Tíminn - 20.01.1974, Síða 4
4
TÍMINN
Sunnudagur 20. janúar 1974.
Húsi
Chevaliers
breytt
í safn
Yoko og John Lennon ætla að fara að
vinna sitt í hvoru lagi
John Lennon og Yoko hin
japanska hafa tilkynnt, að þau
ætli að skilja um stundarsakir.
Yoko tekur fram, að það sé ein-
göngu skilnaöur i sambandi við
starf þeirra, þannig að þau ætli
að koma fram sitt í hvoru lagi,
og leika inn á plötur óháð hvort
ööru. ,,Mig langar til aö sjá”,
segir hún ,,hvort ég get komizt
áfram ein min liðs, eins og ég
gerði hér áður. Við höfum verið
svo háð hvort öðru undanfarin
ár, unnið saman og verið
saman öllum stundum. Þið vitið
hvernig ástin fer með mann!”
sagði hún. Nú ætlar Yoko aö
fara til Evrópu, en John ætlar
að vera áfram i Kaliforniu, þar
sem hann er að ganga frá nýrri
plötuútgáfu. Er það heilt albúm
með lögum eftir hann, sem gefið
er út af Phil Spector hljóm-
plötuútgefanda.
Yoko kvartar undan þvi, að
fólk sé alltaf á móti sér, en ef
hún gæti orðið vinsæll skemmti-
kraftur ein og óstudd, þá heldur
hún að það breytist, og að
minnsta kosti öðlist hún þá
meira sjálfstraust. Þau hafa
lengi þráð það að eignast barn,
en það hefur gengiö illa. Hún
hefur nokkrum sinnum orðið
barnshafandi, en alltaf misst
fóstur. Læknar kenna það þvi,
að hún sé yfirspennt og tauga-
veikluð i sambandi viö þetta allt
saman. Yoko kennir tauga-
veiklun sina aðkasti, sem hún
hefur orðið fyrir frá fólki, sem
vill henni illt, t.d. strax og
fréttist aö hún sé ólétt, þá skal
ekki skeika að einhver sendir
henni smádúkku sundurstungna
af nálum, eins og galdradýrk-
endur nota stundum i voodoo -
galdri.Sumir aðdáendur Johns,
segir hún, hafa aldrei sætt sig
við það, að við fórum að búa
saman. En nú ætlar Yoko að
fara að sýna hvað hún getur á
eigin spýtur — en vinir þeirra
búast samt við, að hún verði
fljót að koma sér heim til
Johns aftur, þvi að hún má
varla af honum sjá
Eins og allir vita, sem fylgzt
hafa með fréttum, þá hefur Nix-
on forseti Bandarikjanna verið
óheppinn i vali starfsmanna og
aðstoðarmanna sinna, og oft
þurft að skipta um i embættum,
svo sem frægt er orðið. Annað-
hvort hefur hann verið lélegur
mannþekkjari, eða erfiðlega
hefur gengið að fá hæfa menn til
starfa. Nýlega birtist i banda-
risku blaði, er nefnis Parade,
listi yfir nokkra menn, sem ekki
vildu gegna embættum, sem
Nixon bauð þeim. Fyrst var tal-
inn David Rockefeller, en hann
neitaði að taka að sér embætti
Odette Meslier trúir þvi, að hún
sé einhver hamingjusamasta
kona i heiminum þessa stund-
ina. Hún hefur þurft að leggjast
á hnén og grátbiðja, og loks hef-
ur hún verið bænheyrö. Hvers
hefur svo Odette Meslier óskað
sér? Hún hefur farið þess á leit,
að húsi leikarans Maurice
Chevaliers veröi breytt i safn.
Hún hefur óskað eftir þvi, að
skattheimtumenn fái ekki að
láta greipar sópa i húsinu, og
allir dýrgripir Chevaliers fái að
vera þar áfram fólki til augna-
yndis. Odette Meslier var vin-
kona Chevaliers siðustu æviár-
in, en hann lézt á nýársdag 1972,
þá 85 ára gamall. Hún bjó með
Chevalier i La Louque, en svo
var húsið nefnt, og hann arf-
leiddi hana að öllum eigum sin-
um. Erfðaskatturinn fór illa
með Odette. Hún hafði ekki einu
sinni ráð á að halda húsinu, þeg-
ar allt kom til alls. Það hefði
þurft að selja það upp i skatt-
ana. Svo kom upp úr kafinu, að
Chevalier hafði átt miklar eign-
ir erlendis, og þá var ákveðið að
reyna að nýta þær til þess að
greiða með skattana, en leyfa
húsinu að halda sér eins og það
var á meðan leikarinn bjó i þvi,
og opna það svo i framtiðinni
sem safn. Það verður gert, og
ekki er ósennilegt, að f jöldi fólks
eigi eftir að koma til að sjá
hvernig leikarinn bjó og dást að
öllum dýrgripunum, sem hann
hafði safnað i kring um sig.
fjármálaráðherra i stjórn Nix-
ons, William Scranton afþakk-
aði embætti utanrikisráðherra á
sinum tima, senator ,,Scoop”
Jckson (D.Wash.) vildi ekki
stjórna varnarmálum og Hu-
bert Humphrey (D. Minn) kærði
sig ekki um að verða ambassa-
dor Bandarikjanna hjá Samein-
uðu þjóðunum. — Siðan segir, að
þar sem forsetinn hafi ekki
fengið beztu mennina i embætt-
in, þá sé engu likara en hann
hafi svo byrjað neðst á listan-
um, næst þegar hann valdi sér
starfsmenn.
★
Þeir höfnuðu góðum embættum