Fréttablaðið - 06.11.2004, Blaðsíða 57
„Manni finnst nú alls ekkert að
fólk fegrist alltaf við þessar að-
gerðir. Það týnir kannski aðeins af
karakternum,“ segir Kristín
Hauksdóttir, sérfræðingur á Ljós-
myndasafni Reykjavíkur.
Þar verður opnuð í dag ljós-
myndasýning þar sem ljósi er
varpað á þær aðferðir sem ljós-
myndarar nota til að fegra útlitið
á fyrirsætum sínum.
Þeir hafa stundað það allt frá
upphafi ljósmyndunar að slétta úr
hrukkum og hreinsa burt misfell-
ur af ýmsu tagi, eins og vel sést á
sýningunni þar sem eru ljósmynd-
ir allt frá aldamótunum 1900 og
fram til dagsins í dag.
„Það kemur reyndar mörgum á
óvart að þetta hafi verið gert í
gamla daga, en fortíðin er kannski
ekki jafn fögur og maður heldur.
Filmur voru retússeraðar eins og
það hét og teiknað í allar hrukkur
og aðra agnúa beint á filmurnar.
Svo þurfti kannski að mála aðeins
í bletti á stækkuninni sjálfri.“
Nú á dögum hefur forritið
Photoshop tekið við af penslum og
teikniáhöldum, en tölvuvinnslan
er þó byggð á þessum gömlu að-
ferðum.
Forvitnilegt er að sjá hvernig
áherslur á útlitið breytast með
tískunni. Núna er útliti líkamans
breytt meira en áður tíðkaðist,
brjóstin kannski stækkuð og fólk
gert mikið grennra en það er í
raun og veru.
„Í dag er þetta síst minna og
jafnvel grófara, ekki síst með
kvikmyndastjörnur og tónlistar-
fólk. Fólk léttist kannski um 15
kíló eða meira við myndvinnsl-
una. En það er alltaf verið að
halda að manni einhverri ímynd,
það breytist ekki.“
Á sýningunni, sem nefnist
„Fyrir og eftir“, má sjá ljósmynd-
ir af fyrirsætum bæði fyrir og
eftir breytingar. Einnig er þarna
myndröð sem sýnir þróun tísku-
strauma í andlitsljósmyndun, sem
og baksviðsmyndir af fyrirsætum
að störfum. ■
LAUGARDAGUR 6. nóvember 2004
■ LJÓSMYNDASÝNING
Hinir einu sönnu
Hljómar
frá Keflavík
Í KVÖLD
Glæsilegur matseðill
öll kvöld vikunnar.
Útlitskröfurnar uppfylltar
FYRIR OG EFTIR Pétur Leifsson tók þessar tvær myndir
af óþekktri fyrirsætu í kringum 1936. Betri myndin var
valin til þess að breyta en hin myndin er ósnert.
Hljómsveitin Sex volt spilar í Traffic,
Keflavík.
Hljómsveitin Eðlan kemur fram á
sjónarsviðið í Sjallanum á Akur-
eyri.
Spilafíklarnir verða á neðri hæðinni
á Celtic Cross, á þeirri efri leikur
hljómsveitin 3some.
Hljómsveitin Fimm á Richter spilar á
Classic Rock, Ármúla 5.
Hljómsveitin Spútnik ætlar að
skemmta Grindvíkingum á Cactus
bar.
Gullfoss og Geysir á Vegamótum.
Hljómsveitin Sixties skemmtir í Vél-
smiðjunni á Akureyri.
Dj Maggz á Glaumbar.
■ ■ FUNDIR
13.30 Félag um átjándu aldar fræði
heldur málþing um Finn Jónsson
Skálholtsbiskup í fyrirlestrasal
Þjóðarbókhlöðu á 2. hæð. Fyrir-
lestra flytja Aðalgeir Kristjáns-
son, Loftur Guttormsson, Svavar
Hrafn Svavarsson og Guðrún
Ása Grímsdóttir.
■ ■ FÉLAGSLÍF
11.00 París, félag þeirra sem eru
einar eða einir, heldur félagsfund
í Kringlukránni.
■ ■ MARKAÐIR
13.00 Basar verður á dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Grund, Hring-
braut 50. Á basarnum er úrval fal-
legra muna sem heimilisfólkið
hefur unnið. Að vanda verður
heitt á könnunni.
14.00 Hinn árlegi haust- og jóla-
basar Dagdvalar í Sunnuhlíð,
Kópavogsbraut 1.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
MAGGA STÍNA „EFTIR“
Svona lítur hún út eftir að búið ar að fara
um hana höndum í myndvinnsluforriti.
MAGGA STÍNA „FYRIR“
Söngkonan Magga Stína féllst á að sitja
fyrir hjá ljósmyndaranum Atla Má
Hafsteinssyni til þess að sýna breytingarnar.
56-57 (44-45) Slanga 5.11.2004 20:52 Page 3