Tíminn - 06.02.1974, Qupperneq 15
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
TÍMINN
15
Nærmyndir
af
Loch Ness
skrímslinu
— Nýjar hugleiðingar
um gamla gátu
A þilfari rannsóknarskipsins
Narwhal,sem lá við akkeri, stóðu
þrir starfsmenn Loch Ness--
rannsóknarstofnunarinnar og
horfðu með vaxandi áhugaá
bergmálsmælinn. Þeir sáu
hvernig smáfiskatorfa flúði
undan stórum „hlut” sem
nálgaðist. Hann leit út fyrir að
vera a'.m.k. tiu metra langur.
Oðru hvoru hvarf skepnan frá
bergmálsmælinum, en kom alltaf
aftur. 1 25 minútur synti ein,
kannski tvær skepnur, i nágrenni
skipsins, greinilega seiddir af
ljósinu, sem komið hafði verið
fyrir neðan vatnsborðsins. Allan
timann tók myndavélin myndir
15. hverja sekúndu.
Þessi neðansjávarmyndataka i
Læch Ness er gerð við erfiðar
aðstæður. Vatnið er mjög mengað
vegna óhreininda, sem streyma
frá ánum, og það var nauðsynlegt
að nota sérstaklega sterka
elektrónublossa.
Dýptarmælirinn einn var nægi-
legur til að sýna fram á, að stór,
lifandi skepna synti um i Loch
Ness i fyrra. Fólkið um borð i
rannsóknarskipinu var fullt eftir-
væntingar, hvað neðansjávar-
myndirnar sýndu.
Arangurinn varð vægast sagt
merkilegur. Um 15 af ljósmynd-
unum sýna hluta eins eða fleiri
stórra dýra. Myndirnar eru
teknar úr 5-7 metra fjarlægð.
Þetta eru fyrstu myndirnar, sem
teknar eru af Loch-Ness
skrimslinu neðan vatnsborðs.
Það athyglisverðasta er, að hægt
er að greina eitthvað, sem liktist
bægslbá einu dýranna, og þessu
hefur verið sérstakur gaumur
gefinn af dýrafræðingum. Þessi
bægsli erú 2-2,5 m á lengd og einn
metri það breiðasta.
Sérfræðingar eru sammála
um, að þetta geti verið
aftur-ganglimur á stóru dýri. A
litmyndunum virðast þessir
likamshlutar grænbrúnir að lit.
Dýrafræðingarnir segja, að sam-
kvæmt þeim hlutum, sem sjást á-
myndunum, virðist samanlögð
lengd dýrsins vera um 10 metrar.
Hver verður svo niðurstaðan úr
þessum merkilegu rannsóknum i
Loch Ness djúpunum? Ennþá er
ekki búið að fullvinna úr heimild-
um, en útlit er fyrir að sér-
fræðingarnir verði samrhála um,
að nú séu sannanir fyrir þvi, að i
stöðuvatninu sé stórt dýr (sem
ekki er enn búið að greina i
tegundir.
Alveg siðan að Loch-Ness æðið
brauztút fyrir 40árum (árið 1933),
hefur British Museum tekið sögu-
sögnum með varúð og haft nei-
kvæða afstöðu til ófreskjunnar i-
skozka stöðuvatninu, en eftir að
hin trúverðuga stofnun lagði fram
siðustu myndirnar, hefur af-
staðan breyzt breytzt nokkuð.
„Svo virðist sem myndirnar
sýni stóran hlut, sem syndir i
vatninu,” segir i yfirlýsingunni,
sem endar svona: „,Málið
þarfnast nánari rannsóknar.”
Um langan tima hefur Loch
Ness verið umsetið þolinmóðum
ljósmyndurum og forvitnum
ferðamönnum, en nú litur út
fyrir, að umstangið hafi minnkað,
og er það einkum af tveimur or-
sökjum. 1 fyrsta lagi kostar
„umsátrið” um ófreskjuna svo
mikla fjármuni, að t.d. Loch
Ness rannsóknarstofnunin hefur
orðið að draga starfsemina
BÍLALEIGA
Car rental
Cj04' 660 &42902
OPIÐ-
Virka daga kl. 6-10 e.h.
Laugardaga kl. 10-4 e.h.
Ó<BÍLLINN BÍLASALA
HVERFISGÖTU 18-simi 14411
Fyrirf eröar lít i I
mjög fullkomin
HLEÐSLUTÆKI
sem er handhægt aö hafa í bílskúrnum
eöa verkfærageymslunni til viðhalds
rafgeyminum.
"STT
ARAAULA 7 - SIMI 84450
-/3/77. langd*
Teikning af skrimslinu i Loch Ness, sem yfirleitt er kallað Nessie. Teikningin er gerð eftir lýsingu. Það
likist talsvert dinósárum fornaldarinnar. Margir visindamenn halda þvi fram, að skrimslið i Loch Ness
sé i raun og veru dinósár.
sm
saman. Auk þess eru stjórnvöld
farin að amast við hinni miklu
umferð kringum stöðuvatnið.
Spurningin er sú, hvað gerist
þegar niðurstöður úr
rannsóknunum, sem gerðar voru
i vatninu, liggja fyrir. Hugsjóna-
mennirnir hafa hlotið stuðning
við þá skoðun sina, að það sé i
raun og veru einhver stór og lif-
andi skepna undir vatnsborði
stöðuvatnsins. Ennæstum þvi allt
hefur verið reynt í leitinni að
skrímslinu. Heil herdeild af ljós-
myndurum hefur haldið vörð við
vatnið hvern dag i fimm mánuði
frá sólarupprás til sólseturs, ár
hvert siðan 1962. Ameriskur bát-
ur, útbúinn ljóskösturum hefur
siglt fram og aftur um stöðu-
vatnið. Litil flugvél, útbúin litilli
ratsjá, var látin sveima yfir
stöðuvatninu i margar vikur.
Maður nokkur lét sig reka á
litlum báti i 82 sólarhringa á Loch
Ness I von um að skrimslið kæmi
upp og heilsaði upp á hann. Allt
hefur verið gert til að lokka
ófreskjuna fram i dagsljósið,
meira að segja hafa menn komið
fyrir hátölurum undir vatns-
borðinu og spilað 6. synfóniu
Beethovens!
En ekkert hefur dugað. Yfir
4000 manns fullyrða, að þeir hafi
séð skrimslið. meðal beirra
Nóbelsverðlaunahafi. Það
nýjasta i málinu er, að nú vilja
Japanir draga risatroll eftir Loch
Ness og veiða þannig skrimsli,
sem þar kynnu að leynast.
(þýtt og endursagt. -gbk)
Æbílaleigan
felEYSIR
CAR RENTAL
V24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
CASETTUTÆKI
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
» 21190 21188
Skrifstofustúlka
vön vélabókhaldi óskast nú þegar.
Upplýsingar á skrifstofu vorri, Borgartúni
7. Fyrirspurnum ekki svarað i sima.
Áfengis- og tóbaksverzlun rikisins.
Verkamannafélagið
Hlíf Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og
trúnaðarráðs verkamannafélags Hlifar
um stjórn og trúnaðarmenn félagsins, fyr-
ir árið 1974, liggja frammi á skrifstofu
félagsins, Strandgötu 11, frá og með 7.
febrúar 1974.
öðrum tillögum ber að skila fyrir kl. 18
föstudaginn 8. febrúar 1974yog er þá fram-
boðsfrestur útrunninn.
Kjörstjórn verkamannaféiagsins Hlifar.