Tíminn - 25.11.1973, Blaðsíða 7
Sunnudagur 25. nóveinber HITli
TÍMINN
lllh, / .illll
Grein:
Jónas Guðmundsson
Myndir:
Róbert Agústsson
en komið hefði i hans hlut, ef hann
hefði unnið hjá venjulegum raf-
verktaka. Viðskiptavinurinn
greiðir hins vegar það sama og
greitt er hjá öðrum rafvirkjafyr-
irtækjum.
Allir fá sama kaup
framkvæmdastjóri og
verkamenn
Allir rafvirkjar hjá Samvirki
eru á sama kaupi, framkvæmda-
stjórar og sveinar, og nemar ef
þeir væru, sem er hugsanlegur
möguleiki. Ábyrgð á verkum
gagnvart verkkaupanda bera
menn sameiginlega, en ábyrgð
gagnvart Raf m agnsvei t u
Reykjavikur bera einstakir
meistarar hjá okkur, (einn meist-
"> Guðmundur Magnússon).
pað hefur komið i ljós, að i sliku
samstarfi verður hver og einn
starfsmaður að vera nokkurs
konar verkstjóri. Allir, sem vinna
saman eru ábyrgir, og ekki eru
neinir verkstjórar. Þetta er þvi
spor i áttina að atvinnulýðræði,
sem mikið er talað um nú á tim-
um.
Fjármagnsskortur
tilf innanlegur
— Hverjir hafa verið helztu
rekstrarerfiðleikarnir?
— Það er fjármagnsskorturinn.
Stofnféð er ekki nægjanlega mik-
ið. Peningar koma seint inn fyrir
verk, eins og gengur, og þetta
hefur leitt til þess að stundum
hefur verið erfitt að fá endana til
að ná saman.
Sá, sem gengur i almennu
deildina greiðir eitt þúsund krón-
ur, en i rafvirkjadeildina, þá
greiða menn 10.000 krónur. f
framtiðinni er það hugsanlegt að
unnt sé að veita félagsmönnum,
— almenningi.sérstakan afslátt af
verkum, — það er félagsmönnum,
en eins og er, þá hefur þetta eink-
um verið hagsmunamál rafvirkja
að ganga i almenna félagið.
Leita tilboða —
Standa vel að vigi
i tilboðum
Samvirki hefur leitað tilboða i
verk á höfuðborgarsvæðinu og
hafa þá yfirleitt verið lægstbjóð-
endur. Hér er ekki nein yfirbygg-
ing á fyrirtækinu og þvi er ef til
vill auðveldara að finna raun-
kostnað á einstök verk, en væri
ella. Helztu verkefni hafa verið
stórfelld verkefni fyrir Viðlaga-
sjóð i Kópavogi, i Garðahreppi og
Breiðholti, ennfremur 4. áfangi
Kópavogshælisins, fjöldi nýbygg-
inga, stórra og smárra, einnig
höfum við gert tilboð i stór verk-
efni i sambandi við virkjanir.
t upphafi var gerð fyrir okkur
rekstraráætlun. Þá var reiknað
með, að 10 rafvirkjar væru hér i
fullu starfi á næsta vori. En þar
sem óvenjumikil verkefni hafa
komið i okkar hlut hefur starfs-
mannaf jöldinn aukizt frá þvi sem
fyrirhugað var i hagspá. Um
heildarveltu er ekki vitað á þessu
ári, en útborguð laun hjá félaginu
eru um 500 þúsund krónur á
mánuði, en þegar mælingarhagn-
aði hefur verið skipt hækka þess-
ar tölur verulega.
Reyna að afla
sérþjálfaðra rafvirkja
í öllum greinum
Reynt hefur verið að velja til
starfa rafvirkja með þekkingu á
sérsviðum, svo sem heimilis-
tækjaviðgerðum, skiparaflögnum,
nýlögnum i hús, dyrasimum, loft-
netum og rafvélavirkjum. Þó að
þetta séu ekki allt sérstök fög, er
starfsreynsla á einstökum svið-
um mikilvæg, segja þeir félagar
að lokum.
Að samtalinu loknu, fóru
starfsmenn Timans i heimsókn á
nokkra vinnustaði, lil að ræða við
félagsmenn og voru teknar fáein-
ar myndir, sem birtast með kynn-
ingu þessari. — JG
Þórarinn K. ólafsson viö viðgerðir. Þórarinn er kunnur fyrir félags-
málastörf I Kópavogi.
Edvarð Guðmundsson rafvirki og Guðmundur Magnósson, rafvirkjameistari Samvirkis. Þarna
er verið að vinna við tengiskáp I viðlagasjóöshósi i Breiðholti.
Guðmundur sér um samskiptin við Kafmagnsveitu Keykjavikur og annað eftirlit með raflögnum á
vegum Samvirkis.
IHUiltS'ÓI
Sigvaldi Kristjánsson viö tengingu á stjórnborði fyrir maibikunarstöð Reykjavfkurborgar i
Grjótnáminu viö Elliðárvog.