Fréttablaðið - 27.11.2004, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
LAUGARDAGUR
FRAM MÆTIR HK Tveir leikir verða í
norður riðli Íslandsmóts karla í hand-
bolta. KA sækir HK heim klukkan 13.30
og Þór tekur á móti Fram klukkan 16.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
27. nóvember 2004 – 325. tölublað – 4. árgangur
● nýjar dúkkur
Dúkkað upp
Fræga fólkið:
▲
SÍÐUR 42 & 43
VAR Í ÓVISSU Í TVO TÍMA Níu ára
stúlka sem var rænt á miðvikudag var í
óvissu um líðan móður sinnar í um tvo
klukkutíma. Stúlkan var yfirheyrð í barna-
húsi í gær. Sjá síðu 2
ÞRÝST Á RÁÐHERRA Borgaryfirvöld í
Reykjavík og bæjaryfirvöld á Seltjarnarnesi
vilja að reisa hjúkrunarheimili við Granda-
veg. Þrýst hefur verið á heilbrigðisráðherra
að hefja viðræður. Sjá síðu 2
RÁÐNINGAR GAGNRÝNDAR Sjálf-
stæðismenn telja að gengið hafi verið
framhjá reyndum stjórnendum þegar ráðið
var í stjórnunarstöður hjá Reykjavíkurbrögð.
Þeir telja málatilbúnaðinn sérkennilegan.
Sjá síðu 4
VORU ÚTÚRDÓPAÐIR Tekist var á um
það í Héraðsdómi Reykjaness í gær hvort
þeir Salvar Halldór Björnsson og Sigurjón
Gunnsteinsson hafi skipulagt fyrir fram og
ætlað til sölu það magn kókaíns sem þeir
voru teknir með. Sjá síðu 18
Róbert Gunnarsson:
Íþróttanörd af lífi og sál
SÍÐA 36
▲
Í máli og myndum:
Eldur í Reykjavík
SÍÐUR 40 & 41
▲
Kvikmyndir 62
Tónlist 58
Leikhús 58
Myndlist 58
Íþróttir 46
Sjónvarp 64
Njáll Gunnlaugsson:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Heillaðist ungur af
mótorhjólum
● bílar
SENDIRÁÐ Árni Þór Sigurðsson, for-
seti borgarstjórnar, segir það
koma til greina að borgaryfirvöld
komi að því að bandaríska sendi-
ráðið verði flutt annað.
„Ég tek undir það að staðsetn-
ing þess er ekki góð, meðal annars
af öryggisástæðum, og borgar-
yfirvöld gætu komið að því í sam-
vinnu við utanríkisráðuneytið að
það yrði flutt,“ segir hann.
Bandaríska sendiráðið við
Laufásveg hefur með leyfi borg-
aryfirvalda komið fyrir steyptum
stöplum á bílastæðum fyrir fram-
an húsið svo ekki sé hægt að legg-
ja bílum þar. Þetta er gert í örygg-
isskyni.
Íbúar í nágrenni við sendiráðið
eru æfir yfir þeirri röskun sem
þessar og aðrar ráðstafanir hafa
haft í för með sér. Erlingur Gísla-
son, sem býr gegnt sendiráðinu,
segir að ef borgaryfirvöld telji
slíka hættu vera á ferð að það
réttlæti auknar varnir við sendi-
ráðið væri nær að gera öryggis-
ráðstafanir gagnvart öðrum íbú-
um í götunni, sem séu berskjald-
aðir.
Fyrir hálfum öðrum mánuði
funduðu íbúar við Laufásveg með
fulltrúum Gatnamálastofu og fóru
meðal annars fram á það að sendi-
ráðið yrði hreinlega flutt úr göt-
unni. Árni Þór, sem er formaður
samgöngunefndar, segir að nefnd-
in hafi samþykkt ósk sendiráðsins
þrátt fyrir mótmæli íbúanna þar
sem engin „haldbær rök“ hafi
komið fram af þeirra hálfu í þessu
einstaka máli.
Pia Hanson, upplýsingafulltrúi
bandaríska sendiráðsins, segir að
starfsmenn þess kappkosti við að
eiga góð samskipti við nágranna
sína. Hún viðurkennir þó að sam-
búðin hafi ekki alltaf verið á besta
máta. Pía segir að starfsmenn
sendiráðsins hafi í sjálfu sér ekk-
ert á móti því að sendiráðið verði
flutt annað, en frumkvæðið þurfi
að koma frá bandarískum stjórn-
völdum í Washington. - bs
Vilja flytja banda-
ríska sendiráðið
Forseti borgarstjórnar vill ræða við utanríkisráðuneytið um að flytja
bandaríska sendiráðið. Frumkvæði þarf frá Washington, segir tals-
maður sendiráðsins. Nágrannar sendiráðsins eru æfir.ÞAÐ LÍTUR ÚT FYRIR LJÓMANDI
gott veður í dag með hægum vindi og
þurrviðri. Fremur svalt en yfirleitt yfir frost-
marki Sjá nánar á bls. 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
SVEITARSTJÓRNARMÁL Á landsþingi
Sambands íslenskra sveitarfélaga
í gær var rætt um bága fjárhags-
stöðu sveitarfélaga. Vilhjálmur Þ.
Vilhjálmsson, formaður Sam-
bandsins, segir nauðsynlegt að
tekjustofnar sveitarfélaganna
verði styrktir til að þau geti á eðli-
legan hátt sinnt lögbundnum
verkefnum sínum. Meirihluti
þeirra eigi við verulega fjárhags-
erfiðleika að stríða og sé hluti
skýringarinnar byggðavandi; íbú-
um hafi fækkað verulega, en
sveitarfélögin geti ekki að sama
skapi dregið þjónustu sína saman.
Lögboðnum verkefnum hafi ein-
nig fjölgað án þess að tekjustofn-
ar hafi fylgt.
Árni Magnússon sagði á þing-
inu að ákveðið hefði verið að auka
framlög til Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga um 400 milljónir á þessu
ári, og verði hluta þess varið til að
aðstoða þau sveitarfélög sem
verst eru stödd. Þrjú sveitarfélög
eiga meiri skuldir en eignir;
Ólafsfjarðarbær, Snæfellsbær og
Vestmanneyjar. Í október fengu
23 sveitarfélög bréf frá eftirlits-
nefnd með fjármálum sveitarfé-
laga. Vilhjálmur segir það ekki
vísbendingu um slaka fjármála-
stjórnun. Þetta geti bara verið
tímabundinn vandi. Sjá síðu 22
- ss
Fjármál sveitarfélaga:
Verulegir fjárhagserfiðleikar
www.postur.is
8.12.
Síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum
til landa
utan
Evrópu!
Olíufélögin:
Hafa kært
niðurstöðuna
VERÐSAMRÁÐ Olíufélögin Essó,
Skeljungur og Olís kærðu öll
niðurstöðu samkeppnisráðs um
verðsamráð olíufélaganna til
áfrýjunarnefndar samkeppnis-
mála. Frestur til þess rann út á
miðnætti í gær.
Samkvæmt samkeppnislögum
hefur nefndin sex vikur til að
komast að niðurstöðu í málinu.
Samkeppnisráð komst að þeirri
niðurstöðu undir lok október að
olíufélögin ættu að greiða 2,6
milljarða króna í sektir vegna
langvarandi og skipulagðs sam-
ráðs um verðlagningu, gerð til-
boða og skiptingu markaða. - ghg
Bókakynning fylgir
blaðinu í dag
Skálholtsútgáfan
STÖPLARNIR VIÐ SENDIRÁÐIÐ Steyptir stöplar voru
settir fyrir utan bandaríska sendiráðið í gær. Eru þeir
liður í öryggisráðstöfunum sendiráðsins. Nágrannarnir
hafa fengið sig fullsaddaaf röskunum í götunni.
Írösk stjórnmál:
Íhuga frest-
un kosninga
ÍRAK, AFP Íraska kosningastjórnin
tekur afstöðu til þess í dag hvort
fresta eigi kosningum í landinu.
Til stendur að halda kosningar
fyrir 30. janúar næstkomandi en
tíu stjórnmálaflokkar hvöttu í
gær til þess að kosningunum yrði
frestað um hálft ár.
Meðal þeirra flokka sem
mæltu með frestun kosninga var
flokkur Iyad Allawi forsætisráð-
herra. „Órói og hryðjuverkaárás-
ir auk ófullnægjandi undirbún-
ings í stjórnsýslu, framkvæmd
og stjórnmálalífinu gera það
nauðsynlegt að íhuga frestun
kosninganna,“ sagði í yfirlýsingu
flokkanna tíu. Nokkrir helstu
flokkar landsins stóðu að yfirlýs-
ingunni, þeirra á meðal flokkar
Kúrda og súnnímúslima.
George W. Bush, forseti
Bandaríkjanna, hvatti til þess að
kosið yrði á réttum tíma. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/H
AR
I
01 Forsíða 26.11.2004 22:22 Page 1