Fréttablaðið - 28.10.2004, Blaðsíða 31
Í versluninni Igmu er í boði fatn-
aður sem unninn er úr plöntu-
beðma, en það er fjölsykrungur
sem er öllum plöntum nauðsyn-
legur. Það sem plöntubeðmi þyk-
ir hafa umfram bómull í fatnaði
er að hann dregur fyrr í sig raka
og sleppir honum hraðar en
bómullin gerir sem þýðir að flík-
in andar vel. „Sérstaklega hefur
verið mælt með þessum flíkum
fyrir fólk sem stundar einhverja
hreyfingu, þó að þetta henti að
sjálfsögðu öllum því það er bara
ótrúlega þægilegt að klæðast
þeim. Efnið er einstaklega mjúkt
og heldur flíkin sér ótrúlega vel
alveg sama hversu mikið hún er
þvegin og liturinn dofnar ekki
neitt,“ segir María Hrafnsdóttir
annar eigandi Igmu. „Hægt er að
hafa flíkina í vasanum heilan
dag, skella sér svo strax í hana
án þess að hún sé nokkuð krump-
uð,“ segir María.
Igmu rekur María ásamt vin-
konu sinni Ingibjörgu Jónsdóttur
en þær byrjuðu mjög smátt og
fluttu inn fáar vörur og notuðust
við herbergi dóttur Ingibjargar
til að byrja með. „Allt hefur
gengið mjög vel upp og nú erum
við komnar með þessa verslun en
við höldum einnig sölukynningar
í fyrirtækjum,“ segja þær. Eitt-
hvað hefur fólki þótt erfitt að
finna verslunina en hún er við
Kleppsmýrarveg beint á móti
Bónus í Skútuvoginum. „Þegar
fólk hefur ratað hingað til okkar
þá kemur það alltaf aftur og eig-
um við orðið góðan hóp fasta-
kúnna sem við þekkjum orðið vel
og hefur það verið sagt við okkur
að við séum best geymda leynd-
armálið í Reykjavík,“ segja þær
brosandi.
kristineva@frettabladid.is
7FIMMTUDAGUR 28. október 2004
BORÐAÐU ÞIG GRANNA(N)!
Með Íslensku vigtarráðgjöfunum
Við gerum lífið léttara!
Lærðu að breyta matatæðinu
og léttast um leið!
Vigtun og aðhald x1 á viku.
Frábær árangur
Mánudagur: Reykjanesbæ
Þridjudagur: Akureyri
Þriðjudagur: Borgarnes
Miðvikudagur: Garðabæ
Fimmtudagur: Reykjavík
Nánari uppl. í síma 8658407
eða á heimasíðu
www.simnet.is/kvo
www.vaegtkonsulenterne.dk
NÝBÝLAVEGUR 12,
KÓPAVOGUR
SÍMI 554 4433
Opnunartími virka daga
10-18
og laugardaga 10-16
Úrval
af drögtum,
teinóttu dragtirnar
komnar
Við bjóðum nýja og eldri
viðskiptavini velkomna.
Helen, Gulla, Hlín og Hanna
Hársnyrtistofan SPARTA
Laugarásvegi 1 • s: 553 1755
Laugavegi 62
sími 511 6699
Glæsibæ
sími 511 6698
www.sjon.is
sjon@sjon.is
Gar›atorgi
sími 511 6696
N†TT
Afsláttur
35%
fyrir eldri borgara
Guinot endurnýjandi
ávaxtasýru
andlitsmeðferð.
Glæsileg gjöf fylgir 2 skiptum
Skrautlegt ponsjó, húfa og legghlífar. Heklað sjal og þæfð taska.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/G
VA
Fatnaður úr plöntubeðma:
Vel geymt leyndarmál
Fimelle
rúllukragabolur
3.590 kr.
Fimelle
samfella
2.490 kr.
Nina Von C
nærfatasett
5.280 kr.
Fimelle
hlýrabolur
1.590 kr.
Ingibjörg Jónsdóttir og María Hrafnsdóttir segja viðskiptavini sína tala um verslun
þeirra Igma sem best geymda leyndarmálið í Reykjavík.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/PJETU
R
Prjón og hekl er í tísku og þeim fer nú aftur fjölgandi sem
taka sér prjóna og heklunálar í hönd og búa til sínar eigin
flíkur. Á dögunum voru, á vegum Prjónablaðsins Ýr, sýndar
prjónaðar og heklaðar glæsiflíkur á sviði á Hótel Sögu.
Áhuginn er greinilega mikill á þessum þætti hannyrða því
salurinn fylltist kvöld eftir kvöld. Sjöl og ponsjó voru áber-
andi og skrautlegar töskur líka og er það í takt við strauma
tískunnar.
Þæfðar ullarflíkur eru í miklum metum.
PRJÓN OG HEKL: Í takt við tískunna
Fimelle
nærfatasett
2.580 kr.
Á FÖSTUDÖGUM
Uppskrift að góðri matarhelgi
Auglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is - mest lesna blað landsins
30-31 tíska ofl 27.10.2004 16:16 Page 3