Tíminn - 06.02.1974, Síða 4
4
TÍMINN
Miövikudagur 6. febrúar 1974.
Sigla — hvað sem
tautar og raular
Nokkuð hefur borið á þvi, að
dregið hefur verið úr ferðaáætl-
unum skemmtiferðaskipa eftir
að verulega fór að bera á oliu-
skorti erlendis. Þó hefur verið
tilkynnt i Frakklandi, að ákveð-
ið hafi verið, að franska
skemmtiferðaskipið „Frakk-
land” fari sinar áætlunarferðir
næsta sumar, hvað sem öllum
oliuskorti liður. Geta þvi þeir,
sem ráðgert hafa að sigla um öll
heimsins höf á „Frakklandi”
næsta sumar glatt sig við það,
að ferðin verður farin, og viða
komið við.
Hún verður brúður
James Bond
Susanna York heitir næsta
brúður James Bonds. Hún
leikur á móti Roger Moore i
þriðju Bondkvikmynd hans, en
sú mynd á að heita Maðurinn
með gullbyssuna. Fyrsta kvik-
myndin, sem dýrlingurinn lek
Bond i, færði honum hvorki
meira né minna en um 20
milljónir króna.
Steiktir sólar
Arið 1930 stóð Tom nokkur
Parkin, bóndasonur i þorpinu
Cawthorn i Yorkshire i dagstof-
unni heima hjá sér. Tom stóð
fyrir framan arininn i stofunni
þegar eldingu laust allt i einu
niður um strompinn. Hún lenti á
stigvélunum hans, sem brunnu
upp á svipstundu, án þess að
hann yrði þó fyrir nokkrum
meiðslum. Sólarnir urðu eftir,
og eru nú til sýnis i þorpssafn-
inu, og þykja merkilegir i meira
lagi.
★
Bensín fyrir
janúarferðamenn
Ferðamenn, sem komið hafa I
bilum sinum til Frakklands nú i
janúar, hafa getað fengið þar
allt það bensin, sem þeir hafa
óskað eftir. Hins vegar hefur
franska stjórnin ekki getað lof-
að neinu um áframhaldandi
bensinsölu til útlendinga. Gerð-
ar hafa verið ráðstafanir til þess
að hægt verði að taka upp
bensinskömmtun i landinu strax
i febrúar, ef þurfa þykir, og má
þá búast við, að ekki verði eins
auðvelt fyrir útlendinga að fá
þar keypt bensin til skemmti-
aksturs.
Benedikta
ó von d sér
Rétt fyrir jólin sást tveimur
ungum og myndarlegum prin-
sessum bregða fyrir alloft I
verzlunum i Kaupmannahöfn.
Prinsessurnar voru systurnar
Benedikta, sem gift er Richard
af Berleburg, og systir hennar,
sem reyndar ætti vist fremur að
kalla fyrrverandi drottningu,
Anna Maria af Grikklandi.
Systurnar héldu sig einna helzt i
barnafatabúðum og keyptu
mikið af smábarnafatnaði, en
Benedikta mun eiga von á
þriðja barni sinu. Hún á nú hinn
fjögurra ára gamla Gústaf og
tveggja ára Alexöndru. Þær
mæðgur sitja hér á myndinni og
leika sér af mestu ánægju.
★
Tumi þumall
í fjölleikahúsi
Hann heitir Mihaly Meszaros,
er 34 ára gamall, er er aðeins 33
þumlungar að hæð! Mihaly er
ungverskur dvergur, og stað-
hæfir hann að hann sé minnsti
maður i heimi, 33 þuml. eða um
120 sm hár. Hann hefur æft dans
og trúðleik alls konar og vinnur i
hinu fræga Ringlingfjölleika-
húsi i New York (Ringling Bros.
Barnum and Bailey Circus).
Mihaly er vinsæll i fjölleika-
húsinu og er bara ánægður með
sig. Hann sagði i blaðaviðtali: —
Ég hef ekki áhyggjur af smæð
minni. Ég fæ alls konar
skenimtileg föt i barnafata-
verzlunum, bæði jakkaföt,
skyrtur og annað, en það er
samt ýmislegt, sem getur verið
erfitt fyrir mig, vegna þess hve
ég er lítill. Ég var t.d. einu sinni
að veiða i Dóná, og þá fékk ég
svo stóran fisk á stöngina mina,
að hann dró mig út i ána. Vinir
minir björguðu mér — annars
hugsa ég að fiskurinn hefði étið
mig!
★
Setti markið
of hótt
Nýlega var Wilhelm Heymann
dæmdur I Vestur-Þýskalandi
fyrir að hafa staðið dauða-
drukkinnútiá flugvelli, og verið
að reyna að fá þar far meö flug-
vél, sem flaug yfir völlinn. Hafði
hann ætlað að ferðast „á puttan-
um” eins og það er kallað, en að
þessu sinni með flugvél, en ekki
bil, eins og er tiðara um „putta-
ferðalanga.”
★
Forngripur
meðal fiska
Vitia Sakharova I úzbesku borg-
inni Termez veiddi nýlega mjög
sjaldgæfan innsjávarfisk, Scap-
hiringus. Fiskinn veiddi hún er
hún sótti vatn i litla áveitu-
skurðinn, sem rennur fram hjá
húsinu, sem hún býr i. Scaphi-
ringus-fiskurinn er forngripur,
sem stórfiskarnir hafa eytt og
finnst á okkar dögum aðeins i
Mississippi og Anu-Darja.
DENNI
DÆMALAUSI
Þér sem þótti svo vænt um að
hjálpa mér með uppþvottinn.
Hver sleppir refnum, þegar búið
er að veiða hann?