Tíminn - 25.09.1973, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 25. september 1973
TÍMINN
19
Mót, sem slegin höföu verið upp fyrir veggjum á Vesturbergi i Breiðholtshverfi.
0
litlu muna meö einn trillubát.
Engin meiðsli urðu á fólki.
Þakplötur fuku mikið af húsum
á Bfldudal og hjallur og fjárhús i
grennd viö þorpið fuku. Engin
meiðsli munu hafa orðið þarna
um slóðir, en ein trilla sökk.
Óverulegt tjón á
Patreksfirði
Að sögn fréttaritara blaðsins á
Patreksfirði var þar einna
hvassast um kl. 6-7 á mánudags-
morgun, en þá var ofsaveður. —
Ekki munu hafa oröið neinar
teljandi skemmdir á plássinu.
Þó brotnuðu hér giröingar, og
einhverjar smáskemmdir uðru á
gróðri i görðum. Uppstillingar aö
nýjum húsum skekktust, og fauk
eitthvaö af timbri úr þeim. Mér er
kunnugt um, aö rúður í tveim
húsum brotnuðu og brak fauk hér
á einn bil, er skemmdist nokkuð.
Annað heldég.aöhafi ekki orðið
til tjóns hér, ekkert sem orð er á
gerandi.
— Ég veit ekki til, að neinar
verulegar skemmdir hafi orðið
hér i nærsveitum. En hins vegar
frétti ég, að gömul litil timbur-
hlaöa hefði fokiö um á bænum
Hóli í Tálknafirði. Hlaðan var
tóm, enda bærinn i eyöi, sagði
Svavar Jóhannsson á Patreks-
firði að lokum.
Börn komust ekki i skóla
vegna veðurs.
Börnin af Skarösströnd komust
ekki i skólann I morgun vegna
veðurs, sagði Einar Kristjánsson
Laugum i Dölum i gær. Hér var
óhemjuhvasst um kvöldið, þvi aö
óveörið var dálitiö seinna á
feröinni hér en syöra. 1 Suður-
dölum, einkanlega Hörðudal,
fauk mikiö af uppbornu heyi.
Annaö tjón er mér ekki kunnugt
um, en hins vegar eru ef til vill
ekki öll kurl komin til grafar, þvi
að slminn er viða bilaður, svo
viða að höfum við engar fréttir '
haft.
Lítið tjón i Grindavík
Engar skemmtir urðu aö ráði i
Grindavik i veörinu, móta-
uppsláttur fauk á einum stað, og
skúr fauk á bil og skemmdi
hann. Mjög flóöhátt var um nótt-
ina, og gekk sjór yfir allar
bryggjur að venju, en ekkert var
að bátum i höfninni, enda menn I
þeim öllum. Þó voru þar ein 8
vindstig og sýnt aö huga þyrfti að
bátum- á flóðinu um fimmleytið.
„Hefði orðið ógurlegt
tjón..”
— Þetta var alveg voöalegt
veöur, eitthvað það álversta sem
menn muna, sagði fréttaritari
blaðsins i Þorlákshöfn, Benedikt
Thorarensen. — Þetta var
öðruvisi, en óveðrið 1 fyrra. Það
fylgdi þessu voöaleg flóðfylla.
Þótt vindáttin væri suðaustlæg,
varsjórinnsuölægur.Það kemur
heim og saman við skemmdirnar
i Sandgerði er liggur svona
sunnarlega á skaganum, en þó
urðu svo miklar skemmdir þar.
Fyllingin var sem sagt að sunnan.
— Veðurhæðin var hér mest um
tvöleytið, þótt hún héldist slæm
alveg fram á flóöið um fjögur-
leytið, en þá var háflæði. Menn
voru að baksa við bátana alla
nóttina, og tókst að verja þá
skemmdum, aö öðru leyti en þvi,
að það slógust saman afturstefni
á tveim bátum og dælduðust, en
það var ekki stórvægilegt. Aörar
skemmdir uröu ekki á bátum, að
heitiö getur.þar sem við vorum
svo heppnir að aðeins 8 stórir
bátar voru i höfninni, og auk þess
ein litil trilla. Þetta er auðvitaö
ekki nema þriðjungur af þeim
bátaflota, sem hér hefur verið að
undanförnu. Þaö hefði orðið ógur
legt tjón, ef hér hefðu verið 20-30
bátar i höfninni, sagöi Benedikt.
Af skemmdum uppi i þorpinu
kvaö Benedikt það helzt að
segja.að þak kaupfélagsútibúsins
fauk af. Þetta er einnar hæöar
hús með steyptu þaki, en ofan á
þvi skáhallt timburþak, og þaö
fauk.
Lyftist það af á stórum kafla og
fauk eina 60-80 metra, en olli hins
vegar engum skemmdum.
Annars sagði Benedikt, að furðu-
litið tjón virtist hafa orðið á
ibúðarhúsum. Einhver rúðubrot
urðu þó, bifreiðaskemmdir engar
né slys á fólki.
Óvenju flóðhátt, geysi-
legt brim
— Það var alltr á hvolfi hérna,
sagði fréttaritari blaðsins á
Eyrarbakka, Hjörtur L. Jónsson
— Þaö fuku þök af a.m.k. tveim
Ibúöarhúsum að hluta. Nú, sjó-
gangur var geysilegur, brimið
gekk alveg upp á götu og skolaði
upp grjóti, spýtnadrasli og öðru.
Þá fauk þak af gamalli heyhlöðu,
og ýmislegt annaö færðist úr
lagi. En engin meiðsli uröu, svo
örugglega sé vitaö.
Að sögn Hjartar sluppu
bátarnir I höfninni alveg viö
skemmdir, en vakað var yfir
þeim alla mánudagsnóttina.
Sagði hann, að óvenju flóðhátt
heföi verið um nóttina. Um
samanburð kvað Hjörtur óveörið
I desember i fyrra hafa veriö
svipað þessu.
Óverulegar skemmdir uröu á
Stokkseyri. Bátarnir sluppu alveg
viö skemmdir. Eitthvað var um
að plötur losnuðu af þökum og
fykju, eins og i flestum plássum
meira og minna á Suðvestur- og
Vesturlandi og Vestfjörðum
þessa „vindháu” nótt. Meiðsli
urðu engin Rafmagnið fór af ein-
hvern tima um nóttina, en kom
aftur á um tvö-leytiö i gærdagað
sögn fréttaritara, Harðar Sigur-
grimssonar.
Geysilegt brim var orðiö úti
fyrir Eyrarbakka um sex-leytið I
gærkvöldi, ekki minna en á
mánudagsnóttina, að sögn manna
þar eystra.
Mikið tjón i ölfusi
Fréttaritari blaðsins, Páll
Þorláksson, Sandhóli i ölfusi,
tjáði okkur, að miklir skaöar
hefðu oröiö þar um slóöir á
mánudagsnótt. Viða mátti t.d. sjá
rándýra heyhleðsluvagna á hlið-
inni við bæi, sem og önnur hey-
vinnutæki. Þá fór grænfóörið illa
I veörinu. Þakplötur fuku viöa af
húsum. Mest brögð urðu aö þvi á
Litla-Landi I Olfusi, en þar fuku
plötur af fjárhúsi og hlööu og i
Akurgeröi, þar sem þakiö á fjós-
inu fór af I heilu lagi og brotnaöi I
spón, er niður kom. Þakplöturnar
fuku af hlöðu á bænum Völlum og
af fjósi á Egilsstöðum og Kot-
strönd.
— Tjón það, er orðið hefur hér
á bæjum I óveðrinu núna, og eins
22. desember á siðastliðnu ári, er
gifurlegt, sagði Páll.
Hlaða fauk af Litlu-
Reykjum
Varla nokkrar skemmdir, svo
heitiö geti, urðu á Selfossi i of-
viðrinu, sagði Hjalti Þóröarson,
fréttaritari biaðsins þar. Eitthvaö
lauslegt fauk þó, og tvær rúöur
brotnuðu i mjólkurbúinu
Hins vegar fréttum viö, aö fokið
hefði hlaða að Litlu-Reykjum I
Hraungeröishreppi. Var hlaða
þessi úr timbri, viðbygging við
gamla hlöðu. Var rétt búiö að
ljúka henni, en hún fauk alveg um
koll Eitthvað var um að þakplöt-
ur fykju af útihúsum á bæ og bæ i
Hraungeröishreppi.
Allt fauk sem fokið gat
— Hér fauk allt sem fokið gat
að segja má, sagði Eggert ó.
Sigurðsson I Smáratúni i Fljóts-
hliðarhreppi, en samt varð tjónið
vonum minna, þvi að veðriö var
óskaplegt, og ég man ekki eftir
öðru eins. Hér fór þak af hlöðu og
stafn úr annarri. Til marks um
ofsann get ég sagt frá þvi, að hér
á túninu lá 300-400 kg þung járn-
hurö, og hana tók á loft og hún
barst eina fimmtiu metra. Ég
heföi ekki trúað þessu, ef ég hefði
ekki sjálfur séð verksummerkin.
Það hefur auðvitaö hlotizt tölu-
vert tjón af þessu, þótt þaö heföi
getað verið meira, og vitaskuld
tefur þetta mann, en ég er samt
hvergi banginn, sagöi Eggert að
lokum.
Man ekki eftir öðru eins
— Ég man ekki eftir öðru eins
veðir, sagði Jónheiður Gunnars-
dóttir I Kirkjulækjarkoti I Fljóts
hlíöarhreppi, ég hef þó búiö hér i
þrjátiu ár. Það hrikti I öllu svo aö
maður gat varla sofiö, og rúmiö
hristist allt. Sérstaklega varð ofs-
inn' i veörinu mikill undir
miðnættið, en samt sofnaði mað-
ur nú aö lokum og svaf vært úr
þvi.
Hér að Kirkjulækjarkoti tók
járn af hlöðu og fjósi i eign
sambýlismanns okkar, og sjá má
að viöar i sveitinni hefur orðið
tjón af völdum veöursins.
Hjólhýsi valt undir
Eyjafjöllum
— Viö sáum bil meö hjólhýsi
aftan I sér fara hér hjá á sunnu-
daginn, sagði Sigriður Jónsdóttir,
húsfreyja I Hvammi undir Eyja-
fjöllum. Litlu seinna kom maöur
héðan úr sveitinni, Guömundur
Guðmundsson á Núpi, þar að hér
rétt fyrir utan þar sem hjólhýsiö
lá oltiö á veginum.
Þarna voru á ferð tvenn hjón úr
Reykjavik og Kópavogi, Ólafur
Pétursson og Kjartan Guðmunds-
son og konur þeirra, og höfðu ver-
ið að koma austan frá Kirkju-
bæjarklaustri. Þeim var komið
hingaö til okkar, og ég vona, að
þau hafi átt sæmilega nótt hjá
okkur. Þau fóru siðan áfram suð-
ur, en hjólhýsið er hér hjá okkur,
mikið skaddað.
Annars er það að segja, bætti
Sigriður viö, að hér var aftaka-
veður. En ég veit samt ekki til
þess, að neinar skemmdir hafi
orðið I sveitinni. Við erum vön
miklum veðrum, og hér er yfir-
leitt rammbyggilega frá öllu
gengið.
Hvolsvöllur
— Þaö var mjög hvasst hér á
Hvolsvelii, sagði Pálmi Eyjólfs-
son fréttaritari, en um hálftólf
keyrði um þverbak, og úr þvi var
ekki hægt að kalla þetta annað en
aftakaveöur. Um fimmleytið fór
svo að sljákka i veðrinu. Þá haföi
oröið töluvert tjón hér i kauptún-
inu, rúður brotnuðu, sjónvarps-
loftnet fuku og tré brotnuöu. Á
Hvolsvelli er verið að byggja
mikið af húsum, og þau urðu
mörg fyrir skemmdum, járn tók
af þökum og steypumót skekkt-
ust.
Þá er kunnugt um tjón viða á
bæjum hér i grennd, ekki sizt
undir Eyjafjöllum, enda verður
veðurharka mikil á þeim slóðum.
Rafmagn fór i Fljótshlfö og
Landeyjum, og siminn er viöa I
ólagi.
Menn sem voru á ferö i nótt
sögðu mér, að varla hefði verið
hægt aö hemja bila á vegunum
vegna veðurofsa.
Til marks um veðurhæðina
undir Eyjafjöllum má nefna aö i
Hvammi tókst einnar smálestar
þungur heyvagn á loft og hafnaði
á hlööuþakinu, sem er fjögurra
metra hátt.
Vélbindingin bjargaði
heyinu
— Þetta var geysimikið veður,
sagði Sæmundur Olfarsson á
Heylæk i Fljótshliðarhreppi. Hér
fauk hálft þak af hlöðu, og mikið
hefur fokið annars staðar i
hreppnum. Aö Smáratúni tók
þakið af gömlu ibúðarhúsi og
veggirnir hrundu. Sem betur fer
bjó enginn I þessu húsi. Aö
Hallgeirsstöðum fauk traktor
ofan I skurö, og á Breiðabólsstaö
tók þakið af gömlu fjósi. Víða
fuku plötur, og heyvögnum
hvolfdi og fleira gerðist af þvi
tagi. Þá fuk fjárhús og hlaða að
Kirkjulæk. Það er óhætt aö segja
þaö að vélbindingin, sem nú er al-
mennt tiðkuð, hefur foröaö þvi,að
stórtjón yrði á heyjum.
Ekkert ofsaveður á
Klaustri
— Það var nú ekkert ofsaveður
hérna á Kirkjubæjarklaustri, þótt
útvarpið léti i það skina, sagði
Einar Valdimarsson fréttaritari.
Og héðan aö austan er fátt tiöinda
umfram það, að bruni varö niðri i
Landeyjum, en þar brann hlaða
aö Kotströnd. Talið er ,aö kviknað
hafi I vegna þess, að hitnað hafi i
heyinu vegna bilunar á
súgþurrkunarkefi. Það var vont
aö eiga við þetta vegna veðurs,
þvi að niðri i Landeyjum var all-
mikiu hvassara en hér efra, en þó
mun hafa tekizt að bjarga miklu
af heyjum, þvi aö við eigum hér
nýlegan slökkvibil.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
ríkisins Mmifsm
Námskeið i stjórnun
og áætlanagerð
Húsnæðismálastofnun rikisins, Iðnþróun-
arstofnun íslands og Rannsóknarstofnun
byggingariðnaðarins hafa, i samvinnu við
Fjórðungssamband Vestfirðinga, ákveðið
að gangast fyrir námskeiði á ísafirði, i
stjórnun og áætlanagerð fyrir verktaka og
framkvæmdaaðila i byggingariðnaði.
Tilgangurinn með þessu námskeiði er að
gefa framkvæmdaaðilum og verktökum
kost á stuttu en yfirgripsmiklu og sér-
hæfðu námskeiði um það, hvernig megi
skipuleggja verk i byggingariðnaði, með
það fyrir augum, að nýta sem best fjár-
magn, vinnuafl o.fl. þætti, sem máli
skipta.
Þá verða kynntar reglugerðir Húsnæðis-
málastofnunar rikisins og kröfur þær, sem
stofnunin mun i framtiðinni gera til þeirra
er fá fyrirgreiðslu hjá henni.
Námskeiðið verður haldið á ísafirði dag-
ana 5. og 6. október n.k.
Nánari upplýsingar verða gefnar i sima
91-22453, Húsnæðismálastofnun rikisins,og
hjá Fjórðungssambandi Vestfirðinga,
simi 3170, ísafirði.
Nauðsynlegt er að þátttakendur skrái sig i
framangreindum simanúmerum fyrir 30.
september.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RIKISINS
LAUGAVEGI77, SÍMI22453