Tíminn - 25.09.1973, Blaðsíða 14
14
TÍMINN
Þriðjudagur 25. september 1973
Hans Fallada:
Hvaðnú,ungi maður?
87
Þýðing Magnúsar Ásgeirssonar
á svipinn eins og hann vildi biðja
allan heiminn fyrirgefningar á
þvi, að hann skyldi yfirleitt vera
til. Þetta tók Pússer enn sárara,
þvi að auðvitað á Hannes ekki að
biðja hana um fyrirgefningu.
Hann og hún erú eitt og hún veit
svo vel, alltof vel, hvað það er,
sem að honum amar.
Samt sem áður er sárt að hugsa
tii þess, hvað allt er orðið breytt.
Aður beit eiginlega ekkert á þau,
þótt eitthvað misjafnt kæmi fyrir.
Þau voru ung og ástfangin, og þau
tóku ekki mark á þvi, þótt eitt-
hvað gengi skrykkjótt þá og þá
stundina, af þvi að þau væntu svo
bjartrar og góðrar framtiðar. En
nú orðið----Auðvitað voru þau
ástfangin enn. Ef til vill var ást
þeirra heitari og sterkari en
nokkru sinni fyrr, en ljóminn var
horfinn. Hvernig áttu þau að
hlæja og vera bjartsýn, þegar
hver nýr dagur færði þeim ekki
annað en nýjar auðmýkingar og
nýjan kviða um hag þeirra og af-
komu?
Þessu gæti nú öllu saman verið
réttlátlegar fyrir komið! hugsar
Pússer.
Einmitt þegar hún hugsar
þetta, heyrir hún hávært rifrildi
niðri i garðinum Það er meistari
Puttbreese, sem á þar orðastað
við kvenmann, og Pússer finnst
einhvern veginn hún kannast
furðu vel við kvenmannsröddina.
Nú kallar Puttbreese upp til
hennar, að einhver vilji tala við
hana. Pússer gengur út á loft-
skörina og horfir niður. Fyrir
neðan stigann stendur tengda-
móðir hennar i nærskornu brúnu
pilsi og jakka, með litinn, kank-
vislegan hatt, sem hallast út i
annan vangann yfir feitu, út-
blásnu andlitinu. Hún sýnist vera
i hinum mesta vigahug, svo að
Pússer heilsar henni svo vin-
gjarnlega sem hún getur og flýtir
sér að segja henni að Hannes sé
ekki heima.
,,,Er það kannske tilætlunin, að
ég eigi að hima hérna niðri?”
spyr tengdamóðirin, gröm i
bragði, og enn gramari verður
hún, þegar Pússer fer að gefa
henni leiðbeiningar um uppgöng-
una. ,,Er enginn annar uppgang-
ur?” spyr hún. Og þegar Pússer
hristir höfuðið, fnæsir hún háðs-
lega og segir: ,,Nú fer ég að skilja
það betur, hvers vegna þið laum-
uðust burtu úr þessari indælu
ibúð, sem ég lét ykkur hafa. Þið
hafið vitað hvað við ykkur átti!”
Pússer opnar dyrnar að stof-
unni og segir, að ef Hannes hafi
ekki aukavinnu i kvöld, geti hann
verið kominn heim eftir kortér.
Hún vill ekki láta á þvi bera, að
HVELL
i
G
þessi heimsókn hafi slæm áhrif á
hana, þvi að hvers vegna ætti hún
að vera hrædd við tengdamóður
sina? En samt er hún það nú.
„Viltu ekki fara úr?” spyr hún.
Tengdamóðirin, frú Pinneberg,
stendur i miðri stofunni og starir
rannsóknaraugum á það lítið af
húsgögnum, éem þar er inni.
„Nei, þakka þér fyrir,” segir hún.
„Eftir það„sem fyrir hefir komið
á milli okkar, sé ég enga ástæðu
til að haga mér eins og ég væri að
koma i heimsókn til ykkar.” Sið-
an horfir hún isköldum
hneykslunaraugum á sofandi
barnið og segir: „Nú, ég sé að þið
eruð samt byrjuð á þvi, að pota
börnum inn i heiminn! Maður
skyldi ekki halda, að þið væruð
nútimafólk! En þið skuluð bara
fylla tylftina, ef þið hafið gaman
af þvi!”
Pússer réttir úr bakinu og
kreppir hnefana. „Það er okkar
einkamál, hvað mörg börn við
eigum,” segir hún. „Við eigum
hvort sem er að sjá fyrir þeim.”
FrúMiaerekki við svona her-
skáu svari búin. 1 bili litur hún út
fyrir að ætla að breyta um
hernaðaraðferð. „Æ, góða min,
við skulum nú ekki fara að
rifast,” segir hún, hlammar sér
niður og hneppir jakkanum irá
sér. „Ég er vön að segja það,
sem mér býr i brjóti, og þvi býst
ég við að halda áfram — Segðu
mér nú alveg eins og er: Hvar er
Jachmann?”
Pússer getur ekki stillt sig um
að hálf-brosa. Drottinn minn dýri,
þetta var þá ástæðan til
heimsóknarinnar. Já, gamall
málsháttur segir, að lengi lifi i
kolunum. Þegar öllu var á botn-
inn hvolft. „Eg hefi ekki hug-
mynd um hvar Jachmann er,”
segir hún siðan. „Fyrir sjö - átta
vikum var hann hérna, eina eða
tvær nætur, en síðan höfum við
hvorki séð hann né heyrt.”
„Svo-o?” Frú Mia virðir hana
fyrir sér frá hvirfli til ilja'með
fyrirlitningaraugum. Þú ætlar þá
að telja mér trú um að þið vitið
ekki, hvar hann er nú niður
kominn?”
„Við höfum ekki hugmynd um
það.”
Frú Pinneberg, tengdamóður,
verður allt i einu heitt, og fer
alveg úr jakkanum. „Og hvað
borgarhann ykkur svomikiðfyrir
aö halda ykkur saman?” spyr
hún hægt og rólega.
Reiðin sýður i Pússer bæði yfir
orðalaginu og hreimnum.
„Svona spurningum svara ég
ekki!” segir hún og gengur út að
glugganum. Hún stendur þar og
snýr baki að tengdamóður sinni
lEftir
og hlakkar til að Hannes komi
heim. Henni finnst, að hún geti
ekki sjálf rekið móður hans á
dyr, en hún er viss um að hann
muni gera það.
A bak við hana kallar frú Mia
skrækri röddu: „Ef ég sendi eftir
lögreglunni, gæti ég trúað að það
kæmi annað hljóð i trokkkinn. Þið
vitið það alveg eins vel og ég, að
Jachmann er falsspilari og fjár-
glæframaður, og lögreglan hefir
gefið út sakamannslýsingu af
honum. Það liggur hegning við
þvi að hýsa þess háttar fólk, —.þú
veizl það kannski ekki heldur?”
Og þegar Pússer svarar ekki,
heldur hún áfram enn háværari og
skrækari en fyrr: „Ja, hann
hlýtur að vera djúpt sokkinn,
þessi fyrirmyndar sonur sem á á,
úr þvi að hann gerir sér að góöu,
að svona persóna haldi við kon-
una hans!”
Það er alveg komið að Pússer,
að reka það framan i tengda-
móður sina, hvað sonur hennar
hefir oröið að þola vegna ólifn-
aðar móður hans með karl-
mönnum af langtum lakara tagi,
en hvers vegna ætti hún að fara
að róta i þeim óþverra? Það er
bezt að láta frú Miu um þetta allt
saman.
En frú Mia er allt i einu hjöðnuð
niður eins og ýlubelgur, sem
stungið hefur verið gat á.
„Pússer!” segir hún i bænar-
romi, „Pússer! Ef þú veizt það,
þá segðu mér það. Ég grátbæni
þig um það.” Hún teygir arm-
leggina með leikrænum tilburð-
um eftir bakinu á Pússer.
Pússer veit ekki hvernig hún á
að sannfæra hana, en hún snýr
sér að henni og horfir fast i augun
á henni. „Ég veit það ekki. Það
er alveg satt að ég veit það ekki.
Þær horfa lengi hvor á aðra.
Svo stynur frú Mia þungun. „Jæja
ég verð að trúa þér, en segðu mér
eitt. Var hann ekki nemai tvær
nætur hérna?”
„Eftir þvi sem ég man bezt, var
hann ekki hérna, nema eina
nótt,” svarar Pússer. „Við höfúm
haft svo margvislegar áhyggjur
upp á siðkastið, að ég get ekki
munað það, sem ekkert varðar
okkur sjálf.
„Hvað sagöi hann um mig? Þú
hlytir þó að muna, ef hann hefði
hellt sér út yfir mig.”
„Ég held, að hann hafi ekki
einu sinni nefnt þig á nafn — að
minnsta kosti ekki svo að ég
heyrði,” segir hún eftir augna-
bliks umhugsun.
„Já, einmitt.” Tengdamóðirin,
frú Pinneberg horfir fram undar
sér, og nú verður henni aftur litið
á vögguna, þar sem barnið sefur.
„Þetta er annars allra indælasti
krakki. Er það drengur eða
stúlka?”
„Drengur,” segir Pússer og er
hissa en ekki glöð yfir þessum
áhuga, sem frú Mia fær allt i einu
fyrir barninu. „Hann heitir Horst,
en við köllum hann Dengsa.”
Frú Mia litur upp frá vöggunni
og skimar um alla stofuna. Það er
eitthvert leitandi eirðarleysi i
augnaráðinu, en allt i einu dvelja
augu hennar við skápinn, þar
sem koffort Jachmanns standa og
1508
Lárétt
I) Dimmar.— 5) Reik,— 7)
Kall,— 9) Ræktunarsvæði.—
II) Snikjudýr.— 13) Kraftur,—
14) Stelpa,— 16) Eins.— 17)
Tjón.— 19) Spila,—
Lóðrétt
1) Virkjunarfljót. 2) Eins.—
3) Kukl.— 4)b Veiða.— 6)
Lóðrétt
1) Brokka. — 2) NS,— 3)
Als.— 4) Nóni,— 6) Trunta. —
8) Fór,— 10) Annir.— 12)
Rass.— 15) MLI,— 18) Eg,—
Fuglinn.-
Skakkt.-
Uppeldi.-
8) Blása,-
12) Há.—
18) Tónn.—
10)
15)
Ráðning á gátu No. 1508
Lárétt
1) Banana,— 5) Sló.— 7) Of,—
9) Snar,— 11) Kór,— 13) Inu.-—
14) Kram.— 16) NN.— 17)
Sleit.— 19) Ósigra.—
Biddu vinur. Þú
munt sjá nóg plútóniu
til að veita
nýlendum á Mars
orku.^s,,);
>
1
/ \ >Það er rétt,
um) jjrófessor en
þaðerekki'^
^3ér._
"mzik
7----------;--------------------^i
Þessi ræningi skaut Jim. Við 1
R fe
E
K
| Farinn...Xf jim er illa særður.
Hann slapp i.Sjúkrabil,fljóttA
Zokko.
Þegar ég kom var byssa j
Zokkis á gólfinu. Hvers . J-
Bliliiliil
Þriðjudagur
25. september
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl.7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.45.
Morgunleikfimi kl. 7.50.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Sigurður Gunnarsson
les framhald „Sögunnar af
Tóta” eftir Berit Brænne
(12). Tilkynningar kl. 9.30.
Létt lög á milli liða. Við sjó-
inn kl. 10.25: Sturlaugur
Daðason verkfr. talar um
lagfæringar i hraðfrystihús-
um og athuganir á hafnar-
sjó og vatni i hraðfrystiiðn-
aði. Morgunpopp kl. 10.40:
The Sweet leika og syngja.
Fréttir kl. 11.00. Hljóm-
plöturabb (endurt. þáttur
G.J.)
12.00 Dagskrá. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Eftir hádegið. Jón B.
Gunnlaugsson leikur létt lög
og spjallar við hlustendur.
14.30 Siðdegissagan: „Hin
gullna framtið” eftir Þor-
stein Stefánsson.Kristmann
Guðmundsson les (7).
15.00 Miðdegistónleikar:
Pianóleikur Vladimir
Ashkenazý leikur Sinfónísk-
ar etýöur op. 13 eftir Schu-
mann og „Myndir á sýn-
ingu” eftir Mússorgský.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Popphorniö.
17.05 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.20 Fréttaspegill.
19.35 Umhverfismál. Hrafn-
kell Eiriksson fiskifræðing-
ur talar um sjávarlif
Breiðafjarðar.
19.50 Lög unga fólksins.
Sigurður Garðarsson kynn-
ir.
20.50 tþróttir. Jón Asgeirsson
sér um þáttinn.
21.10 Trió i Es-dúr (K 498) eft-
ir Mozart. Gervase de
Peyer leikur á klarinettu,
Cecil Aronowitz á viólu og
Lamar Crowson á pianó.
21.30 Skúmaskot. Hrafn
Gunnlaugsson sér um þátt-
inn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir.. Eyjapist-
ill.
22.35 Harmonikulög Arnt
Haugen og félagar hans
leika.
23.15 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
MBiiiill
Þriðjudagur
25. september
20.00 Fréttir.
20.25 Veður og auglýsingar.
20.30 Heima og heiman. Nýr,
brezkur framhaldsmynda-
flokkur. 1. þáttur. Svalir
vindar. Þýðandi Dóra Haf-
steinsdóttir. Aðalpersónan
er rúmlega fertug hús-
móðir. Eiginmaður hennar
hefur komið sér vel áfram i
lifinu og er stöðugt önnum
kafinn. Börnin fjögur eru að
verða fullorðin, og samband
þeirra við heimilið verður
sifellt lauslegra. Húsmoður-
hlutverkið verður æ ein-
manalegra og loks ákveður
hún að finna sér verkefni
utan veggja heimilisins.
21.20 Hver á að ráða?
Umræðuþáttur i sjónvarps-
sal um nýja löggjöf varð-
andi fóstureyðingar.
Umræðum stýrir Eiður
Guðnason.
22.00 iþróttir. Umsjónar-
maður Ómar Ragnarsson.
Dagskrárlok óákveðin.
Auglýsicf
i Tímanum