Fréttablaðið - 09.09.2004, Blaðsíða 21
21FIMMTUDAGUR 9. september 2004
UMHVERFISMÁL Svokölluð PFS þrá-
virk efnasambönd sem teljast
hættuleg lífverum finnast hér við
land í sýnum úr fiski, hrefnu, seti
og í vatnssýnum samkvæmt nor-
rænni rannsókn. PFS er samnefn-
ari fyrir hóp efna sem berast úr
neysluvörum í umhverfið og sýnir
könnunin að mengun hérlendis er
litlu minni en hjá norrænum ná-
grannaþjóðum okkar.
Könnunin var gerð haustið 2003
og voru sýni héðan tekin í skólp-
hreinsistöðvum í Reykjavík og
vatnssýni úr sjónum utan við Gufu-
nes. Fundust PFS-efni í nánast öll-
um sýnum sem tekin voru en slík
efni berast einna helst í umhverfið
frá neysluvörum á borð við eld-
varnarefni, gólfbóni og rafmagns-
vörum. Er talið víst að efnin berist
í umhverfið með skólpi, útblæstri
og úrgangi.
Styrkur efnanna reyndist
einna mestur í sjávarspendýrum
við Danmörku og Færeyjar og
telja vísindamenn að styrkur efn-
anna þar nálgist hættumörk. Í
hrefnu sem veiddist hér við land
var styrkurinn mun minni enda
hrefna neðar í fæðukeðjunni en
grindhvalir í Færeyjum sem sýni
voru tekin úr.
Fyrir tveimur árum fór fram
sambærileg könnun á svokölluð-
um musk-efnasamböndum sem
finnast helst í hreingerningar- og
snyrtivörum en niðurstöðurnar
voru ekki afgerandi og magnið
langt undir hættumörkum. ■
Hættuleg þrávirk efni finnast í íslenskum sýnum:
Lítt betra en í
nágrannalöndum
RÓMVERJI Í SJANGHÆ
Ítalskir dagar standa nú yfir í Sjanghæ í
Kína. Þar á að sannfæra heimamenn um
ágæti ítalskrar menningar, tísku og matar.
Til að vekja athygli á þessu má sjá menn
klædda í búning rómverskra hermanna
eins og þeir litu út fyrir 2.000 árum.
Qureia um loftárásir:
Réttmætt að
hefna sín
VESTURBAKKINN, AP Ahmed Qureia,
forsætisráðherra Palestínu, sagði
að Hamasliðar
hafi fullan rétt
til að hefna sín
fyrir loftárás
Ísraelsmanna í
fyrradag sem
kostaði fjórtán
Hamasliða líf-
ið. Qureia hef-
ur verið
ó v e n j u g a g n -
rýninn á Ísra-
ela fyrir árás-
ina og þykir yf-
irlýsing hans
um rétt Hamas til hefnda athyglis-
verð, ekki síst fyrir að hann hefur
hingað til haldið vissri fjarlægð frá
samtökunum sem staðið hafa að
sjálfsmorðsárásum í Ísrael.
Qureia deilir enn við Jasser
Arafat, forseta Palestínu, um völd
sín. Fregnir herma að hann hafi
hótað Arafat afsögn á fundi þeirra
í fyrradag. Hann hefur áður hótað
afsögn en ávallt hætt við eftir við-
ræður við Arafat. ■
Bobby Fischer:
Lögbann á
framsalið
JAPAN, AP Bobby Fischer, fyrrum
heimsmeistari í skák, hefur fengið
samþykkt lögbann á áform jap-
anskra stjórnvalda um að framselja
hann til Bandaríkjanna. Japanskur
dómstóll úrskurðaði að hann skyldi
ekki framseldur fyrr en dómur
hefði fallið í málsókn hans gegn
stjórnvöldum til að fá framsalsúr-
skurðinn felldan úr gildi.
Lögmenn Fischers fögnuðu úr-
skurðinum mjög og sögðu hann sig-
ur fyrir skjólstæðing sinn. Þau
hvöttu japanska innflytjendaeftir-
litið til að áfrýja úrskurðinum ekki.
„Ef þeir gera það er ómögulegt
annað en að skilja meðferð þeirra á
þessum einstaklingi öðruvísi en í
pólitísku ljósi,“ sögðu þeir. ■
ÞÚSUND HERMENN FALLNIR Yfir
þúsund bandarískir hermenn eru
nú fallnir í
Írak frá því
innrásin í
landið hófst
fyrir um einu
og hálfu ári.
Donald Rums-
feld, varnar-
málaráðherra
Bandaríkjanna, sagði af því til-
efni að árangur hefði víða náðst í
Írak og varaði andstæðinga
Bandaríkjanna við að vanmeta
þol þeirra gagnvart mannfalli.
SEX FARAST Í LOFTÁRÁSUM Í það
minnsta tveir Írakar létust þegar
bandarískar herþotur skutu flug-
skeytum á borgina Falluja í fyrri-
nótt og gærmorgun. Daginn áður
létust fjórir og ellefu særðust í
loftárásum Bandaríkjahers.
ÚTFÖR HAMASLIÐA
Loftárás Ísraela sem
kostaði fjórtán Ham-
asliða lífið hefur vakið
mikla ólgu meðal
Palestínumanna.
■ ÍRAK
SÉÐ YFIR GUFUNES
Hættuleg þrávirk efnasambönd finnast í vatnssýnum teknum úr sjónum við nesið.
20-21 8.9.2004 15:41 Page 3