Tíminn - 06.02.1974, Page 5
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
TÍMINN
5
Síldveiðar í Norðursjó:
HVE MIKIÐ
FÁUM VIÐ
AÐ VEIÐA?
— líklega ókveðið í marz n.k.
Sjúkrabifreið eins og sú, sem keypt verður til minningar um Hauk Hauksson blaðamann.
„HJARTABÍLL"
BLAÐAMANNAFÉLAGSINS
— til minningar um Hauk Hauksson, blaðamann
FYRIR all-nokkru hóf Blaða-
mannafélag íslands söfnun til
kaupa á sérstökum „hjartabll”,
en þessari söfnun var hrundið af
stað til minningar um Hauk
Hauksson, blaðamann, og er
tengd nafni hans. — Alls hafa nú
safnazt tæplega tvær milljónir
króna. i samráði við Rauða Kross
islands og Sjúkraflutninganefnd
Reykjavikurborgar hefur bifreið
verið pöntuð frá Noregi. Eftir
talsverðar umræður og athuganir
varð ákveðið að festa kaup á full-
kominni Mercedes Benz sjúkra-
fiutningabifreið, sem bezt er talin
þjóna þvi hlutverki, sem „hjarta-
bil” er ætlað.
Bifreiðiri er vel búin tækjum og
i henni er mjög góð aðstaða fyrir
lækni og sjúkraliða. Bifreiðin
kemur ekki aðeins að notum við
flutninga á hjartveiku fólki, hún
getur komið að miklu gagni viö
flutninga á fólki, sem hefur orðið
fyrir alvarlegum slysum, til
dæmis raflosti, „köfnun” eða
„drukknun”, og alla þá, er á
skyndihjálp þurfa að halda, þar
sem hver minúta getur ráðið úr-
slitum um llf eða dauða. í bifreið-
inni verður hjartalinurit sérstök
súrefnistæki og fleiri nauðsynleg
tæki. — Þetta verður fullkomn-
asta sjúkrabifreið, sem ts-
lendingar hafa eignazt.og verður
hún afhent Rauða Krossinum til
eignar og reksturs. Rauði Kross-
inn heldur námskeið fyrir þá
menn, sem sjá um rekstur bif-
reiðarinnar. í þeim tilgangi koma
til landsins menn frá Norska
Rauða Krossinum. — Afgreiðslu-
frestur á bifreiðinni er um þrir
mánuðir og er hún væntanleg til
landsins i mai-mánuði. — Nokkra
fjárhæð skortir til tækjakaupa, og
væntir Blaðamannafélagið þess,
að einhverjir verði til að leggja
þvi lið, svo búa megi bifreiðina
fullkomnustu tækjum, sem völ er
á. — Framlögum má koma til
Arnar Jóhannssonar á Morgun-
blaðinu og Arna Gunnarssonar á
fréttastofu útvarps.
-hs-Rvik. Eins og fram hefur
komið, m.a. á aðalfundi L.t.C.
fyrir áramótin siðustu, hafa verið
uppi tillögur um verulcga tak-
mörkun sildveiða islenzkra skipa
i Norðursjó. Illjóðuðu þessar til-
lögur upp á það, að fslenzku
skipin fengju að veiða milli 8 og 12
þúsund* lestir.en arið 1973 veiddu
islenzku skipin yfir -13 þús. lestir,
sem mestmegnis fór til
menneldis. Árið 1972 var sildar-
aflinn hjá islenzku skipunumá
þessum slóðum nálægt 41 þús.
lestum.
Þetta er þvi, eins og sjá má,
veruleg minnkun, og bjuggust
menn við þvi, á fyrrgreindum
aðalfundi, að fjöldi islenzkra
nótaveiðiskipa yrði verkefnalaus
yfir sumartimann, ef ekki yrði
úr ■bætt.
1 desember s.l. var fundur
haldinn um þessi mal i London
þar sem átti að setja fisk-
veiðikvóta fyrir Norðursjóinn. Að
sögn Þórðar Asgeirssonar,
fulltrúa i sjávarútvegsráðu-
neytinu, voru tillögur mjög óhag-
stæðar fyrst i stað. Hins vegar
jókst skilningur á málstað Is-
lendinga verulega á þessum
fundi, sem stóð frá 11.-13. desem-
er. og hækkaði hlutur okkar mjög
mikið frá fyrstu tillögum, en ekki
náðist samkomulag á fundinum.
Annar fundur hefur verið
ákveðinn i marz n.k.,og verður þá
væntanlega ákveðið, hversu
mikið magn af sild Islendingar
mega veiða i Norðursjónum.
Þórður Ásgeirsson sagði, að við
gætum verið frekar vongóðir og
góðar horfur væruó þvi að okkar
hlutur i sildveiðunum i Norðursjó
yrði ekki minni en 30 þús. lestir.
Danir veiða langmest af fiski,
þar á meðal sild, á þessum slóð-
um, eða um 200 þús. lestir á
siðasta ári. Mestur hluti þess afla
fer i bræðslu, en afli islenzku
skipanna fer, eins og áður sagði,
að langmestu leyti til manneldis,
og hefur mjög mikil áherzla verið
lögð á það atriði, i umræðunum
um þessi mál.
Ákvörðun verður væntanlega
tekin um það, hversu mikla sild
við megum veiða i Norðursjó
næsta sumar, á fundinum i
London i marz, og horfurnar eru
nokkuð góðar á að hlutur okkar
verði ekki skertur til muna, eins
og áður sagði.
Heimilis
ánægjan
eykst
með
Tímanum
Auglýsið í Tímanum
Tillögur Náttúruverndarsamtaka Suðvesturlands:
ÞJÓÐGARÐURINN Á ÞINGVÖLLUM
NÁI VESTUR í HVALFJARÐARVOGA
A AÐALFUNDI Náttúruverndar-
samtaka Suðvesturlands, sem
haldinn var fyrir nokkru, var
meðal annars rætt um stækkun
þjóðgarðsins á Þingvöllum. Segir
i drögum að náttúruminjaskrá,
sem tekin hefur verið saman á
vegum samtakanna, að eðlilegt
virðist, að sem mest að Þing-
vallasvcit falli undir þjóðgarðinn
á Þingvöllum og heppilegt, að
fjalllendið norður af Þingvalla-
sveit verði einnig gert að
þjóðgarði, og eru þar nefnd fjöll
eins og Skjaldbreið og Botnssúl-
ur.
„t framhaldi af þessum
friðunarhugmyndum virðist eðli-
legt að tengja þjóðgarðinn við
Hvalfjarðarbotn — það er að
segja Botnsdal og Brynjudal,
ásamt innstu vegum Hvalfjarðar.
t þennan hátt næðist að vernda
stórt, samfellt svæði með afar
fjölbreytilegu náttúrufari —
svæði, sem næði yfir margvislegt
gróðurlendi, bæði á basalti og
yngri berggrunni og I mismun-
andi hæð yfir sjó. Slik verndun
kæmi til með að hafa geysilega
mikið gildi, bæði að þvi er varðar
almennar náttúrurannsóknir,
fræðslu almennings og útivist
ýmiss konar.”
Þá segir, að alls ekki megi
dragast að friðlýsa Botnsdal,
þótt ef til vill verði torsótt og
timafrekt að friða fullkomlega
allt hið mikla landsvæði, er áður
var nefnt. Segir i riti náttúru-
verndarsamtakanna, að skógur
og annar gróður þar sé á undan-
haldi, auk þess sem vænta megi
stóraukinnar ásóknar i sumarbú-
staðalönd á þessum slóðum.
Þá segir, að fjaran i Brynjudals
vog sé mjög fjölbreytileg og
auðug af lifi og mikilvægt
fæðusvæði fugla, svo sem æðar-
fugla og margra vaðfgula, og
gefist þar gott tækifæri til
athuganna á þessum fuglum. Er
skirskotað til rækilegra
rannsókna á lifriki Brynjudals-
vogs á vegum Háskólans undan
farin ár.
t framhaldi af þessu eru nefndir
ýmsir staðir, sem ættu að vera
friðlönd: Laxárvogur, flæðiengj-
ar og tjarnir meðfram Laxá i
Kjós, Bugða i Kjós, þar sem er
einna mest straumaandavarp á
Suðvesturlandi, Eyjatjörn i Kjós,
þar sem eru varpstaðir fugla, svo
sem flórgoða, Miðdalsheiði,
Leiruvogur og nágrenni
Geldinganess, eyjar á Kollafirði,
Elliðaárog Elliðaárdalur, Myllu-
tjörn og Myllulækur við Elliða-
vatn, Hjallar innan Heiðmerkur-
girðingar, Grótta á Seltjarnar-
nesi, Suðurnes á Seltjarnarnesi,'
Fossvogur, Bessastaðanes og
Gálgahraun, fjörur að norðan- og
vestanverðu Alftanesi,
Urriðavatn og Ástjörn við
Hafnarfjörð, Straumsvik, sem
raunar hefur mjög verið spillt,
Látrar við Hvassahraun, fjörur á
Garðsskaga. Osar við Hafnir,
Hafnaberg, Reykjanestá,
Hraunsvik undir Festarfjalli.
Krisuvikurberg, Herdisarvik og
Stakkavtk.
Fólkvangar telja samtökin
eiga að koma á Háabjalla við
Vogastapa, Svartsengi i Grinda-
vik og á Reykjanesi. Þegar er
kominn fólkvangur i Bláfjöllum
og fyrir náttúruverndarnefnd
Reykjavikur liggur nú tillaga
um friðun Rauðhóla og fólkvang i
nágrenni þeirra.
i siðustu viku opnuðu eigendur Málarans I Bankastræti nýja og glæsilega verzlun að Grensásvegi 11. Er
verzlun þessi á um 500 fermetra gólffleti og er þarna mjög litskrúðugt og skemmtilegt um að litast, enda
eru þarna seldar margar tegundir af málnigavörum, teppum og mörgu öðru. Verzlunarstjóri I þessari
nýju verzlun er Guðjón Oddsson, sem starfað hefur I verzlun Málarans i Bankastræti i fjöldamörg ár.
(Timamynd G.E)