Fréttablaðið - 06.11.2004, Blaðsíða 42
Ólafur Jóhann er nýlega vakn-aður þegar við hittumst síð-
degis á glæsilegu heimili hans í
Þingholtunum. Hann hafði lagt
sig eftir flugferðina frá Banda-
ríkjunum fyrr um morguninn því
hann getur ekki sofið í flugvél-
um. Ólafur Jóhann er kvikur í
hreyfingum, glaðlegur og talar
hratt en ákveðið. Honum reynist
auðvelt að segja frá nýju bókinni
enda vanur maður. Sakleysingj-
arnir er hans áttunda. Sögur
hans flestar eiga það sammerkt
að segja af fólki sem fer víða.
Aðalpersónan í Sakleysingjun-
um, Dagur Alfreð Huntingfield,
er þar engin undantekning. En
ólíkt öðrum persónum Ólafs
Jóhanns fæddist Dagur á hurð.
„Þegar ég var strákur sagði
amma mín mér sögu af því þegar
afi minn, sem var héraðslæknir á
Kópaskeri, þurfti að taka barn
með keisaraskurði. Þetta var á
bóndabæ úti á
M e l r a k k a -
sléttu og ekki
auðvelt að at-
hafna sig og
eina ráðið sem
hann hafði var
að framkvæma
aðgerðina á
hurð. Hann tók
sem sagt hurð
af hjörum,
setti stoðir
undir hvorn enda og skar konuna
á hurðinni. Þessi saga sat í mér
og henni laust niður þegar ég
byrjaði að skrifa um Dag
Alfreð.“ Í sögunni notar Ólafur
Jóhann ýmsar táknrænar mynd-
ir þess að fæðast á hurð, sögu-
persónan segir t.d. að það sé
kannski vegna þessarar stað-
reyndar sem honum finnist allar
dyr standa sér opnar.
Spegill síðustu aldar
Dagur Alfreð er hálfur Íslending-
ur og hálfur Breti og aftan við ís-
lensk fornöfnin ber hann eftir-
nafnið Huntingfield. Ævi hans er
viðburðarík, reyndar ótrúleg. Og
um leið og Sakleysingjarnir er
saga hans er hún saga mannkyns-
ins á síðustu öld, eins konar aldar-
spegill. „Þegar ég byrjaði að
skrifa sögu Dags Alfreðs varð
mér ljóst að hún kynni að verða
einhvers konar spegill síðustu
aldar. Öldin síðasta er mér mjög
hugleikin, hún er margklofin og
flókin, hún er öld andstæðna því á
henni urðu bæði framfarir og
hörmungar,“ segir Ólafur Jóhann.
Persónan varð fyrst til og í
framhaldinu fléttaðist atburða-
rásin inn í. „Mér fannst karakter-
inn vera þannig í laginu að hann
kynni að eiga ýmislegt skylt við
þessa öld sem er nýliðin. Og þeg-
ar ég lagði byggingu bókarinnar
niður fyrir mig tók ýmislegt að
koma fram í hugann sem ég hef
sankað að mér í gegnum árin,
ýmsar sögur sem ég hef heyrt,
ýmislegt sem ég hef lesið, rann-
sakað eða fólk gaukað að mér.“ Í
bókinni fléttast sumsé saman
skáldskapur og sannar sögur.
„Hún er fyrst og fremst skáld-
saga en ég nota ýmsa viðburði úr
sögu tuttugustu aldarinnar.“
Viðburðirnir sem hér um ræð-
ir eru af ýmsu tagi, kunnir og
síður kunnir, saklausir og við-
kvæmir. Sumir reyndar mjög
viðkvæmir.
Viðkvæm mál úr þjóðlífinu
Ólafur Jóhann notar meðal ann-
ars merkilega sögu frá
ástandsárunum og heimsmeist-
araeinvígi Fischers og Spasskys
á Íslandi. „Ég komst í tæri við
mann sem þekkir Fischer, eins
og hægt er að þekkja Fischer, og
það er óhætt að segja að ég
bregði nýju ljósi á hann.“
Þá styðst hann við tvö afar
viðkvæm mál þar sem kunnir
Íslendingar koma við sögu. Bæði
áttu sér stað fyrir mörgum árum
og bæði höfðu mikil áhrif á þá
sem í hlut áttu. Með misjöfnum
hætti þó. „Ég fjalla um mál Guð-
mundar Skarphéðinssonar á
Siglufirði og Sveins Benedikts-
sonar sem er náttúrlega mjög
viðkvæmt,“ segir Ólafur Jóhann.
Í stuttu máli var Guðmundur for-
maður verkalýðsfélagsins á
Siglufirði og Sveinn í forsvari
fyrir Síldarverksmiðjur ríkisins.
Þeir tókust
harkalega á um
f y r i r h u g a ð a
launalækkun í
verksmiðjunni
árið 1932 og
skrifaði Sveinn
tvær afar
rætnar greinar
um Guðmund í
Morgublaðið,
sagði hann
meðal annars
skattsvikara og loddara. Daginn
sem síðari greinin birtist hvarf
Guðmundur en síðast sást til
hans kaupa sér blýlóð. Seinna
fannst hann látinn í höfninni.
„Svo fjalla ég um sögu Þóru
Hallgrímsson og George Lincoln
Rockwell sem mér var sögð fyrir
nokkrum árum.“ Þóra giftist ung
hinum bandaríska Rockwell, sem
síðar kom í ljós að var nasisti.
Þau bjuggu við afar erfiðar að-
stæður vestan hafs og áttu sam-
an börn. Ráðahagurinn fór fyrir
brjóstið á ættmennum Þóru og
kom að því að hún og börnin voru
sótt til Bandaríkjanna. Síðar var
Rockwell skotinn til bana af sam-
flokksmanni sínum í bandaríska
nasistaflokknum. Um þetta
skrifar Ólafur Jóhann.
„Ég nota þetta og fleira úr
veruleikanum því þetta passar
inn í söguna. Viðburðirnir bregða
ljósi á öldina sem leið. Kreppan,
stéttaátökin, nasisminn, allt
skiptir þetta máli og endurspegl-
ar heimssöguna.“ Ólafur Jóhann
segir öllu skipta hvernig farið er
með efnið og til hvers leikurinn
sé gerður.
Hann hafði ekki samráð við
fólkið sem um ræðir eða afkom-
endur þess en skýrði fjölskyldu
Þóru frá því að saga hennar
kæmi fram þegar fyrstu drög að
bókinni lágu fyrir. „Þau lásu
þetta og ég held að þeir sem lesa
bókina hugsi með hlýhug til
Þóru og fjölskyldu hennar,“ segir
Ólafur Jóhann. Þóra er í dag
gift Björgólfi Guðmundssyni at-
hafnamanni.
New York, Long Island,
Reykjavík
Það tók Ólaf Jóhann þrjú ár að
skrifa Sakleysingjana. Fyrst varð
aðalpersónan til og svo var at-
burðarásin upphugsuð og sniðin.
Eftir tveggja ára skriftir stóð
hann uppi með 900 blaðsíðna bók.
Heilt ár fór í að stytta, skera
niður, þjappa textanum saman og
fá rétta taktinn. Niðurstaðan er
555 síður, þéttskrifaðar. Og
höfundurinn er ánægður með
verkið. „Maður sendir aldrei frá
sér bók fyrr en maður er orðinn
ánægður með hana,“ segir hann
og bendir á þá einföldu staðreynd
að væri hann ekki ánægður hefðu
Sakleysingjarnir ekki komið út.
Bókin er skrifuð á þremur
stöðum; í New York, Long Island
og Reykjavík. „Við búum á Man-
hattan í New York og þar skrifaði
ég talsvert, ég fór líka í sveita-
hús okkar á Long Island þar sem
við eigum hús í gömlu hvalveiði-
þorpi og svo vann ég hana hér á
Íslandi.“ Ólafur Jóhann hefur
búið í Bandaríkjunum í rúm tutt-
ugu ár og líður vel í New York,
þeim mikla og fjölmenna suðu-
potti sem borgin er. „New York
er mitt heimili fyrir utan Ísland
og ég kann afskaplega vel við
mig þar. Það góða við borgina er
að þar ægir öllu saman og hún er
eins og farfuglaheimili að því
leyti að menn koma alls staðar að
30 6. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
Fjarstýrðir bensínbílar
verð frá 39.999.
Startpakkinn fylgir öllum bílum.
Úrval varahluta og aukahluta.
Kringlunni 568-8190
Smáralind 522-8322
Kringlan • Skóhöllin • Glerártorg
Vetrarsala
Mikið úrval - Frábært verð
Verðlækkun
á flestum
nýjum vörum
Allt að 60%afsláttur
af eldri vetrarvöru
Gerið góð kaup
Ferill: Ólafur Jóhann Ólafsson
fæddist í Reykjavík í september
1962. Hann dúxaði í MR og hélt
að stúdentsprófi loknu í eðlis-
fræðinám til Bandaríkjanna. Að
því loknu hóf hann störf hjá Sony
þar sem hann vann sig upp í
stöðu aðstoðarforstjóra fyrirtæk-
isins í Bandaríkjunum og um leið
stöðu forstjóra margmiðlunar-
deildar Sony. Síðar veitti hann
f j á r f e s t i n g a r f y r i r t æ k i n u
Advanta forstöðu en vinnur nú
hjá risafyrirtækinu Time Warner
sem gefur út fjölda blaða og
tímarita, starfrækir sjónvarps-
stöðvar, t.d. CNN, og framleiðir
sjónvarpsefni og kvikmyndir.
Samhliða störfum í viðskiptalíf-
inu hefur hann skrifað bækur og
leikrit.
Fjölskylda: Ólafur Jóhann er
kvæntur Önnu Ólafsdóttur og
eiga þau þrjú börn.
Áhugamál: Vinnan, þ.e. bók-
menntir og viðskipti, er áhuga-
mál Ólafs Jóhanns en að auki
hefur hann gaman af knatt-
spyrnu og spilar eins oft og hann
getur. Á námsárunum skrifaði
hann greinar í vísindatímarit um
atómeðlisfræði. ■
Af viðkvæmum
Sakleysingjarnir heitir áttunda bók Ólafs Jó-
hanns Ólafssonar. Í henni segir af Degi Alfreð
Huntingfield sem fæddist á hurð. Viðkvæm
mál úr íslensku þjóðlífi koma fyrir í sögunni og
nýju ljósi er brugðið á Bobby Fischer. Björn
Þór Sigbjörnsson ræddi við Ólaf Jóhann um
nýju bókina, New York og hliðarbúgreinina
viðskiptin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
EL
M
Mér fannst karakter-
inn vera þannig í
laginu að hann kynni að
eiga ýmislegt skylt við
þessa öld sem er nýliðin.
,,
Ólafur Jóhann í hnotskurn
42-43 (30-31) Helgarefni ÓJÓ 5.11.2004 21:56 Page 2