Fréttablaðið - 07.11.2004, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 07.11.2004, Blaðsíða 8
8 7. nóvember 2004 SUNNUDAGUR Nú komst samráðið í hámæli á síðasta ári. Finnst þér ekkert nýtt hafa komið fram í málinu síðan þá sem gerir þína stöðu erfiðari? Samkeppnisráð nefnir öll þau tilvik sem ég greindi Samkeppnis- stofnun frá á sínum tíma og ég vek athygli á því að líka er sagt frá þeim fundum olíufélaganna þar sem ég þagði og neitaði að taka þátt í samráðsmálum. Ég kom hreint fram í fyrra og sagði frá mínum þætti. Þar harm- aði ég að hafa unnið verk sem haft hafði verið samráð um. Það sem breytir málinu nú í huga margra er alvaran sem fylgir því að skýrslan sé komin í úrskurðarform. Máls- atvikin eru hins vegar þau sömu. En það eru fjölmargar nýjar upplýsingar sem koma fram í niðurstöðu samkeppnisráðs. Það koma nokkur dæmi þar sem mitt nafn kemur fram. Ég gerði eins ítarlega grein og ég gat fyrir málinu á síðasta ári. Ég tók hins vegar fram að ég gæti ekki nefnt einstök dæmi, þar sem ég væri bundinn trúnaði við Samkeppnis- stofnun. Ég sagði til dæmis frá því í fyrra að ég hefði komið að því að stilla upp og framkvæma ákvarð- anir frá forstjóra sem er nú orðið greinilegt að var samráð. Þetta harma ég. Þú segist hafa verið starfsmaður olíufélags þar sem þú flæktist í net verðsamráðs. Ef það koma upp dæmi um spillingu innan borgar- stjórnar, hvernig geta borgarbúar treyst því að þú upplýsir slíkt en takir ekki þátt? Þegar ég gekk inn í Olíufélagið gekk ég inn í gamlan heim sem all- ir viðurkenna að hafi verið runninn upp úr pólitísku valdakerfi. Hjá Reykjavíkurborg gekk ég inn í opið, vel skipulagt stjórnkerfi þar sem eftirlitskerfi og almannahags- munir eru mjög í heiðri höfð. Þetta er eins og svart og hvítt. En það var líka til Samkeppnis- stofnun á þeim tíma sem olíusam- ráð stóð yfir. Mér finnst Samkeppnisstofnun hafa unnið þarft og gott verk í þessari úttekt. Þetta kerfi var hins vegar þá og er ennþá mjög sér- stakt. Löggjafinn bjó til formlegan samráðsvettvang olíufélaganna undir forsæti Samkeppnisstofnun- ar, sem heitir Flutningsjöfnunar- sjóður olíu og ég held að sé enn til. Ég held að fulltrúi stofnunarinnar hafi setið í forsæti í sjóðnum allt fram á þennan dag. Þar skiptast fjármálamenn í olíufélögunum á sölutölum yfir borðið með Sam- keppnisstofnun við borðsendann. Þú hlýtur að hafa vitað það á sínum tíma að þetta var samráð. Tökum dæmi. Í niðurstöðu sam- keppnisráðs segir að fulltrúar olíu- félaganna hafi hist og rætt ýmis samráðsmál og í minnispunktum þínum eftir fundinn segir meðal annars: „Bensínhækkun allt að 3 kr.“ Hjá Samkeppnisstofnun var ég spurður að þessu og ég staðfesti að ég hefði skrifað þetta niður af því að ég hefði heyrt þetta. Sastu þá fund þar sem verðsam- ráð var ákveðið? Ekki ákveðið. En rætt? Ég sat fjölda funda með fulltrú- um olíufélaganna. Þar sem samráð um verðhækk- anir var rætt? Fulltrúar olíufélaganna hittust mjög oft og mér var gert skylt að hitta þá vegna samrekstrarmála. Til dæmis bensínstöðva og olíu- tanka. Á slíkum fundum byrjuðu menn oft að ræða rekstrarum- hverfið. Hvernig gengið væri og svo framvegis. Stundum punktaði ég niður hjá mér vangaveltur þeirra. En ég hafði ekki ákvörðun- arrétt um eldsneytisverð. Engu að síður tókstu þátt í að undirbúa ákvörðun um slíkt. Það kemur skýrt fram að ákvörðun um eldsneytisverð var ekki á mínu verksviði samkvæmt skipuriti. En undirbúningur ákvörðunar? Ég hafði sem markaðsstjóri það hlutverk að tilkynna allar verð- breytingar út á stöðvar og auðvitað fylgdist ég með markaðinum. Og þú sast þá fundi með sam- keppnisaðilum þar sem var ákveð- ið bensínverð, ekki rétt? Ég var ekki á fundum þar sem var ákveðið almennt bensínverð. En undirbúið samráð um verð- lag til almennings. Ég vil ekki kalla þetta undirbún- ing. En það voru vissulega ræddar þær markaðsaðstæður sem myndu eflaust leiða til verðbreytinga. Sameiginlegar verðbreytingar? Nei, verðbreytinga almennt. En það var ekki á mínu verksviði. Það var eingöngu á mínu verksviði að tilkynna verðbreytingar. En það er fullt af fundargerðum og minnispunktum frá þér þar sem kemur fram að þú sast fundi þar sem var undirbúið verðsamráð á bensínverði til almennings. Áttirðu ekki þátt í að undirbúa ákvörðun- ina þótt þú hafir ekki tekið hana? Ég hitti engan í þeim tilgangi að ræða eldsneytisverð. Vandamálið var í þessu umhverfi öllu að við hittumst til að ræða eignaumsýslu, samrekstur og fleira. Fjöldi manna hefði átt að ganga út við þessar kringumstæður. Því miður gerði ég það ekki. Þú biður um traust borgarbúa. Hvernig eiga þeir að treysta þér þegar þú hefur tekið þátt í, þótt þú hafi ekki átt lokaákvörðun, að ákvarða samráð um bensínverð til almennings, þar á meðal borgar- búa? Ég er ekki sáttur við spurning- una. Minn skilningur er ekki sá að ég hafi átt þátt í að undirbúa eða ákvarða bensínverð. Hins vegar myndaðist á þessum fundum spjall þeirra sem eru í þessu fagi. Spjall sem byrjaði á óvarkáran hátt. Þeir fundir voru ekki lykilatriðið í þessu máli, heldur hið skipulega samráð. Ég harma það hins vegar að hafa ekki gengið út af slíkum fundum. En er ekki eina leiðin fyrir þig núna að viðurkenna þetta, iðrast og biðja borgarbúa afsökunar? Ég hef beðið þá afsökunar á því að hafa starfað hjá olíufélögunum og geri það enn á ný. Þú hefur ekki viðurkennt að hafa tekið beinan þátt í þessu eins og þú gerðir. Ég vil ekki viðurkenna meira en mér ber í þessu máli og ég ætla ekki að viðurkenna að hafa haft ákvörðunarrétt um verðlagsmál. Það hafði ég einfaldlega ekki. Ekki ákvörðunarrétt heldur þátttöku í verðsamráði. Það er skilgreiningaratriði og annarra að dæma um það. Þetta rekstrarumhverfi var hins vegar ekki á mínu valdi. Í minnisblaði frá þér til forstjór- ans segir þú: „Hann var líka sam- mála mér þegar ég nefndi að nú þyrftu félögin öll að vera mjög vak- andi í því að láta ekki egna sig saman í verðstríði í útboðum.“ Bendir þetta ekki til þess að brota- vilji þinni hafi verið einbeittur? Þetta var í september 1994 þeg- ar olíufélögin máttu fyrst selja olíu á mismunandi verði. Við þurfum að átta okkur á því í hvers konar heimi við vorum. Það voru í gildi lög þangað til í september 1994 sem sögðu að það yrði að selja um allt land eldsneyti á sama verði. Svo hitti ég Einar Benediktsson, forstjóra Olís, og við byrjuðum á því að tala um að það sé breytt lagaumhverfi. Þá kunni ekki nokk- ur maður í þessum bransa að reik- na út afslætti. Ég hafði lagt til hjá Essó að við gæfum afslætti, en var stoppaður. Auðvitað voru allir í bransanum mjög hræddir við að framlegðin hrapaði niður úr öllu valdi við samkeppni. Og þú sagðir sjálfur að félögin ættu ekki að láta egna sig út í verð- stríð. Ég var ekkert síður hræddur við þetta. Ætlar þú að fela þig á bakvið það að þú hafir verið hluti af spilltu kerfi, lögin hafi verið ný og þess vegna hafir þú ekki kunnað að fara eftir þeim? Ég fel mig ekki á bak við neitt, en hér eruð þið kannski að beita mælikvörðum dagsins í dag á við- skiptaumhverfi liðinna tíma. Ég hafði starfað í samkeppnisum- hverfi í nokkur ár áður en ég byrj- aði hjá Essó. Ég fann að þetta var með allt öðrum brag hjá olíufélög- unum. Þetta var svona gamalt kerfi. Essó hafði unnið eins í fimm- tíu ár og við mig var sagt: „Strákur minn, ekki láta þig dreyma um það að fara að bjóða þessum manni af- slátt, veistu ekki hvar hann er í pólitík?“ Í skýrslu Samkeppnisstofnunar segir meðal annars frá tölvupósti frá þér til forstjóra Essó vegna út- boðs Reykjavíkurborgar: „Eftir þreifingar Skeljungsmanna um sameiginlega stefnu í útboðsmál- um bað ég um tillögu frá þeim, sem forstjórar geta rætt.“ Bendir þetta ekki til þess að þú hafir haft fulla vitneskju um hversu víðtækt sam- ráð forstjóranna var, meðal annars í útboði Reykjavíkurborgar? Það sem ég gerði á þessum fundi var að þegar starfsmaður Skeljungs kom með tillögur þá sagðist ég ekki taka þátt í slíku. Ég kom því þessari málaleitan frá mér og tók ekki þátt í því máli. Þú baðst þá samt um tillögu sem forstjórarnir gætu rætt. Ég sagði eitthvað á þennan hátt: ert þú með einhverja tillögu? Ég er ekki sá sem er hægt að tala við um svona mál. En af hverju baðstu þá um til- lögu á fundinum fyrst þú varst sak- laus og hneykslaður? Sjálfsagt var þetta hugsunar- leysi og ég bar skilaboðin til for- stjóra. Þú varst ekki að bera skilaboð. Þú baðst um tillögu sem forstjór- arnir gætu rætt. Jú, ég var að bera skilaboð. Þú sagðir það í tölvupóstinum að þú hafir beðið um tillögu. Tölvupósturinn var náttúrulega endursögn. Ég bara man ekki ná- kvæmlega orðaskipti þarna fyrir tæpum tíu árum. Ég hvatti síðar innanhúss til þess að það yrðu tvær tillögur í máli Reykjavíkur- borgar og við berðumst fyrir því að ná viðskiptunum. Bendir það til þess að ég hafi verið í verðsam- ráði? Hver finnst þér að ábyrgð Geirs Magnússonar, forstjóra Essó, ætti að vera í málinu? Ég tel ábyrgð að lögum skýra. Stjórnir og forstjórar bera hana. Finnst þér þú dreginn út úr og sætir einn ábyrgð? Ég kvarta ekki undan því. Ég er ekki óánægður með að ég sem op- inber persóna sé látinn svara meiru en aðrir. Hvað sagðir þú borgarfulltrúum um aðild þína í verðsamráðinu þeg- ar þú varst ráðinn? Það sem ég sagði í fyrra stendur enn. Ég harma að hafa unnið þarna og framkvæmt þau atriði sem ég var beðinn um að gera og hafði ekki vald yfir. Ég hef komið hreint fram og bið um traust þeirra sem þekkja mig af störfum mínum. - ghg/ás BYRJENDUR: 30 kennslustunda námskeið.Tölvugrunnur, ritvinnsla, tölvupóstur og internetið. Þátttakendur stofna ókeypis tölvupóstfang og læra að nota tölvupóstinn m.a. með því að gerast áskrifendur að ferðatilboðum. Hæg yfirferð og vanir kennarar. Hefst 11. nóv. og lýkur 2. des. Kennt er þri. og fim. frá 13 – 16. Verð kr. 19.500 (kennslubók innifalin.) TÖLVUNÁM ELDRI BORGARA FRAMHALD: 30 kennslustunda námskeið ætlað lengra komnum eða þeim sem lokið hafa byrjendanámskeiðinu. Upprifjun, ritvinnsla, framhaldsæfingar í allri meðferð tölvupósts, internetið - framhald, stafrænar myndavélar ofl. Hefst 10. nóv. og lýkur 1. des. Kennt er mán. og mið. frá 13 – 16. Verð kr. 19.500 (kennslubók innifalin.) Biður um traust borgarbúa ÞÓRÓLFUR ÁRNASON Harmar að hafa unnið hjá olíufélagi og framkvæmt skipanir. Segist hafa komið hreint fram og biður um traust þeirra sem þekkja hann af störfum sínum. Þórólfur Árnason, borgarstjóri berst fyrir pólitískri framtíð sinni vegna aðildar að verðsamráði olíufélaganna. Hann bað um tækifæri til að útskýra sína hlið á málinu. Ég hef beðið þá afsökunar á því að hafa starfað hjá olíufélög- unum og geri það enn á ný. ,, Ég vil ekki viður- kenna meira en mér ber í þessu máli og ég ætla ekki að viðurkenna að hafa haft ákvörðunarrétt um verðlagsmál. Það hafði ég einfaldlega ekki. ,, FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI 08-09 360 graðður 6.11.2004 21:27 Page 2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.