Fréttablaðið - 28.10.2004, Blaðsíða 46
30 28. október 2004 FIMMTUDAGUR
„Annars ætla ég ekkert að ræða þetta mál frekar í
fjölmiðlum.“
Sagði Þórhallur Dan Jóhannsson, fyrrum Fylkismaður, í „aðeins“ sínu þriðja viðtali á
innan við sólarhring um viðskilnað sinn við Fylki.
sport@frettabladid.is
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
25 26 27 28 29 30 31
Fimmtudagur
OKTÓBER
Við hrósum...
... Grindvíkingum fyrir áður óséða þolinmæði í garð þjálfara. Þeir
ætla sér að fá Guðjón Þórðarson sem þjálfara félagsins og
virðast nánast vera tilbúnir að bíða eftir honum til eilífðar. Ef þeir
vilja Guðjón þurfa þeir eflaust að bíða í að minnsta kosti viku í
viðbót.
FÓTBOLTI Það er enn fullkomlega
óljóst hver tekur við knattspyrnu-
liði Grindavíkur. Félagið hafði
komist að samkomulagi við Guð-
jón Þórðarson um að taka við lið-
inu en þegar kom að undirritun
samningsins opnuðust gluggar
fyrir Guðjón í Englandi. Hann brá
því undir sig betri fætinum, stökk
upp í flugvél og gerir allt hvað
hann getur til þess að komast inn
um eins og einn glugga. Það hefur
ekki enn skýrst hvort Guðjóni
verði hjálpað inn um einhvern
gluggann og líklegt er að það
skýrist ekkert næstu vikuna.
Á meðan safnar samningurinn
ryki í Grindavík og það sætta
stjórnarmenn Grindavíkur sig
ekki við til lengdar. Þeir eru að
missa þolinmæðina gagnvart
Guðjóni og þurfa að fá skýr svör
frá honum fljótlega því ekki geta
þeir verið þjálfaralausir mikið
lengur.
„Við munum heyra í Guðjóni á
næstu dögum og þá vonandi skýr-
ast þessi mál,“ sagði Jónas Þór-
hallsson, formaður knattspyrnu-
deildar Grindavíkur, í samtali við
Fréttablaðið í gær. „Við erum ekki
tilbúnir að bíða út í hið óendan-
lega. Ef Guðjón ætlar að halda
áfram að leita að starfi úti þá
verðum við að fara að skoða aðra
möguleika því ekki getum við ver-
ið þjálfaralausir mikið lengur. Við
getum beðið eftir Guðjóni fram að
áramótum ef við finnum engan á
meðan en ef við finnum einhvern
góðan þjálfara þá verðum við að
stökkva af stað og gera eitthvað.“
Jónas segir að það hafi verið
draumur hjá honum lengi að fá
Guðjón til starfa í Grindavík og
því vill hann ekki gefa upp alla
von enn sem komið er. Guðjón
hefur ekki setið auðum höndum í
Englandi síðustu vikur, hann
ræddi til að mynda við menn frá
Leicester um síðustu helgi og
hann á fund með mönnum frá
öðru félagi í byrjun næstu viku.
Það er því ljóst að hann getur ekki
gefið Grindavík jákvætt svar al-
veg strax.
„Ég veit ekkert hvað verður úr
þessum málum. Það er alveg
ómögulegt að spá og maður verður
bara að taka því sem kemur,“ sagði
Guðjón við Fréttablaðið í gær en
hann sá Leicester spila gegn sínu
gamla félagi, Stoke, um síðustu
helgi. Guðjón sagði stöðuna varð-
andi Grindavík vera þá sömu og
áður og hefði ekkert breyst af hans
hálfu. Því væri ákaflega lítið annað
um málið að segja.
henry@frettabladid.is
GUÐJÓN ÞÓRÐARSON Veltir framtíðinni fyrir sér þessa dagana. Er enn að funda með enskum félögum og kemur ekki heim í bráð.
Grindavík segist ekki geta beðið mikið lengur eftir honum.
Þolinmæðin að bresta
Stjórn Grindavíkur segist ekki geta beðið mikið lengur eftir Guðjóni
Þórðarsyni. Guðjón er enn að reyna fyrir sér í Englandi og kemur ekk-
ert heim á næstunni.
■ ■ LEIKIR
19.15 Skallagrímur og Snæfell
mætast í Borgarnesi í Intersportdeild
karla í körfubolta.
19.15 Fjölnir og Grindavík
mætast í Grafarvogi í Intersportdeild
karla í körfubolta.
19.15 Haukar og KFÍ mætast á
Ásvöllum í Intersportdeild karla í kör-
fubolta.
19.15 Keflavík og Haukar mætast
í Keflavík í Intersportdeild karla í körfu-
bolta.
19.15 Njarðvík og Hamar/Selfoss
mætast í Njarðvík í Intersportdeild karla
í körfubolta.
19.15 Tindastóll og KR mætast á
Sauðárkróki í Intersportdeild karla í kör-
fubolta.
19.15 Stjarnan og KA/Þór
mætast í Ásgarði í 1. deild kvenna í
handbolta.
19.15 FH og Haukar mætast í
Kaplakrika í 1. deild kvenna í handbolta.
19.15 Valur og Fram mætast í
Valsheimilinu í 1. deild kvenna í hand-
bolta.
19.15 Víkingur og Grótta/KR
mætast í Víkinni í 1. deild kvenna í
handbolta.
■ ■ SJÓNVARP
16.10 Olíssport á Sýn.
16.45 Handboltakvöld á RÚV.
17.25 European PGA Tour á Sýn.
17.30 Þrumuskot – ensku mörkin
á Skjá einum.
18.20 Ítalski boltinn á Sýn. Bein
útsending frá leik Juventus og Roma í
ítölsku A-deildinni í fótbolta.
22.00 Olíssport á Sýn.
23.15 Boltinn með Guðna Bergs á
Sýn.
Evrópska golf-sambandið
hyggst hefja rann-
sókn á orðrómi
um að golfkapp-
inn Severiano
Ballesteros hafi
ráðist á einn yfir-
mann sambands-
ins nálægt heimili
sínu á Spáni. Er
þetta ekki í fyrsta
sinn sem Seve kemst í heimsfrétt-
irnar fyrir álíka galgopahátt og má
leiða að því líkum að ferill hans sé á
enda sannist atvikið á hann.
Rallökuþórinn Colin McRea gætitekið upp hanskana að nýju og
sest undir stýri í
heimsmeistara-
keppninni í ralli.
Kappinn hefur
ekki keppt að
undanförnu en
eftir að hafa
reynsluekið rall-
útgáfu af gamla
góða Skódan-
um fannst honum nógu mikið til
um til að leggja haus í bleyti. Mun
hann taka ákvörðun innan tíðar.
Yfirmaður Formúlu 1 liðs Renaulthefur tilkynnt að liðið muni
hætta þáttöku í keppninni árið
2008 og snúa sér frekar að Grand
Prix World kappakstrinum. Segir í
tilkynningu að ástæðan sé óréttlát
skipting tekna þeirra sem af For-
múlu hlýst en lítið virðist enda í vös-
um þeirra liða sem hafa hingað til
ekki hampað meistaratitli í grein-
inni.
Ekki hafa þó allirgefist upp á
Formúlunni. Fregn-
ir berast af því frá
Cancun í Mexíkó
að keppni í For-
múlu muni fara
fram þar árið 2006
í fyrsta sinn. Cancun er þekkt sem
vinsæll ferðamannastaður og vin-
sældirnar munu væntanlega aukast
við að fá eins og eina heimsklassa
kappaksturskeppni í bæinn.
Það er ekki bara Arsene Wengersem hefur auga fyrir bráðefnileg-
um spænsk-
um snilling-
um. Alex
Ferguson gat
vart hamið sig
yfir leik hins
17 ára Gerard
Piqué í
deildabikarleik
United gegn
Crewe. Alveg
eins og hinn
bráðefnilegi Fabregas hjá Arsenal
kemur Piqué úr unglingaliði
Barcelona.
A tletico Madrid á í vandræðummeð að útvega það fé sem Boca
Juniors fer fram á fyrir argentíska
ungstirnið Carlos Téves. Téves sem
skaut upp á sjónarsviðið með stór-
leik sínum með Argentínu í Copa
America sem fram fór í sumar hefur
ítrekað verið líkt við Maradona
vegna hæfileika sinna en ennfremur
vegna vaxtarlagsins en kappinn þyk-
ir vel í holdum miðað við knatt-
spyrnumenn.
ÚR ÍÞRÓTTAHEIMINUM
Fimmta umferð Intersportdeildarinnar í körfu-
bolta fer fram í kvöld. Í síðustu umferð vakti stórsig-
ur Njarðvíkinga á Grindvíkingum á útivelli mesta at-
hygli auk þess sem nýliðar Fjölnis unnu óvæntan en
sannfærandi sigur á KR-ingum í vesturbænum.
Fréttablaðið fékk Sverri Þór Sverrisson, leik-
mann Keflavíkur og þjálfara kvennaliðs félagsins, til-
að spá í spilin fyrir fimmtu umferðina.
Skallagrímur-Snæfell
„Þetta er grannaslagur af bestu gerð og ég hef
trú á því að Skallagrímur vinni nauman sigur. Valur
Ingimundarson er að gera góða hluti með liðið og
þeir eru með Clifton Cook, sem er að mínu mati
einn besti útlendingur deildarinnar. Snæfell á eftir
að eflast þegar á líður en liðið er mikið breytt frá því
í fyrra.“
Fjölnir-Grindavík
„Grindavík hefur tapað síðustu tveimur leikjum
og mæta brjálaðir til leiks. Ég held að þeir vinni en
það verður ekki stórt. Fjölnismenn eru kannski ekki
komnir niður á jörðina eftir sigurinn gegn KR en það
býr mikið í því liði. Þeir eru með góðan þjálfara, ster-
ka útlendinga og helling af ungum og hæfileikarík-
um strákum.“
Haukar-KFÍ
„Ég held að þetta verði léttur sigur hjá Haukum.
KFÍ er í vandræðum og mér finnst að þeir ættu að
ná sér í einn útlending til viðbótar. Kaninn hjá þeim
er góður en hann getur ekki borið leik liðsins uppi
endalaust. Haukarnir eru með ágætis lið og verða
ekki í vandræðum með þennan leik.“
Keflavík-ÍR
„Við ætlum okkur að vinna þennan leik. Það er
aldrei auðvelt að spila geng ÍR en við þurfum að fara
koma okkur í gírinn. Við höfum ekki spilað eins vel
og við getum það sem af er tímabilinu og ég vona
að það komi í þessum leik. Það er stutt í Evrópu-
keppnina og við verðum einfaldlega að bæta okkur.“
Njarðvík-Hamar/Selfoss
„Þetta verður stórsigur hjá Njarðvík. Þeir eru
með besta lið deildarinnar eins og staðan er í dag
þrátt fyrir að ég telji að önnur lið eigi eftir að nálgast
þ á
þegar líða
tekur á tímabilið.
Gestirnir spila lé-
lega vörn og eiga
einfaldlega ekki
möguleika í þessum
leik.“
Tindastóll-KR
„Ég held að
Tindastóll vinni þenn-
an leik. Þeir hafa unn-
ið tvo leiki í röð eftir að
hafa verið í basli með
hópinn í byrjun og þetta er
allt að smella saman hjá
Kára þjálfara. Ég bjóst við KR-
ingum sterkari heldur en raun-
in hefur orðið og ég held að
þeir fari heim með tap á bak-
inu.“
SVERRIR
ÞÓR
Telur að
Tindastóll
vinni sinn
þriðja leik
í röð gegn
KR-ingum
á Sauðár-
króki.
Sverrir Þór Sverrisson spáir í 5. umferðina:
RÚNAR SIGTRYGGSSON
Orðinn spilandi þjálfari í Þýskalandi.
Rúnar Sigtryggsson:
Þjálfar
Eisenach
HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn
Rúnar Sigtryggsson var í gær ráð-
inn þjálfari hjá þýska 2. deildarfé-
laginu Eisenach í stað Zlatko Fer-
ic sem var rekinn á þriðjudag.
Rúnar mun einnig halda áfram að
spila með liðinu.
Lítið hefur gengið hjá Eisenach
í vetur og félagið situr í 11. sæti
Suðurriðils þýsku 2. deildarinnar
eftir sjö umferðir. Aðeins þrír
leikir hafa unnist en fjórir tapast
og það var ekki viðunandi að mati
stjórnar Eisenach og því ráku þeir
Feric. Rúnar stýrði sinni fyrstu
æfingu hjá félaginu í gærkvöld og
fyrsti leikur liðsins undir hans
stjórn er á laugardag.
Þetta er í fyrsta skipti sem
Rúnar þjálfar félagslið. Hann er á
sínu fyrsta ári með Eisenach en
Rúnar lék með þýska úrvalsdeild-
arfélaginu Wallau Massenheim á
síðustu leiktíð. - hbg
46-47 (30-31) SPORT1 27.10.2004 20:42 Page 2