Tíminn - 20.01.1974, Síða 10
10
TÍMINN
Sunnudagur 20. janúar 1974.
Byggingavöruverzlun SÍS
Suðurlandsbraut 32
Texti:
Jónas
Guðmundsson
Myndir:
Gunnar V.
Andrésson
Ein mesta munaðarvara á ís-
landi eru byggingavörur, þær
koma næst á eftir fæði og klæðum.
I.engi framan af byggðu menn
hús sin úr jarðefnum, torfi og
grjóti og reftu yfir með rekaviði,
og ef undanskildir eru hinir stærri
sögualdarbæir, bjó þjóðin lengst
af við vond hús.
Nútimamaðurinn lætur sér hins
vegar ekki duga torf, grjót, og
sprek, sem rak á fjörur. Hans
munaður og nauðsynjar eru sótt-
ar i vöruhús, sem aftur eru birgð
upp af fjölmörgum verksmiðjum,
sem ná umhverfis þessa jörð. Allt
þetta er til, sem þig kann að van-
haga um, fáum áratugum eftir
allsleysi og úrræðaleysi á sviðum
byggingalistarinnar.
Byggingavörudeild |SÍS.
Ein elzta verzlun, er selur
mönnum byggingaefni er Sam-
band islenzkra samvinnufélaga,
en Sambandið hefur frá fyrstu tið
flutt þær vörur inn fyrir
kaupfélögin og fyrir samvinnu-
menn um allt land. 1 upphafi var
þetta tiltölulega einfaldur
munaður: timbur og bárujárn, og
svo að sjálfsögðu saumur. Þessi
efni komu i heilum förmum á hin-
ar ýmsu hafnir. Nú á timum rek-
ur Sambandið hins vegar fjöl-
breytilega og mjög vinsæla
byggingavörudeild, sem er innan
innflutningsdeildar SIS.
Timinn kynnir að þessu sinni
byggingavörudeild StS og átti
samtal við Markús Stefánsson
deildarstjóra, er veitir þessu fyr-
irtæki forstöðu. Sagðist Markúsi
frá á þessa leið:
Markús Stefánsson, deildarstjóri byggingavörudeildar Sambandsins.
Markús lauk tveggjá vetra námi f héraðsskólanum á Laugarvatni, en
hefur slðan árið 1955 veriö starfsmaður Sambandsins. Markús er
kvæntur Huldu Jónsdóttur, og ciga þau fimrn börn.
Rætt við Markús Stef-
ánsson
— Byggingavörudeild SIS er
tviskipt. Það er deild 44 og deild
45. Deild 44 sér um öll.viðskipti
við útlönd. Pantar allar beinar
pantanir fyrir kaupfélögin og
Sambandið, semur um öll
viðskipti við útlönd, og svo er hins
vegar deild 45, sem hefur allan
lagerinn hér i Reykjavik fyrir
kaupfélögin, og er jafnframt sölu-
deild.
Þessi deild selur allar vörur,
sem hér eru seldar frá birgða-
geymslu og hefur smásölu á
byggingavörunum i Reykjavik.
Við erum sem sé söludeild fyrir
byggingavörudeild SIS.
Báðar þessar deildir heyra
undir innflutningsdeild Sam-
bandsins, en þar er Hjalti Pálsson
framkvæmdastjóri. Deiidarstjóri
deildar 44 er Haukur Jósefsson.
Að baki þessu skipulagi er
nokkuð löng þróunarsaga. Fyrir
nokkrum árum var þetta ein deild
(44), en siðar þótti heppilegra að
skipta þessu niður i tvær deildir,
eina fyrir innkaup og viðskiptin
við útlönd og aðra fyrir sölu á
þessari vörutegund, eða vöru-
flokki.
Gömul viðskiptagrein
SÍS
Þetta er mjög gömul viðskipta-
grein innan Sambandsins, og
hefst liklega um sama leyti og
Sambandið byrjar innflutning á
vörum, enda eru byggingavörur
næstar matvörum af þeim nauð-