Fréttablaðið - 06.11.2004, Blaðsíða 44
Dagana 5.-13. nóvember ger-ir unga fólkið sitt besta tilað glæða gráan veruleik-
ann lífi með margs konar list-
sköpun á Unglist 2004. Þetta er
stærðarinnar dropi í menningar-
poll Reykjavíkur og vel að verki
staðið. Allir sem koma fram gefa
vinnu sína og því er ókeypis inn á
alla viðburði. Allir viðburðirnir
fara fram í Tjarnarbíói og byrja
um átta til hálfníu. Það er Hitt
húsið sem stendur fyrir veislunni
eins og alltaf og hefur Ása Hauks-
dóttir, deildarstjóri menningar-
mála Hins hússins, yfirumsjón
með Unglist þetta árið eins og svo
margoft áður. Hún skipaði svo
unga skipuleggjendur og munu
þeir sjá um sitt kvöld hver.
Fjölmenn hátíð
Unglist hefur verið árviss við-
burður síðan árið 1992 og kom
frumkvæðið í rauninni frá unga
fólkinu. „Á Unglist í gegnum árin
hafa fæðst margar frábærar hug-
myndir og margar lifa enn í
manna minnum. Sem dæmi má
nefna þegar Bibbi Curver og fé-
lagar sáu um lið sem nefndist
„Sveim í Svarthvítu“ en þá voru
sýndar svarthvítar myndir með
lifandi „ambient“ tónlist. Einnig
voru nokkrar stúlkur frá FB með
rosalega skemmtilegt framlag
sem nefndist „NeoGeo“ og fólst í
neðansjávartónleikum,“ segir
Ása.
„Fjöldi ungs fólks stígur á svið
og kemur að Unglist á hverju ári
og ég held að hátt í fimmhundruð
manns komi að viðburðinum að
þessu sinni. „
Rokk, tíska og klassík
Á fyrsta degi Unglistar fer fram
svokallaður Rokkbræðingur þar
sem fram koma níu íslenskar
rokkhljómsveitir. Einnig verður
myndlistarmaraþoni
hleypt af stað þar sem
fjöldi ungra listamanna
keppir til sigurs. Þeir fá
þá afhentan striga og fá
uppgefið þema og skila
svo fullkláruðu lista-
verki 24 klukkustundum
síðar. Listaverkin verða
svo sýnd í Gallerí Tukt
og verða afhent verð-
laun fyrir þrjú efstu
sætin.
Í dag verður heljar-
innar tískusýning í
Tjarnarbíói þar sem
þriðja árs nemar af fata-
hönnunarbraut Iðnskól-
ans í Reykjavík sýna af-
rakstur sinn. „Við erum
tíu á brautinni en það
koma kannski svona
tuttugu manns að sýningunni. Iðn-
skólinn hélt upp á hundrað ára af-
mæli á dögunum og reynum við að
gera því skil í sýningunni. Við
erum með eins konar tímalínu og
má því sjá áhrif frá ýmsum ára-
tugum, ekki aðeins í fötunum
heldur einnig í hár og förðun.
Þetta verður líka rosalega flott og
miklu meira en bara tískusýning,“
segir Halldór Óskarsson, einn
þeirra sem sýna á laugardeginum.
Halldór er eini strákurinn í fata-
hönnun og finnst að úr því megi
bæta. „Það er alveg fáránlegt
hvað það eru fáir strákar í þessu
fagi hérlendis. Þetta er allt öðru-
vísi úti þar sem eru jafnvel
fleiri karlmenn en konur. Ís-
lenskir strákar virðast vera
eitthvað hræddir við þetta,“
segir Halldór.
Klassískir tónar munu óma í
Tjarnarbíói á sunnudaginn þar
sem forsprakkar helstu tónlist-
arskóla landsins sjóða saman
stórglæsilega veislu af klass-
ískri tónlist.
Íslenski dansflokkurinn kíkir
við
Unga fólkið tekur sér svo frí í
tvo daga en dagskráin hefst aft-
ur með heljarinnar dansveislu
á miðvikudagskvöldinu. Sú
dansveisla nefnist „Darraðar-
dans“ og mun nýkrýndur kyn-
þokkafyllsti maður Íslands,
Þorvaldur Davíð Kristjánsson,
vera kynnir. Sóley Kaldal er ekki
ókunn dansinum og hefur stundað
hann í mörg ár og tekið þátt í ó-
fáum sýningum. Má þar til dæmis
nefna Galdrakarlinn í Oz og
nokkrar af nemendasýningum
Verzlunarskóla Íslands. Sóley er
skipuleggjandi kvöldsins og hefur
soðið saman girnilegan kokkteil
af ýmsum dansstefnum.
„Það mætast þarna margar
ólíkar dansstefnur og má helst
nefna nútímadans, fönkdans,
djassballett, hiphop, break, maga-
32 6. nóvember 2004 LAUGARDAGUR
Darraðardans, rokkbræðingur
og hávaðatónlist á Unglist
Listahátíðin Unglist hófst í gær og stendur til 13. nóvember. Borghildur Gunnarsdóttir
skoðaði dagskrána sem unga fólkið býður upp á að þessu sinni.
kr. 124.000
10. nóvember
Dagskrá:
Föstudagur 5. nóv.: Rokkbræðingur, myndlistar-
maraþoni hleypt af stað.
Laugardagur 6. nóv.: Tískusýning.
Sunnudagur 7. nóv.: Klassískir tónar.
Miðvikudagur 8. nóv.: Darraðardans.
Fimmtudagur 9. nóv.: Leiktu Betur.
Föstudagur 10. nóv.: Framsækniskvöld.
Laugardagur 11. nóv.: Meistarakeppni TFA.
Ath. Allir viðburðirnir eru haldnir í Tjarnarbíói.
Sigurvegarar fyrri ára í Meistarakeppni TFA:
Í syrpuriðli: Dj Big Gee, Dj Intro, Dj Fingaprint
Í skank-riðli: Dj M.A.T., Dj Magic, Dj Nino
Taktkjaftur: MC Bangsi
DARRAÐARDANS
Verður dansaður á mið-
vikudaginn þegar dans-
arar úr hinum ýmsu
dansskólum koma sam-
an og mynda heljarinnar
dansveislu.
PLÖTUSNÚÐAR og taktkjaftar landsins keppa um hylli við-
staddra í Meistarakeppni TFA á lokakvöldi Unglistar 2004.
44-45 (32-33) helgarefni 5.11.2004 21:07 Page 2