Fréttablaðið - 08.12.2004, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
MIÐVIKUDAGUR
INNRA EFTIRLIT FYRIRTÆKJA
Fjallað verður um innra eftirlit fyrirtækja á
morgunverðarfundi Verslunarráðs Íslands á
Grand Hóteli. Brynjólfur Bjarnason, forstjóri
Landssíma Íslands, flytur meðal annars er-
indi. Fundurinn hefst klukkan 8.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
8. desember 2004 – 336. tölublað – 4. árgangur
HALLDÓR GAGNRÝNDUR Stjórnar-
andstæðingar saka Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra um blekkingar þegar hann
sagði ástæður innrásar í Írak hafa verið
margræddar á þingi og í utanríkismála-
nefnd. Sjá síðu 2
ÆFIR VEGNA SKÓLAKÖNNUNAR
Tæpur helmingur norsku þjóðarinnar telur
að norski menntamálaráðherrann hafi stað-
ið sig illa í starfi. Bent er á niðurstöðu al-
þjóðlegu Pisa-rannsóknarinnar. Sjá síðu 4
BERST GEGN HRYÐJUVERKUM
Hamid Karzai sór í gær embættiseið sem
fyrsti lýðræðislega kjörni forseti Afganist-
ans. Hann hét því að byggja Afganistan
upp og ráðast gegn hryðjuverkahópum.
Sjá síðu 8
BISKUPI STEFNT Séra Sigríður Guð-
marsdóttir hefur stefnt biskupi Íslands. Hún
telur að málefnaleg sjónarmið hafi ekki
ráðið við skipun í embætti sendiráðsprests.
Sjá síðu 10
Kvikmyndir 38
Tónlist 36
Leikhús 36
Myndlist 36
Íþróttir 30
Sjónvarp 40
SKÚRAVEÐUR VÍÐAST HVAR Síst
þó allra austast. Hiti 2-6 stig að deginum,
svalast á Vestfjörðum. Allhvasst með suður-
ströndinni annars mun hægari. Sjá síðu 4.
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
Bandaríkjadalur fellur
enn:
Kominn í
61 krónu
EFNAHAGSMÁL Gengi Bandaríkja-
dals heldur áfram að veikjast á
gjaldeyrismörkuðum og íslenska
krónan styrkist. Við lokun við-
skipta í gær var kaupgengi
Bandaríkjadals rúmlega 61 króna
og hefur ekki verið lægra frá
1992.
Dalurinn féll einnig gagnvart
evrunni og hefur gengi dalsins
ekki verið lægra gagnvart evru.
Gengisvísitala krónu lækkaði
niður í 112,4 í gær en var í 117,4 á
föstudag. Þessi styrking krónunn-
ar er talin eiga sér rætur í vaxta-
hækkun Seðlabankans á föstudag-
inn. Í Hálf fimm fréttum KB
banka í gær segir að gengisvísi-
talan hafi ekki verið lægri frá því
um mitt ár 2000. Lág gengisvísi-
tala þýðir að færri krónur fást
fyrir erlendar myntir. - þk
VIÐSKIPTI Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, seg-
ir að skrif í Berlingske Tidende um
íslenskt viðskiptalíf sé að nokkru
leyti ósanngjörn og að sumar full-
yrðingar blaðsins bendi til að ónæg
þekking búi að baki.
„Við höfum lagt okkur mjög
fram um að vera hér með umhverfi
á markaðinum sem er í samræmi
við það sem er í löndum sem við
berum okkur saman við. Það er
ekki hægt að halda því fram að það
sé eitthvað öðruvísi og svo virðist
sem þessir aðilar hafi ekkert kynnt
sér íslenska löggjöf úr því að þeir
koma fram með svona fullyrðing-
ar,“ segir Valgerður.
Hún segir það jákvætt að eftir
íslenskum fjárfestum sé tekið.
„Þegar fjárfestar eru svona áber-
andi þá geta þeir vænst þess að fá
neikvæða umfjöllun og þurfa að
svara henni,“ segir Valgerður.
Hún telur hins vegar umfjöllun-
ina um KB banka vera ósann-
gjarna. „Það er verið að halda því
fram að bankinn sé að gera hluti
sem víðast hvar séu bannaðir. Það
er bara ekki rétt. Hér gilda alveg
sömu meginreglur og almennt á
Evrópska efnahagssvæðinu,“ segir
hún.
Ole Mikkelsen, sem skrifað hef-
ur um eignatengsl í íslensku við-
skiptalífi í Berlingske, segir að þar
hafi verið gagnrýnt að á Íslandi
leyfist viðskiptabönkum að eiga
hluti í fyrirtækjum. „Eins og við
sjáum þetta þá er mikið um gagn-
kvæm eignatengsl á Íslandi sem
ekki eru leyfð í Danmörku. Þetta er
gjörólíkt Danmörku og þetta má
ekki nema í örfáum löndum,“ segir
Mikkelsen.
„Það sem við skrifum er það
sem heimildarmenn okkar segja
okkur. Þeir segja okkur að það séu
vandamál vegna gagnkvæmra
eignatengsla því stjórnendur
banka og fyrirtækja séu of nánir,“
segir Mikkelsen og nefnir sérstak-
lega hlut KB banka í Baugi Group.
Sjá síðu 26
- þk
Ráðherra til varnar
íslenskum bönkum
Valgerður Sverrisdóttir segir umfjöllun um íslenska bankakerfið í Berlingske Tidende byggjast
á vanþekkingu. Blaðamaður Berlingske segir lög hér heimila hluti sem annars staðar séu
bannaðir. „Ekki rétt,“ segir ráðherra.
Stöðvarstjóri CIA í Bagdad svartsýnn á framtíðina:
Útlitið dökkt í Írak
BANDARÍKIN Ástandið í Írak fer
versnandi og óvíst hvort það
batnar nokkuð í náinni framtíð.
Þetta er mat fyrrverandi stöðv-
arstjóra bandarísku leyniþjón-
ustunnar CIA í skeyti sem hann
sendi yfirmönnum sínum seint í
síðasta mánuði, skömmu áður en
hann lét af embætti. Þessu grein-
di dagblaðið The New York
Times frá í gær.
Blaðið hefur eftir ónafn-
greindum embættismönnum að
skýrsla stöðvarstjórans fyrrver-
andi gefi til kynna að árangurinn
í Írak sé misjafn. Annars vegar
hafi Írakar náð mikilvægum ár-
angri, einkum í uppbyggingu
stjórnmálalífs og stjórnmálaafla.
Hins vegar sé líklegt að öryggi
fari áfram minnkandi, ofbeldi
aukist og meira verði um átök
ólíkra trúflokka. Helstu leiðirnar
til að koma í veg fyrir hið síðar-
nefnda er að írösk stjórnvöld
sýni fram á mátt sinn og að staða
efnahagsmála batni.
Stöðvarstjórinn fyrrverandi
sendi skýrslu sína eftir bardag-
ana í Falluja en markmið þeirra
var að draga úr mætti víga-
manna og auka öryggi í Írak.
Skýrsla stöðvarstjórans er
sögð að miklu leyti samhljóma
samantekt háttsetts embættis-
manns í leyniþjónustunni sem
var í Írak fyrir skömmu. ■
● verslunin ígulker opnar í dag
selur notuð föt og
vínylplötur
Carmen Jóhannsdóttir:
▲
SÍÐA 42
● jólin koma
Skreytir í hólf og gólf
Kristín Helga Gunnarsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Jólalest
kemur eftir
daga
3
16 dagar til jóla
Opið
10-18.30 í dag
www.postur.is
8.12.
Síðasti öruggi skiladagur
á jólakortum
til landa
utan
Evrópu!
SIGURÐUR GEIRDAL BORINN TIL GRAFAR Sigurður Geirdal, bæjarstjóri í Kópavogi, var jarðsunginn frá Hallgrímskirkju í gær. Á
myndinni má sjá þrjá af líkmönnunum. Frá vinstri: Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ og bróðir Sigurðar heitins, Gunnar I. Birg-
isson, bæjarfulltrúi í Kópavogi og þingmaður Sjálfstæðisflokksins, og Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Auk þeirra voru eftirtaldir lík-
menn: Flosi Eiríksson, bæjarfulltrúi í Kópavogi, Sigurrós Þorgrímsdóttir, bæjarfulltrúi og formaður Breiðabliks, Hreinn Bergsveinsson, for-
maður Rótarýklúbbs Kópavogs, Björn B. Jónsson, formaður Ungmennafélags Íslands, og Hansína Á. Björgvinsdóttir, oddviti Framsóknar-
flokksins í Kópavogsbæ.
LÖGREGLUBÍLAR Í LJÓSUM LOGUM
Þessir tveir lögreglubílar eyðilögðust í árás
vígamanna á lögreglustöð í Ramadi í gær.
Fyrrverandi stöðvarstjóri CIA óttast að
ofbeldið aukist frekar en að úr því dragi.
01 Forsíða 7.12.2004 22:25 Page 1