Fréttablaðið - 23.09.2004, Blaðsíða 30
Þó að degi halli fljótt þá er engin ástæða til að hafa dimmt og drungalegt
inni á heimilinu. Keyptu þér fallegan lampa, kveiktu á fullt af kertum og hafðu
það virkilega notalegt í skammdeginu. Ekki hætta að skreyta heimilið með fal-
legum hlutum og ekki hika við að kaupa falleg blóm á stofuborðið.
LISTASMIÐJAN
KERMIK OG GLERGALLERÝ
Kothúsum, Garði , s: 422-7935
Opið alla daga: Mánudaga- föstudaga 10-18
Laugardaga og sunnudaga 13-18
Námskeið að hefjast í glerbræðslu og
keramikmálun. Einnig fyrir hópa
Plexígler er í miklu uppáhaldi
hjá Þórunni Högnadóttur, hönn-
uði og sjónvarpskonu. „Það eru
ótrúlegir möguleikar með þetta
efni, hægt er að velja hvaða lit
sem er, efnið er til í mörgum
þykktum, auðvelt er að beygja
það og sveigja og best er hvað
það er ódýrt.“ Heimili hennar og
verkefnin sem hún hefur tekið að
sér bera áhuganum glögg merki.
„Núna er ég að klæða gamlan
tekkskenk með hvítu plexígleri,
þetta er svolítið nostur en alveg
óskaplega gaman,“ segir Þórunn
og bætir við að nýjasta æðið hjá
henni sé að skreyta fyrir barna-
afmæli. „Ég var að gera barna-
afmæli fyrir Gestgjafann um
daginn og gjörsamlega missti
mig í öllu skrautinu, þarna fékk
skreytiþörfin hjá mér allsherjar
útrás.“
Þórunn er nýr meðstjórnandi
Valgerðar Matthíasdóttur í
hinum sívinsæla sjónvarpsþætti
Innlit/útlit sem hóf göngu sína á
ný á Skjá einum á dögunum.
Þórunn hefur óbilandi áhuga
á öllu sem viðkemur fallegu
heimili, innanhúshönnun er
henni hugleikin og skreytiþörfin
er mikil. Ásamt því að heim-
sækja landsmenn á skjánum
starfar Þórunn sem stílistiog
sinnir ýmsum verkefnum á sviði
útlitshönnunar.
Þrátt fyrir að nóg sé að gera
sest Þórunn gjarnan niður með
skissubókina í frítímanum og
leyfir huganum að reika.
hildur@frettabladid.is
Þórunn hefur hannað
ýmsa muni á heimili sínu
t.d. ljósakrónurnar á
myndunum.
Þórunn Högnadóttir hönnuður og sjónvarpskona:
Plexigler í miklu uppáhaldi
SMÁAUGLÝSINGAR ALLA DAGA
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
- mest lesna blað landsins
30-31 (04-05) Allt heimili 22.9.2004 16:13 Page 2