árang-
ur og af útboði Landspítala - há-
skólasjúkrahúss. Væri árangurinn
sá sami og Reykjavíkurborg áætl-
ar við útboð fjarskipta væri sparn-
aður ríkisins um 745 milljónir
króna, sé miðað við tölur um fjar-
skiptakostað ráðuneyta og annarra
æðstu stofnana ríkisins árið 2002.
Júlíus S. Ólafsson, forstjóri
Ríkiskaupa, segir útboðsgögn í
undirbúningi. Gert sé ráð fyrir að
þau verði tilbúin í október og
útboð geti farið fram í kjölfarið.
Tilboðstíminn verði 52 dagar og
úrvinnsla tilboða og samningagerð
taki einnig sinn tíma. „Hvað
kemur út úr útboðunum vitum við
ekkert um og eru getgátur,“ segir
Júlíus.
Pétur Pétursson, forstöðumað-
ur upplýsinga- og kynningarmála
hjá OgVodafone, segir að um ára-
bil hafi verið unnið að því að fá
ríkið til að bjóða út fjarskiptaþjón-
ustuna. „Ég velti fyrir mér hvað
ræður seinagangi ríkisins, sér-
staklega þegar höfð er í huga
stefna stjórnvalda um að ná fram
sparnaði í rekstri með útboðum.“
Júlíus segir samninga um fjar-
skiptaþjónustu undanþegna útboð-
um samkvæmt lögum um opinber
innkaup frá árinu 2001: „Það er ein
ástæðan fyrir því að útboð þjón-
ustunnar hefur ekki farið fram.
Einnig má nefna að samkeppni á
fjarskiptamarkaði hefur verið tak-
mörkuð, sem getur haft áhrif á
hvort útboð skilar árangri.“
Júlíus segir að í undirbúningi
sé rammasamningsútboð þar sem
gert sé ráð fyrir tveggja ára samn-
ingi með möguleika á framleng-
ingu.
Aðeins tvö útboð hafa farið
fram á fjarskiptaþjónustu ríkis-
fyrirtækja. Auk Landspítala - há-
skólasjúkrahúss hefur Íslands-
póstur boðið út þjónustuna. Örfá
önnur ríkisfyrirtæki hafa einnig
leitað tilboða á markaði að frum-
kvæði stjórnenda sinna.
gag@frettabladid.is
UNNIÐ VIÐ HAFNARGERÐ OG LANDFYLLINGU Vinna við miklar landfyllingar og hafnargerð við Sundahöfn er nú í fullum gangi. Með land-
fyllingunni mun athafnasvæðið við höfnina stækka til muna en þar er gert ráð fyrir aðstöðu fyrir vöruflutninga- og sjávarútvegsfyrirtæki. Á hafnar-
bakkanum á Klettasvæðinu við Laugarnes munu stærstu skipin sem hingað koma geta lagst að bryggju, til dæmis stærstu skemmtiferðaskipin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
53%66%
Vopnaður ræningi:
Lögga rændi
þrjá banka
BANDARÍKIN, AP Lögreglumaður í
Atlanta í Bandaríkjunum hefur
játað við yfirheyrslur að eiga sök
á þremur vopnuðum bankarán-
um sem hafa verið framin í borg-
inni síðustu tvo mánuði. Stanley
Street ógnaði gjaldkerum með
byssu og sagði þeim að afhenda
sér peningana sem þeir væru
með, en alls stal hann að andvirði
rúmum sex milljónum króna.
Lögmaður mannsins segir þó
að hann muni lýsa sig saklausan
þegar hann verður dreginn fyrir
dómstóla og dregur skýrslu um
yfirheyrslu yfir honum í efa.
Talsmaður lögreglunnar í Atl-
anta harmaði fréttirnar og sagði
slæmt að einn maður eyðilegði
fyrir starfsfélögum sínum með
því að brjóta svona af sér. ■
Norður-Ossetía:
Gíslarnir
enn í haldi
BESLAN, AP Nokkur hundruð
manns eru enn í gíslingu
tsjetsjenskra aðskilnaðarsinna
eftir að gærdagurinn leið án þess
að árangur næðist í samninga-
viðræðum yfirvalda við gísla-
tökumennina.
Gíslatökumenn slepptu þó 26
gíslum í haldi, en það voru konur
með mjög ung börn sem fengu
að yfirgefa skólann. Aðrir fengu
að hírast í húsinu sem fyrr og
biðu þeir þess sem verða vildi.
Skömmu áður en gíslunum var
sleppt heyrðist í sprengjum í ná-
grenni skólans. Þeim skutu
gíslatökumenn að bílum sem
þeim fannst hætta sér of nærri
húsinu.
Sjá síðu 4
Richard Lugar, einn helsti sérfræðingur heims í afvopnunarmálum:
Gríðarmikið óunnið
í afvopnunarmálum
01 Forsíða 2.9.2004 22:19 Page 1