Tíminn - 25.09.1973, Qupperneq 4

Tíminn - 25.09.1973, Qupperneq 4
4 TÍMINN Þriðjudagur 25. september 1973 ' ★ Ekki skilnaður Fabióla Belgiudrottning hefur nú i fyrsta sinn sagt eitthvað opinberlega um allar þær sögur sem ganga um samband eigin- manns hennar, Baudoins kon- ungs við italska ballettdans- mær, Liliana Cosi. Drottningin sagði: Enginn getur eyðilagt hjónaband okkar. Ekki heldur Liliana Cosi. En hún er stór- kostleg dansmær og bæði ég og maðurinn minn erum mjög hrif- in af henni sem slikri. Meö þess- um orðum reyndi drottningin að visa öllum sögusögnum á bug. En hitt er vist, að þegar konung- urinn hafði séð Liliönu dansa i Milano, bauð hann henni til Brusseí. Er þau voru á gangi i hallargarðinum, sleit hann þrjár gular rósir og afhenti henni með þessum oröum: Við þurfum góða ballettdansmær hér i Brussel. Nú verðið þér að velja, Milanó eða Brussel. En Liliana hefur enn ekki valið. * Á frumsýningu Þótt hún Athene litla, sem er að- eins þriggja ára, viti ekki ýkja mikið um lifið og tilveruna, þá veit hún þó með vissu, að við kláða er eiginlega ekki til nema eitt gott og óbrigöult ráð, og hún er ekkert feimin viö að nota það, eins og sjá má á meðfylgjandi mynd. Hún á kannski einhvern tima eftir að roöna, þegar hún skoðar þessa mynd, en hvað er annað hægt að gera i svona til- felli? Og Anna Bretaprinsessa brosir auðvitað bara blitt og þakkar Athene fyrir blómin, en tilefnið var mjög svo hátiðleg frumsýning ónefndrar kvik- myndar. Frúin er skipstjórinn A pólska skipinu „Bieszczady” (reynið ekki að bera nafnið fram, ykkur gæti svelgzt á), sem er i kolaflutningum milli Stettin og Hamborgar, þar er það kona sem ræður rfkjum. Skipstjórinn er kona, sem heitir Danuta Kobylinska, og stendur hún vel i stöðu sinni. A skipinu eru reyndar lika eiginmaður hennarog sonur, þeir eru skráð- ir meðlimir áhafnarinnar, — en sem sagt, frúin ræður! * Prinsinum bannað að aka Nú finnst Júlfönu Hollands- drottningu nóg komið. Hún hef- ur bannað manni sinum, Bern- harði prinsi, að snerta framar á bfl. Það er kannski ekki furða, þvi hann hefur fimm sinnum lent i alvarlegum umferðarslys- um. Nýlega rakst prinsinn beint framan á annan bil i ftaliu. Prinsinn var i Ferrari-sport- bilnum sinum og hafði bilstjóra sinn með sem farþega. Prinsinn skarst nokkuð. Hann hefur svo sem áður fengið konunglega að- vörun. Þegar hann fyrir fjórum árum ók aftan á bfl, bannaði tengdamóðir hans, Vilhelmina drottning honum að aka hraðar en 40 km á hraðbrautum. Hún vissi kannski hvað hún var aö segja, þvi að fimm árum áöur ók prinsinn aftan á lögreglubil. En skyldi öðrum ökumönnum á hraðbrautum ekki leiöast, ef einn ekur á 40 km hraða, þó að hann sé prins.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.