Tíminn - 06.02.1974, Side 6
6
TÍMINN
Miövikudagur 6. febrúar 1974.
REYKJAVÍKURMÓTIÐ
— Bragi Kristjánsson skýrir skákirnar
Islenzku skákmönnunum
gekk illa viðureignin við erlendu
meistarana i 2. umferð Reykja-
vikurskákmótsins. Friðrik
Ólafsson var sá eini, sem tefldi
vel. Hann stóð allan timann að
vigi en andstæðingur hans,
bulgarski stórmeista rinn
Tringov. i biðstöðunni hefur
Friðrik valdað fripeð á
sjöundu linu, en staðan er
lokuð og ekki ljóst, hvernig hann
getur brotizt i gegnum varnir
Búlgarans.
Guðmundur Sigurjónsson
hafði hvitt gegn Júgóslavanum
Velimirovic. Varð skákin
snemma mjög frumleg.
Guðmundur eyddi mikium tima
i byrjunina og varð þvi að leika
mjög hratt undir lokin. 1 bið-
stöðunni á Guðmundur von um
jafntefli i drottningarendatafli
með peði minna.
Sovezku stórmeistararnir
Smyslov og Bronstein unnu
sinar skákir án mikillar fyrir
hafnar. Smyslov náði snemma
yfirburðastöðu vegna veikrar
taflmennsku Jóns Kristinssonar
ibyrjun. Varð Jón að gefast upp
I 24. leik. Bronstein þjarmaði
svo að Freysteini borbergssyni,
að sá siðarnefndi neyddist til að
fórna skiptamun. bað var þó
aðeins gálgafrestur, og
Freysteinn varð að gefast upp
eftir nokkrar sviptingar.
Július Friðjónsson tefldi
byrjunina veikt gegn Ingvari
Ásmundssyni. Eftir miklar
sviptingar hafði Július unnið
skiptamun, en látið tvö peð af
hendi i staðinn. Staða Ingvars
var þá greinilega betri, þvi að
menn Júliusar höfðu litið at-
hafnafrelsi. I timahraki lék
Július af sér hrók og gafst upp.
Benóný Benediktsson náði
góðri stöðu út úr byrjuninni á
móti Magnúsi Sólmundarsyni.
Benóný tefldi ónákvæmt og lenti
I mjög óhagstæðu endatafli. I
biðstöðunni á Magnús tvo
biskupa gegn hrók og unnið tafl.
Rúmeninn Ciocaltea tefldi
sina fyrstu skák i mótinu við
ögaard frá Noregi. Norð-
maðurinn átti i vök að verjast
allan timann, og i biðstöðunni
hefur hann tveimur peðum
minna og tapað tafl.
Ungverski stórmeistarinn
Forintos hafði sama háttinn á
gegn Kristjáni Guðmundssyni
og við Guðmund i fyrstu
umferð. Mjög flókin byrjun, og
annar auðveldur vinningur. bað
er greinilega betra að lita i
skákbækur áður en teflt er við
Forintos.
Hvftt: Forintos
Svart: Kristján
Kóngsindversk vörn.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4
d6 5. Be2 0-0 6. f4--
Ungverjinn teflir mjög flókna
byrjun éins og i 1. umferð gegn
Guðmundi.
6. - - c5 7. d5 e6. 8 Rf3 exd5 9.
cxd5 He8 10. e5 - -
Hvitur gat einnig valið rólegra
framhald 10. Rd2.
10. - - dxe5 11. fxe5 Rg4 12. Bg5
Da5.
Bezta vörnin er sennilega 12. - -
f6 13. exf6 Bxf6 14. Dd2 Rd7 15. 0-
0 Rde5 16. Bxf6 Dxf6 17. Rg5 Db6
með gesilega flókinni stöðu.
Önnur leið er 14. - - Db6 15. 0-0
Rxe5 16. d6 og svartur er i
vanda.
13. 0-0 Rxe5 14. Rxe5 Bxe5 15.
Bc4 Db4 16. Db3 - - Hvitu
mennirnir eru allir komnir i
leikinn, en þeir svörtu á
drottningararmi eru enn á
upphafsreitum. Hvitur getur
þess vegna boðið drottninga-
kaup, þótt hann eigi peði minna.
16. - - Bf5.
Eini leikurinn, þvi svartur
verður að geta svarað 17. d6
með 17. - - Be6 og Rb8 verður að
fara til d7 og stöðva d-peðið.
17. d6 Dxb3 18. axb3 Bd4 + ?
Svartur getur haldið jöfnu
tafli með 18. - - Bxd6. 19. Rd5
Rd7 20. Hxf5 gxf5 21. Bb5 Be5 22.
Bxd7 Hed8 23. Bxd8 Hxd8 24.
Re7+ Kf8 25. Bxf5 Kxe7 26.
Hxa7 Kf6 27. Bxh7 b5, en þannig
0 Verðhækkanir
beztverðurséðaukiztum 6% 1973
og spáð er að hún aukizt enn á
þessu ári og verði 7%. Sú spá er
miðuð við það, að almenn hækkun
grunnkaups verði i samræmi við
breytingar á þjóðarframleiðslu
og þjóðartekjum eins og þær eru,
ef tekið er mið af löngum tima.
Sama gildir um samneyzluna
og einkaneyzluna.
Atvinnuleysisskráning nam að
meðaltali 0,4% af tiltækum
mannafla 1973 og getur varla orð-
ið lægri á þessu ári, þótt mikil
eftirspurn sé eftir fólki til starfa.
Ráðstöfunartekjur heimilanna
hækkuðu um 28-29% s.l. ár. Verð á
neyzluvörum hækkaði hins vegar
um 24%, þannig að kaupmáttur
ráðstöfunartekna jókst um 3-4%.
Skýrsla hagrannsóknadeildar
gerir ráð fyrir þvi, að
ráðstöfunartekjur i peningum
hækki á þessu ári líkt og 1973, en
verðhækkun verði nokkru minni,
þannig að kaupmáttur
heimilanna aukist um 7% á þessu
ári.
Miklar verðhækkanir urðu á
árinu 1973. Neyzluvöruverð
hækkaði að meðaltali um 24%
sem fyrr segir. Meðaltalshækkun
visitölu framfærslukostnaðar
nam 21%, en visitala byggingar-
kostnaður hækkaði að meðaltali
um 27% 1973. Útflutningsverðlag
hækkaði að meðaltali um 42% i
krónum reiknað, en 32% i erlendri
mynt. Verð á innfluttum vörum
hækkaði að meðaltali um 12% i
erlendri mynt, en um 25-26% I
islenzkum krónum talið.
bvi er spáð að almennar inn-
fluttar vörur hækki a.m.k. um
13-15% á þessu ári. Sú hækkun
hlýzt að miklu leyti af hækkunum
á oliuverðinu. Búizt er við þvi að
útflutningsverðlag hækki nokkru
minna en innflutningsverðlag.
í skýrslunni er gert ráð fyrir
þvi, að til frekari hækkana komi á
vfsitölu framfærslukostnaðar og
visitölu vöru og þjónustu á næstu
mánuðum, m.a. vegna hækkandi
verðlags á innfluttum vörum.
Almennt verðlag gæti þvi hækkað
um 18-20% að meðaltali á þessu
ári.
Tiðar breytingar hafa orðið á
gengi krónunnar að undanförnu. í
desember mun vegið meðalgengi
krónunnar hafá verið nánast hið
sama og það var fyrir
Auglýsið í
Tímanum
tefldist skák á milli Janosevic
og Forintos i Júgóslaviu 1973.
19. Khl Bxc3.
Svörtum fellur ekki staðan
eftir 19. - - Rc6 (19. - - Rd7 20.
Rd5 Hab8 21. Hxa7 o.s.frv.) 20.
Rd5 Hab8 21. Rf6+ Bxf6 22. Bxf6
o.s.frv.
20. bxc3 Be6
Eða 20. - - Rd7 21. Bd5 Heb8 22.
Hael He8 23. Be7 og svartur
getur ekki hreyft sig.
21. Bb5 Rd7 22. Hael a6.
bvingað vegna hótunarinnar
23. Hxe6 ásamt 24. Bxd7.
23. Bxd7 Bxd7 24. He7 Hxe7
Önnur leið er 24. - - Be6 25.
Hxb7 Heb8 26. Hc7 Hc8 27. Bf6
Hxc7 28. dxc7 h5 29. Hdl Hc8 30.
b4 cxb4 31. cxb4 Kh7 32. Bd8 og
hviti kóngurinn fer i langferð
yfir á drottningarvænginn til b7
og gerir út um skákina.
25. dxe7- -
Hvita peðið færist einu skrefi
nær markinu.
25. - - f6
Eftir 25. - - Bc6 26. Bf6 h5 27.
Hdl He8 28. b4 cxb4 29. cxb4 Kh7
gengislækkunina I desember 1972.
Afkoma sjávarútvegsins i heild
batnaði verulega á árinu 1973, en
hækkanir á verði á olium og
gerviefnum ýmsum kunna að
hafa þau áhrif, að umskipti verði i
þessum efnum á næstunni.
Matið á horfunum á þessu ári er
reistá athugun á efnahagsþróun i
umheiminum, aflaspá, spá um
útflutningsframleiðslu, auk spár
um þróun innlendrar eftir-
spurnar. í mörgum greinum er nú
um mikla óvissu að ræða ýmissa
hluta vegna. b.á.m. má nefna
óvissu um niðurstöður
kjarasamninga, sem og
oliuskortinn, sem nú ógnar
framleiðslu og viðskiptakerfi
iðnrikjanna. bá rikir mikil óvissa
um þróun matvælaverðs á
heimsmarkaðnum hin næstu
misseri, en þó er búizt við þvi að
það geysiháa matvælaverð er nú
rikir muni fremur lækka en
hækka á þessu ári, þótt vera megi
að atburðir síðustu mánaða að þvi
er tekur til oliu- og
hráefnamarkaðarins kunni að
breyta þessu. Aflahorfur eru
fremur laklegar hvað^þorskstotn
inn áhrærir, en hins vegar er ekki
óliklegt að hið hagstæða verð á
þorskafurðum, sem nú rikir,
haldist fram eftir árinu og einnig
kann útfærsla landhelginnar og
aukinn skipastóll að færa okkur
einhverja aflaaukningu.
o Verksmiðja
væri litið, hversu landþrengsli
voru mikil I Hveragerði.
Nokkuð af þvi landi, sem leigt
var Sameinuðu efnasmiðjunum
tilheyrði nágrannajörð, Vorsabæ,
og taldi bóndi þar, ögmundur
Jónsson, sig ranglega sviptan
ábúð á þeim hluta. Fór hann þess
á leit, að lögbann yrði lagt við
framkvæmdum á skikanum. Til
þess kom þó ekki. Páll
sýslumaður tjáði blaðinu, að sú
krafa hefði verið dregin til baka,
þar eð engir tilburðir voru þá
hafðir til að gera neitt á landinu.
Næstu misserin virðast þeir,
sem fengið höfðu lóðina, hafa
verið þvi afhuga orðnir að nota
hana, og sýnist mega álykta, að
það hafi verið orkuskorturinn, er
breytt hafi afstöðu þeirra. Eins og
fyrr segir hófst jarðvinna á þessu
landi nú fyrir fáum vikum, en þá
var frestur sá, sem Sameinuðu
efnasmiðjunum var settur, runn-
inn út fyrir hálfu öðru ári.
En annar hængur er einnig á.
Samkvæmt regiugerð frá 15. júni
1972, nr. 164, má sá, er hyggst
reisa verksmiðju eða iðjuver,
sem ætla má, að geti mengað loft,
lög eða láð, ekki ákveða
staðsetningu hennar, gerð né
búnað fyrr en en að fengju leyfi
heilbrigðismálaráðherra.
Umsókn um starfsleyfi skai sent
Heilbrigðiseftirliti rikisins,
30. h4 g5 31. hxg5 Kg6 32. Kh2
Kf5 33. Hd6 Bb5 34. Kg3 Bc6 35.
Kh4 Kg6 36. g4 hxg4 37. Kxg4 á
svarturenga vörn gegn H-d2-h2-
h6 mát. Svartur virðist ekki eiga
betri vörn i þessu endatafli, þvi
leiki hann ekki 35. - - Kg6 kemst
hviti kóngurinn til f8, t.d. 35. - -
Bxg2 36. Kxh5 Bf3+ 37. Kh6 Bc6
38. Kg7 Ke6 39. Hxe8 Bxe8 40.
Kf8 Bc6 (40. - - Kd7 41. Bd4 og
svartur er i leikþröng) 41. Bd4
og 42. e8D og hvitur vinnur.
26. Hxf6 h6
Eða 26. - - Kg7 27. Hd6 Bc6 28.
Hd8 og vinnur. önnur leið er 26.
- - Be8 27. Hd6 og 28. Hd8 og
vinnur. Einnig 26. - - He8 27. Bh6
og 28. Hf8+ og mátar.
27. Hxg6 Kf7 28. Hf6 Kg7
Eftir 28. - Kxe7 29. Hxa6 hxg5
30. Hxa8 vinnur hvitur
auðveldlega.
29. Hd6 hxg5
Eða 29. - - Bc6 30. Hd8 og
vinnur.
30. Hxd7 He8
Ekki 30. - - Kf7 31. Hd8 og
vinnur.
31. Hxb7 Kf7 32. Kgl Hxe7
Hrókaendatafl með tveimur
peðum minna hefði auðvitað
einnig verið gjörtapað.
33. Hxe7 Kxe7 34. Kf2 c4.
Eða 34. - - a5 35. c4 og vinnur
eins og i skákinni.
35. b4 Ke6 36. Ke3 Ke5 37. h3
Kf5 38. g3 Ke5 39. h4 gxh4
40. gxh4 Kf5 41. Kd4, og
svartur gafst upp, vegna þess að
hann getur ekki komið i veg
fyrir að hvita c-peðið gangi uþp
I borð og verði að drottningu.
Bragi Kristjánsson.
ásamt nákvæmum uppdráttum
og vitneskju um gerð mannvirkja
og véla og næsta umhverfi, magn
og tegund fyrirhugaðrar
framleiðslu, framleiðsluaðferð,
notkun efna, sem kunna að
reynast skaðleg, eða myndun
slikra efna við framleiðsluna,
frárennsli og tæki og búnað til
varnar mengun og skrá eigendur
fasteigna i næsta nágrenni. bessu
öllu skal fylgja umsögn heil-
brigðisnefndar hlutaðeigandi
sveitar.
Heilbrigðiseftirlit rikisins
leitar siðan umsafnar
eiturefnanefndar, náttúruvernd-
arráðs og öryggiseftirlits rikisins,
og fleiri aðila, þegar það á við,
auk þess sem það kannar sjálft
málavexti og gætir þess, að öllum
ákvæðum, sem umræddum verk-
smiðjum ber að lúta, sé fullnægt.
Tillögur sinar sendi heilbrigðis-
eftirlitið siðan heilbrigðismálráð-
herra, er endanlega gengur frá
afgreiðslu starfsleyfis.
Timinn spurðist fyrir um það i
gær, hvort gögn varðandi kittis-
verksmiðjuna væru komin i heil-
brigðismálaráðuneytið, og
könnuðust þeir, er þar urðu fyrir
svörum, ekki við slikt. bá sneri
blaðið sér til heilbrigðiseftirlits
rikisins, og voru þar veitt þau
svör, að engin gögn um kittis-
verksmiðjuna hefðu borizt þvi.
bessi vinnubrögð þykja ekki
lofa góðu. Enginn veit, hvort
mengunarhætta fylgir þessari
verksmiðju, hversu mikil hún er
eða hvaða varnir á að viðhafa, og
mun jafnvel i ráði að efna til
borgarafundar um málið i Hvera-
gerði.
o íþróttir
og Sviar léku þar. Við eigum
einnig nokkrar filmur af tékk-
neska liðinu. bessar myndir
munum við sýna landsliðs-
mönnunum og vonumst við til
að þær verði lærdómsrikar
fyrir HM.
begar við spurðum Pál,
hvort einhverjar breytingar
yrðu gerðar á HM-liðinu, sagði
hann: Við höfum valið liðið
endanlega, en að sjálfsögðu
gerum við breytingar þar á ef
einhver forfallast, eða við
sjáum aðrar ástæður til. Ef
þeir leikmenn, sem hafa nú
verið valdir, slá slöku við
æfingar þegar lokaundir-
búningurinn er hafinn, hafa
þeir ekkert að gera með liðinu
i HM. Við megum gera breyt-
ingar á liðinu fram að hádegi
27. febrúar. Ég hef trú á, að
allir þeir leikmenn, sem hafa
nú þegar verið valdir, leggi
hart að sér og mæti vel i loka-
undirbúninginn”.... sagði Páll
að lokum.
SOS
TUNGSRAM
LJÓSA
PERUR
Kúlu- og kertaperur
Heildsölubirgðir fyrirliggjandi
RAFTÆKJAVERZLUN ÍSLANDS HF.
Ægisgötu 7 — Sími 17975/76
Kópavogsbúar!
Aðalfundur
Klúbbsins ÖRUGGUR AKSTUR verður hald-
inn i Félagsheimilinu, Kópavogi, fimmtud. 7.
febr. kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Ávarp formanns, Ingjalds Isaksson-
ar.
2. Afhending viðurkenningar- og verð-
launamerkja SAMVINNUTRYGG-
INGA f.f.á. fyrir öruggan akstur.
3. Erindi: „ÖRYGGI 1 UMFERÐ- 1
INNI” — Björn Gunnarsson for-
stöðumaður.
4. Umferðin I Kópavogi. Framsögu-
maður Ingjaldur Isaksson. Umræð-
ur og fyrirspurnir.
5. Aðalfundarstörf skv. samþykktum
klúbbsins.
6. Kaffiveitingar I boði klúbbsins.
7. Umferðarlitkvikmyndin VETRAR- „... n
* , , , , Biorn Gunnarsson
AKSTUR með islenzku tali. J
Kópavogsbúar! Drekkið kvöldkaffið með okk-
ur. Allt áhugafólk velkomið!
Stjórn
Klúbbsins ÖRUGGUR AKSTUR
Kópavogi.