Tíminn - 06.02.1974, Page 2
2
TÍMINN
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
Miðvikudagur 6. febrúar 1974
Vatnsberin (20. jan.—18. febr.)
Ytri aðstæður, sem þú ræður ekki, geta komið
þér i klipu i starfi þinu, og við þessu er ekki
nema eitt að gera : Þú verður að sýna fullkomna
hreinskilni og láta svo umhverfi þitt um að
dæma, hvort þér hafi verið um að kenna.
Fiskarnir (19. febr.—20. marz)
Það væri svo sem eftir þér að fara að láta smá-
vegis andstreymi fara i skapið á þér i dag. Þú átt
eitthvað smávegis erfitt um þessar mundir, en
það er nú eitt sinn svo, að vogun vinnur, vogun
tapar, og það geta ekki allir unnið — alltaf!
Hrúturinn (21. marz—fl9. april)
Þú skalt gá að þér i dag, þvi að einhver, sem
þykist hafa ástæðu til að vera afbrýðisamur út i
þig, reynir að bregða fæti fyrir þig. Þess vegna
skaltu hafa augun hjá þér og láta ekki minnstu
breytingu fara framhjá þér.
Nautið (20. april—20. mai)
Þetta er enginn rólegheitadagur, og talsverðar
sviptingar eiga sér stað, en ekki er gott að gera
sér grein fyrir þeim. Þú skalt aðeins gæta þess
að láta þetta ekki fara i skapið á þér og orsaka
undrun eða ótta, þvi að þá fer illa.
Tviburar (21. mai—20. júní)
Það er i dag, sem þú verður að gripa til þinna
ráða i ástamálunum, þvi að annars er hætta á
þvi, að eitthvert það samband, sem er þér afar
kært, slitni. Hinn aðilinn er orðinn hálfleiður
lika, svo að þú skalt ekki hika við að taka frum-
kvæðið.
Krabbinn (21. júni—22. júli)
Þú skalt búa þig undir smáergelsi i dag, eitt-
hvað, sem kemur þér á óvart, en þér er kannski
einhver huggun i þvi, að það er ekkert I sam-
bandi við peningamálin. Einnig eru likur á nýj
um kynnum, sem verða þér til ánægju og hags-
bóta.
Ljónið (23. júli—23. ágúst)
Þú skalt gæta vel að forsendum þess, sem þú ert
að ráðast i, áður en þú ferð að huga að fram-
kvæmdum, og það er rétti dagurinn i dag að
huga að stórframkvæmdum eða þýðingarmikl-
um ákvörðunum, aðallega fyrir sjálfan sig.
Jómfrúin (23. ágúst— 22. sept.)
Þessi dagur verður i flesta staði afskaplega
ánægjulegur fyrir þig, og það litur út fyrir, að þú
fáir einhverja skemmtilega tilbreytingu i kvöld.
En eins og fyrri daginn skaltu ekki rasa um ráð
fram, hvað eyðsluna snertir.
Vogin (23. sept.—22. okt.)
Það litur einna helzt út fyrir, að sambandið milli
þin og vina þinna og kunningja sé ekki upp á það
allra bezta, og þú ættir að nota daginn i dag til að
kippa þvi i lag. Vinnan virðist lika orðin nokkuð
tilbreytingarlaus. Það þarf að laga.
Sporðdrekinn (23. okt.—21. nóv.)
I öllum samskiptum þinum við hitt kynið skaltú
reyna að láta sem mest bera á þinum beztu hlið-
um. Þú ert ekkert sérlega ráðþæginn, en þú skalt
samt vera opinn fyrir nýjum tillögum i dag, þótt
þú hafir i fyrstu harla litinn áhuga á þeim.
Bogmaðurinn (22. nóv—21. des.)
Það er hætta á þvi, að þér verði á einhver mis-
tök, ef þú hefur ekki hægt um þig i dag. Þú skalt
stunda vinnu þina af sérstöku kappi. I kvöld litur
út fyrir, að þú eigir ánægjulega stund með vini
þinum eða góðum kunningja.
Steingeitin (22. des.—j-19. jan.)
Það er eitthvað mikilvægt á döfinni hjá þér, og
hafir þú lagt inn umsókn eða eitthvað svoleiðis,
er afar áriðandi, að þú standir við orð þin og þó
sérstaklega, að þú sýnir stundvlsi. Þú mátt bú-
ast við bréfi, ef ekki i dag, þá bráðlega.
Auglýsið í Tímanum
1 14444 1
mufíom
V 25555
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
Er ekki
tangvinn herseta
varhugaverð?
Hver eru einkum rök min sem
andstæðings erlendrar hersetu
hér á landi á friðartimum?
Ég mun reyna að setja þau
hér fram i sem stytztu máli.
Fyrst og fremst hafa friðar-
horfur i heiminum batnað til
mikilla muna siðustu árin. Næg-
ir þar að benda á samninga i Vi-
etnam (sem boða minnkandi
hættu á stórveldaárekstrum á
þeim slóðum, enda þótt átök
nokkur séu þar enn), samninga
og stórbætta sambúð Rússa og
Vestur-Þjóðverja og síðast en
ekki sizt stórlega aukin viðskipti
Rússa við vestrænar þjóðir. Enn
má nefna allgóðar horfur á frið-
samlegra ástandi við austan-
vert Miðjarðarhaf en verið hef-
ur um langa hrið. Haft er stund-
um á orði, að ekki sé langt um
liðið, siðan legið hafi við stór-
styrjöld milli risaveldanna
vegna vandamálanna fyrir Mið-
jarðarhafsbotni. Ekki verður
þvi slegið föstu, að fjölmiðlar
hafi greint rétt frá þvi, sem
milli stórveldanna fór á bak við
tjöldin, en þeir hafa flutt þá
fregn, að Rússar hafi hótað að
beita hervaldi til að rétta hlut
Araba, þegar fór að halla á þá
að marki. Setjum svo að þetta
sé rétt hermt.
Reynum nú að setja okkur eitt
andartak i spor hinna skelfilegu
Rússa, sem ekki hafa aðeins
veðjað á Araba i langvinnum
erjum þeirra við Israelsmenn,
heldur sækjast mjög eftir hylli
þjóða ,,þriðja heimsins” yfir-
leitt, eins og fleiri stórveldi. Er
ekki liklegt, að þeir hafi hugsað
eitthvaö á þessa leið, þegar við
blasti fjórði og tvimælalaust
mest auðmýkjandi ósigur Araba
fyrir t s r a e 1 s m ö n n u m :
„Hvaða álit munu Arabar, svo
og önnur vanþróuð riki.fá á okk-
ur sem styrktarmönnum sinum,
ef við opnum ekki einu sinni
munninn, þegar svo horfir sem
nú I styrjöld þeirra gegn tsra-
elsmönnum?” Mér finnst trú-
legra að Rússar hafi með hótun
sinni fremur viljað brýna
Bandarikjamenn til að halda
aftur af tsraelum heldur en að
þeir hafi látið sér detta i hug, að
leggja út i stórstyrjöld af þess-
um sökum.
Íbændur
„TORK"
ROFAKLUKKUR
fyrirliggjandi.
Garðar Gíslason h.f.
Sími 11506.
Mikið er úr þvi gert, að okkur
stafi hin mesta hætta af flota
Rússa hér á norðurslóðum. Vit-
að er, að við lok siðasta striðs
voru Rússar mun verr búnir
hernaðarlega- en Bandarikja-
menn og þó einkum eftirbátar
þeirra á höfunum. Þennan mis-
mun hafa Rússar greinilega
verið að reyna að jafna síðan,
svo sem vaxandi flotastyrkur
þeirra um öll heimshöf sýnir.
Hins vegar vill svo til, að hin
eina herskipahöfn þeirra, sem
liggur að úthafi, er nyrzt i Rúss-
landi, við Barentshaf, og er þvi
ekki óeðlilegt, þótt floti þeirra
eigi oft leið um Atlantshafið.
Vikjum nú að öðru. Það er
óumdeilt, að ísland hefur
þýðingarmikla legu frá
hernaðarsjónarmiði, og verður
svo að sjálfsögðu, hvað sem lið-
ur sambúð Rússa og
Bandarikjamanna, en hætt er
við, að ekki yrði tryggður friður
um allar jarðir, þótt þeirra
vinskapur kunni að blómgast.
Eins og öllum er kunnugt, fóru
Bandarikjamenn fram á það
upp úr striðslokum að fá að
hafa hér herbækistöð i 99 ár,
en það skilst mér að sé sá
lengsti timi, sem yfirleitt er
nefndur i millirikjasamningum.
Hvað þýðir þetta? Einfaldlega
það, að Bandarikjamenn óskuðu
eftir slfkri aðstöðu hér um ótak-
markaða framtlð, og er ekki
ástæða til að ætla að þeir hafi
breytt um skoðun i þessu efni.
Nú hlýtur maður að spyrja:
Fylgir þvi ekki talsverð áhætta
fyrir örfámenna þjóð, að stór-
veldi hafi varanlega herbæki-
stöð i landi hennar? Hvort mun
auðveldara að losna við slikan
ófögnuð fyrr eða síðar? Timinn
og vaninn móta viðhorf manna
fyrr en þá sjálfa varnir. Gæti
ekki hugsazt að viðkomandi
stórveldi fyndizt,. er timar liðu
fram, að nokkur hefð væri tekin
að helga rétt þess til hins her-
setna lands? Hvernig gengur
Spánverjum að stugga vinum
okkar, Bretum, frá Gibraltar-
höfða? Gæti ekki orðið nokkuð
langt að biða þess, að friðar-
horfur i heiminum yrðuh slikar,
að engar likur yrðu á hernaðar-
átökum framar? Og meðal
annarra orða: Hversu lengi ætla
islenzkir kjósendur áð láta
Rúsagrýluna hræða sig til að
ánetjast ihaldinu?
Herstöðvaandstæðingur.
Landbúnaðarráðuneytið
Staða tilraunastjóra
sem jafnframt annist bústjórn við fjár-
ræktarbúið að Hesti i Borgarfirði, er
laus til umsóknar frá 1. júni n.k.
Umsóknir sendist landbúnaðarráðu-
neytinu fyrir 15. marz n.k.
p.
m
X
m
r!.'f
Sérfræðingur
V.íLs
[■r, V
ki. .7
r*;».
Staða sérfræðings I röntgengreiningu við Röntgendeild
Borgarspitalans er laus frá 1. april eða siðar eftir sam-
komulagi.
Laun samkvæmt kjarasamningi Læknafélags Reykja-
vikur. Umsóknir, ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf, sendist Heilbrigðismálaráði Reykjavikurborgar
fyrir 7. marz n.k.
Frekari upplýsingar veitir yfirlæknirinn.
Reykjavik, 4. febrúar 1974.
<i £v
h'é
m
&
• 1-v
‘M'v* .-*■ .* *r
Heilbrigðismálaráð &
Reykjavikurborgar. ^
Húseign til sölu
á Akureyri
Kauptilboð óskast i húseignina Eyrar-
landsveg 16, Akureyri, ásamt tilheyrandi
leigulóð.
Húsið verður til sýnis þeim, er þess óska,
laugardaginn 9. febrúar kl. 1-6 e.h., og
verða tilboðseyðublöð afhent á staðnum.
Kauptilboð þurfa að berast skrifstofu
vorri fyrir kl. 11:00 f.h. föstudaginn 15.
febrúar 1974.
INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS
BORGABTÚNI 7 SÍMI 26844