Fréttablaðið - 21.10.2004, Blaðsíða 22
22 21. október 2004 FIMMTUDAGUR
LEIKFÖNGIN EIGA SVIÐIÐ
Geomag eða Segulmagnaður heimur er
meðal leikfanganna sem eru kynnt á
Leikjahátíðinni 2004 sem hefst í Essen í
Þýskalandi í dag. 686 fyrirtæki frá 24 lönd-
um kynna vörur sínar á sýningunni, sem
stendur fram á sunnudag.
Mannabreytingar í Hæstarétti:
Jón Steinar kominn í skikkjuna
HÆSTIRÉTTUR Jón Steinar Gunn-
laugsson, lögfræðingur, hóf
störf við Hæstarétt á fimmtu-
dag í síðustu viku. Síðan þá hef-
ur hann hlýtt á munnlegan mál-
flutning í þremur málum, nú
síðast í gær.
Einhver tími mun líða þar til
Jón Steinar fellir sinn fyrsta
dóm enda þurfa dómarar að fá
gott andrúm til að vega mál og
meta áður en dómsorð er kveðið
upp.
Níu dómarar eru við Hæsta-
rétt og hafa þeir í nægu að snú-
ast. Á síðasta ári bárust réttin-
um 497 ný mál til meðferðar og
fellu 440 dómar. - bþs
Í heljargreipum heróínsins
Bókin Eftirmál eftir feðgana Frey Njarðarson og Njörð P. Njarðvík kemur út í dag. Í henni er
sagt frá hrikalegu lífi Freys í viðjum heróínfíknar en hún hefur fylgt honum um undirheima
Kaupmannahafnar og Amsterdam.
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
GÆÐAVARA Á BETRA VERÐI!
Sólbakka 8
310 Borgarnesi
Miðási 23
700 Egilsstöðum
Víkurbraut 4
780 Höfn
Gagnheiði 13
800 Selfossi
Hlíðarvegi 2-4
860 Hvolsvelli
Njarðarnesi 1
603 Akureyri
Skeifunni 3c
108 Reykjavík
Viðarhöfða 6
110 Reykjavík
Melabraut 24
220 Hafnarfirði
Iðavöllum 8
230 Keflavík
Flugumýri 16
270 Mosfellsbæ
Smiðjuvegur 6
200 Kópavogi
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
...einfaldlega betri!
JÓN STEINAR GUNNLAUGSSON HORFIR ÍBYGGNUM AUGUM Í ÁTT TIL VERJANDA
Við hlið hans stendur Árni Kolbeinsson og virðir fyrir sér gögn Jóns en yst stendur Ólafur
Börkur Þorvaldsson og brosir við.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
Árið 1984 skrifuðu Freyr og
Njörður bókina Ekkert mál. Í
henni sagði af hrikalegu lífi Freys
í fíkniefnaheimum Kaupmanna-
hafnar. Tæpum tuttugu árum síð-
ar bjó hann í Amsterdam og lifði
enn hrikalegra
lífi. Svo hrikalegu
að sumir eiga
bágt með að skilja
að hann skuli enn
vera lifandi. En
hann tórir og vel
það. Vegnar bara
býsna vel að sögn
föðurins. „Hins
vegar verðum við
öll að skilja að
leiðin til baka
er erfið,“ segir
Njörður. „Þessu
fólki er ekki auðvelduð sú leið því
það hefur langa sögu á
eftir sér. Nafn Freys er
þekkt, flestir sem hitta
hann vita að hann hefur
verið í eiturlyfjum. Það er
ekki auðvelt fyrir svona
mann að fá vinnu eða
leigða íbúð. Og svo eru
það peningamálin, þetta
fólk er ekki að kaupa
hlutabréf í KB banka.“
Lýsingarnar í bókinni á
hörmungum heróínsjúk-
lingsins eru hrikalegar. Hvert orð
er satt og ekkert dregið undan.
„Það sem fyrst og fremst vakir
fyrir okkur er að lýsa þessum
heimi. Og ef þú ætlar að lýsa
honum þá verður þú að lýsa hon-
um eins og hann er,“ segir Njörð-
ur sem mátt hefur þola margt um
ævina vegna fíknar sonarins.
„Bókin er skrifuð án fordæm-
ingar og predikunar. Það er ekki
hlutverk hennar að ætla sér að
leysa þetta vandamál. Hlutverk
bókarinnar er að lýsa þessum
heimi eins vel og á eins raunsæjan
hátt og við getum og síðan
sendum við spurningu óbeint til
lesandans. Þetta er heimurinn,
mundir þú vilja þetta?“
Fyrri bókin vakti mikla athygli
á sínum tíma, hún seldist vel og
hefur allar götur síðan verið lesin
í framhaldsskólum. Forvarnar-
gildið er talsvert. „Við höfum
stundum velt fyrir okkur hvort
Ekkert mál eigi hugsanlega sinn
þátt í að heróín er ekki í umferð á
Íslandi. Um það er ómögulegt að
segja en hins vegar er það eigin-
lega það eina jákvæða við eitur-
lyfjaheiminn að heróín hefur ekki
enn borist til landsins.“ Um mögu-
leg áhrif nýju bókarinnar segir
Njörður: „Ég veit ekki hver þau
verða, get ómögulega ráðið í það.
Ég vona hinsvegar að hún verði til
þess að fólk sjái hversu skelfilegt
þetta er allt saman.“
Freyr Njarðarson er 42 ára.
Hann hefur marga hildi háð um
ævina en er á beinu brautinni í
dag. „Samkvæmt tölfræðinni er
líf hans hálfnað, við lifum jú flest
fram yfir áttrætt. Ef hann nær að
rífa sig upp úr þessu þá á hann
vonandi 40 góð ár eftir,“ segir
Njörður. „En það er erfitt að koma
út í hið venjulega líf. Freyr er í
góðum tengslum við Þórarin Tyrf-
ingsson hjá SÁÁ og nýtur stuðn-
ings hans og okkar sem að honum
stöndum. Lífið er ekki búið.“
Ítarlegt viðtal við Njörð P.
Njarðvík birtist í Birtu á morgun.
bjorn@frettabladid.is
,,Nafn
Freys er
þekkt,
flestir sem
hitta hann
vita að
hann hefur
verið í
eiturlyfjum.
FREYR NJARÐARSON OG NJÖRÐUR P. NJARÐVÍK HAUSTIÐ 2004
„Það sem fyrst og fremst vakir fyrir okkur er að lýsa þessum heimi. Og ef þú ætlar að lýsa honum þá verður þú
að lýsa honum eins og hann er,“ segir Njörður. Til hliðar er mynd sem tekin var af feðgunum árið 1984 þegar
Ekkert mál kom út.
RÁÐHERRA RÆÐIR VIÐ BÖRNIN
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mennta-
málaráðherra heimsótti í gær ungmennin
á skrifstofu barnahjálpar Sameinuðu þjóð-
anna í Skaftahlíð.
Vinnusmiðja á Íslandi:
Ein mínúta
um lýðræði
BARNAHJÁLP Tuttugu ungmenni frá
Íslandi, Grænlandi, Færeyjum,
Danmörku, Svíþjóð, Noregi og
Finnlandi eru samankomin í
Reykjavík til þess að vinna að
framleiðslu einnar-mínútu mynd-
banda um lýðræði og þátttöku
ungs fólks í samfélaginu.
Það er barnahjálp Sameinuðu
þjóðanna á Íslandi og mennta-
málaráðuneytið sem standa að
vinnusmiðjunni sem lýkur í dag.
Vinnusmiðjan er haldin hér á
landi í tengslum við ráðstefnu
Norrænu ráðherranefndarinnar
um „Menntun og þátttöku ungs
fólks“ sem haldin verður á Sel-
fossi. Eftir vinnusmiðjuna munu
ungmennin sitja ráðstefnuna og
sýna myndböndin.
Ríkissjónvarpið, sænska sjón-
varpsstöðin SVT og finnska
stöðin YLE munu framleiða 25
mínútna heimildarmynd um
vinnusmiðjuna og verður hún
sýnd á stöðvunum síðar á árinu.
Vinnusmiðja einnar-mínútu-
myndbanda hefur verið haldin
víða um heim síðan árið 1999.- th
MÓTMÆLT Í RÓM
Miklar deilur hafa risið á Ítalíu um bygg-
ingu sorpbrennslu í Acerra í sunnanverðu
landinu. Urðun og eyðsla rusls hefur verið
í lamasessi á svæðinu um margra ára
skeið og því safnast upp mikið ruslafjall,
íbúum til lítillar ánægju. Þeir telja sorp-
brennsluna hins vegar vera á vitlausum
stað og ekki nógu öfluga því mörg ár tekur
að brenna rusli sem hefur safnast upp
síðustu árin.
ÍKVEIKJUR Kveikt var í strætó-
skýli við Hofstaðaskóla í Garða-
bæ í gærmorgun. Slökkvistarf
gekk fljótt og vel fyrir sig.
Lengri tíma tók hins vegar að
ráða niðurlögum elds í blaðagámi
á Álftanesi þar sem einnig hafði
verið kveikt í.
22-23 20.10.2004 18:53 Page 2