Tíminn - 06.02.1974, Side 9
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
TÍMINN
9
(Jtgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þór-
arinn Þórarinsson (ábm.), Jón Helgason, Tómas Karlsson.
Auglýsingastjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrif-
stofur i Edduhúsinu við Lindargötu, símar 18300-18306. Skrif-
stofur i Aðalstræti 7, simi 26500 — afgreiðslusími 12323 — aug-
lýsingasimi 19523. Askriftagjaid 360 kr. á mánuði innan lands,
i lausasölu 22 kr. eintakið.
Blaðaprent h.f.
í ótryggum heimi
Þau tiðindi hafa gerzt, að viðskiptaráðuneyt-
ið hefur beitt sér fyrir þvi, að islenzku oliu-
félögin festu kaup á 16000 smálestum af gas
oliu frá Shell. Verður þessari oliu afskipað frá
Rotterdam.
Eins og kunnugt ery höfum við samninga við
Sovétrikin um kaup á nær allri oliu,er við not-
um. Nú hafa vanefndir orðið af Rússa hálfu á
afgreiðslu á þeirri oliu, sem pöntuð hafði verið
skv. samningum. Svartolia pöntuð til af-
greiðslu i janúarmánuði og gasolia fyrir janúar
og febrúar hefur ekki enn borizt til landsins. Nú
hafa Rússar heitið þvi, að 16000 smálestum af
svartoliu verði dælt um borð i skip ytra i byrjun
þessar viku og ætti olian að verða komin hing-
að til lands um miðjan mánuðinn. Samt sem
áður vantar 8 þúsund smálestir af svartoliu
upp á janúarpöntun oliufélaganna.
íslenzkt efnahags- og atvinnulif er einmitt nú
allra viðkvæmast fyrir vanefndum á þeim
samningum, sem við höfum gert um oliukaup.
Vegur þar þyngst loðnuvertiðin og bræðsla á
loðnu, sem nú er nýhafin. Oliufélögin telja, að
tiltölulega auðvelt sé fyrir þau að afla sér gas-
oliu frá vestrænum oliufélögum, en erfiðara sé
um vik með svartoliuna. Vegna vanefnda
Rússa er þessi kaupsamningur við Shell þvi
sjálfsagður og eðlilegur til að tryggja hags-
muni islenzka þjóðarbúsins. Verðið á oliunni,
sem keypt verður af Shell,er sambærilegt við
verðið á oliunni frá Sovétrikjunum, enda er
verðið á oliunni frá Rússum bundið i samning-
um við verð á oliu á Vesturlöndum.
Ástæðurnar fyrir þessum vanefndum Rússa
á samningunum við okkur eiga sér vafalaust
sinar skýringar. En nokkurn ugg hlýtur það að
vekja með okkur, að mörg þau lönd, sem hafa
oliukaupasamninga við Rússa og eru i nánust-
um tengslum við þá, eru i hópi þeirra rikja,
sem einna fyrst urðu til að taka upp hraðatak-
markanir farartækja og skömmtun á elds-
neyti. 1 þeim hópi er t.d. Pólland og fleiri Aust-
ur-Evrópuriki.
Rússar hafa mikla þörf fyrir beinharðan er-
lendan gjaldeyri i viðskiptum sinum. Freisting
þeirra er þvi mikil, þegar oliuverðið á Vestur-
löndum er svo hátt, sem raun ber vitni, að selja
meira magn af oliu á frjálsum vestrænum
markaði en i vöruskiptum innan Come-
con-landanna.
Okkar viðskipti við Sovétrikin eru vöru-
skiptaverzlun. Við höfum átt góðan freðfisk-
markað i Sovétrikjunum, þ.e. við greiðum fyrir
oliuna með fiskafurðum. Það, sem hefur bjarg-
að islenzku efnahagslifi siðustu misseri i hin-
um miklu gjaldeyrissviptingum og verð-
hækkunum, sem orðið hafa i innflutningslönd-
um okkar, er sú mikla verðhækkun, sem orðið
hefur á útfluttum fiskafurðum til Bandarikj-
anna og fleiri landa. Þessi verðhækkun nemur
á ýmsum fisktegundum 100% frá siðasta ári.
Nú virðist sem tregða og erfiðleikar séu
komnir i fisksölusamninga okkar við Sovétrik-
in. Rússum finnst verðhækkunin að vonum
mikil. Hún er þó ekki nærri eins mikil og verð-
hækkunin á oliunni, sem við verðum að greiða.
En þetta sýnir, að við lifum i ótryggum heimi
margvislegra sviptinga, og þvi er öruggast að
hafa sem flest járn i eldinum.
ERLENT YFIRLIT
Grenada verður
sjálfstætt ríki
Verkföll setja svip á fullveldisdaginn
Eric Gairy
A MORGUN verður lýst yfir
sjálfstæði eyjunnar Grenada,
sem er syðst hinna svonefndu
Windwordeyja i Karabiska
hafinu. Forsætisráðherra
stjórnarinnar þar, Eric
Gairy, segir, að guð hafi blásið
sér þeirri hugmynd i brjóst að
velja þennan dag sem full-
veldisdag hins nýja rikis.
Sennilega verður þó ekki mik-
ið um dýrðir i höfuðborginni,
St. George’s, á morgun, er
sjálfstæðistakan fer fram, þvi
að verkföll hafa lamað mest-
allt atvinnulif Grenadabúa að
undanförnu. Stjórnarand-
stæðingar hafa gripið til verk-
fallsvopnsins til að mótmæla
vaxandi einræði og lögreglu-
valdi, sem rikisstjórnin hafi
beitt. Einkum telja þeir, að
einkalögregla forsætisráð-
herrans hafi gert sig seka um
margvisleg óhæfuverk.
BRETAR lögðu undir sig á
sinum tima margar smáeyjar
i Karabiska hafinu. Þeir hafa
stefnt að þvi eftir siðari
heimsstyrjöldina að losa sig
við yfirráð þeirra, þar sem
fjárhagslega hefur verið litið
upp úr þeim að hafa, en eyjar-
skeggjar gert kröfur um aukið
sjálfstæði og stundum fylgt
þeim eftir með uppþotum og
hyrðjuverkum. Um skeið
stendu Bretar að þvi að sam-
eina allmargar eyjar eða
eyjaklasa i sérstakt riki, West
Indies Associated States. Riki
þetta átti að ná til Grenada
(100 þús. ibúar), Antigua (70
þús.), Dominica (70 þús.), St.
Kitts — Nevis-Anguilla (60
þús.) St. Lucia (100 þús.) og
St. Vincent (90 þús.), auk
margra smærri eyja. Eyjar
þessar tilheyra flestar hinum
svonefndu Windwordeyjum
og Leewordeyjurm Hver eyja
átti að hafa allviðtæka heima-
stjórn, en sameiginlega áttu
þær að mynda eina rikisheild.
Þótt Bretar haldi þessari
rikishugmynd lifandi að nafni
til, hefur hún raunar aldrei
komizt i framkvæmd nema á
pappirnum. Ibúar flestra
stærri eyjanna hafa stefnt að
fullu sjálfstæði og ekkert vilj-
að hafa saman við hinar
eyjarnar að sælda. Fjarlægðir
valda þvi einnig, að erfitt er að
framkvæma þessa samrikis-
hugmynd Breta. Grenada
verður nú fyrst þessara eyja
til að hljóta fullt sjálfstæði, en
búizt er við þvi, að flestar
hinna fylgi fljótlega á eftir.
Ifér munu þá myndast mörg
smáriki, og getur það orðið
vandamál hjá Sameinuðu
þjóðunum, hvort veita eigi
þeim inngöngu. Ef farið yrði
inn á þá braut, gætu eylöndin i
Karabiska hafinu orðið álika
atkvæðamörg á allsherjar-
þinginu og t.d. Vestur-Evrópa.
GRENADA er að flatarmáli
133 fermilur. Hún mun hafa
myndazt við eldgos. Land-
búnaður er þar eini atvinnu-
vegurinn, sem heitið getur, og
helztu útflutningsvörur eru
kakó og bananar. Þá hafa
ferðamenn heimsótt eyjuna
allmikið i seinni sið, og þvi
hefur hafizt þar talsverður
gistihúsarekstur. Eyjaskeggj-
ar, sem eru blandaðir, eru um
100 þúsund. Upprunalega eru
þeir af Indiánaættum, en all-
mikið var flutt þangað af
negrum, sem blönduðust
heimamönnum, og þessu tii
viðbótar hafa hvitir menn haft
nokkur áhrif á kynblöndunina,
þótt ekki hafi þeir verið marg-
mennir á Grenada. Höfuð-
borgin er St. George’s, og eru
tæplega 10 þúsund ibúar.
ÞAÐ er fyrst og fremst verk
eins manns, Erics Gairy, að
Grenada verður fyrst um
ræddra eyja til að hljóta sjálf-
stæði. Gairy er af svertingja-
ættum, 51 árs að aldri. Hann
ólst upp i fátækt og fékk enga
menntun. Ungur að árum hóf
hann að vinna við námur Hol-
lendinga á Aruba. Þar komst
hann i kynni við verkalýðs-
hreyfinguna. Hann hélt heim
til Grenada um 1950, eða fyrir
tæpum aldarfjórðungi, og hóf
þá fljótlega að skipuleggja
verkalýðssamtök meðal land-
búnaðarverkamanna. Hann
aflaði sér brátt mikils fylgis,
enda tókst honum að koma
fram ýmsum kjarabótum.
Þegar Grenada fékk heima-
stjórn, efldi Gairy strax
stjórnmálaflokk, sem varð
brátt helzti flokkurinn á Gre-
nada. í þingkosningum, sem
fram fóru i febrúar 1972, fékk
flokkur Gairys 13 þingsæti af
15 alls, en hins vegar fékk
hann þó ekki nema 59% at-
kvæðanna. Gairy hefur siðan
stjórnað með harðri hendi.
Samkvæmt sérstökum lögum,
West Indies Act, sem Bretar
settu 1967, gátu einstakar eyj-
ar innan West Indies Associat-
ed States öðlast sjálfstæði á
tvennan hátt. Annar var sá, að
fram færi þjóðaratkvæða-
greiðsla og að tveir þriðju
hlutar greiddra atkvæða væru
fylgjandi sjálfstæðistökunni.
Ifinn var sá að fá sérstakt
samþykki Bretadrottningar
og brezku rikisstjórninnar.
Gairy valdi siðari leiðina, þvi
að hann mun hafa óttazt, að
hann fengi ekki tilskilinn
meirihluta i þjóðaratkvæða-
greiðslu. Brezka stjórnin féllst
á að veita Grenada sjálfstæði,
enda munu Bretar ekki hafa
talið sér neinn hag i þvi að
halda áfram málamyndayfir-
ráðum á Grenada.
BLAÐAMENN, sem hafa
heimsótt Grenada i tilefni af
sjálfstæðistökunni, spá þvi, að
stjórnarfar þar stefni i sömu
átt og á Haiti i stjórnartið Du-
valiers eldri. Gairy stendur i
þeirri trú, að hann sé gæddur
sérstökum andlegum hæfileik-
um, og að hann taki við fyrir-
mælum frá æðri máttarvöld-
um. Hann hefur, eftir
kosningarnar 1972, tekið sér
einræðisvald i sivaxandi mæli
og beitt andstæðinga sina si-
auknu ofriki. Þess vegna hafa
þeir gripið til verkfalla sem
mótaðgerða. Gairy hefur enn
ekki beitt valdi til að bæla
verkföllin niður, en liklegt
þykir, að hann muni fljótlega
gripa til þess, eftir að sjálf-
stæði Grenada hefur verið
viðurkennt. Þess vegna hafa
ýmis brezk blöð krafizt þess
undanfarið, að brezka stjórnin
fresti sjálfstæðisviðurkenn-
ingunni Stjórnin mun hins
vegar telja sig fást við nóg
vandamál, þótt Grenada bæt-
ist ekki við.
Gairy er lýst þannig, að
hann sé lágur vexti og grann-
vaxinn, en friður sýnum og
komi vel fyrir. Hann er snyrti-
menni i klæðaburði og kemur
vel fyrir sig orði. Þótt hann
tali hægt og liggi lágt rómur,
þykir hann hafa sérstakt lag á
að fá landa sina til að fallast á
mál sitt. Hann segir blaða-
mönnum, að þetta stafi af sér-
stökum andlegum hæfileikum.
sem hann sé gæddur og beiti
mismunandi, eftir þvi hvort
samhverjar hans eða mót-
herjareiga i hlut. Hann segist
sinna andlegum málum og
dulspeki i auknum mæli og
njóti hann leiðsagnar máttar-
valda i stjórnarstörfum sin-
um. Kona hans er félagsmála-
og umhverfismálaráðherra i
stjórn hans, og lætur hann
hana ráða mestu i þeim efn-
um. Dulspekigrúsk hans þykir
minna mjög á Duvalier eídri,
eins og áður segir, og þykir
það ekki spá góðu um fram-
tiðarstjórn Grenada.
Þ.Þ.
—TK