Tíminn - 25.09.1973, Síða 7
Þriöjudagur 25. september 1973
TÍMINN
7
Þetta var algeng sjón i nýju hverfunum, uppistööur og annaö fokiö um
Það þarf mikið átak til að rifa upp iæsingu og festingar á farangursioki
á Fólksvagni. En ein vindhviða var ekki lengi aö þvf.
ins, sem hann býr i á fimmtu hæð,
hefði komið stór trébútur, yfir
lOkgá þyngd. Hann hafi mölbrot-
iðrúðuna i þessari hæð, og á örfá-
um sekúndum hafi herbergið
orðið eins og eftir loftárás.
Myndir hafi fallið af veggjum,
bækur og munir fallið i gólfið og
gluggatjöldin hreinlega rifnað
frá með uppsetningunni og öllu
saman.
Flugvélar tjóðraðar á
Reykjavikurflugvelli
Mikið var um það, að bilar
fykju til hliðar og á aðra bila, og
var það ekki siður i miðborginni
en i úthverfum hennar. Þó mun
veðurofsinn hvergi hafa verið
eins mikill og i Breiðholtinu, en
víða annars staðar varð einnig
mikið tjón á mannvirkjum.
A Reykjavikurflugvelli hrundi
einn braggi, sem nokkuð var
kominn til ára sinna. Inni i
bragganum var bifreið, sem
skemmdist. Engar flugvélar fóru
á loft, en þó munaði ekki miklu
með eina þeirra, sem fór að færa
sig úr stað i fyrstu hrinunum, og
skemmdist hún nokkuð.
Hún var tjóðruð niður eins og
allt annað lauslegt, sem talið var
að gæti farið af stað. Viða um bæ-
inn slitnuðu tré upp með rótum,
og á einum stað fréttum við af
stórum túnbletti, sem þökur
höfðu verið settar á fyrr i sumar.
Þar var ekki ein einasta eftir,
þegar að var gáð i gærmorgun.
Stórskemmdir i
Straumsvik — geta haft
alvarlegar afleiðingar.
Hjá álverksmiðjunni i
Straumsvik urðu töluverðar
skemmdir á húsum. Hluti af þaki
mötuneytisins fauk, svo og hluti
af þaki skrifstofunnar.
Alvarlegasta tjónið þar varð
þó, er stóri löndunarkraninn losn-
aði og slóst utan i færibandið á
bryggjunni. Kraninn er allur bog-
inn eftir höggin, sem hann hlaut
af þvi að slást i færibandiö, og er
talið mjög erfitt að gera við hann.
Þegar i gær var skipi, sem var
á leið til Straumsvikur með um
9000 tonn af hráefni, snúið við, þvi
ekki er hægt að losa það fyrr en
kraninn kemst i lag. Talið er, að
vel megi halda áfram til að hann
verði tilbúinn eftir mánuð, en ef
svo verður ekki, mun verksmiðj-
an stöðvast vegna hráefnisskorts.
Eigendur húsa, sem voru i byggingu i Breiðholti, bera saman ráö sin.
Hannes Hafstein hjá Slysa
varnafélaginu sagði, að allt hefði
gengið að óskum hjá þeim bátum,
sem voru á sjó á sunnudaginn og
aðfaranótt mánudagsins.
Fylgzt hefði veriö með öllum
bátum, sem vitað var um að
væru á sjó, og hefði enginn þeirra
orðið fyrir áföllum.
Um tima hefði þó verið óttazt
um tólf tonna bát, Sleipni SU 88,
sem á voru tveir menn.
Hann var á Meðallandsbugt, en
hélt sjó við Skaftárósa ásamt öðr-
um bátum, sem þarna voru.
Menn á hinum bátunum fylgdust
Báturinn hékk á einum
kaðli
Við bryggjuna i Kópavogi
skemmdust tveir bátar frá Vest-
mannaeyjum, Ver og öðlingur,
þegar veðrið var hvað verst.
Þarna við bryggjuna var einnig
þriðji báturinn, Geirfugl frá
Grindavik, og sleit hann af sér öll
bönd og var að reka frá landi,
þegar menn, sem staddir voru á
bryggjunni, náðu að krækja i
hann með einum kaðli. A þessum
kaðli hékk svo báturinn þar til
snemma um morguninn, að menn
komust um borð og gátu bundið
hann betur.
Eins og viða annars staðar var
mikið um járnplötufok i Kópa-
vogi. Af a.m.k. tveim fjölbýlis-
húsum fóru allar plötur af þökun-
um, og einnig fauk mikið af plöt-
um af starfsmannahúsi Kópa-
vogshælis, og einnig af einum
skólanum.
Samkvæmt uppl. rannsóknar-
lögreglunnar þar, var mikið af
kærum og kvörtunum vegna
skemmda á bilum af völdum járn
platna eða annarra hluta, að ber-
ast i gær.
Um tima var óttazt um
tvo litla báta
vel með þeim litla á meðan veðrið
var sem verst, og allt gekk að
óskum.
Báturinn var i gær á leið til
Vestmannaeyja ásamt varðskipi
og fleiri bátum, sem voru á
þessum slóðum.
Þá var um tima óttazt um 4
tonna bát, sem ber nafnið Latur
EA 119. Var einn maðuránonum,
og var hann á veiðum á Grims-
eyjarsundi.
Talið var, að hann hefði leitað
vars i Flatey, en þangað var ekki
hægt að ná sambandi vegna
bilunar á ljósvélinni þar. Um sið-
ir tókst þó að ná sambandi þang-
að, og var þá staðfest, að báturinn
og maðurinn væru báðir heilir
á húsi i eynni.
Mikið tjón hjá smábáta-
eigendum
Hvorki meira né minna en
fimmtán trillur sukku eða rak
upp i fjörur i Hafnarfirði. Eigend-
ur báta þar kepptust við að halda
bátum sinum á floti og verja þá
skemmdum, og tókst mörgum
það, en aðrir urðu að sjá á eftir
sinum bátum fara i kaf eða reka
upp i fjörur.
1 Reykjavikurhöfn sukku einn-
ig nokkrir bátar. Þar var mikið
um að vera meðan veðrið var sem
verst, og mesta mildi að ekki
hlutust slys af, þvi veðurhæðin
varð stundum slik þarna á
bryggjunum að menn máttu hafa
sig alla við að halda sér.
Maður sem við töluðum við,
sagðist hafa séð einn mann takast
á loft og kastast út fyrir bryggj-
una, en sá hafði gott tak á kaðli,
sem hann hafði bundið i ljósa-
staur, og tókst honum að vega sig
upp aftur á honum.
1 Hafnarfirði urðu ekki nein al-
varleg slys á fólki, að sögn lög-
reglunnar þar. Þó mun einn mað-
ur hafa skorizt mjög illa á hendi,
er • vindhviða feykti járnplötu,
sem hann var að bisa með, á hönd
hans.
1500 hænur fuku út i
veður og vind.
Hænsnabú með um 3000 hænsn-
um að Eiliðahvammi við Vatns-
enda fauk i veðrinu i fyrrinótt.
Taiið er að um 1500 hænsni hafi
Framhald á bls. 8.
Ef hluturinn sjálfur gaf sig ekki, þá létu festingarnar undan.
koll.