Fréttablaðið - 10.11.2004, Blaðsíða 41
MIÐVIKUDAGUR 10. nóvember 2004 33
TTT auglýsingastofa/Ljósm
.SSJ
Mark
skrifstofustólar
Ótrúlegt verð!
Mark er ný og glæsileg lína skrifstofustóla
frá Á. Guðmundssyni ehf. fyrir vinnustaði og heimili.
Stólarnir eru hannaðir af Pétri B. Lútherssyni.
Hægt er að velja um fjölda lita á áklæði.
Nú bjóðum við þessa stóla á frábæru kynningarverði.
Hæðarstilling á baki
Pumpa til að stilla
stuðning við mjóhrygg
Hæðarstillanlegir armar
Hallastilling á baki
Sleði til að færa setu
fram og aftur
Mjúk hjól
Hæðarstilling á setu
og baki
Hægt er að stilla stífleika setu
og baks eftir þyngd notanda
Veltustilling á setu og baki
KYNNINGAR
AFSLÁTTUR!
30%
Mark 20 Kr.25.340
Mark 10 Kr.13.930
Mark 30 Kr.38.570
Bæjarlind 8-10 • Sími 510 7300 • www.ag.isHeildarlausnir í skrifstofuhúsgögnum
■ ■ TÓNLEIKAR
12.30 Hljómsveitin Gagarín leikur
frumsaminn djassbræðing á Háskóla-
tónleikum í Norræna húsinu.
22.00 Bandaríski djasstrommuleik-
arinn Gene Stone heldur tónleika á
Grand Rokk.
Djasstríóið Wijnen, Winter & Thor
leikur í Pakkhúsinu á Selfossi.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Oddur Sigurðsson, jarðfræð-
ingur á Orkustofnun, flytur fræðsluerindi
um íslenska jökla á Hrafnaþingi Náttúru-
fræðistofnunar, í sal Möguleikhússins á
Hlemmi.
■ ■ FUNDIR
16.30 Málþing um kvikmyndir
Carls Theodors Dreyer og kvikmynda-
tónlist verður haldið í Norræna húsinu í
tilefni af sýningu Píslarsögu Jóhönnu af
Örk í Háskólabíói annað kvöld.
■ ■ SAMKOMUR
20.30 Skáldkonurnar Rúna K.
Tetzschner, Elísabet Jökulsdóttir, Vil-
borg Dagbjartsdóttir, Hallgerður Gísla-
dóttir, Stefanía Gísladóttir og Birna
Þórðardóttir lesa úr verkum sínum á
Horninu í Hafnarstræti.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
ímyndunar og veruleika? Hlutverk-
in í leikritinu eru leikin af þeim
Guðrúnu Ásmundsdóttur og Þráni
Karlssyni, auk þess sem Skúli
Gautason leikur ræðumanninn.
Þráinn segir um sinn mann að hann
sé rosalega gamall skarfur. „Hann
er að verða hundrað ára,“ segir
Þráinn. „Þau hjónin eru á tíræðis-
aldri og hafa verið gift í 75 ár.
Kringumstæður þeirra eru sér-
kennilegar. Þau búa á einhverri
eyju, í skrítinni byggingu þar og
búa sér eiginlega til einhvers konar
skemmtun; þau fara að taka á móti
fólki sem er ekki til staðar. Hann
ætlar að flytja fyrirlestur sem hann
hefur trúlega dreymt um alla ævi
og þau gersamlega fylla þetta rými
sem þau hafa í húsinu af fólki sem
kemur á bátum. Þegar yfir lýkur er
varla pláss fyrir þau sjálf í húsinu.
Þegar keisarinn kemur hafa þau
fengið ósk sína uppfyllta. Þá er líf
þeirra fullkomnað. Þetta er mikil
gestamóttaka – og kerlingin raðar
stólum eins og sviðið leyfir. Þetta er
óneitanlega mjög sérstakt verk og
afar gaman að fást við það. Enda
Ionesco þekktur fyrir annað en að
skrifa í anda raunsæisins.“
Leikmynd og búningar eru í
höndum Sigurjóns Jóhannssonar,
lýsingu annast Halldór Örn Óskars-
son, tónlist er eftir Margréti Örn-
ólfsdóttur og leikstjóri er María
Reyndal. ■
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
7 8 9 10 11 12 13
Miðvikudagur
NÓVEMBER
Það var hiphopstemning á opnun í
Gallerí Kling & Bang á Laugaveginum
fyrir helgi. Vígalegur DJ stóð í miðju
galleríinu og þeytti skífum. Á veggjum
var kæruleysislegt krot með yfirlýsing-
um sem við fyrstu sýn minntu á
gelgjuskeiðssúrrealisma þar sem
menn pára fantasíur sínar sem rekja
má undantekningalítið til kunnuglegra
stefja í undirmeðvitundinni. Annað
hvort vængjaða dreka spúandi eldi
framan í djarfa víkinga með horn eða
ekstasískar verur svífandi á valíum-
hraða inni í splundrandi geimryki.
Reyndar er smá „horror“-deild með
pólitískum undirtónum en samt ein-
hvern veginn ekki laus við klysjur a la
Che og Rote Arme Faktion. Enn finnst
mér það merkileg upplifun að standa
frammi fyrir verkum sem virðast ekki
við fyrstu sýn hafa snefil af því sem
telst til dyggða í hefðbundinni mynd-
list. Svo rennur allt í einu upp fyrir mér
að þau hafa það allt saman jafnvel í
svo ríkum mæli að öll listasagan er fal-
in þar en kannski með öfugum for-
merkjum.
Það er líka til leggur í myndlist sem
gefur skít í klassískar hlutfallareglur og
ögun af hvaða toga sem er. Gefur
Apollon langt nef – ríður berbak á
svörtum og rauðum fákum Díonýsus-
ar. Vegna þess líka að reglumeistarinn
Apollon hefur alltaf haft þá tilhneig-
ingu til að fegra, koma böndum á og
breiða yfir. Samt er eitt þrálátasta eðli
listarinnar ekki verkfæri í höndum
hans. En það er einmitt að afhjúpa -
rífa yfirbreiðsluna af og láta skína í
nakið eðli okkar. „I like it, when you
don't like it!“ Það vopn er í höndum
Díonýsusar. Örugglega hefur þessi
leggur alltaf verið til í formi anarkisma
allra tíma en hann gengur undir ýms-
um nöfnum upp alla tuttugustu öldina
í liststefnum eins og Dada, Fúturisma,
Art Brút, bítnikka, flúxus, situation-
isma, pönki o.s.frv.
Hér áður fyrr, og ég er ekki að tala
um svo langan tíma að ungt fólk þekki
það ekki, voru sýningar niðurstöður
eða afrakstur rannsóknarvinnu. Aðeins
niðurstaðan var sýnd. Jafnvel bara það
„besta“ úr niðurstöðunni
var sýnt. Í æ ríkari mæli varð
ljóst hve fjarri sannleikanum
slíkar „niðurstöður“ voru.
Og það skiptir máli fyrir
listamenn sem vilja ekki
iðka þá iðju að fegra veru-
leikann heldur segja hann
eins og hann er. „Truth is
beauty, beauty is truth.“ Hjá
mörgum listamönnum
breyttist stúdíóið úr vinnu-
stofu fyrir framleiðslu á
„fögrum“ verkum yfir í
hreina rannsóknastofu og
menn fóru að sýna rannsóknarferlið
blygðunarlaust óritskoðað en ekki
bara niðurstöðu rannsóknanna. Páfi
slíkra vinnubragða var auðvitað Dieter
Roth.
Þessa tegund af sýn-
ingum hefur ekki bara
mátt finna í evrópskum
galleríum og á vestur-
strönd Bandaríkjanna á
undanförnum misserum
heldur líka á stórmessum
eins og Dokumenta. Þessi
straumur hefur lítið borist
hingað en er örugglega á
leiðinni. Listamaðurinn
heitir Jonas Ohlsson, Svíi
sem hefur að mestu verið
búsettir í Amsterdam og
LA. Hann þorir að vera
eins og hálfviti með millistéttaraula-
brandara. Tónlistartengingin er mjög
mikilvæg í þessari framsetningu. Þar
liggur galdurinn sem gæðir hana lífi og
undirstrikar merkinguna.
MYNDLIST
GODDUR
Jonas Ohlsson
Gallerí Kling og Bang
Tilvistarkreppa millistéttarbarnsins
HIPHOPSTEMNING
Reyndar er smá „horror“-
deild með pólitískum
undirtónum en samt ein-
hvern veginn ekki laus við
klisjur a la Che og Rote
Arme Faktion.
GÖMLU HJÓNIN Taka á móti fólki sem
er ekki til staðar.
40-41 (32-33) Menning 9.11.2004 17:39 Page 3