Tíminn - 06.02.1974, Blaðsíða 19
Miðvikudagur 6. febrúar 1974.
TÍMINN
19
þið upp i skóla og spyr jið
hvað klukkan er.
— Vantar tiu minútur i
tvö, var svarað. En i
raun og veru var hún
ekki nema tólf, svo
mikið hafði Jón flýtt
henni.
— Þá er bezt þið farið
heim. Og kennarinn
þakkaði Jóni og Pétri
Kristjáni fyrir hjálpina.
— Ekkert að þakka,
sagði Jón og rétti kenn-
aranum höndina. Pétur
Kristján gerði slikt hið
sama.
Þeir fóru inn i skóla-
stofuna að sækja bækur
sinar og spjöld. Jón setti
klukkuna rétta. „Á
morgun fáum við
skemmtun, þegar hann
sezt á stólinn”.
— Þar erum við
saklausir, sagði Jón og
brosti að stólnum.
Enginn hefur séð okkur
gera neitt við hann.
Á heimleiðinni spurði
Pétur Kristján:
— Hvi spurðir þú hann
ekki, hvernig honum
leizt á blöðrubekilinn,
meðan við sátum hjá
kúnni? Og báðir fleygðu
sér niður og sátu og
skellihlógu.
— Þetta var ágætur
dagur, sgði Jón.
— O-já, hann var ekki
verri en hinir. Og mikið
höfum við lært i dag,
svaraði Pétur Kristján.
t K. voru margir slikir
dagar á árinu, þótt ekki
væru þeir allir eins og
sá, sem nú hefur verið
frá skýrt.
II.
Annar skóladagur.
,,Oft kemur grátur
eftir skellihlátur, ” segir
málshátturinn. Og oft
fer svo, að skemmtun
eins og sú, sem þeir Jón
og Pétur Kristján
stofnuðu til, hefir miður
góðar afleiðingar.
Siðari hluta dagsins,
sem áður er frá sagt,
Árshátíð Norð-
firðingafélagsins
—hs—Rvík. — Árshátið Norðfirð-
ingafélagsins 1974 verður haldin
föstudaginn 8. febrúar i veitinga-
húsinu Útgarði í Glæsibæ i
Reykjavik, og hefst með
sameiginlegu borðhaldi kl. 19.30,
en húsið verður opnað kl. 19.
Svo sem undanfarin ár, flytur
heiðursgestur kvöldsins ávarp, en
hann verður að þessu sinni
Vilhjálmur Hjálmarsson,
alþingismaður frá Brekku i
Mjóafirði, en Norðfirðingar rekja
margir hverjir ættir sinar til
Mjóafjarðar.
Enn fremur mun hinn kunni og
vinsæli skemmtikraftur ómar
Ragnarsson flytja skemmtidag-
skrá, og eftir borðhald leikur
hljómsveitin Ásar fyrir dansi.
Dregið verður i happdrætti, og
íþróttir
Léttmillivigt (63-70 kg)
1. Halldór Guðbjörnsson
2. kyu (JFR)
2. Þóroddur Þórhallsson
1. kyu (Á)
3. Einar Finnbogason
3. kyu (JFR)
Léttvigt (undir 63 kg)
1. Sigurður Geirdal
4. kyu (Gerplu)
2. Hörður Óskarsson
5. kyu (UMFK)
3. Karl Júliusson
5. kyu (Gerplu)
Ungtingar
Hinum f jölmenna hópi unglinga
15-17 ára var skipt i þrjá flokka
eftir þyngd. úrslit urðu þessi:
Unglingar yfir 65 kg:
1. Hafsteinn Svavarsson
(JFR)
2. Kjartan Svavarsson
(JFR)
3. -4. Gunnlaugur Friðbjarnars.
(UMFG)
3.-4. Stefán Vestmann
(UMFK)
Unglingar 58-65 kg:
1. Þorgeir Sigurðsson
(Gerplu)
2. Þorsteinn Simonarson
(UMFG)
3. -4. Gunnlaugur Friðbjarnars.
(UMFG)
3.-4. Páll Þórðarson
(UMFK)
Unglingar undir 58 kg:
1. Bjarni Bjarnason (UMFK)
2. Haraldur Arason (A)
3. -4. Valur Björnsson ÍUMFKJ
3. -4. Jónas Hraldss. ('A)
Dómarar voru: Michal VaChun
4. dan, Sigurður H. Jóhannsson 2.
dan, Ragnar Jónsson 2. dan og
Tagafusa Ken 1. dan.
Eftirtalin félög sendi þátttak-
endur: Glimufélagið Ármann
(Á). íþróttafélagið Gerpla.
Kópavogi (Gerpla). Judoféiag
Reykjavikur (JFR). Ungmenna-
félag Grindavikur (UMFG ).
Ungmennafélag Keflavikur
(UMFK)
o Víðivangur
orkumálin komast hins vegar
ekki fljótlega i sitt sama lag,
og jafnvei og trúlega þrátt
fyrir það, eru fyrirsjáanlegar
vantanir i ýmsum vöru-
fiokkum. Að sjálfsögðu verður
leitað nýrra markaða i stað
þeirra, sem kunna að iokast
eða þrengjast, en þvi miður er
ástandið svipað alls staðar og
þvi ekki i mörg hús að venda.
Einna verst verður með
ýmsar vörur frá Bretlandi, en
þar er ástandið alvarlegast,
þó ekki sé það nema að litlu
leyti að kenna oliutak-
mörkunum. Sambandið hefur
keypt þaðan mikið af vörum i
mörgum vöruflokkum, en
samdráttur i innflutningi mun
fyrirsjáanlega verða fyrst frá
Bretiandi af okkar viðskipta-
löndum.
Ekki er fullljóst, hver
verður endanleg útkoma
þessara vandræða allra, en
hægt er að leiða að þvi ýmsum
getum. Stóraukið atvinnuleysi
i mörgum löndum mun draga
mjög úr kaupgetu almennings
og eftirspurnin eftir iðnaðar-
vörum þvi væntanlega minnka
mjög verulega. Ekki er
útilokað, að samdráttur verði
það mikill i verzlun af þessum
sökum, að iðnaðarfyrirtækin
geti annað hinni takmörkuðu
eftirspurn, jafnvel með aðeins
2-3 daga vinnuviku. Slikt á-
stand getur þó ekki varað
lengi án þess að valda
varanlegri efnahagskreppu,
sem gætt gæti um viða veröld.
Gera verður þó ráð fyrir, að
alþjóðleg samvinna verði i
framtiðinni að aukast til að
mæta þessum alvarlegu
vandamálum, en verði ekki
meira i orði en á borði eins og
brenna hefur viljað við”.
—TK
W Menntamálaráðuneytið,
31. janúar 1974.
Styrkir til háskólanáms
í Rúmeníu
Rúmensk stjórnvöld bjóða fram tvo styrki handa is-
lenskum stúdentum til háskólanáms i Rúmeniu náms-
árið 1974-75, en til greina kemur, að styrkurinn verði
framlengdur til að gera styrkþega kleift að Ijúka há-
skólaprófi i námsgrein sinni.
Það er skilyrði, að styrkþegi stundi nám i rúmensku
fyrsta árið og standist próf að þvi loknu. Styrkfjárhæð-
in er 1.660 Lei á mánuði og styrkþegi er undanþeginn
greiðslu kennslugjalda.
Umsóknum um styrki þessá skal komið til mennta-
málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 4.
mars n.k. Umsókn fylgi stúdentsprófskirteini á ensku,
frönsku eða þýsku, ásamt fæðingarvottorði og heil-
brigðisvottorði á einhverju framangreindra tungu-
mála. — Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðuneytinu.
M—l
verða aðgöngumiðar númeraðir i
þeim tilgangi.
Að sögn Eyþórs Einarssonar,
grasafræðings og núverandi for-
manns Norðfirðingafélagsins,
verður þarna til boða kalt borð,
ekki þó þorramatur i þrengsta
skilningi þess orðs, heldur eitt-
hvað fyrir alla, ef einhverjir sér-
vitringar vilja ekki gæða sér á
hrútspungum og súrmeti. Enn
fremur verður sungið undir
borðum.
Forsala aðgöngumiða og borð-
pantanir fara fram i anddyri
veitingahússins fimmtudaginn 7.
febrúar kl. 5-7 siðdegis.
Fundur
um
stjórnmála-
viðhorfið
Framsóknarfélögin i Reykjavik halda fund að
Hótel Esju næstkomandi fimmtudagskvöld kl.
20:30.
Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfið. Allt stuðningsfólk
Framsóknarflokksins velkomið á fundinn.
Framsóknarfólk á Sauðárkróki
Fyrsta spilakvöldið i þriggja kvölda keppni verður i
Framsóknarhúsinu fimmtudaginn 7. janúar kl. 21. Sex kvöld-
verðlaun verða veitt og tvenn aðalverðlaun að keppni lokinni.
Nefndin.
Hafnarf jörður:
Aðalfundur fulltrúaráðsins verður miðvikudaginn 6. febrúar nk.
kl. 20.30 að Strandgötu 33. Fundarefni: Venjuleg aðalfundar-
störf. Rætt um tilhögun kosningaundirbúnings. önnur mál.
Stjórn fulltrúaráðsins.
Kópavogur
Freyja, félag framsóknarkvenna, verður með myndvefnaðar-
námskeið i félagsheimili Framsóknarfélaganna, Neðstutröð 4,
Kópavogi. Námskeiðið hefst laugardaginn 9. feb. kl. 2 e.h. og
verður eftirleiðis miðvikudagskvöld og laugardagseftirmiðdaga.
Leiðbeinandi verður Elinbjört Jónsdóttir vefnaðarkennari. Nán-
ari upplýsingar i sima 41712 og 40690. Stjórnin.
Framsóknarvist á Snæfellsnesi
Framsóknarfélögin á Snæfellsnesi byrja hina árlegu spilakeppni
sina að Breiðabliki laugardaginn 23. febrúar kl. 21.00.
Aðalvinningur er Mallorcaferð fyrir tvo. Góðir vinningar öll
kvöldin. Stjórnirnar
C Framsóknarvist
Akveðið helur verið, að okkar vinsælu spilakvöld hefjist með
þriggja kvölda keppni. Mjög góð heildar verðlaun og einnig
aukavinningar. Spilað verður i Súlnasal Hótel Sögu 21. febrúar,
21. marz og 4 april . Vistarnefnd FR.
Stórbingó
Framsóknarfélag Reykjavikur heldur sitt árlega stórbingó að
Hótel Sögu fimmtudaginn 14. febrúar klukkan 21. Fjöldi stór-
glæsilegra vinninga. Nánar auglýst siðar.
Skrifstofa FUF Reykjavík
Skrifstofa FUF i Reykjavik að Hringbraut 30 er opin þriðjudaga
frá kl. 13 til 17 og miðvikudaga og fimmtudaga frá 9 til 12. Hafið
samband við skrifstofuna. FUF.
\--------------------------'
Sorpeyðingarstöð
á Austurlandi?
-gbk-Keykjavik. A vegum Sam-
bands veitarfélaga á Austur-
landi liefur undanfarið verið
uunið að frumáætlun um
bvggingu sorpevöingarstöð var
fyrir sveitarfélög á Austurlandi.
Sorpeyðingarstöðin á Húsavik
hefur einkum verið tekin til fyrir-
myndar varðandi þessa áætlun.
en sú, sem e.t.v. verður reist á
Austurlandi, verður væntanlega
stærri. enda áætlað að hún þjóni
bvggðalögum með samtals 6000
ibúa.
Málið er enn á algjöru
byrjunarstigi og hafa engar
endanlegar ákvarðanir verið
teknar. ekki einu sinni um
staðsetningu sorpeyðingar-
stöðvarinnar. en sennilegt þykir
þó, að hún verði reist annað hvort
á Eskifirði eða Reyðarfirði.