Fréttablaðið - 08.12.2004, Blaðsíða 27
5MIÐVIKUDAGUR 8. desember 2004
Thorvaldsenbazar. Ein elsta verslunin í miðbæ Reykjavíkur.
Styrkur til barna
Thorvaldsenbazar hefur verið starfræktur af Thorvaldsen-
félaginu í ein 103 ár og rennur allur ágóði af versluninni til
góðgerðarmála.
Rauð hettulopapeysa
Kr. 9.900
Útskorin bók
Kr. 16.900
Kærustupara-
vettlingar
Kr. 3.800
Einfalt og
fallegt ponsjó
Kr. 4.990
Fagurlega útskorinn
standur fyrir kaffipoka
Kr. 5.990
Lopapeysa með ponsjó
Peysa, kr. 8.430 og
ponsjó kr. 3.990
Fallegt ponsjó
Kr. 4.990
Árið 1875 voru ungar dömur
fengnar til að prýða Austurvöll-
inn þar sem var verið að koma
með styttu af Thorvaldsen. Sam-
starf stúlknanna gekk það vel að
þær ákváðu að stofna líknarfélag
sem fékk nafnið Thorvaldsen-
félagið. Árið 1901 var svo ákveðið
að stofna verslun þar sem kon-
urnar seldu handavinnu sína og
gáfu ágóðann til góðgerðarmála.
Verslunin starfar enn þann dag í
dag og tilgangurinn er enn sá
sami. „Við erum reyndar ekki
lengur að selja bara okkar eigin
handavinnu enda tímarnir breytt-
ir og margar konur uppteknar við
annað,“ segir Sigríður Sigur-
bergsdóttir, sem er ein af með-
limum félagsins. Meðlimir
félagsins starfa sem sjálfboða-
liðar í versluninni og er alltaf
einn sjálfboðaliði að störfum
ásamt verslunarstjóra.
„Því miður virðist miðbærinn
vera að deyja, en við vonum að við
náum að rífa þetta upp. En þeir
sem vita fyrir hvað við stöndum
koma aftur og aftur og versla hjá
okkur,“ segir Sigríður en eins og
hér hefur verið tíundað rennur
allur ágóði af versluninni til góð-
gerðarmála og hefur félagið
meðal annars styrkt barnadeild-
ina á Landakotsspítala á meðan
hún var, svo barnadeildina á
Borgarspítalanum. Þegar deild-
irnar sameinuðust undir Barna-
spítala Hringsins var stofnaður
sérstakur Thorvaldsensjóður sem
er styrktarsjóður til handa sykur-
sjúkum börnum og unglingum. ■
» BETRI SJÓNVARPSDAGSKRÁ
26-27 (04-05) Allt jólin koma 7.12.2004 15:28 Page 3