Fréttablaðið - 03.11.2004, Blaðsíða 48
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 550 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 550 5005, fax: 550 5006, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 550 5010 - fax 550 2727, auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 550 5000
Sendu SMS skeytið
JA FGF
á númerið 1900
og þú gætir unnið.
SMS
LEIKUR
10.
HVER VINNUR
Vinningar eru:
Bíómiðar á Forgotten
Bolir, Bollar, Húfur, DVD myndir
Margt fleira.
Vinningar verða afhendir hjá BT Smáralind. Kópavogi. Með því að taka þátt ertu kominn í SMS klúbb. 99 kr/skeytið
BÍÓMIÐI Á 99KR?
edda.is
Ótrúlegt lífshlaup
íslensks dvergs
KOMIN Í
VERSLANIR
30%
afsláttur
Í þrjátíu ár þóttist hún vera eskimói ...
og komst upp með það!
Ótrúlegt lífshlaup húnvetnsku stúlkunnar Ólafar
Sölvadóttur sem var einn vinsælasti fyrirlesari
Bandaríkjanna um aldamótin 1900. Hún fræddi
agndofa áheyrendur um æsku sína og uppvöxt á
Grænlandi, en á það land hafði hún aldrei stigið
fæti!
Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur segir frá
ævintýralegu lífshlaupi Ólafar, varpar ljósi á
blekkingarleik hennar og hvernig hún komst upp
með hann.
Inga Dóra Björnsdóttir
Verkfall
Þá er hinu langa verkfalli lokið, í biliað minnsta kosti. Krakkarnir eru
aftur komnir í skólann. Allir varpa
öndinni léttar. Allt er komið aftur í lag
og vonandi verða kennararnir til friðs
þannig að börnin okkar geti lært
margföldun og dönsku. (Og þess má til
gamans geta að ég tala hvorugt).
ÞAÐ ER BÚIÐ að vera skrítið að
fylgjast með umræðunni um verkfall-
ið í fjölmiðlum. Fólk er búið að vera
svo mikið að tala um hvað þetta sé
slæmt ástand fyrir börnin og þau séu
hin raunverulegu fórnarlömb verk-
fallsins. Það var nú ekki að sjá á mín-
um börnum og öðrum sem ég rakst á í
bænum að þar væru á ferð einhver
fórnarlömb. Þvert á móti. Lífsgleðin
skein af þeim. Mér sýndust nú flestir
krakkar vera glaðir og fegnir að vera
í fríi.
MARGIR tóku börnin sín með í vinn-
una á meðan á verkfallinu stóð. Það
fannst mér gaman að sjá. Krakkar
héngu á vinnustöðum og fylgdust með
og jafnvel hjálpuðu til. Oft sá ég litla
stráka sitja frammí í vörubílum og
sendibílum. Þarna gafst krökkunum
ágætis innsýn inn í framtíð sína. Ég
held bara að mörg börn hafi fengið
ágætis menntun á meðan á verkfall-
inu stóð og það í hlutum sem ekki eru
kenndir í skólum.
TIL ER ANNARS konar menntun en
sú sem kennd er í skólum eða á nám-
skeiðum. Það er eitt að lesa um hlut-
ina. Það er annað að sjá þá gerða. En
best er þó að gera þá sjálfur. Á því
lærir maður mest. Ég held að margir
krakkar hafi lært mikið af því að
þurfa að sjá um sig sjálfir á daginn á
meðan mamma og pabbi voru í vinn-
unni.
KANNSKI eru kennarar svona ósátt-
ir vegna þess að uppeldi barna er
meira og meira að færast yfir á þá.
Samt vill enginn tala um það því þá
þyrftum við foreldrar að fara að
greiða aukalega fyrir það. Uppeldi er
nefnilega töluverð vinna og fyrirhöfn.
Og það er eitt að kunna að lesa og
annað að kunna mannasiði og fer því
miður ekki alltaf saman.
ÉG HELD að þetta hafi verið dýr-
mæt reynsla fyrir marga. Það er bara
heilmargt sem var gott við þetta verk-
fall. Margir krakkar fengu að kynnast
foreldrum sínum betur og sjá hliðar á
þeim sem þeir höfðu ekki séð mikið af
áður. Fjölskyldur voru meira saman.
Næst þegar ég fer í verkfall fer ég
kannski bara að mæta í skólann með
krökkunum mínum.
JÓNS GNARR
BAKÞANKAR
48 (36) Bak 2.11.2004 21:48 Page 2