Fréttablaðið - 23.09.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
FIMMTUDAGUR
DAGURINN Í DAG
BJARTVIÐRI VÍÐA Í DAG OG
HÆGUR VINDUR Fremur svalt en fer
hlýnandi með vaxandi vindi seint í kvöld.
Sjá bls. 6.
23. september 2004 – 260. tölublað – 4. árgangur
● ferðir ● tíska ● heimili
Horfir á hafmeyjar
á hverjum degi
Inga Björg Stefánsdóttir:
● vilja ekki rótara
Halda á sínum
eigin græjum
The Shins:
▲
SÍÐA 42
ÞREFÖLD KOSTNAÐARAUKNING
Útgjöld umhverfisráðuneytis þrefölduðust í tíð
Sivjar Friðleifsdóttur. Útgjöld utanríkisráðu-
neytisins tvöfölduðust í tíð Halldórs Ásgríms-
sonar, en forsætisráðuneytið dróst saman
undir stjórn Davíðs Oddssonar. Sjá síðu 4
FLEIRI ÁREKSTRAR Árekstrum hefur
fjölgað eftir breytingar sem gerðar voru á
gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklu-
brautar í fyrra. Færri virðast þó slasast nú
en áður. Langflestir slasast í aftanákeyrsl-
um. Sjá síðu 6
STIMPILGJÖLD Í SÉRFLOKKI Sam-
tök atvinnulífsins hafa látið kanna stimpil-
gjöld í nágrannalöndum okkar. Íslendingar
eru í sérflokki þegar litið er til þessa skatts,
sem bitnar á einstaklingum og smærri fyrir-
tækjum. Sjá síðu 8
TRAUSTIÐ KANNAÐ Lítið samhengi
virðist milli trausts á forystumönnum og
fylgis stjórmálaflokkanna í nýjustu skoðana-
könnun Fréttablaðsins. Fólk treystir einum
en kýs svo einhvern allt annan. Sjá síðu 10
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Kvikmyndir 46
Tónlist 44
Leikhús 44
Myndlist 44
Íþróttir 36
Sjónvarp 48
12-24 ára
Me›allestur
51%
28%
Fréttablaðið Morgunblaðið
Konur
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups ágúst '04
VEÐRIÐ Í DAG
STJÓRNMÁL Einkavæðingarnefnd
ákvað í gær að auglýsa eftir fyrir-
tæki til þess að verða nefndinni til
aðstoðar við undirbúning á einka-
væðingu Símans. Auglýst verður
bæði innanlands og erlendis og er
gert ráð fyrir að tilboð um þátt-
töku í ráðgjöfinni þurfi að berast
fyrir 25. október.
Jón Sveinsson tók í gær við for-
mennsku í nefndinni. Hann segir
að nú sé salan á Símanum komin í
farveg og því megi búast við því
að undirbúningi ljúki á þessu ári.
Hann gerir ráð fyrir að Síminn
verði ekki seldur í einu lagi held-
ur fari einkavæðingin fram í
nokkrum þrepum. Hann vill ekki
gefa út tímaramma í þessu sam-
hengi en segir að gera megi ráð
fyrir að fyrstu áfangar sölunnar
geti átt sér stað fljótlega upp úr
áramótum.
Einkavæðingarnefnd hefur lát-
ið vinna verðmat á Símanum en
niðurstöður þess eru ekki gerðar
opinberar. Á markaði virðast aðil-
ar telja að verðið muni liggja á bil-
inu fjörutíu til fimmtíu milljarðar
króna. Verðmat á Símanum mun
þó að einhverju leyti ráðast af því
hvort kvaðir verða á sölunni og að
hversu miklu leyti kjölfestufjár-
festar fá frjálsar hendur til að
vinna að hagræðingu.
Sjá síðu 32
Bíllausi dagurinn:
Nær engin
þátttaka
UMFERÐ Borgarbúar virtust láta
sig litlu skipta að í gær hafi verið
auglýstur bíllaus dagur og sér-
staklega hvatt til notkunar stræt-
isvagna.
„Nei, ekki get ég sagt að við
höfum haft áþreifanlegt veður af
neinni breytingu,“ sagði varð-
stjóri lögreglunnar í Reykjavík,
þegar hann var inntur eftir því
hvort umferð hefði verið minni í
borginni. Þá var ekki að merkja að
umferð gengi betur en aðra daga
því töluvert var um smávægileg
umferðaróhöpp. Ein tíu slík urðu
á bilinu frá klukkan þrjú til sjö
síðdegis.
„Þetta hefur gengið vel hvað
það varðar að við höfum verið að
sjá töluvert fleira fólk ferðast
með okkur í strætó,“ sagði Ásgeir
Eiríksson, framkvæmdastjóri
Strætó bs. Hann sagði það þó vera
ákveðin vonbrigði hvað umferðin
virtist hafa minnkað lítið. ■
LAUNANEFND SVEITARFÉLAGANNA
Fundar með kennurum í dag hjá ríkissátta-
semjara. Mikið ber í milli.
Fundað hjá
ríkissáttasemjara:
Fyrsti fund-
ur í verkfalli
VERKFALL Forsvarsmenn kennara
og sveitarfélaganna funda í dag
hjá ríkissáttasemjara. Fundurinn
hefst klukkan níu.
Samninganefnd kennara lagði
fram tilboð til launanefndar sveit-
arfélaganna 16. september sem
hljóðaði upp á 34,4% hækkun
launagjalda samkvæmt útreikn-
ingum kennara. Launanefndin
hafnaði því. Með sínum útreikn-
ingum taldi hún kostnaðinn nema
um 42,4%. Launanefndin stóð við
tilboð sitt um 18,6% hækkun
launakostnaðar.
Launanefnd sveitarfélaganna
lagði á fundi þann 19. september
fram tillögur að helstu þáttum
kjarasamningsins sem kennarar
hafa ekki svarað, samkvæmt
heimasíðu Sambands íslenskra
sveitarfélaga. ■
HREINT EKKI BÍLLAUST Það var nóg af bílum á Miklubrautinni kl. 16.45 í gær, en dagurinn var auglýstur bíllaus og hvatt var til notkun-
ar á almenningssamgöngum. Viðbrögðin voru lítil sem engin. Var umferðin raunar svo mikil í gær að nánast gönguhraði var á bílunum alla
leið niður að Þjóðminjasafni.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Stærsta fíkniefna-
mál seinni ára
Sex Íslendingar hafa verið handteknir og fjórir eru í gæsluvarðhaldi vegna
rannsóknar á umfangsmesta fíkniefnamáli síðustu ára. Mikið magn af
amfetamíni, kókaíni og LSD fannst í þremur sendingum frá Hollandi.
FÍKNIEFNI Sex Íslendingar hafa
verið handteknir og sitja fjórir í
gæsluvarðhaldi vegna rannsókn-
ar á umfangsmesta fíkniefnamáli
síðustu ára. Ásgeir Karlsson, yfir-
maður fíkniefnadeildarinnar í
Reykjavík, vill á þessu stigi ekki
gefa upp heildarmagn fíkniefn-
anna en efnin fundust í þremur
sendingum sem allar komu frá
Hollandi.
Upphaf málsins var þegar tæp-
lega þrjú kíló af amfetamíni og
nokkurt magn af kókaíni fundust
um borð í Dettifossi, skipi Eim-
skipafélagsins, í mars. Í fram-
haldinu hófu lögreglan og toll-
gæslan í Reykjavík rannsókn sem
leiddi til þess að tekið var mikið
magn af amfetamíni sem fannst í
vörusendingu í einu skipa Eim-
skips í júlí. „Við greinum ekki frá
því að svo komnu hversu mikið
magnið er en það er verulegt.
Með því mesta sem þekkst hefur,“
segir Ásgeir Karlsson. Fyrir
rúmri viku fundust síðan tvö
þúsund skammtar af LSD í póst-
sendingu.
Vestmannaeyingur um þrítugt
var handtekinn á föstudag vegna
LSD-sendingarinnar. Sama dag
var Íslendingur sem dvalið hefur
í Hollandi um nokkurra vikna
skeið handtekinn í tengslum við
amfetamínið sem fannst í júlí og
LSD-sendinguna. Að auki voru
þrír handteknir hér á landi á
föstudag. Annar Íslendingur er
búsettur þar sem maðurinn
dvaldi í Hollandi. Við húsleit á
mánudag var sá handtekinn en í
íbúðinni fannst rúmt kíló af kóka-
íni og kannabisplöntur í ræktun.
Þeir sem hafa verið handteknir
eru fimm karlmenn og ein kona,
öll á fertugsaldri. Konan og þrír
mannanna voru handtekin á Ís-
landi. Þau hafa öll verið úrskurð-
uð í gæsluvarðhald, þrjú í þrjár
vikur og einn í tvær vikur. Menn-
irnir sem handteknir voru í
Hollandi eru í haldi lögreglunnar
en þar í landi getur lögreglan
haldið fólki lengur án gæsluvarð-
haldsúrskurðs. Fáist úrskurður
um gæsluvarðhald munu yfirvöld
hér á landi fara fram á að menn-
irnir verði framseldir.
hrs@frettabladid.is
Jón Sveinsson tekur við formennsku í einkavæðingarnefnd:
Auglýst eftir ráðgjafa við sölu á Símanum
HUGMYNDASAMKEPPNI Páll
Skúlason háskólarektor afhendir verðlaun
fyrir samkeppnina Uppúr Skúffunum
2003 við hátíðlega athöfn klukkan þrjú í
dag í Tæknigarði Háskóla Íslands við
Dunhaga í Reykjavík. Er þetta í sjötta sinn
sem samkeppnin er haldin. Fimm hug-
myndir bárust og valdi dómnefnd þrjár til
verðlauna.
01 22.9.2004 22:25 Page 1