Tíminn - 06.02.1974, Síða 1
ÁætKinarstaðir:
Akra’nes - Blönduós
Flateyri - Gjögur
Hólmavík - Hvammstangi
Rif - Siglufjöföur
Stykkishólmur
Sjúkra- og 'leigúflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
-------------------------------------------------------------------------- 1 1 \
KÓPAVOGS
APÓTEK
Opiö öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga kl. 1 til 3
Simi 40-102
ERLENDAR VERÐHÆKKANIR MUNU
VALDA ÖRÐUGLEIKUM í ÁR
— segir í skýrslu hagrannsókna-
deildar Framkvæmdastofnunar
ríkisins um þjóðarbúskapinn
HHJ—Reykjavik — tJt er komið á
vegum hagrannsóknadeildar
Framkvæmdastofnunar rikisins
yfirlitsrit um þjóðarbúskapinn,
framvindu mála 1973 og horfur á
þessu ári. í ritinu, sem er hið
fjórða i ritröð hagrannsókna-
deildar um efnahagsmál þjóðar-
búsins, er einnig gerð grein fyrir
efnahagsþróun i umheiminum,
enda hlýtur þróun mála hér
heima að markast mjög af
ástandinu annars staðar. í
viðauka við ritið er greinargerö
frá Hafrannsóknastofnuninni um
aflahorfur 1974. í formála að
ritinu segir, að þar sem
niðurstöður almennra
kjarasamninga séu ekki kunnar,
beri aö skoða allar tölur um þróun
launa og verðlags 1974 eingöngu
sem dæmi reist á þeirri forsendu,
að almenn hækkun grunnlauna
miðist við breytingar á þjóðar-
framleiðslu og þjóðartekjum.
1 skýrslunni segir, að þjóðar-
framleiðslan hafi aukizt um 5%
að raunverulegu verðgildi á
siðastliðnu ári. Niðurstöður af út-
reikningum hagrannsóknadeildar
benda til þess, að vöxturinn verði
e.t.v. Ivið minni á þessu ári, eða
4-5%. Sú spá er við það miðuð, að
olíuskorturinn kreppi ekki
verulega að framleiðslukerfi
okkar.
Þjóðartekjur uxu á siðasta ári
nokkru meira en þjóðarfram-
leiðslan vegna hagstæðra við-
skiptakjara. Aukningin nam
7,5%. Ekki er ósennilegt, að við-
skiptakjör versni á þessu ári, og
af þvi leiði, að aukning tekna
verði minni en framleiðslu-
aukningin eða 3-4%.
Útflutningsverðmæti vöru og
þjónustu jókst um 36% 1973.
Aukningin varð 4% að magni en
31% að veröi. Aætlað er að 1974
verði aukning útflutnings-
verðmætis 13.5% og skiptist
þannig, að magnaukning verði
2.5%, en verðhækkun 11%.
Innflutningsverömæti vöru og
þjónustu jókst s.l. ár um 43%.
Magnaukning varð 18%, en
verðaukning 21%. Spáð er 14-15%
innflutningsverðmætis á þessu
ári. Talið er að magnaukning
verði 3%, en verðaukning 11%.
Búizt er við þvi, að viðskipta-
jöfnuöur verði óhagstæður um
4200milljónir króna 1973, en verði
likast til meira en jafnaður meö
innstreymi erlends fjármagns,
þannig að gjaldeyrisstaðan
batnihugsanlega um 1 milljarð á
þvi ári. Viðskiptahallinn verður
ekki ósennilega öllu meiri 1974
eða 4500-5000 milljónir króna, en
gjaldeyrisstaðan mun þó ekki
breytast að marki, þvi að reiknað
er með þvi að innstreymi erlends
fjármagns til langs tíma jafni
metin.
Fjármunamyndun jókst aö
magni til um 16% 1973 og
samkvæmt spá verður hún svipuð
á þessu ári. Þá er miðað við veru-
lega aukningu almennrar
fjármunamyndunar, þvi að þess
er að vænta að innflutningur
skipa og tilbúinna húsa veröi mun
minni á þessu ári en raun varð á
1973.
Einkaneyzla hefur að þvi er
Framhald á 6. siðu.
■; ■
Þennan starfsmann ESSO rákumst við á suður i Hafnarfirði, þar sem hann var að bjástra við olíuleiðsl-
ur. Droparnir, sem fara um þessar ieiðslur og aðrar, sem ætlaðar eru til sömu nota, verða æ dýrari.
Flest bendir til þess aö þær hækkanir, sem orðið hafa á oliuverðinu aö undanförnu, veröi okkur þungar i
skauti. Timamynd. Róbert.
Umdeild kíttiverksmiðja í Hveragerði:
Lóðasamningurinn úr gildi og
reglugerðardkvæðum ófullnægt
— en undirbúningur að byggingu eigi að síður hafinn
JH/gbk—Reykjavik. — 1 Hvera-
gerði virðist vera i uppsigiingu
mál, er kann að vekja talsverða
athygli. Rótin að þvi er kíttisverk
smiðja, sem til umræðu var að
reisa þar fyrir nokkrum árum, en
hefur siðan verið litið rætt um,
þar til nú að skyndilega var i ný-
liönum janúarmánuði hafin jarð-
vinna til undirbúnings byggingu
verksmiðjuhúsa. En þar er sá
hængur á, að út er runninn
GRÆNLENZKIR SJOAAENN
HINGAÐ Á VERTÍÐ
—hs—Rvlk. — Hvað er þetta
maður, fylgistu ekki með?
Lestu Timann, og þá kemstu
að þvi, hvernig ástandið er i
þessum málum! Svo fórust
Runólfi Sölvasyni orð, þegar
blaðamaður innti hann eftir
þvi, hvernig gengi að ráða
mannskap i frystihúsin og á
bátana, en Runólfur er fram-
kvæmdastjóri Saltvers s/f i
Keflavik, sem m.a. frystir
loðnu um þessar mundir.
Blaðið fregnaði, að ráðnir
hefðu verið Grænlendingar á
báta, sem legðu upp hjá fyrir-
tækinu og leitaði stað-
festingar hjá Runólfi. Hann
sagði að þetta væri rétt, 3
grænlenzkir sjómenn væru á
Hannesi lóðs VE og 2 á Lundey
RE og hæft hefði verið að fá
fleiri.
í framhaldi af þessu, sagði
Runólfur, að ástandið væri
mjög slæmt og alls staðar
vantaði fólk bæði i fisk-
verkunarhúsin og á bátana.
T.d. vantaði Saltver 7 karl-
menn i vinnu, hefði 5 en þyrfti
að hafa 12. A morgnana væru
7-8 kvenmenn i vinnu, sem
hættu svo um hádegisbilið til
að geta sinnt heimilisstörfun-
um,en kvenfólkinu færi siðan
fjölgandi þegar liði á daginn
og á kvöldin væru þær allt að
20.
Hann sagði, að unnið væri
Jrá kl. 8 á morgnana til kl. 2 á
nóttinni, sem nægði þó ekki til.
Ef vel ætti að vera, þyrfti að
hafa starfandi 20 manns i senn
á tveim vöktum. — Það sem
Framhald á bls. 13
frestur, sem fyrirtækinu var sett-
ur um nýtingu lóðarinnar, og ekki
liafa verið uppfyllt ákvæði
rcglugerðar frá árinu 1972 um
varnir gegn mengun af völdum
citurefna og hættulegra efna.
Aðili sá, sem hyggst reisa
kittiverksmiðjuna, nefnist
Sameinuðu efnasmiðjurnar, og
mun hafa á bak við sig Ruthland-
verksmiðjurnar i Ameriku, er
framleiða alþekktar tegundir
klttis. Mun Ölafur Þorgrimsson
lögfræðingur vera einn helzti for-
göngumaður þessarar verk-
smiðjubyggingar.
Forsaga þessa máls er sú, að 1.
júli 1970 var undirritaður
lóðasamningur af hálfu sveitar-
stjórnarinnar I Hveragerði og
Sameinuðu efnasmiðjanna um tiu
hektara lands á milli þorpsins
annars vegar og þjóðvegarins
nýja hins vegar. Var þetta 780
metra löng og 128 metra breið
spilda á milli akvega sem liggja
inn i þorpið. I samningum var
svo að orði kveðið, að lóðin væri
seld á erfðafestu. en fylgdi samt
þaðákvæði. að lóðasamningurinn
rynni út sumarið 2020. Loks var
tilskilið, að byggingar-
framkvæmdir og starfræksla
yrðu að hefjast innan tveggja ára.
Þessi lóðasamningur olli
ágreiningi á sinum tima. og taldi
minnihluti hreppsnefndar of
miklu landi ráðstafað með of
miklum friðindum. þegar til þess
Framhald á (i. siðu.
REYKJAVÍKURMÓTIÐ
Bragi Kristjánsson skýrir skák-
irnar — Sjá bls. 6-