Tíminn - 20.01.1974, Side 24
24
TÍMINN
Sunnudagur 20. janúar 1974.
A. Conan
Doyle:
Doktor
Lana
(Dularfulli
læknirinn)
4
Eruö þér tilbúin að sverja aö
skriftin sé ófölsuö?”
Ungfrú Morton: „Já.”
Verjandi: „Herra dómari. Ég
er fús til að kalla á sex vitni, sem
geta staöfest, að þetta bréf sé
með rithönd dr. Lana ófalsaðri.”
Dómarinn: ,,Þau vitni verðið
þér að leiða fram á morgun.”
Parlock Carr, sækjandi máls-
ins: „Til bráðabirgða krefjumst
við þess, herra dómari, að fá i
hendur þetta sendibréf, svo unnt
sé að fá vitni um, hvort það sé
stæling á rithönd mannsins, sem
viö vitum að ekki er á lifi. Ég þarf
ekki að benda á, að þessi fregn,
sem öllum kom á óvart getur ver-
iö einfalt kænskubragð, sem vinir
ákærða hafa fundið upp til að villa
um fyrir réttvisinni. Ég vil benda
á þá staðreynd, aö hin unga dama
hefur samkvæmt eigin frásögn,
haft þetta bréf handa i millum,
bæði viö likskoðunina og lög-
reglurannsóknina. Hún vill láta
okkur trúa þvi, að hún hafði lát-
ið bæði þau atvik hafa sinn gang,
afskiptalaust, þó hún heföi vitnis-
burð I hendi sér, sem stöðvað
mundi hafa slfkar aðgerðir.”
Verjandi: „Getiö þér úrskýrt
þetta ósamræmi, ungfrú
Morton?”
Ungfrú Morton: „Þaö var ósk
dr. Lana, að leyndarmál hans
væri ekki gert heyrum kunnugt.”
Parlock Carr: „Hvers vegna
hafiö þér þá gert það opinbert?”
Ungfrú Morton: „Til að frelsa
bróöur minn.”
Ánægjusuða fór um dómssal-
inn, en dómarinn heimtaði jafn-
skjótt kyrrð og þögn.
Dómari: „Nú er röðin komin að
yður, hr. Humphrey, aö bregða
birtu yfir hver þessi maður er,
sem margir af vinum og sjúkling-
um dr. Lana þykjast fullvissir um
að sé læknirinn sjálfur.
Einn meðdómendanna: „Hefur
nokkur maður látið i ljós efa um
að svo væri?”
Parcock Carr: „Ekki svo aö ég
viti til.”
Verjandi: „Við vonumst eftir
að geta upplýst máliö.”
Dómarinn: „Réttarhöldunum i
máli þessu er þvi frestað til
morguns.”
Þessar nýju horfur i mál-
rekstrinum vöktu æsta eftir-
væntingu meðal áheyrenda og
allrar alþýðu manna. Blöðin gátu
ekkert ákveðið sagt um málið,
þar sem það var ennþá óupplýst
með öllu. Spurningin, sem mest
var rædd var um það, hvort frá-
sögn ungfrú Morton gæti verið
rétt, eða hvort hér væri um að
ræða dirfskufullt bragð hennar til
að frelsa bróður sinn.
Nú var öll afstaðan oröin slik,
að hinn týndi læknir, — væri hann
annars á lifi —, hlaut nú að gerast
ábyrgur fyrir dauða hins ókunna
manns, sem liktist honum svo
mjög og fundinn var i stofu hans.
Bréfið, sem ungfrú Morton neit-
aði að leggja fram, haföi kannski
að geyma játningu hans. Væri því
þannig háttað, átti hún aðeins um
þá hörmulegu kosti að velja, að
frelsa bróður sinn með þvi að
fórna unnusta sinum, er áður
hafði verið.
Næsta dag var réttarsalurinn
troðfullur, og eftirvæntingarsuða
heyröist meðal mannfjöldans, er
Humphrey gekk i salinn og talaði
hljótt við sækjanda. Var sýnilegt
að verjandi var æstur i skapi og
átti erfitt með að stilla sig. Nokk-
úr orö i flýti fóru á milli þeirra, og
svipur Parlocks Carr bar vott um
mikla undrun. Verjandi sneri sér
að dómaranum og lýsti þvi yfir,
að sækjandi samþykkti, að hin
unga dama, er áður haföi borið
vitni, mundi ekki verða kölluð til
vitnis aftur.
Dómarinn: „Þaö viröist svo hr.
Humphrey, aö þér hafið skilizt við
þetta mál á mjög ófullnægjandi
hátt.”
Verjandi: „Vera má, aö næsta
vitni geti nokkuð bætt um þaö.”
Dómarinn: „Kallið þá á þetta
vitni yðar.”
Verjandi: „Ég kalla þá á
doktor Lana sem vitni.”
Hinn dugmikli verjandi hafði
vist mörg snjallyrði sagt um sina
daga, en þó hafði hann aldrei vak-
ið aðra eins undrun og með þess-
um orðum. Mannfjöldinn varð
blátt áfram lamaður af undrun,
þegar maðurinn, sem allir hugðu
dauðan, kom nú i ljós bráðlifandi
inni i vitnastúkunni. Þeir, sem
höfðu þekkt hann áður, sáu að
hann var fölur og tekinn, og djúp-
ar hrukkur sáust á andliti hans.
En þrátt fyrir það, hve illa hann
leit út, var engan sektarsvip á
honum aö sjá, hann bauð góðan
þokka nú eins og áöur.
Um leið og dr. Lana hneigði sig
fyrir dómaranum, spurði hann,
hvort sér leyföist aö taka til máls.
Slfkt leyfi var auðfengið ásamt
venjulegri ábendingu um að allt
sem hann segði mætti nota gegn
honum eöa málstað hans.
„Ég óska ekki eftir aö dylja
neitt, heldur mun ég skýra full-
komlega rétt frá þvi er gerðist
nóttina fyrir hinn 21. júni. Hefði
ég vitað að grunur félli á saklaus-
an mann og tiltæki mitt yrði svo
átakanleg harmsök þeim, er ég
ann mest á jörðu hér, mundi ég
fyrr hafa gefið mig fram. En at-
vik ollu þvi, aö ég vissi þetta ekki
fyrr, hvernig ástatt var. Ég hafði
óskað þess, að óhamingjusamur
maður mætti hverfa þeim, er
hann höfðu þekkt áður, en ég
hafði ekki séð fyrir, að aðrir
mundu þurfa að liða fyrir það.
Leyfið mér þvi að bæta fyrir
þessa vanhyggju mina svo sem
mér er unnt..
Hver sá er þekkir sögu argen-
tinska lýðveldisins, þekkir lika
ætt með nafninu Lana. Faðir
minn var af göfugum, spænskum
ættum, og haföi verið i flestum
tignarstöðum þar i landi. Hann
mundi hafa orðiö forseti ef hann
hefði ekki beðið bana i uppreisn-
inni við San Juan. Það sýndist, að
lifið brosti við mér og tvibura-
bróður minum, Ernst, en algert
eignahrun varð orsök þess, að við
neyddumst til að vinna sjálfir fyr-
ir okkar daglegu þörfum. Ég bið
yður aö afsaka, herra dómari, ef
yður finnst þessi æviatriöi óvið-
komandi málefni þvi, er hér ligg-
ur fyrir, en þau eru nauðsynlegur
undirbúningur þess, sem á eftir
fer.
Eins og ég sagði áður átti ég
tviburabróður, Ernst að nafni.
Við vorum svo likir, að varla
mátti greina nokkurn mun okkar
jafnvel þótt við værum saman.
Allt útlit okkar var nákvæmlega
hið sama. Þegar við urðum eldri,
var likingin ekki jafn nákvæm,
þvi svipbrigðin voru ekki hin
sömu. En væri andlitssvipur okk-
ar i kyrrð og rósemi, þá var
munurinn vart sjáanlegur.
Það sæmir ekki að tala með
litilsvirðingu um látinn mann,
sem að auki var bróðir minn. Það
verða þeir aö gera, sem þekktu
hann bezt, ef þeim sýnist svo.
Ég segi aðeins, vegna þess, að
ég verð aö segja það, að frá fyrstu
barnæsku stóð mér hreint og
beint ógn af honum. Til þess hafði
ég lika gildar ástæður að hafa
ýmigust á honum, þvi að mann-
orð mitt var oftlega svivirt hans
vegna. Þar sem viö vorum svo
likir varð ég oft að gjalda fyrir
margvislegt athæfi hans.
Loks heppnaðist honum að
koma sökinni á mig fyrir óvenju
lúalega sök, er hann var sjálfur
valdur að. Ég var tilneyddur að
yfirgefa Argentinu og leita mér
atvinnu i Evrópu. Ég hafði nóg fé
til að geta lokið við læknisnám i
Glasgow og hóf siðan læknisstörf i
Bishops Crossing i öruggri von
um að vera alveg laus við bróður
minn. I nokkur ár reyndist þetta
svo, en loks varð hann þess visari,
hvar ég var niður kominn. Maður
einn frá Liverpool, sem var á ferð
i Argentinu, kom honum á slóð
mina. Ernst hafði nú sóað öllum
fjármunum sinum, og áleit nú, að
rétt væri að krefja mig um fjár-
styrk. Þar sem honum var kunn-
ugt um viðbjóð þann, er ég hafði á
honum, bjóst hann við, og það
með réttu, að ég mundi verða
glaður við að geta keypt hann
þannig af höndum mér.
Ég fékk bréf frá bróður minum
þess efnis, að hann mundi koma.
Það boðaði örlagarikt timamót i
lifi minu, og koma hans mundi
valda einni persónu, sem mér var
mest annt um, sorg og kannski
óhamingju á einhvern hátt. Ég
gerði þvi ráðstafanir til þess, að
hvað illt, sem i vændum væri,
kæmi niður á mér einum. Þetta
var ástæðan fyrir þeirri breytni
minni, sem ýmsir dæmdu mig
harölega fyrir. (Hér leit dr. Lana
til fangans.) Einasta ástæðan til
þessarar breytni var að vernda
þá, sem ég unni, frá allri snert-
ingu við bróður minn, og frá þeim
hneykslum, sem ég óttaðist að
leiða mundi af komu hans.
Bróðir minn kom sjálfur kvöld
eitt. skömmu eftir að ég hafði
/ Það er of löng leið fyrir einn
m ann 1—*
Sjáöu þetta, Luck^. Sprengjan
Ég skai ri
fl.júga' fyrir þig
i keppninniy
mann, Geiri. Ég læt
skrá mig á morgun
dugði ekki á flaugina.
■ Hvell-Geiri ætlar að
- - . fljúga henni,-
Þú hefur misst mikið'
blóö, Hammer. Betra
. að hvila sig vel.^^-
m
WWlWilB
Sunnudagur
20. janúar
8.00 Morgunandakl. Biskup
Islands, herra Sigurbjörn
Einarsson flytur ritningar-
orð og bæn.
8.10 Fréttir og veðurfregnir.
8.15 Létt morgunlög B'anda-
riskir listamenn flytja atriði
úr söngleiknum „Sögu úr
vesturbænum” eftir Leon-
ard Bernstein.
9.00 Fréttir. Útdráttur úr for-
ustugreinum dagblaðanna.
9.15 Morguntónleikar. (10.10
Veðurfregnir)
11.00 Messa I Dómkirkjunni.
Prestur: Séra Óskar J. Þor-
láksson. Organleikari:
Ragnar Björnsson.
12.15 Dagskráin. Tónleikar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.15 Hugleiðingar um Hindú-
isma. Séra Rögnvaldur
Finnbogason flytur þriðja
erindi sitt Atavarar og al-
þýðutrú.
14.00 Gestkoma úr strjálbýl-
inu.Jónas Jónasson fagnar
gestum frá Búðardal.
14.50 Miðdegistónleikar:
16.15 Kristallar — popp frá
ýmsum hliðum. Umsjónar-
menn: Sigurður Sighvats-
son og Magnús Þ. Þórðar-
son.
16.55 Veðurfregnir. Fréttir.
Tónleikar.
17.10 útvarpssaga barnanna:
„Biesi” cftir Þorstein
Matthíasson. Höfundur les
(6).
17.30' Sunnudagslögin.
Tilkynningar.
18.30 Fréttir. 18.45 Veður-
fregnir. 18.55 Tilkynningar.
19.00 Veðurspá. I.eikhúsið og
við.Helga Hjörvar og Hilde
Helgason sjá um þáttinn.
19.35 „Sjaldan lætur sá betur,
sem cftir hermir”.Umsjón-
armaður: Jón B. Gunn-
laugsson.
19.50 Sónata í F-dúr op. 99 eft-
ir Brahms.Milos Miejnik og
Viasta Dolezal-Rus leika á
selló og pianó. Frá
júgóslavneska útvarpinu,
20.15 „Upp með lifið — enga
vitleysu” Vilborg Dag-
bjartsdóttir les stuttar sög-
ur eftir Margréti Friðjóns-
dóttur.
20.45 Frá leiksviði. a.
Hermann Prey syngur
óperuariur eftir Leoncavallo
Bizet og Verdi. b. Útvarps-
hljómsveitin i Berlin leikur
danssýningarlög úr
„Faust” eftir Gounod,
Ferenc Fricsay stj.
21.15 Tónlistarsaga. Atli
Heimir Sveinsson skýrir
hana með tóndæmum.
21.45 Um átrúnað. Anna Sig-
urðardóttir talar um Heim-
dall og töluna niu i Eddun-
um.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Danslög
23.25 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
Mánudagur
21. janúar
7.00 Morgunútvarp.
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og
10.10. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (
og forustugr. landsm. bl ),
9.00 og 10.00. Morgunleik-
fimikl. 7.20: Valdimar örn-
ólfsson leikfimikennari og
Magnús Pétursson pianó-
leikari (alla virka daga vik-
unnar). Morgunbæn kl.
7.55: Séra Bjarni Sigurðsson
á Mosfelli flytur (a.v.d.v.).
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Knútur R. Magnússon
les framhald sögunnar
„Villtur vegar” eftir Odd-
mund Ljone i þýðingu Þor-
láks Jónssonar (14).
Morgunleikfimi kl. 9.20.
Tilkynningar kl. 8.30. Létt
lög á milli liða. Búnaðar-
þáttur kl. 10.25: Tilrauna-
menn og ráðunautar tala
um fóður og fóðrun i vetur.
Morgunpopp kl. 10.40: Cat
Stevens syngur. Tónlistar-
saga kl. 11.00: Atli Heimir