Tíminn - 06.02.1974, Side 11
10
fTÍMINN
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
Björn Haraldsson:
BÚSETA OG SKÓLAAAÁL f
NORÐUR-MNGEYJARSÝSLU
TÍMINN
: I iá< •*
Frá Þórshöfn
unglingar nú. Þær tvær konur,
sem ógetið er, eiga hvor um sig 4
börn.
Af athugunum þessum virðist
hægt að draga þær likur, mið-
að við það fólk, sem nú byggir
umrædda þrjá hreppa, að á næstu
6—8 árum kunni að fæðast 10—15
börn i Kópaskersbyggð, en i
sveitunum. þremur mun lægri
tala, segjum 8—12 eða i allt 18—27
börn. Skiptist þessar áætluðu fæð-
ingac.segjumá 8 ár, kemur nem-
endatalan til með að lækka enn
frá þvi, sem nú er, og siðan i ekki
neitt.
Aætlunartölum þtssum kann
eitthvað að skeika, það skiptir i
sjálfu sér litlu máli. Spurningin
um eyðingu byggðarinnar veltur
á hvort söðvaður verði brott-
flutningur unga fólksins.Það ger-
ist ekki af sjálfu sér. Miklar
vangaveltur hafa lengi staðið
með þjóðinni um orsakir þessarar
þróunar. Niðurstöður munu mega
teljast, erfiðari afkoma og minni
þjónustaá öllum sviðum i dreif-
býli heldur en i þéttbýli.
Það er hverjum einum eðlilegt,
hvort sem hann er fæddur i dreif
býli eða þéttbýli, að leita lifsins
gæða sér og sinum til handa og
velja til þeirra þá leið, sem auð-
veldust er, i þeim einföldu sann-
indum felst skýringin á hinni ó-
heillavænlegu þróun.
Ég mun' ekki að þessu sinni
ræða þetta yfirgripsmikla vanda-
mál út i æsar, heldur láta nægja
að bregða ljósi yfir afmarkaðan
þátt viðkomandi vali ungmenna
dreifbýlisins milli leiðanna að
faraeða að vera, ungmenna, sem
eiga ekki annan höfuðstól, en
hæfileika sina til sálar og likama.
1 þéttbýlinu nægir ungum hjónum
þak yfir höfuðið, fyrst til leigu,
siðar til kaups. Segjum, að þar sé
bundinn höfuðstóll upp á þrjár
milljónir kr. Hins vegar mundi
jörð, sem getur borið visitölubú
ásamt vélum, tækjum og tilheyr-
andi áhöfn koma til með að kosta
15—20 millj. króna. Liklega
mundi opinbert lán til búskapar-
ins nema 30—40% af höfuðstóln-
um, en það mundi einnig fást til
Ibúðar I þettbýli og ekki lægra.
Munurinn á þessum tveim leið-
um, fyrir þá, sem litinn sjóð eiga,
er sá, að önnur leiðin er fær, en
hin ófær. Það er þvi raunar rangt
með farið, að unga fólkið, sem
upp vex i sveitunum hafi frá f jár-
hagslegu sjónarmiði um tvær
leiðir að velja, og munurinn milli
þeirra hefur vaxið með hverju ár-
inu, sem liður, meða sama hraða
og verðbólgan. Enda má svo að
orði kveða, að unga fólkið þurrk-
ist burt úr okkar dreifðu byggð-
um. Bætt fyrirkomulag i búnaði,
meðferð efnahagsmála og dreif-
ingu fjármagns, eru aðal ráðin til
að sporna móti uuðn, en hvenær
verða þau ráð nýtt?
Þvi er stundum slegið fram, að
byggðina megi endurlifga með
aðkomufólki, rétt er að ræða
þann möguleika. Hjón með 10—15
millj. kr. sjóð gætu stofnað til bú-
skapar hér i dreifbýlinu, að feng-
inni eðlilegri lánafyrirgreiðslu,
vildu þau sætta sig við opinberu
þjónustuna og uppáskrifa ör-
Frá Gilsbakka i öxarfirði
Þar er nú komið sögu gagn-
fræðaskóia N-Þingeyinga, sem
til var stofnað fyrir 10 árum og
staðið hefur siðan i Skúlagarði
og Lundi, að nálega einungis íbú-
ar þriggja hreppa af sjö (Fjalla-
hreppur undanskilinn) þ.e.
Kelduneshrepps, öxarfjarðar-
hrepps og Presthóiahrepps sækja
skólann, enda kosta þessir þrir
hreppar rekstur I. og II. bekkjar.
Hins vegar starfar þriðji bekkur i
Lundi á vegum sýslunnar. Þessi
þróun er mörgum mikil von-
brigði.
Afarsterk rök eru fyrir samein-
ingu unglinganáms i einn skóia i
sýslunni. Fullkominn skóla er
vart hugsanlegt að starfrækja
með færri nemendum en sýslan
hefur samaniagt.
Án þess þeim rökum hafi að
nokkru leyti verið hnekkt, hefur
sú þróun orðið á kennslufyrir-
komulagi á siðustu árum, sem
útilokar dreifbýli eins og Norður-
Þingeyjarsýslu frá þvi að eignast
lullkominn gagnfræðaskóla.
Vcrður hér á eftir nánar að þeim
hlutum vikið.
Allt fram til haustsins 1972 hafa
til jafnaðar um 20 unglingar úr
hreppunum þremur skilað sér ár-
lega I fyrsta bekk unglinganáms i
Skúlagarði, en nú er þeim fariö að
fækka. 1 vetur eru þeir aðeins 13.
Eftir upplýsingum frá fræðslu-
deild menntamálaráðuneytisins
um barnfæðingar i viðkomandi
hreppum (en á þeim tölum verða
alltaf nokkur vanhöld fram að
skólaskyldualdri) má reikna með
15 unglingum haustið 1974, 14
ung. haustið 1975,16. ungl. 1976, 13
ungl. 1977, eftir það sömu tölu eða
12 til ársins 1981. Haustið 1982
fellur tala unglinganna úr öllum
hreppunum þremur samanlagt
niður i 5. Næstu þrjú haust þar á
eftir til 1985 er talan sú sama eða
lægri, lengra ná staðreyndir ekki.
Þessar staðreyndir vöktu ekki
eftirtekt mina fyrr en á siðast-
liðnu sumri. En hvað boða þær, er
byggðin i þessum þrem hreppum
að fjara út, eða er þetta aðeins
stundarfyrirbæri ? Nauðsynlegt
er að fá svar við þeirri spurningu.
A siðasta áratugnum hefur ibúum
hreppanna þriggja fækkað með
ári hverju. Jarðir hafa farið i eyði
og ibúðarhús standa þar auð i
tugatali og nálega ekkert er byggt
i staðinn. En hvað er þá af fólkinu
að segja? Það hefur lengi viljað
við brenna, að unga fólkið flytji
burt og færra komi i staðinn. Með
hverju árinu sem liður magnast
þessi þróun. Nálega allt ungt fólk
flytur burt að skyldunámi loknu,
eða nokkru siðar. Stúlkurnar
fyrr, piltarnir siðar. Sumt af
unga fólkinu telst til heimilis hjá
foreldrum fyrst i stað, en það
dvelur i f jarlægð og festir þar sið-
an rætur.
Þær upplýsingar berast með
fjölmiðlum, að konur á aldrinum
16—19 ára hafi nú i þéttbýlinu
tekið að sér mannfjölgunarhlut-
verk þjóðarinnar meir en að
hálfu. Vafalaust er þessi hlutdeild
mun meiri en áður var. Hins veg-
ar er eðlilegt að breytt viðhorf
ungra kvenna i þessum sökum sé,
eða komi til með að gilda jafnt
fyrir alla, hvar sem þeir búa á
landinu. Þar sem konur 16—19
ára eru flestar burtu flognar úr
umræddum þremur hreppum,
getur manni komið til hugar, að
þar sé að finna eðlilega skýringu
á snögg-hnignandi barnkomum
hér.
Fæðingar barna árið 1973 gefa
bendingu um 4-5 nemendur úr
Kelduneshreppi, öxarfjarðar-
hreppi og Presthólahreppi i 1.
bekk gagnfræðastigsins veturinn
1985-6. Til þess að mynda mér
rökstudda skoðun um það, hvað
við muni taka næstu árin þar á
eftir hef ég gert athugun á núver-
andi ibúum hreppanna miðað við
þjóðskrá 1972. Skal ég taka hér
nokkrar tölur úr þeirri athugun.
I Kelduneshreppi eiga heima 35
hjón. Meðalaldur húsfreyjanna er
48 ára. Yngsta konan er 23 ára
(jafnframt yngst i öllum hreppun
um), sú næst yngsta er 29 ára.
Þessar konur eiga hvor um sig
þrjú börn. Sex konur eru þar á
fertugs aldri. Þær eiga samtals 23
börn. Útlit er fyrir, að þessar 8
konur i Kelduhverfi hafi að mestu
lokið sér af með barneignir.
í öxarfjarðarhreppi búa 26
hjón. Meðalaldur húsfreyjanna er
49 ár. Yngsta konan er 29 ára og á
hún 3 börn. Átta konur i þessum
hópi eru á fertugsaldri. Þær eiga
til samans 26 börn, hafa sennilega
einnig lokið barneign að mestu.
Presthólahreppinn tek ég I
tvennu lagi. Annars vegar Kópa-
skersbyggðina, þar sem nemend-
ur ganga i skólann. Þar eru 23
hjón. Meðalaldur húsfreyjanna er
41 ár. Fjórar þeirra eru innan við
þritugt en fimm á fertugs aldri.
Þessar 9 konur eiga samtals 20
börn. Geta má til, að þessar 9
konur á Kópaskeri komi til með
að bæta við 10-15 börnum.
1 hinum flokknum i Presthóla-
hreppi tel ég dreifða bæi. Þar búa
22 hjón. Meðalaldur húsfreyjanna
er 52 ár. Eru fjórar þeirra á fer-
tugs aldri, en hinar eldri. Ein
þessara fjögurra flutti að sögn
ásamt fjölskyldu til Raufarhafn-
ar á siðastl.. sumri, önnur býr
skammt frá Raufarhöfn. Sækja
nemendur frá þeim bæ skóla
þangað. Sama gildir um sjö aðra
bæi, en þar eru hvorki börn né
yggisvixil byggðarinnar. Þetta er
hægt tæknilega séð, en i raun-
veruleikanum er hér aðeins um
hugmyndaflug að ræða. Sá heim-
ilisfaðir, sem hefur handbært eig-
ið fé 10-15 millj. kr. hefur um að
velja margar leiðir til atvinnu-
öflunar aðrar en landnám i út-
kjálkadreifbýli.
Mér er ljóst, að útlitið i sveita-
hreppunum þremur er hér málað
dökkum litum, en ég tel, að þeir
litir túlki raunveruleika, þess
vegna sé myndin réttmæt. 1 heild
armynd sýslunnar eru tveir reitir
óútfylltir, það eru þorpin Raufar-
höfn og Þórshöfn. Þessir reitir
eiga á sama tima að túlkast með
ljósum litum. Atvinnulifið er I
uppgangi á báðum þessum stöð-
um. Það byggist á félagslegu
framtaki Ibúanna studdu af opin-
beru fjármagni með 85—100%
rikisábyrgðarlánum. Sivaxandi
þörf á auknum vinnukrafti orsak-
ar þar innflutning fólks i veruleg-
um mæli. Sveitarstjórnir hafa
forgöngu i félagslegum atvinnu-
málum og örva einstaklinga til i-
búðabygginga með hagkvæmum
lánveitingum eða á annan hátt.
Atvinnureksturinn gengur vel og
Ibúarnir hafa góðar tekjur. Stutt
er að sækja frá Raufarhörn og
Þórshöfn á ágæt fiskimið, ein hin
beztu hér við land. Takist innan
skamms tima að friða þessi mið
fyrir ránum erlendra veiðiþjófa,
verður ekki annað sagt, en að
framtiðin brosi við þessum tveim
þorpum, sem dreymir um að
verða stórir staðir.
Fyrir okkur sveitamennina er
full ástæða til að gleðjast yfir vel-
gengni þorpanna, sem vissulega
mun beint og óbeint hamla á móti
eyðingu sveitanna og stuðla að
endurreisn þeirra, þegar þar að
kemur.
Til eru þeir, sem telja að Kópa-
skersbyggðin eigi möguleika á út-
gerð. Þar hefur verið starfrækt
fiskimóttaka nokkur siðastliðin
sumur.
Vitneskjan um hina raunveru-
legu búsetuþróun viðkomandi
þriggja hreppa kemur yfir okkur
eins og reiðarslag, rétt þegar við
erum i þann veginn að ganga frá
framtiðarskipulagningu 55—150
nemenda gagnfræðaskóla i
Lundi. Þessu má likja við það,
þegar hópur manna villist i
blindhrið án þess að vita af sinni
villu, en skyndilega styttir upp og
hópurinn nær réttum áttum, áður
en illa fer. Það hefur kostað mig
nokkra fyrirhöfn að sætta mig við
planið með Lund, sem allsherjar
gagnfræðaskóla fyrir Norður-
Þingeyjarsýslu, er eins og sakir
standa ekki beinlinis sigur-
stranglegt orðið með tilliti til
röskunar á búsetuhlutföllum
hreppanna.
Hins vegar er svo áætlunin með
Lund sem barna- og gagnfræða-
skóla fyrir hreppana þrjá. Það
kemur nú ekki siður en hitt til
með að svifa i lausu lofti eftir að
hrepparnir eru i þann veginn að
verða barnlaus byggð. 1 það
minnsta virðist timinn ekki vel
valinn til bindandi framtiðar-
ákvarðana. Stutt virðist geta orð-
ið i það, að börn og unglingar i
Presthólahreppi eigi heima að-
eins i Kópaskersbyggðinni.
Einnig gæti þá svo farið, að nem-
endur þessir væru orðnir fleiri en
nemendur úr öxnafirði og Keldu-
hverfi til samans. Samtimis væru
svo allir á einu máli um, að dag-
legur akstur i einn skóla úr
hreppunum þrem. væri óæskileg-
ur. Kynni þá ekki að álitast fullt
eins eðlilegt, að sameiginlegur
skóli hreppanna þriggja væri á
Kópaskeri fremur en i Lundi.
Við þurfum að átta okkur á þvi,
Ibúar hreppanna þriggja, að
framtið okkar i skólamálunum er
harla óráðin og aðstaðan veik
með tilliti til skólamála sýslunnar
I heild. í stað þess að ætla að
skipuleggja skólamál okkar I
fjarlægri framtið, harla óráðinni
ættum við, þetta roskna og gamla
fólk að snúa okkur að liðandi
stund, fá umbættar þær skóla-
byggingar, sem við höfum með
það fyrir augum að geta veitt
börnunum, sem við ennþá eigum
þá fræðslu, sem þau eiga rétt á.
Við eigum að fella niður bylting-
artilraunir og innbyrðis viðsjár
milli skólanna, en temja i staðinn
starfskrafta okkar til skjótra um-
bóta á liðandi stund. Gagnfræða-
námið hjá okkur hefur verið
framkvæmt með sæmilegum
árangri. Hins vegar hafa börnin
12 ára og yngri búið við mjög
skerta kennslu fram að þessu,
það verður að umbæta.
Ég efast ekki um, að mennta-
málaráðuneytið muni skilja
óvenjulega sérstöðu okkar og
fallast á fyrir sitt leyti að taka
nútiðina fram yfir fjarlæga fram-
tið og styðja okkur til aðkallandi
lagfæringa.
Hin gamla góða tillaga um
gagnfræðaskóla fyrir Norður-
Þingeyjarsýslu alla hefur verið
sett til hliðar i næstu framtið.
Ýmis samverkandi öfl hafa verið
þar að verki.
Upphaf þessa máls var tillaga
um héraðsskóla Norður-Þingey-
inga I Lundi eða á öðrum stað sem
samkomulag yrði um. Tillagan
var borin fram af undirrituðum
haustið 1963 og rædd á tveim
fundum, sem haldnir voru dag
eftir dag á Þórshöfn og Kópa-
skeri. Undirritaður boðaði til
fundanna sem formaður fræðslu-
ráðs N-Þing., allar sveitarstjórn-
ir, skólanefndir og skólastjóra i
sýslunni og voru fundirnir vel
sóttir. Helgi Eliasson fræðslu-
málastjóri var á báðum fundun-
um, enda hafði hann stutt að þvi
með ráðum og dáð, að fundirnir
yrðu haldnir. Tillagan um hér-
aðsskólann fékk mjög góðar und-
irtektir á fundunum og var
fræðsluráði falið að flytja málið
við þing og stjórn. Voru menn
mjög bjartsýnirum framgang til-
lögunnar og afstaða fræðslumála-
stjórans var jákvæð.
Sama haustið og þetta gerðist,
var hafinn unglingaskóli i Skúla-
garði á vegum skólanefndarinnar
þar og var auglvst eftir nemend-
um úr allri sýslunni. Var inn
taka veitt öllum, sem óskuðu.
Þetta voru fjórtán ára unglingar
og eldri, þvi barnaskólarnir út-
skrifuðu börnin þá með fullnaöar-
prófi þrettán ára. I framhaldi af
þessum unglingabekk i Skúla-
garði var strax næsta vetur sam-
felldur þriggja bekkja skóli i
Skúlagarði og Lundi fyrir ung-
inga úr sýslunni allri með sama
námsefni og þá var farið með i
héraðsskólunum.
Samhliða þessu skólahaldi
flutti fræðsluráð við þing og
stjörn tillögu um formlega stofn-
un héraðsskóla i Norður-Þingeyj-
arsýslu og sótti um fjárveitingu
til sliks skóla. Undirtektir voru
neikvæðar á æðstu stöðum. Að
biðja um héraðsskóla væri fjar-
stæða, þeim yrði ekki fjölgað úr
þessu. I ráði væri að afnema á-
kvæðin um hlunnindi þeirra skóla
og gera alla jafna. Fræðsluráð
felldi þá niður bannorðið héraðs-
skóii úr umsókninni og sótti um
fjárveitingu til þess að byggja
skyldunámsskóla að viðbættum
þriðja bekk. Ekki var fundið að
þvi formi á umsókninni, fúslega
var fallizt á að bæta þriðja bekk
við skólann, en með fjárframlög
úr rikissjóði væri ekki gott i efni.
Það væru sem sé svo margir skól-
ar aðrir i uppbyggingu i Norður-
landskjördæmi eystra, að von-
laust væri með öllu að bæta þar
viö fyrst um sinn.
Þrátt fyrir þessi svör var haldið
áfram starfsemi héraðsskólans i
Skúlagarði og Lundi. A hvorugum
staðnum var nema ein kennara-
ibúð. Það bar við, að báðir kenn-
ararnir i Lundi voru fjölskyldu-
menn. Áður hafði Aðalbjörn
skólastjóri látiðaöalstofuna i ibúð
sinni sem skólastofu fyrir annan
bekkinnn. Nú brá hann á það ráð,
að hólfa i tvennt þessa stofu og
taka kennarann með konu og
tveim börnum inn i sina ibúð, en
bekknum, sem þar hafði verið,
var kennt i gömlum leikfimisal.
Þetta gekk svo i tvo vetur. Skóla-
stjóri bauð alþingi og rikisstjóra
að hann skyldi útvega lánsfé og
láta byggja kennarabústað i
Lundi gegn loforði um að hið
opinbera keypti húsið siðar eftir
mati ráðuneytisins. Menntamála-
ráðherra lofaði með bréfi dags.
6.9. 1968 fylgi sinu við málið.
Jafnskjótt hófst bygging kenn-
arabustaðarins og var húsið full-
gert áður en skóli hófst haustið
1969. Ráðuneytið greiddi bústað-
inn að fullu 1970, þó fjárveiting
lægi ekki fyrir nema að minni
hluta.
Hin neikvæða afstaða alþingis
til skólamálsins olli miklum von-
brigðum i héraði. Þar við bættist,
að mjög auðvelt var að gagnrýna
aðstöðuna i Skúlagarði og Lundi.
A báðum stöðum þurfti t.d. að
ieigja vistir handa unglingunum á
einkaheimilum, i nágrenni við
skólana. Á fleira var hægt að
benda, sem ekki þoldi samanburð
við hliðstæða skóla svo sem hér-
aðsskólana. Gagnrýnin beindist
að skólunum og þeim, sem að
þeim stóðu heima fyrir, sem
sannarlega höfðu þó gert það sem
i þeirr# valdi stóð. Við kyrrstöð-
una dvinaði áhugi héraðsbúa.sér-
staklega þeirra, sem fjær bjuggu.
Féll að mestu niöur sókn til skól-
ans úr fjarlægari hreppum sýsl
unnar.
Næst er þess að geta, að stytt-
ing kennsluvikunnar úr 6 dögum i
5 og vikulegur eða daglegur
akstur nemenda er i héraði eins
og Norður-Þingeyjarsýslu slik
bylting i skólahaldi, að sameigin-
legur skóli fyrir alla sýsluna er
með þvi móti útilokað fyrirkomu-
lag. Þetta atriði eitt fyrir sig
nægði til þess að kveða niöur
samskólatillöguna, hvar i sýsl-
unni, sem slikur skóli væri
byggður. Eins og allir vita er
þessi nýjung ættuð frá hærri stöð-
um.
Siðan skipulagðar voru fastar
flugferðir tvisvar i viku milli
Þórshafnar, Raufarhafnar og
Aðaldalsflugvallar, verða sam
göngur milli þorpanna og héraðs-
skólans á Laugum mun auðveld-
ari heldur en við Lund. Er þvi
ekki óeðlilegt, að ibúar Þórs-
hafnar og Raufarhafnar leiti
þangað i framtiðinni með sina
unglinga, að þvi leyti, sem náms-
rétti þeirra verður ekki fullnægt
heima fyrir.
Með tilliti til þeirrar búsetuþró-
unar, sem við blasir i hreppunum
þremur og þorpunum tveim,
hljómar það nánast sem fjar-
stæða, að hin siðarnefndu gerist
aðaluppbyggjendur gagnfræða-
skóla i svo að segja barnlausum
sveitum. Þorpin keppa að þvi
hvort i sinu lagi að búa sinum
nemendum sem lengst nám
heima fyrir. Annar Þórshöfn
tveggja bekkja skyldunámi. en
Raufarhöfn hefur auk þess haft
þriðja bekk tvo siðastliðna vetur
og nú i vetur auk þess fjórða
bekk, eftir þvi, sem ég veit bezt.
Um skeið hefur skólastjórinn i
Lundi og nokkrir fleiri áhrifa-
menn heima fyrir rekið áróður
fyrir þvi að kljúfa hreppana þrjá
með Lund sem skólastað frá öðr-
um hreppum sýslunnar. Má geta
sér til, að slikt væri ekki sem bezt
séð i hinum hreppunum. Til upp-
bótar fyrir Lund reyndu svo þess-
ir menn, að ná fra barnaskólun-
um i Skúlagarði og á Kópaskeri.
við miklar óvinsældir hlutaðeig-
enda, 11 og 12 ára börnunum. Með
þessu var rofið hefðbundið skipu-
lag, sem hrepparnir hafa haft
með sér i mörg ár.
En oft verður litið úr þvi högg-
inu, sem hátt er reitt, segir mál-
tæki.Eftir að þessir þrir hreppar
Framhald á bls. 13
Cr Illjóftaklettum