Fréttablaðið - 10.09.2004, Blaðsíða 10
10 10. september 2004 FÖSTUDAGUR
LJÓNSINS MINNST
Þrjú ár eru liðin frá því að stríðsherrann
Ahmad Shah Masood, sem stýrði uppreisn
gegn stjórn talibana í Afganistan, var ráð-
inn af dögum. Hann fékk á sínum tíma
viðurnefnið „Ljónið frá Pansjir“. Í gær
minntist fjölmargt fólk andláts hans í
þorpinu Basarak í norðurhluta landsins.
Úthýstum veitt aðstoð til að leigja á almennum markaði:
Fjórtán misst félagslegar íbúðir
HÚSNÆÐISVANDI Fjórtán leigjendum
félagslegra íbúða Reykjavíkur-
borgar hefur verið sagt upp leigu-
samningi á árinu og gert að flytja
vegna brota á reglum Félagsbú-
staða. Fjórir þeirra hafa verið
bornir út með lögregluvaldi sam-
kvæmt Sigurði Friðrikssyni fram-
kvæmdastjóra Félagsbústaða.
Ellý Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri ráðgjafarsviðs Fé-
lagsþjónustunnar í Reykjavík,
segir þá sem bornir séu út úr fé-
lagslegum íbúðum í flestum tilvik-
um hafa rétt á sérstökum húsa-
leigubótum. Þeir geti því leitað út á
almennan leigumarkað.
Ellý segir ástæðu fólks sem
flosni úr félagslegum íbúðum
margvíslegar. Áfangaheimili og
gistiskýli séu kostur sem nýtist
sumum. „Þau eru fyrst og fremst
fyrir fólk sem hefur misst fótanna,
meðal annars vegna óreglu. Við
höfum á síðustu tveimur árum
opnað tvö heimili; eitt áfangaheim-
ili og eitt fyrir heimilislausa. Þau
eru fyrir 16 manns. Við erum með
rekstur áfangaheimilis fyrir 19
manns og til viðbótar erum við með
gistiskýli og búsetu fyrir geðfatl-
aða og tökum þátt í rekstri á vernd-
uðum heimilum. Þannig að ýmis úr-
ræði eru í boði þó biðlisti sé því
miður á flest þeirra,“ segir Ellý.
Útburður sé alltaf síðasta úrræði
brjóti fólk reglur Félagsbústaða.
Ellý bendir á að félagsþjónustan sé
alltaf reiðubúin að veita fólki í hús-
næðisvanda ráðgjöf. ■
KJARABARÁTTA Erfitt er að semja
um kjör þegar viðsemjandinn veit
ekki hvað kröfurnar hans kosta,
segir Sævar Gunnarsson, formað-
ur Sjómannasambands Íslands
um Landssamband íslenskra út-
vegsmanna. Þar standi hnífurinn í
kúnni í kjarabaráttunni.
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri LÍÚ, segir ummæl-
um formanns sjómanna koma sér
á óvart: „Ég hélt að viðræðurnar
væru í öðrum farvegi en þessum.
Á síðasta fundi ríkissáttasemjara
var ákveðið að sitja yfir kjaramál-
unum alla næstu viku og mark-
miðið er að ná saman.“
Sævar segir vilja útgerðar-
manna óljósan: „Þeir hafa ekkert
reiknað í dæminu og vita ekki
hvað þeir eru að fara fram á. Það
er klárt. Sáttasemjari er búinn að
biðja báða um tölur. Við höfum
reitt þær af hendi og einnig hvað
við teljum að felist í kröfum út-
gerðarmanna í peningum en ég
hef ekki séð þessar tölur frá LÍÚ.“
Friðrik segir
tölurnar liggja
fyrir. Útvegs-
menn gefi sér for-
sendur og reikni
út frá þeim. Þær
tölur þekki Sjó-
mannasambandið.
Ekki sé hægt með
óyggjandi hætti
að segja hver þró-
unin í sjávarút-
vegi verði næstu
árin. Forsendurn-
ar sem menn gefi
sér geti því verið
misjafnar.
Sævar segir út-
vegsmenn vilja
ganga lengra en gert hafi verið
með gerðardómnum árið 2001. Þá
hafi verið tekið á fækkun mann-
afla um borð í skipunum. „En þeir
vilja meira; mikill vill meira. Þeir
vilja ganga lengra og taka það
sem sparast til sín en ekki færa
það þeim sem vinna störfin,“ seg-
ir Sævar og bætir við: „Við getum
ekki lagt fyrir okkar umbjóðend-
ur, sem þegar hafa lækkað um
nær 20% í launum frá árinu 2002,
samning sem lækkar laun þeirra.“
Friðrik segir ekki vilja útvegs-
manna að lækka laun sjómanna.
„Það vita sjómenn rétt sem Sjó-
mannasambandið. Ef þeir fá öfl-
ugri skip þá veiða þeir meira og fá
hærri laun. Við erum að tala um
að mæta breyttum aðstæðum í
sjávarútvegi.“
Sævar segir að það komi að
verkfalli sjómanna. „Við höfum
yfirleitt haft afar góða þolinmæði.
Undangengin tvö til þrjú skipti
höfum við leyft þeim að draga
okkur á asnaeyrunum í tólf til
sextán mánuði. Núna eru þeir
orðnir níu,“ segir Sævar.
gag@frettabladid.is
Forsetakosningar:
Bush heldur
forskotinu
BANDARÍKIN, AP George W. Bush
Bandaríkjaforseti hefur sjö til
átta prósentustiga forskot á
demókratann John Kerry sam-
kvæmt nýrri skoðanakönnun CBS
sjónvarpsstöðvarinnar.
Nær helmingur aðspurðra, eða
49 prósent, segjast myndu kjósa
Bush, 42 prósent Kerry og eitt pró-
sent óháða frambjóðandann Ralph
Nader. Þegar Nader var sleppt úr
upptalningunni á frambjóðendum
jókst fylgi Bush lítillega, fór í 50
prósent, en Kerry stóð í stað. Í
könnun CBS í síðasta mánuði hafði
Kerry forskot á Bush, sérstaklega
ef ekki var spurt um Nader. ■
debenhams
S M Á R A L I N D
Freistandi tilboð
Þeir sem kaupa nýja Light Diffusing farðann
og aðrar vörur frá No Name fyrir 3.500 kr. eða meira
fá kinnalit að verðmæti 1.800 kr. að gjöf.
Vertu töfrandi!
N‡i, byltingarkenndi
Light Diffusing far›inn
frá hylur
einstaklega vel og hentar
konum 25 ára og eldri
sem eru með:
• normal/flurra hú›
• ofnæmisgjarna og rau›a hú›
• ójafnan hú›lit og fínar áberandi línur
HELSTU KRÖFUR SJÓMANNA:
Uppsagnarfrestur lengdur: Er ein vika fyrstu tvö árin í allt að þrjá mánuði
Lífeyrissjóður: fái sömu hækkanir og á almennum markaði
Séreignarsjóður: fái 2% á móti heildarlaunum ekki kauptryggingu
Kauptrygging í 7 daga veikist börn
Sjúkra- og orlofssjóður verði tekinn af heildarlaunum ekki kauptryggingu
Kauptrygging hækki um 3% er 127 þúsund á mánuði
Samtals: Kröfurnar hækka launatengd gjöld um rúm 4%.
HELSTU KRÖFUR ÚTVEGSMANNA:
Tekið sé mið af tækninýjungum og aukinni afkastagetu nýrra skipa
Horft sé til breyttra þarfa markaða fiskafurða
Ákvæði um 30 tíma stopp í landi eftir hvern túr sé afnumið þar sem þeir hafi styst
Útgerð fái 3/4 hlutar og 1/4 fari til sjómanna þegar fækki í áhöfn
Sveigjanleiki samninga fyrir hvert skip vegna mismikillar afkastagetu
Netabátar þurfi ekki að stöðva veiðar aðra hverja helgi heldur geti fært dagana til
Auka verðmæti svo meira sé til skiptanna fyrir sjómenn og útgerðir
Samtals: Misjafnt eftir gefnum forsendum.
Á FUND ÚTVEGSMANNA
Formaður og framkvæmdastjóri Sjómannasambands Íslands koma á fund Landssam-
bands íslenskra útvegsmanna hjá ríkissáttasemjara.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
,,Á síðasta
fundi ríkis-
sáttasemj-
ara var
ákveðið að
sitja yfir
kjaramál-
unum alla
næstu viku
og mark-
miðið er að
ná saman.
Óljósar kröfur útvegs-
manna vandamálið
Sjómenn segja erfitt að semja um kjör þegar útvegsmenn viti ekki hvað kröfur þeirra kosti.
Útvegsmenn segja tölurnar reiknaðar út frá forsendum um framtíðarþróun sjávarútvegs.
NEÐRA BREIÐHOLT
Þeir sem missa félagslegar íbúðir borgarinnar
vegna brota á leigusamningi fá aðstoð við að
leigja á almennum leigumarkaði.
Friðargæsla:
Ráða kannski
málaliða
BELGÍA, AP Ef ríki heims útvega ekki
nógu marga hermenn til að sinna
friðargæslu í
Kongó geti það
orðið til þess að
Sameinuðu þjóð-
irnar verði að
leita til einkaaðila
til að sinna friðar-
gæslu, sagði Aldo
Ajello, sendimað-
ur Sameinuðu
þjóðanna í Mið-Afríku.
Sameinuðu þjóðirnar hafa
hingað til neitað að nota einkarekn-
ar hersveitir, öðru nafni málaliða,
við friðargæslu. Hins vegar hefur
gengið erfiðlega að fá ríki heims til
að leggja til hermenn í friðargæslu
og hefur það leitt til þess að lítið
hefur gengið að koma upp nægi-
lega öflugu friðargæsluliði í
Kongó. ■
GÆSLULIÐAR Á
LEIÐ TIL KONGÓ
10-11 9.9.2004 21:58 Page 2