Tíminn - 25.09.1973, Blaðsíða 17

Tíminn - 25.09.1973, Blaðsíða 17
Þriöjudagur 25. september 1973 TÍMINN 17 BJölUiVIN BJ ÖRGVINSSON.. sést hér skora gegn IR. Hann skoraði mörg gullfalleg mörk i leiknum. (Tfmamynd Róbert) Einar er byrjaður Hann skoraði fyrsta mark Reykjavíkurmótsins í handknattleik, Víkingur vann Ármann 17:11. Þróttur og KR jafntefli 17:17 Einar Magnússon opnaði Reykjavikur- mótið i handknattleik með þvi að skora fyrsta mark mótsins gegn Ár- manni á laugardaginn. Þessi markhæsti leik- maður íslandsmótsins Sigurðsson er. Hann lék sinn fyrsta leik með Vik- ingi á laugardaginn og varði vel, fékk aðeins þrjú mörk á sig í fyrri hálfleik, sem lauk 12:3 fyrir Viking. Hann er væntanlegur fljótlega til landsins, og mun hann leikameð Víkingi i Reykjavikurmótinu. Jón fer siðan aftur til Sviþjóðar, en kemur alkominn heim eftir ára- mót. Þróttur og KR léku einnig á laugardaginn, og lauk þeim leik með jafntefli, 17:17. Staðan er nú þessi i riðlunum tveimur i Reykjavikurmótinu: sl. vetur verður örugg- lega erfiður markvörð- um nú i vetur. Vikings- liðið lofar góðu fyrir veturinn, það hefur nú fengið snjallan mark- vörð þar sem Sigurgeir 1 siðari hálfleik minnkuðu Ar- menningar muninn, og þegar flautað var til leiksloka, var stað- an 17:11. Vikingsliðið verður örugglega með i baráttunni um Islandsmeistaratitilinn i vetur. Liðið, sem er nú Reykjavikur- meistari, fær Jón Hjaltalin aftur i sinar raðir, en hann hefur stund- að nám i Sviþjóð undanfarin ár. A-RIÐILL3 Vikingur Fram 1R Armann B-RIÐILL: Valur Þróttur KR Fylkir 1100 17:11 2 1100 22:18 2 1 0 0 1 18:22 0 1001 11:17 0 1100 22:9 2 1010 17:17 1 1010 17:17 1 1001 9:22 0 íslandsmeistararnir úttu ekki í erfið- leikum með Fylki Ólafur Benediktsson lék ekki með Val, sem vann Fylki 22:9 tslandsmeistarar Vals áttu ekki i erfiðleikum með Fylki I Reykja- víkurmótinu. Valsmenn skoruðu 22 mörk gegn 9 mörkum Fylkis- manna, en það má kallast gott hjá Fylki gegn hinni geysisterku vörn Vals. Leikur liðanna var ekki skemmtilegur fyrir hina fáu áhorfendur, sem voru í Laugar- dalshöllinni á sunnudagskvöldið. Bergur Guðnason var drýgstur Valsmanna að skora, hann sendi knöttinn sex sinnum i netið, allt meö langskotum. Það vakti at- hygli i leiknum, að Ólafur Bene- diktsson, landsliðsmarkvörður Vals, lék ekki með liðinu. Vals- menn höfðu yfir ihálfleik, 12:3, en siðari hálfleikur fór 10:6 fyrir Val. Það má kallast mjög gott hjá hinu unga Fylkisliði. Mörkin i leiknum skoruðu þess- ir: VALUR: Bergur 6, Gisli 4 (1 viti), Jón Jónsson 3 (1 viti), Jón K. 3 úr vitum, Þorbjörn 3 (1 víti), Agúst 2 og Ólafur eitt. FYLKIR: Guðmundur 3 (1 viti), Stefán 2, Einar Á. 2, Einar E. og Ágúst eitt hvor. • • BJORGVIN OG AXEL LÉKU AÐAL- HLUTVERKIN HJÁ FRAM GEGN ÍR Fram og IR léku ekki með sín sterkustu lið. Leikurinn lofar góðu fyrir veturinn Landsliðsmennirnir Axcl Axelsson og Björg- vin Björgvinsson voru aðalmennirnir á bak við 22:18 sigur Fram yfir IR á sunnudagskvöldið. Þeir skoruðu samtals fjórtán mörk, sum gull- falleg. Liðin léku ekki með sina sterkustu menn, og höfðu ÍR-ingar aðeins tvo skiptimenn. I liðið vantaði þá Ásgeir Eliasson, Gunnlaug Hjálmarsson, Jóhannes Gunnarsson, Bjarna Hákonarson og nýliðann Guðjón Marteinsson, sem gekk yfir i IR frá Fram. I lið Fram vant- aði Stefán Þórðarson og Sigurberg Sigsteinsson. Þó að menn vantaði i bæði liðin, lofa þau góðu fyrir veturinn. Arnar Guðlaugsson og Pálmi Pálmason léku nú aftur með Framliðinu, en þeir léku ekki með þvi siðasta keppnistimabil.lR-ing- ar mættu meö einn nýliða gegn Fram, nýliða, sem lofar góðu. Þetta er ungur Hafnfirðingur, Steinn öfjörð, sem gekk úr FH I 1R i sumar. Hann skoraði tvö lag- leg mörk i sinum fyrsta leik, og þá fékk hann það hlutverk að gæta Axels Axelssonar i leiknum, og skilaði hann þvi mjög vel, þvi aö Axel skoraði ekkert mark með iangskoti eftir að Steinn tók hann úr umferð. Leikur liðanna var jafn til að byrja með. Um miðjan fyrri hálf- leikinn var staðan 4:4, en Fram- arar komust siðan yfir og náðu 9:6 forustu fyrir hálfleik. Leikn- um lauk með sigri Fram, 22:18. Mörkin i leiknum skoruðu þess- irmenn: FllAM: Axel 8, Björgvin 6, Pálmi, Andrés og Kjartan tvö hvor, Árni og Pétur eitt hvor. ÍR: Agúst 6, Vilhjálmur 3, Þórarinn, Steinn og Hilmar tvö hver, Hörð- ur, Sigurður og Ólafur eitt hver. EINAR MAGNCSSON.. skoraði fyrsta mark Reykjavlkurmdtsins.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.