Tíminn - 20.01.1974, Síða 6
6
TÍMINN
Sunnudagur 20. janúar 1974.
Sumarbústaðaland
Tveir til þrir hektarar lands óskast til
kaups eða langtimaleigu. Stangaveiði-
möguleikar æskilegir. Helzt innan þriggja
tima aksturs frá Reykjavik. Tilboð merkt-
Landver 1675 sendist blaðinu fyrir 1.
febrúar n.k,-
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN
ríkisins Mmmm
Brdðabirgðaumsóknir
framkvæmdaaðila í
byggingariðnaðinum
Húsnæðismálastjórn hefur ákveðið, að frá
og með 1. janúar 1974 skuli öllum þeim
framkvæmdaaðilum, er byggja ibúðir i'
fjöldaframleiðslu, gefast kostur á að
senda Húsnæðismálastofnuninni bráða-
birgðaumsóknir um lán úr Byggingasjóði
rikisins til smiði þeirra. Skal komudagur
slikra umsókna siðan skoðast komudagur
byggingarlánsumsókna einstakra ibúða-
kaupenda i viðkomandi húsum.
Bráðabirgðaumsóknir þær, sem hér um
ræðir, öðlast þvi aðeins þann rétt, sem hér
er greindur, að þeim fylgi nauðsynleg
gögn, skv. skilmálum, er settir hafa verið.
Nánari upplýsingar um þetta mál verða
gefnar i stofnuninni.
Reykjavik, 20.12. 1973.
HÚSNÆÐISMÁLASTOFNUN RIKISINS
LAUGAVEGI77. SÍMI22453
Óskýranlegar
tilviljanir án
skynsamlegra
skýringa
Ég ætla að byrja á
ósköp venjulegu tilviki,
sem getur verið eins
konar samnefnari þess
sem greinin fjallar um.
Vorið 1972 fór Sunday Times
þess á leit við mig, að ég skrifaði
um heimsmeistaraeinvigið i skák
milli Spasskis og Fischers, sem
fram skyldi fara i Reykjavik. Ég
hef iðkað skák sem tómstunda-
gaman siðan á stúdentsárum
minum, en fannst ég þó hvergi
nærri nógu góður til að fjalla um
heimsmeistaraeinvígi. Auk þess
vildi ég gjarnan vita svolitið
meira um Island, en þangað hafði
ég aðeins komið til að skipta um
flugvél einhverntima á striðs-
árunum.
Nú, ég ákvað að bæta eitthvað
úr vanþekkingu minni á hvoru
tveggja og dag einn i mai fór ég á
Bókasafn Lundúna i St. James
Square til að leita að bókum um
þessi óliku efni. £g velti þvi fyrir
mér augnablik, hvort ég ætti að
byrja á skákinpi og taka svo Is-
land eða öfugt. Endirinn varð sá,
að ég byrjaði á skákinni, þar sem
þær bækur voru nær mér i svip-
inn. Þetta voru 20-30 bækur og sú
fyrsta sem ég las titilinn á, var
stærðar skrudda, sem hét ,"Skák
á Islandi og islenzkar bókmennt-
ir” eftir Willard Fiske. Hún var
gefin út 1905 i Flórens.
Bókasafnsatvik
Tilviljanir af þessu tagi, sem
varða bókasöfn, bækur, tilvitnan-
ir, leiðbeiningar i bókum, eða ein-
stök orð, eru svo algengar, að
menn venjast þeim næstum. Hér
koma fleiri dæmi:
tirdráttur úr bréfi frá skáld-
konunni Rebeccu West, ekki dag-
settu, en mótteknu 6. desember
1972: Hún fór til Chatham House
(stofnun sem fer með alþjóðleg
málefni) til að ganga úr s'kugga
um ákveðið atvik, sem Fritsche,
einn af hinum ákærðu við Nurn-
bergréttarhöldin hafði sagt frá:
— Ég fietti upp i spjaldskránni
undir Niirnberg-réttarhöldunum
og uppgötvaði mér til skelfingar.
að skýrslur frá þeim eru i þannig
formi, að safnfræðingar eiga
næstum ómögulegt með að not-
færa sér þær. Eftir að hafa leitað i
nokkrar klukkustundir, fór ég til
eins af bókavörðunum og sagði,
að ég gæti alls ekki fundið það
sem ég ieitaði að, þar sem það
gæti verið i hvaða bindi sem væri
og þarna var um margar fullar
hillur að ræða. f þvi að ég
vandræðast þarna við hann, dró
ég einhverra hluta vegna eitt
bindið út úr hillunni og fór að
blaða i þvi. Það reyndist ekki að-
eins vera bindið, sem ég leitaði
að, heldur byrjaði ég að lesa ná
kvæmlega á þeim stað( þar sem
það var, sem ég þurfti að nota.
Athyglisvert er, að þar sem
kerfisbundin leit klukkustundum
saman bar engan árangur, þá
skyldi augnabliks hugdetta bera
fullan árangur. Sumir eru svo
vanir slikum tilviljunum i sam-
bandi við bækur, að þeir tala um
„bókasafnsengla”.
Trúlofunarslit
Hér kemur eitt dæmi, sem tek-
ið er úr skýrslum RERU, sem er
rannsóknarstofnun um trúar-
bragðareynslu i Oxford:
— Arið 1963 varð dóttir min fyr-
ir þvi i annað sinn, að slitnaði upp
úr trúlofun hennar. Hvað sem ég
reyndi, tókst mér ekki að hugga
hana. Ég fór fram i eldhús tii að
sækja eitthvað að drekka og ósk-
aði þess með sjálfri mér, að ég
gæti fundið upp á einhverju til að
stöðva grátinn. Venjulega á ég af-
ar erfitt með að koma réttu
orðunum að hlutunum, þegar
mest á reynir. Meðan ég stóð og
beið eftir að vatnið syði, var eins
og hvislað að mér orðunum : ,,Það
er eins vist og sólin sezt, að hún
kemur upp aftur” I augnablikinu
velti ég þessu ekki fyrir mér, en
siðar gerði ég mér grein fyrir
orðunum. Ég fór inn með kaffi-
boila til dóttur minnar og um leið
og ég rétti henni hann, endurtók
ég orðin. Hún róaðist og ég fór að
sofa.
Ári siðar gifti hún sig og brúð-
kaupsveizlan var haldin á göml-
um herragarði, sem ég hafði tekið
á leigu i tilefni dagsins. Þegar
taka átti brúðarmyndirnar, urð-
um við sammála um, að ekki var
nógu bjart á tröppunum svo við
gengum út i garðinn, þar sem
voru breiðar tröppur upp að öðr-
um dyrum. Og yfir dyrunum, þar
sem hin hamingjusömu brúðhjón
stóðu, voru grafin i steininn orð-
in: Það er ejns vist og sólin sezt,
að hún kemur upp aftur.
Húsblessun
Ég ætla að ljúka þessum kafla
með frásögn af eigin reynslu og
þá voru fjórir aðrir vitni að:
1 júni 1961 fluttum við hjónin i
nýtt hús, sem við höfðum reist
okkur sem sumarbústað i smá-
bænum Alpbach i Týról i Austur-
riki. 1 Alpbach eru kaþólskar sið-
venjur mjög sterkar og þó að við
værum ekki kaþólsk, féllumst við
á að prestur staðarins blessaði
húsið, til að brjóta ekki i bága við
venjur þarna. Morguninn,
sem athöfnin átti að fara fram,
eyddi ég timanum með þvi að lesa
ævisögu Alexanders Fieming eft-
ir André Maurois. A einum stað
ræðir höfundur um ýsóp Bibliunn-
ar, jurt, sem Hebrear notuðu við
hreinsunarhátiðir sinar, jurt, sem
Hebrear notuðu við hreinsunar-
hátiðir sinar og hún inniheldur
penicillium. Hann vitnar i 51.
sálm, 9. vers: Hreinsa mig af
synd með ýsóp, svo ég verði
hreinn.
Einmitt þegar ég var að lesa
þetta, kallaði kona min til min og
sagði, að presturinn væri kominn.
Ég lagði bókamerki i bókina og
fór til þeirra. Þar voru einnig
komnir nokkrir nágrannar. Eftir
tilheyrandi vinglas framkvæmdi
presturinn blessunina. Hann end-
aði á þvi að steinka veggina með
vigðu vatni og las jafnframt 9.
vers 51. sálms: Hreinsa mig af
synd með ýsóp, svo ég verði
hreinn.
Eftir á sýndi ég gestinim hvar
bókamerkið var , þar sem ég hafi
Svart verður bjart með OSRAM