Tíminn - 28.02.1974, Side 1
■..—'
Áætlunarstaðir:
Akranes - Blönduós
Flateyri - Gicgur
Hólmavík - Hvammstangi
Rif - Siglufiörður
Stykkishólmur
Sjúkra- og leiguflug um
allt land
Símar:
2-60-60 &
2-60-66
Opið öll kvöld til kl. 7
Laugardaga til kl. 2
Sunnudaga kl. 1 til 3
Simi 40-102
______________________
Uppgötvun ungs, íslenzks haffræðings:
NÝ OG BETRI AÐFERÐ VIÐ
KVIKASILFURSMÆLINGAR
Frá þvi að verkfalli lauk og til
kl. 18 i gær höfðu 5 skip lagt upp
loðnuafla á Raufarhöfn, en þá var
enn laust rými fyrir um 2800 tonn.
Bræia hefur verið á loðnu-
miðunum undanfarið, og var
raunar enn seinnipartinn i gær
við Suðvesturland, en þá hafði
eitthvað lægt austar.
Næst er það
sjómannadeilan
— fundur hefst kl.
-hs-Rvik. Nú þegar kjaradeil-
unni milli ASt og VSt er lokið,
fá þeir, sem staðið hafa i
ströngu samningaþófi sólar-
hringum saman, með fárra
klukkustunda svefni á milli,
kærkomna hvíld, og geta farið
að sinna daglegum störfum,
sem væntanlega reyna ekki
eins á taugarnar. Nokkrir eru
þó þeir menn, sem ekki geta
enn unnt sér hvíldar frá samn-
ingaþófi, og einn þeirra er
Torfi Hjartarson sátta-
semjari.
Ekki var almenna kjara-
deilan fyrr komin i örugga
höfn og samningar undirritað-
ir, en sáttasemjari boðaði til
sáttafundar i sjómannadeil-
unni. Hefst sá fundur kl. 14 i
dag.
Búið er að visu að semja um
mörg smærri atriði i sjó-
mannadeilunni, en eftir eru
mikilvægustu málin, og má
þar nefna skiptaprósentuna,
14 í dag
sem sjómenn vilja hærri,
kauptryggingu og aðra kaup-
liði og fritt fæði. Ennfremur
stóð styrr um skiptaprósent-
una i smærri skuttogurunum,
sem útvegsmenn þeirra telja
of háa. Að sögn Jóns Sigurðs-
sonar, formanns Sjómanna-
sambandsins, hafa sjómenn
ekki ljáð máls á neinni lækk-
un, og sagði hann, að slikt
kæmi ekki til tals.
Sjómannasamband Vest-
fjarða og útvegsmenn i þeim
landshluta komust að sam-
komulagi á sinum tima, en
það var fellt i öllum félögum,
nema i Bolungavik. Ellefu
greiddu þar atkvæði með sam-
komulaginu, lOvoru á móti og
ellefu sátu hjá. Lögum sam-
kvæmt er þvi búið að semja
þar, en Jón Sigurðsson taldi, i
viðtali i gær, að siðferðilega
væri enn ósamið i Bolungavik,
og væri þvi ósamið um sjó-
mannakjörin alls staðar á
landinu.
Frá hádegi i gær og til kl. 18 til-
kynntu fjögur skip um afla, en
það voru Hrönn með 80 tonn, Eld-
borg 500 tn., Ásver 140 tn. og Jón
Finnsson 400 tn. Var þá heildar-
aflinn oröinn um 337 þúsund lest-
ir, það sem af er þessari vertið.
Langt er siðan Hafrannsókna-
stofnuninni hefur borizt sýni af
loðnu. og er þvi ekki vitað með
Eftir fjögurra mánaða samningaþóf og hálfs sólarhrings bið eftjr að samningar næöust við járniðnaöarmenn hófst undirritun samninga, og
fyrstur til þess að skrifa nafn sitt var Eövarð Sigurösson, formaður samninganefndar ASI. Sjá fleiri ntyndir inni I blaöinu ásaint rainma-
samningnum. Timamynd: Gunnar.
Mælingar sýna, að ekki er óeðlilegt kvikasilfursmagn í sjó og vatni hér
JH—Reykjavik. — UNGUR,
islenzkur haffræðingur, Jón
Ólafsson, hefur fundið upp aöferð
til þess að mæla kvikasilfur i sjó
og vatni á nákvæmari og öruggari
hátt en áður hefur þekkzt, án þess
að notast við mjög stór sýni.
Skýrir hann frá þessu i nýju hefti
alþjóðlegs visindatimarits, Ana-
lytica Chimica Acta, sem gefiö er
út i Amsterdam og flytur sérhæft
efni um efnafræðilegar mælingar
og greiningar.
, Jón ólafsson hefur undanfarin
ár unnið að rannsóknum á
Mývatni og er nú starfsmaður
Hafrannsóknastofnunarinnar.
Við mælingar sinar á kvikasilfri
hefur hann notað tæki, sem Haf-
rannsóknastofnunin hér keypti á
sinum tima með aðstoð tækni-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna, en
við það hefur hann tengt auka-
búnað, sem hann hefur sjálfur
fundið upp og gerir honum kleift
að beita þessari nýju aðferð.
— Það væri kannski réttast að
komast svo að orði, að þetta sé
sérstök útfærsla, sem er nýjung,
sagði Jón, er við töluðum við
hann. Einn kostur aðferðarinnar
er sá, að hún útilokar hættu á
mengun á sýnum frá þvi þau eru
tekin, þar til mæling fer fram, en
slik mengun hefur oft leitt til
skakkrar niðurstöðu við kvika-
silfursmælingar.
Ég fór að gefa mig að þessu fyr-
ir um þaö bil tveim árum, sagði
Jón ennfremur, er ég frétti um
mælingu, sem bandariskir
visindamenn höfðu gert á sjó úr
Austur-Grænlandsstraumnum.
Þessi mæling gaf til kynna mikið
kvikasilfursmagn, og meira en
aðrir höfðu fundið viða annars
staðar. Mér fannst nauðsynlegt
að komast að hinu sanna, og vita
af hverju það stafaði, ef rétt
reyndist.
Af þvi er skemmst að segja, að
mælingar Jóns leiða i ljós, að ekki
er hér meira kvikasilfursmagn i
sjó og vatni en náttúrulegt er, og
miklu minna en Bandarikja-
mennirnir töldu sig hafa fundið i
sjósýnunum úr Austur-
Grænlandsstraumnum. Til þess
að gefa fólki nokkra hugmynd um
nákvæmnina má geta þess að
mælt er i nanógrömmum, sem er
einn trilljónasti úr grammi —
með öðrum oröum 0.0000000001
gramm. Ekki þarf að vera um
mengun að ræða, þótt tuttugu
nanógrömm kvikasilfurs séu i
litra sjávar, enda er það mörg-
þúsund sinnum meira, þar sem
mest kveður að mengun, svo sem
við strendur Japans. Hérlendis
hafa Jóni mælzt innan við tuttugu
Framhaid á bls. 10
Könnun á mólefnum aldraðra:
Aldraðir kjósa helzt að búa í
smóíbúðum í þjónustuhúsum
— lítil elliheimili fremur en stór
SJ—Reykjavik. —Ætla má, að
einungis lítill hluti aldraðra telji
stór elliheimili æskilega dvalar-
staði fyrir sig. Könnun, sem gerð
var haustið 1972 á afstöðu
aldraðra Reykvikinga til
þjónustustofnana og náði til 106
manns, 65 ára og eldri, leiddi i
Ijós, að aðeins 5.5% töldu stór elli-
heimili henta öldruðum vel. Þetta
er athyglisverð staðreynd, þvi að
EKKERT SKIP ÞURFTI AÐ
DÆLA LOÐNU í SJÓINN
-hs-Rvik. Ekkert loðnuskip mun
hafa þurft að dæla afla sinum aft-
ur i sjóinn vegna verkfallsins,
eins og ýmsir höfðu spáð, að gera
þyrfti I stórum stil. Hjá loðnu-
nefnd fengust þær upplýsingar i
gær, að flest skipin væru nú búin
að losa sig við aflann, eða væru að
þvi komin. Hjá sumum skipanna
væri aflinn reyndar orðinn allt að
þriggja sólarhringa gamall, en
allt færi i land.
vissu, hvernig ástand hrognanna
er, en talið er vist, að hluti a.m.k.
vestustu göngunnar sé byrjaður
að hrygna.
stór ellihcimili hafa fyrst og
fremst verið þeir dvalarstaðir,
sem öldruðu fólki hefur gefizt
kostur á hér, hafi það viljað eða
orðið að . hætta að búa i
heimahúsum.
Könnun þessa gerði Jón Björns-
son, og er hún liður i almennri
rannsókn á högum aldraðra á Is-
landi, sem hann hefur gert til
doktorsprófs i sálfræði við
háskólann i Freiburg.
41,5% þessara 106 öldruðu
Reykvikinga töldu smáibúðir i
stórhýsi henta bezt þar sem
aldraðir byggju ýmist einir éða
með maka, en ættu kost á að fá
nauðsynlega þjónustu i húsinu, ef
þörf krefðist. 25.5% þátttakenda i
könnuninni töldu æskilegustu
lausnina heimilisþjónustu á veg-
um borgarinnar, sem gerði
öldruðum kleift að dveljast áfram
i heimahúsum, jafnvel eftir að
þeir hætta að geta séð meö öllu
um sig einir. 19% voru fylgjandi
litlum elliheimilum yrir 8-12
manns i grennd við fyrri bústað
vistmanna, þar sem veitt yrði öll
nauðsynleg þjónusta. Aðeins 5.5%
töldu stór elliheimili æskileg,
jafnvel þótt þar væri veitt öll
nauðsynleg þjónusta, og e.t.v.
eitthvað umfram það, t.d. fót-
snyrting, gufubað nudd og guðs-
þjónustur.
Jón Björnsson dregur þær al-
mennu ályktanir af þessari könn-
un sinni, að auka þyrfti fjöl-
breytni þjónustu við aldraða,
einkum þurfi að koma upp lang-
legusjúkrahúsum og hjúkrunar-
deildum. Við tilkomu þeirra
Framhald á bls. 10
Viltu kaupa
Viðlaga-
sjóðshús?
Klp-Reykjavik. A fundi
stjórnar Viðlagasjóðs, sem
haldinn var i fyrradag, var
ákveðið að óska eftir tilboð-
uni i fimmtiu Viðlagasjóðs-
hús, sem öll eru á Suðvestur-
landi.
Að sögn Hallgrims
Sig u rðsson a r , fram-
kvæmdarstjóra Viðlaga-
sjóðs, verður birt auglýsing i
fjölmiðlum um næstu helgi,
þar sem óskað verður eftir
tilboðum i húsin.
Þarna er um að ræða 50
hús, sem eru viðsvegar á
Suðvesturlandi, en hvaöa
hiis það eru, kemur nánar
fram i auglýsingunni.
Tilboðin eru háð ákveðn-
um takmörkunum hvað
varðar útborgun, lán og
eftirstöðvar. öllum er heim-
ilt að bjóða I þau, en eftir að
skilafrestur er útrunninn,
munu tilboðin verða opnuð,
og þá tekin ákvörðun um
samræmingu á verði og
öðru, er varðar söluna.