Fréttablaðið - 29.10.2004, Blaðsíða 56
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
SMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMSLEIKURSMS
Sendu SMS skeytið
BT BTF á númerið 1900
og þú gætir unnið.
Vinningar verða afhendir í BT Smáralind, Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
10.
Við sendum þér
spurningu. þú svarar með
því að senda SMS skeytið BT
A, B eða C á númerið 1900.
Heimabíó Leikjatölvur GSM símar Sjónvörp DVD spilarar DVD myndirBíómiðar
ÞESSI MAGNAÐA OG MARGSLUNGNA SAKAMÁLASAGA HEFUR
FARIÐ SIGURFÖR UM HEIMINN Á SÍÐUSTU MÁNUÐUM.
Sagan gerist í Boston árið 1865. Nokkrir af helstu bókmenntamönnum
Bandaríkjanna taka höndum saman um að koma Hinum guðdómlega
gleðileik ítalska skáldsins Dantes út á ensku. Valdamiklir einstakl-
ingar innan Harvard-háskólans reyna að koma í veg fyrir þessa
fyrirætlun. En málin flækjast þegar framin eru hryllileg morð sem
virðast sækja innbástur í lýsingar Dantes á víti.
Á liðnu ári skipaði Dan Brown sér í hóp vinsælustu
spennusagnahöfunda veraldar með hinni frábæru bók
Da Vinci lyklinum. Englar og djöflar gefur henni ekkert
eftir enda hefur bókin setið mánuðum saman á
metsölulistum víða um heim.
ROBERT LANGDON ER BOÐAÐUR TIL SVISS TIL AÐ
RANNSAKA VETTVANG ÓHUGNANLEGS MORÐS Á
ÞEKKTUM VÍSINDAMANNI. FYRR EN VARIR ER HANN
FLÆKTUR INN Í ALDALANGAR ERJUR KAÞÓLSKU
KIRKJUNNAR OG LEYNIFÉLAGSINS ILLUMINATI SEM
HEFUR Í HYGGJU AÐ VALDA UPPNÁMI Í PÁFAGARÐI.
Forseta-
kosningar
Vestur í Ameríku verða forseta-kosningar 2. nóvember nk. Í
Broward-sýslu í Flórídafylki ætla
menn greinilega ekki að láta sitt
eftir liggja við að gera kosningarnar
spennandi, því að þar hefur yfirvöld-
unum nú þegar tekist að týna 58 þús-
und utankjörfundaratkvæðum. Þetta
mun að sjálfsögðu gera kosningarn-
ar tvísýnni, því að í Browardsýslu
hafa demókratar meira fylgi en ann-
ars staðar í fylkinu – árið 2000 fékk
Al Gore 67% greiddra atkvæða þar –
svo að repúblíkönum veitir ekki af
smá forgjöf.
FRAMBJÓÐANDI sem tryggir
sér atkvæði 270 kjörmanna ber sigur
úr býtum. Nýjustu spár segja að
Bush eigi vísan stuðning 211 kjör-
manna og Kerry 207 – en úrslit séu
víða ófyrirsjáanleg. Baráttan verður
tvísýn í Arizona (10 kjörmenn),
Arkansas (6), Colorado (9), Flórída
(27), Iowa (7), Michigan (17),
Minnesota (10), Missouri (11),
Nevada (5), New Hampshire (4),
Nýja-Mexíkó (5), Norður-Karólína
(15), Ohio (20), Oregon (7), Pennsyl-
vania (21), Tennessee (11), Virginia
(13), Washington (11), Vestur-Virg-
inia (5) og loks Wisconsin (10).
AF ÞESSUM óákveðnu fylkjum
munar að sjálfsögðu mest um að
sigra í Flórída sem hefur 27 kjör-
menn, Ohio með 20 og Pennsylvania
með 21. Kosningasérfræðingar segja
að ekki sé mögulegt að spá um úrslit
í þessum fjölmennu fylkjum. Sama
gildi um Minnesota, Missouri,
Nevada, New Hampshire, Vestur-
Virginíu og Wisconsin.
AF HINUM TVÍSÝNU fylkjum er
Bush líklegri til að sigra í Arizona,
Arkansas, Colorado, Tennessee og
Virginíu. Kerry er hins vegar talinn
eiga sigurvon í Iowa, Michigan,
Nýju-Mexíkó, Oregon og Was-
hington. Í Norður-Karólínu er Bush
talinn eiga meira fylgi, en þetta er
reyndar heimafylki Johns Edwards,
varaforsetaefnis Kerrys, svo að þar
getur allt gerst.
ÞAÐ er náttúrlega dáldið skrýtið að
Íslendingar skuli fylgjast með þess-
um kosningum af brennandi áhuga,
en það stafar kannski af því að við
erum reiðubúin að fylgja Banda-
ríkjaforseta í stríð á sama tíma og
við myndum loka okkar eigin forseta
inni á geðveikrahæli ef honum dytti
í hug að stinga upp á því að við segð-
um einhverri þjóð stríð á hendur. ■
BAKÞANKAR
ÞRÁINS BERTELSSONAR
56 (44) baksíða 28.10.2004 18:58 Page 2