Fréttablaðið - 03.11.2004, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 550 5000 – Veffang: visir.is
MIÐVIKUDAGUR
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
MYNDARLEGAR SKÚRADEMBUR
Sunnan- og vestantil en þurrt norðaustantil
þegar kemur fram á daginn. Er að snúa sér
smá saman til norðanáttar og þá kólnar.
Sjá síðu 4.
3. nóvember 2004 – 301. tölublað – 4. árgangur
FÉLÖGIN SVARI TIL SAKA Olíufélög-
in telja stærstan hluta brotanna fyrndan.
Lögmaður Skeljungs segir að félögin eigi
að svara til saka. Margt í skýrslunni sé ekki
í samræmi við gögn málsins. Eins og að
tala við vindinn að reyna að tala um ein-
stök tilvik. Sjá síðu 4
ÁTTU TÍMA HJÁ SÝSLUMANNI
Bráðabirgðaniðurstöður krufningar styðja
það sem áður hefur komið fram um að
Sæunni Pálsdóttur hafi verið ráðinn bani
með því að þrengt hafi verið að öndunar-
vegi hennar. Sjá síðu 2
SEGIR EKKI AF SÉR Þórólfur Árnason
segir það ekki í myndinni að segja af sér
sem borgarstjóri, vegna aðildar hans að ol-
íusamráði. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson segir
olíufélögin ekki hafa farið vel með borgina,
en fékk ekki umræðu um málið. Sjá síðu 6
DÖKK STÖÐUMYND Kristín Ástgeirs-
dóttir, fyrrverandi alþingismaður kynnti á
Norðurlandaráðsþingi í gær niðurstöður
starfshóps um lýðræði þar sem dregin er
upp dökk mynd af stöðu stjórmálaflokka á
Norðurlöndum. Sjá síðu 8
Kvikmyndir 30
Tónlist 28
Leikhús 28
Myndlist 28
Íþróttir 24
Sjónvarp 32
Þorsteinn Hallgrímsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Námskeið
í golffimi
● nám
Meistaradeild Evrópu:
▲
SÍÐA 24
Eiður og félagar
komnir áfram
● unnu 1–0 i moskvu í gær
Eddu-verðlaunin:
▲
AUKABLAÐ FYLGIR
Glamúr
● og glæsileiki
Ítalski söngfuglinn:
▲
SÍÐA 34
Robertino
● á leið til landsins
SPUNAKVÖLD Í kvöld klukkan níu
verður haldið spunakvöld í Klink og Bank,
Brautarholti 1-3 í Reykjavík. Þátttaka er
sögð öllum heimil, hvort heldur sem er í
formi spunaframlags eða áhorfs.
25-50 ára
Me›allestur dagblaða
Höfuðborgarsvæðið
Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallups október '04
80%
50%
MorgunblaðiðFréttablaðið
ELDGOS „Nú er að að öllum líkind-
um hafin ný goshrina í Vatna-
jökli,“ segir Magnús Tumi Guð-
mundsson jarðfræðingur. „Hún
hófst með Gjálpargosinu árið
1996. Síðan kom gosið í Gríms-
vötnum árið 1998 og þetta gos
passar alveg inn í mynstrið.“
Magnús Tumi segir að gos-
hrinur í Vatnajökli séu lotubundin.
Loturnar standi yfir í 60-80 ár þar
sem gos verða á 5-10 ára fresti en
þess á milli líði lengra á milli gosa.
Hann segir greinilegt að nýtt gos-
virknitímabil sé hafið.
Eldgosið núna er heldur stærra
en gosið sem varð í Grímsvötnum
árið 1998, en miklu minna en
gosið sem varð í Gjálp árið 1996.
Magnús Tumi segir að gosið í
Gjálp hafi verið allt öðruvísi en
gosið núna.
„Það var allt undir jökli. Þetta
gos er ekki nema að litlu leyti
undir jökli, það fer í gegnum
jökulinn en gýs að mestu leyti upp
í andrúmsloftið.“
Vegna viðvarandi og vaxandi
skjálftavirkni undir Grímsvötn-
um síðustu tvær vikur kom eld-
gosið, sem hófst klukkan 21.50 í
fyrrakvöld, jarðfræðingum ekki á
óvart. Magnús Tumi segir að það
sem sé einna merkilegast við
gosið sé að þegar hlaupið hafi
farið af stað fyrir fáeinum dögum
hafi vatnsþrýstingurinn minnkað í
Grímsvötnum. Það hafi valdið því
að kvikan hafi átt auðveldara með
að brjótast upp. Hann segir þetta í
takt við tilgátu sem Sigurður Þór-
arinsson jarðfræðingur setti fram
um Grímsvatnagos fyrir fimmtíu
árum.
Gífurlegt hlaup varð árið 1996
þegar gos varð í Gjálp, skammt
norðan við Grímsvötn. Þá skolaði
brúnni yfir Gígjukvísl á haf út,
Skeiðarárbrúin laskaðist talsvert
en brúin yfir Núpsvötn stóðst
áhlaupið. Ekki er búist við nærri
því jafn miklu hlaupi í kjölfar
gossins nú. Magnús Tumi segist
ekki hafa trú á að brýr á Skeiðar-
ársandi séu í einhverri hættu nú.
Til þess þurfi eitthvað óvænt að
gerast.
Gosmökkurinn við Grímsvötn
teygir sig nú allt að fjórtán kíló-
metra upp í himininn. Hann var
það mikill í gær að stórt svæði
norðaustur af gosstöðvunum var
lokað fyrir flugumferð. Til dæmis
var ekki flogið til Akureyrar eða
Egilsstaða um tíma. Samkvæmt
upplýsingum frá Veðurstofunni er
búist við suðlægri átt í dag þannig
að gosmökkurinn heldur áfram að
berast í norðaustur. - th
Sjá síður 2 og 16
Ný goshrina hafin
Næstu 60 til 80 árin má búast við tíðum eldgosum í Vatnajökli að sögn Magnúsar Tuma
Guðmundssonar jarðfræðings. Ekki er búist við miklu hlaupi og mannvirki ekki talin í hættu.
ELGOSIÐ Í GRÍMSVÖTNUM Í VATNAJÖKLI Vegna vaxandi skjálftavirkni undir Grímsvötnum síðustu tvær vikur kom eldgosið jarðfræðingum ekki á óvart. Gosmökkurinn teygir sig allt
að fjórtán kílómetra upp í himininn og var meðal annars vart við öskufall við bæinn Möðrudal á Möðrudalsöræfum.
UPPTÖK ELDGOSSINS
Kortið sýnir upptök skjálfta (rauðir hringir)
í Grímsvötnum þann 1.nóvember 2004.
Fyrsta áætlaða staðsetning eldgossins er
sýnd með dökkum tígli. Jarðskjálftastöðvar
eru sýndar með grænum þríhyrningum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
EÐ
U
R
ST
O
FA
ÍS
LA
N
D
S
Bandarísku forsetakosningarnar:
Óvenjumikil kjörsókn
BANDARÍKIN Um þver og endilöng
Bandaríkin mátti sjá langar raðir
kjósenda sem biðu eftir því að
komast að til að greiða atkvæði
um næsta forseta sinn og í önnur
embætti sem kosið var um í gær.
Kjörsókn var óvenju mikil á
bandarískan mælikvarða. Búist
var við því að allt að 120 milljónir
manna myndu greiða atkvæði, það
er fimmtán milljónum meira en
fyrir fjórum árum og um 60 pró-
sent allra sem hafa kosningarétt.
George W. Bush og John Kerry
voru á faraldsfæti í gær og fóru
báðir til Ohio þar sem spennan
var hvað mest. Báðir hvöttu sjálf-
boðaliða áfram og Bush hringdi í
nokkra kjósendur til að fá þá á
kjörstað.
Ekki var ljóst hver úrslitin
yrðu þegar Fréttablaðið fór í
prentun þar sem kjörstaðir voru
enn opnir, þeir síðustu áttu að loka
klukkan sex.
- bþg
M
YN
D
/K
R
IS
TJ
ÁN
Þ
Ó
R
KR
IS
TJ
ÁN
SS
O
N
01 Forsíða 2.11.2004 22:19 Page 1