Tíminn - 25.09.1973, Blaðsíða 16

Tíminn - 25.09.1973, Blaðsíða 16
16 TÍMINN Þriöjudagur 25. september 1973 Kjærbo harður af sér að vanda borbjörn Kjærbo sýndi enn einu sinni sitt mikla keppnisskap, er hann sigraði i Meistarakeppni Fí i golfi, sem fram fór á Grafar- holtsvelli um helgina. t þessari keppni tóku eingöngu þátt þeir kylfingar, sem hlotið hafa meistaratitla á undanförnum árum, og mættu 13 þeirra i þetta sinn. A laugardagsmorgun hófst keppnin með 18 holu höggleik. Þeir, sem skipuðu 8 fyrstu sætin i þeirri keppni, unnu sér þar með rétt til þátttöku i A-riðli mótsins, en hinir urðu að leika i B-riðli. 1 þessum undanúrslitum kom fátt á óvart, nema þá helzt það, að Einar Guðnason, GR, lék 18 holurnará 89höggum og lenti þvi i B-riðli. Annars urðu úrslit þessi: Þorbjörn Kjærbo, GS 76 Hans ísebarn, GR Ragnar Ólafsson, GR Gunnlaugur Ragnarssson, GR 80 Július R. Júliusson, GK 80 Björgvin Þorsteinsson, GA 81 Pötur Antonsson, GS, 81 Gunnar bórðarson, GA 82 Ólafur Bjarki, GR 83 Atli Aðalsteinsson, GV 86 Jóhann Ó. Guðmundsson, GR 88 Einar Guðnason, GR 89 Viðar Þorsteinsson, GR 91 Strax á eftir hófst holukeppni i báöum riðlunum. Þar lék einn á móti einum, og féil sá úr leik, sem tapaði. 1 fyrstu umf. urðu úrslit þessi i A-riðli: Július R. sigraði Hans tsebarn 2:1, Ragnar ólafsson sigraði Pétur Antonsson 4:3, Gunnlaugur Ragnarsson sigraði Gunnar Þórðarson 5:3 og Þorbjörn Kjærbo sigraði tslands- meistarann i ár, Björgvin Þor- steinsson, 2:0. t undanúrslitum lék Július R. við Ragnar Ólafsson, og sigraði Július 2:1, og Þorbjörn sigraði Gunniaug Ragnarsson 3:2. Úrslit- in urðu þvi á milli Þorbjarnar og Júliusar, og lauk þeirri keppni með sigri Þorbjarnar 5:3. Bæði úrslitin og undanúrslitin voru leikin i vitlausa veðrinu á sunnudag og þá fór einnig fram keppni i B-riðli. Þar urðu nokkur forföll, en úrslitin i þessum riðli voru á milli Einars Guðnasonar og Jóhanns Ó. Guðmundssonar, og lauk þeirri keppni með sigri Einars. Hart barizt um veizluna á Hótel Esju Keppni um Veitingabikarinn hjá Golfklúbbi Ness fór fram i fallegu veðri á laugardaginn. Keppendur voru um 40 talsins, og háðu þeir harða keppni um 1. verðlaunin, sem hljóðuðu m.a. upp á matarboð að Hótel Esju. Úrslit urðu þau, að Þórður As- geirsson, fyrrum landsliðsmark- vörður i knattspyrnu og leik- maður með Þrótti, sigraði. Hann lék á 70 höggum nettó (44:50^-24 = 70) 1 næstu sætum voru Sverrir Guðmundsson, Kjartan L. Páls- son og Jón Ólafsson, sem voru allir á 71 höggi nettó. Beztan 18 holu hring hafði Loftur ólafsson, en hann hefur sjaldan mikla möguleika á að vinna sér inn verðlaun i for- gjafarkeppni, þar sem hans for- gjöf er ekki nema þrir. Enska knattspyrnan: BAKVERÐIRNIR SKORUÐU ÞRJÚ MÖRK FYRIR LIVERPOOL Heppnin var með Liverpool gegn Tottenha stigi —Stórsigur Derby gegn Dýrlingunum AllORFENDURNIR á Anfield Itoad i Liverpool stóðu á öndinni á 75. minútu leiks Liverpool og Tottenham, þegar vitaspyrna var dæmd á Tottenham, sem hafði þá yfir, 2:1. Menn mundu svo sannarlega eftir Pat Jennings, hinum snjalla markverði Totten- ham, en hann varði tvær vita- spyrnur sl. keppnistimabil á An- ANÚIS 7helsea. LKE...skoraði tvö mörk fyrir Manchester City gegn lega vel yfir 50 menn hafa leikið á Grafarholtsvellinum þennan dag. Þar fór þá m.a. fram keppni milli Loftleiða, Flugfélags ís- lands og BP. Keppnin var anzi hörð til að byrja með, eða þar til þrir Loftleiðamenn gáfust upp vegna verðurs, en þar með misstu Loftleiðir svo margamenn úr liði sinu, að ekki var liægt að telja höggin nema hjá hinum, en þarna voru 9 beztu skor hjá hverju firma tekin. Úrslitin urðu þau, að BP sigraði á samtals 928 höggum, en Flug- félagið var á 935 höggum. Þetta er 7. árið I röð, sem golf- keppni á milli þessara fyrirtækja fer fram, en aldrei fyrr hefur hún verið i veðri sem þessu. BP sigraði i keppni þeirra stóru 1 ofsaveðrinu á sunnudaginn, þegar varla nokkur heilvita maður treysti sér út úr húsi létu golfarar sig hafa það að fara út og leika nokkrar holur. Að visu voru þaö ekki margir, en þó munu lik- Þjónarnir slógu um sig t siðustu viku fór fram mikið golfmót á velli Golfklúbbs Ness á Seltjarnarnesi. Þar áttust við starfsmenn i veitingahúsum borgarinnar — flest allt þjónar, en þó fékk einn og einn útkastari að fljóta með. Úrslit i þessu móti urðu þau.að Sveinn Sveinsson, Hótel Sögu, sigraði. Annar varð Ómar Halls- son, Glæsibæ, en þetta var þá i annað sinn, sem hann kom á golf- völl. Þriðji varð svo Gunnar Kvaran, Röðli, sem einnig fékk aukaverðlaun fyrir að vera næst holu i einu höggi á 6. braut. Hann var rúmlega niu metra frá — i sandgryfju — en það nægði hon- um samt, þvi hinir 20 keppend- urnir náði heldur ekki inn á flötina i fyrsta höggi. Siðasta opna mótið i ár Siðasta opna golfmótið hér á landi á þess ári fer fram á Jaðarsvellinum á Akureyri um næstu helgi. Þetta mót er Flug- félagskeppni GA, sem er 36 holu keppni, og verða veitt verðlaun, bæði með og án forgjafar. Vitað er um nokkra sunnan- menn, sem ætla að taka þátt i þessu móti, en annars má búast við allgóðri þátttöku, þvi Jaðars- völlurinn mun vera i mjög góðu ástandi um þessar mundir, og hann er alltaf skemmtilegur viðureignar, hvernig sem viðrar. m — Leeds tapaði field i sama leiknum. Það var „þr u m ubombar in n ” Emlyn Hughes, sem stillti knettinum upp og spyrnti að marki — knötturinn stefndi I netið, en á síðustu stundu kastaði Jennings sér og varði glæsilega. Leikmenn Tottenham og áhangendur liðsins fögnuðu geysilega, en sá fögnuður stóð ekki lengi, þvi að dómarinn lét endurtaka spyrnuna — taldi að Jennings hefði hreyft sig. Alec Lindsay endurtók spyrn- una og skoraði örugglega jöfn- unarmark Liverpool. Sigurmark Liverpool kom siðan rétt fyrir ieikslok frá Chris Lawler, sem skoraði einnig fyrsta mark Liver- pool. Það voru þvi bakverðir Liverpool, sem skoruðu öll mörk liðsins. Mörk Tottenham skoruðu þeir Martin Peters og Martin Chivers. Úrslitin i ensku 1. deildinni urðu þessi á laugardaginn: 1. deild Arsenal—Stoke Coventry—Newcastle Derby—Southampton Ipswich—Burnley Leeds—Manch. Utd. Liverpool—Tottenham Manch. City—Chelsea QPR—Birmingham Sheff. Utd —Norwich West Ham—Leicester Wolves—Everton 2-1 2-2 6-2 3-2 0-0 3-2 3-2 2-2 1-0 1-1 1-1 Skozki landsliðsmiðvörðurinn Jim Holton átti snilldarleik með Manchester United gegn Leeds á laugardaginn, þegar United varð fyrsta liðið til að hirða stig af hinu sterka Leeds-liði á keppnistima- bilinu. United-liðið lék mjög sterkan sóknarleik og tókst að halda hinum snjöllu sóknarleik- mönnum Leeds niðri, og lauk leiknum með markalausu jafn- tefli. Það var ekki markalaus leikur há Derby og Southampton. Þar fengu áhorfendur að sjá átta mörk. Derby-liðið, sem er liklegt til að veita Leeds harða keppni um Englandsmeistaratitilinn, vann stórsigur gegn Dýrlingun- um. Sex sinnum sendu leikmenn Derby knöttinn i netið. Drýgstur við það var landsliðsmaðurinn Kevin Hector, sem skoraði þrjú mörk. Hin mörkin skoruðu þeir Roger Davies, tvö, og Alan Hin- ton, eitt. Fyrir Dýrlingana skor- aði O. Neill bæði. Lundúnaliðið Arsenal er nú að ná sér eftir slæma byrjun, liðið vann sinn þriðja leik i röð á heimavelli sinum gegn Stoke. Al- an Ball skoraði sigurmark liðsins við geysiiégan fögnuð áhorfenda. Fyrst skoraði John Radford fyrir Arsenal, en fyrirliði Stoke, Jimmy Greenhoff, jafnaði. Burnley tapaði sinum fyrsta leik á laugardaginn, þegar liðið heimsótti Ipswich. Ahorfendur könnuðust nú loksins við leik- menn Ipswich-liðsins, sem léku mjög vel gegn hinu skemmtilega Burnley-liði. Bryan Hamilton kom heimamönnum á bragðið með tveimur laglegum mörkum. Leigton James minnkaði muninn i 2:1, en Harper kom heimamönn- um i 3:1. Collins átti lokaorðið i leiknum og minnkaöi muninn i 3:2. Derek Dougan skoraði jöfn- Úrslita- leiknum frestað Úrslitaleiknum i 3. deild i knatt- spyrnu á milli Reynis frá Sand- gerði og Isafjaröar, sem átti að fara fram í gærkveldi á Mela- vellinum var frestaö vegna veðurs. Tilraun verður gerð til að láta leikinn fara fram I dag kl. 15,00 á sama stað ef veður verður gott. CIIRIS LAWLER...skoraði sigur- mark Liverpool. unarmark úlfanna gegn Everton. Úlfarnir eru ekki i essinu slnu þessa dagana, liðið er nú I þriðja neðsta sæti i 1. deildinni. Það var ekki fyrr en að Joe Royle, há- vaxni miðherjinn hjá Everton, skoraði, að úlfarnir fóru að átta sig á hlutunum. Mikil stemmning var á áhorf- endapöllunum, þegar Manchester City og Chelsea mættust. Ahorf- endur fengu að sjá fimm mörk skoruð á aðeins tólf mlnútum. Þau komu I siðari hálfleik, þegar Towers og Lee komu City 2:0. yf- ir. Síðan skoraði Tommy Baldvin fyrir Chelsea. Lee bætti þriðja marki City við úr vltaspyrnu, en Baldvin minnkaði muninn I 2:1. Frank Worthington kom i veg fyrir að West Ham ynni sinn fyrsta leik i ensku 1. deildinni, þegar hann jafnaði 1:1 eftir varnarmistök Tommy Taylors, miðvarðar Lundúnaliðsins. „Pop” Robson skoraði mark West Ham. Queens Park Rangers gerði fimmta jafnteflið, þegar liðið lék gegn Birmingham. Mörk liðsins skoruðu þeir Stan Bowles og Rog- er Hynd (sjálfsmark). Fyrir Birmingham skoruðu þeir Burns og Latchford. Coventry og Newcastle gerðu jafntefli, 2:2, I skemmtilegum leik. John Tudor og MacDonald skoruðu fyrir Newcastle, en Alderson og Stein fyrir heima- menn. Úrslitleikjanna i ensku 2. deild- inni voru þessi: 2. deild AstonVilla—Orient 2-2 Blackpool—Middlesbro 0-0 BristolCity—Sheff. Wed 2-0 Carlisle—Oxford 2-1 C. Palace—Cardiff 3-3 Hull City-WBA 0-0 Nottm. For,—Preston 1-1 Portsmouth—Notts. C. 1-2 Sunderland—Luton 0-1 Swindon—Millvall 1-3 ...Þátttöku islenzkra knattspyrnuiiða I Evrópukeppnunum i knattspyrnu fer nú senn að ljúka....

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.