Tíminn - 28.02.1974, Page 2
2
TÍMINN
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
Fimmtudagur 28. febrúar 1974
Vatnsberinn: (20. jaa-18. febr.)
% Einhver vinur þinn eða kunningi kemur þér
£ óþægilega á óvart með fávisi sinni og kunnáttu-
leysi á þvi, sem liggur algerlega i augum uppi.
En þetta er svo sem ekki nein ný bóla, þú hefur
lengi grunað hann um græsku.
Fiskarnir: (19. febr-20. marz)
Það er eitthvað að brjótast um i þér og nýjar
hugmyndir alltaf að skjóta upp kollinum. Séu
þér i sambandi við heimilið, og gagnlegar,
skaltu ráðast i framkvæmdir, þvi að þá verða
þær þér til ánægju að þessu sinni.
Hrúturinn. (21. marz-19. apríl)
Þetta er litlitill dagur, og þú skalt ekki hafa
mikið umleiðis. Farðu varlega i umferðinni,
ráðstu ekki i neinar framkvæmdir og haltu þig
heima i kvöld i rólegheitum og slappaðu af.
Sumir dagar eru bara svona.
Nautið: (20. april-20. mai)
Það getur vel vorið, að þér finnist þú ekki þurfa
á þvi að halda,en vinur þinn eða ættingi biður
eftir að geta orðið þér að liði, og satt að segja
biður hann eftir leiðbeiningu frá þér, á hvern
hátt það má verða.
Tviburamerkið: (21. mai-20. júni)
Þú átt einhvern mikinn og góðan vin, sem
stendur nærri þér, og þú ættir að muna oftar
eftir þvi en þú gerir. Þetta, sem er að brjótast i
þér núna, ættirðu alls ekki að framkvæma, nema
tala rækilega við hann fyrst.
Krabbinn: (21. júni-22. júlí)
Það er rétt eins og einhver öfundarmaður þinn
sé alltaf á næsta leiti og reyni að villa um fyrir
þér. Þú skalt reyna að finna hann, þvi að vilji
þinn getur truflazt af undirróðri þessa aðila, og
þá fer virkilega illa.
Ljónið: (23. júli-23. ágúst)
Þetta er mikill ágætisdagur, að þvi er virðist, og
litur ekki út fyrir annað ennúsé um að gera að
taka ákvarðanir fyrir framtiðina, hversu
mikilvægar sem þær eru, þvi að dómgreindin á
öllum sviðum á að vera i lagi.
Jómfrúin: (23. ágúst-22. septj
Það litur út fyrir, að það verði talsvert hressilegt
á vinnustaðnum i dag, og þér gefst tækifæri til að
láta ljós þitt skina. Vertu samt ekki of
galvaskur, og hagaðu orðum þinum af þeim
hyggindum, sem i hag koma.
Vogin: (23. sept-22. oktj
Það lítur út fyrir, að tvær heimsóknir til þin i dag
hafi varanlegt gildi, þótt þú gerir þér það ekki
ljóst fyrr en siðar meir, af einhverjum orsökum.
Sproðdrekinn: (23. okt.-21. nóv.)
Þú verður að fara varlega i að trúa öllu, sem þér
ersagt.og þú skalt athuga málin gaumgæfilega.
Það er þér affarasælast að rasa ekki um ráð
fram i þessum efnum. Það er hætt viö, aö reynt
verði að fá þig til einhvers, sem þú skalt forðast.
Bogmaðurinn: (22. nóv-21. des.)
Þaö eru tilfinngamálin og ástamálin, sem þú
skalt sýna alveg sérstaka varfærni i dag, og þó
sér i lagi undir kvöldið, þvi að þá litur út fyrir, að
einhver þriðji aðili standi á milli ykkar, og það
boöar ekkert gott.
Steingeitin: (22. des.-19. janj.
Þú skalt ekki taka þennan dag alvarlega, en
hafa hægt um þig. Þú skalt ekki ráðast i neitt og
alls ekki sóa kröftunum, þvi að það er til einskis.
Það eru ekki allir dagar jafn heppilegir til
athafna og framkvæmda.
Ford Bronco — VW-sendibílar
Land-Rover — VW-fólksbílar
| Bíla EKILL
J leigan BRAUTARHOLTI 4
Simar 2-83-40 og 3-71-99
■llilll HIHV
BiM.iMllliiilllllM.
Hugvekja til alþingismanna...
Á siðasta aðalfundi sýslunefnd-
ar A-Húnavatnssýslu var sam-
þykkt tillaga þess efnis, að odd-
vita væri falið að vinna að þvi, að
haldinn yrði sameiginlegur fund-
ur sýslunefndar og sveitarstjórna
með þingmönnum kjördæmisins,
áður en Alþingi hæfist i haust, til
umræðna um helztu framfara-
mál héraðsins.
Ýmsum mun hafa þótt þetta
timabær samþykkt og horfa til
bóta, ef tækist að fá alla fulltrúa
kjördæmisins saman til viðræðna
við framámenn byggðarlaganna.
Ekki sem fulltrúa einstakra
stjórnmálaflokka, eins og tiðast
er, þegar menn þessir láta til sin
heyra, heldur sem sameiginlega
fulltrúa fólksins i héraðinu.
Siðan leiðarþing lögðust niður,
hefur sá háttur komizt á i æ rik-
ara mæli, að sendinefndir frá hin-
um ýmsu byggðarlögum hafa far-
ið i suðurgöngu til að reka erindi
sins sveitarfélags. Ég hygg, að á
ýmsu hafi oltið, hvernig gengið
hefur að ná tali af þingmönnum.
Þar sem þingmenn hafa nú sér-
staka ferðapeninga, hefði mátt
ætla, að með þessu sparaðist hér-
aðsbúum timi og fjármunir.
Svo kom að þvi, að fundur með
alþingismönnum var boðaður,
ekki einu sinni heldur brisvar
sinnum en alltaf varð af afboða
vegna anna okkar ágætu þing-
manna. Kann nú að vera, að ein-
hverjum finnist það kapituli út af
fyrir sig, þegar fulltrúar okkar á
Bændur
Við seljum dráttar-
vélar: búvélar og allar
tegundir vörubila
BÍLASALAN
Bræöraborgarstig 22
Simi 26797.
t/erðstaðreyndir!
650x16 negldur kr.4290.-
750x16 negldur kr.4990.-
SÖLUSTAÐIR:
Hjólbarðaverkstæðið
Nýbarði, Garðahreppi, simi
50606.
Skodabúðin, Kópavogi, simi
42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri
h.f. simi 22520.
Varablutaverzlun Gunnars
Gunnarssonar, Egilsstöðum,
simi 1158.
Alþingi eru svo timalausir, að
þeir mega ekki vera að þvi að
hlusta á óskir forráðamanna hér-
aðsins i eina kvöldstund. Ætla ég
þvi að reyna að ná til ykkar, þing-
menn góðir, með hugvekju þess-
ari, ef allir eru nú ekki hættir slik-
um lestri.
Það eru gömul og ný sannindi,
að samgöngukerfi þjóða eru slag-
æðar þeirra. Þetta gildir einnig
um hvert byggðarlag, enda velta
afkomumöguleikar ibúanna i nú-
timaþjóðfélagi á engu einu atriði
meir. Ég vil með þessum orðum
minna ykkur á, virðulegu þing-
menn, hvernig ástatt er um sam-
göngur hér i sveit, það er frá
Skagaströnd á Skagatá. Vega-
lengd sú, er hér um ræðir, eru 47
km; þar af eru 24 km aðeins rudd-
ir skorningar, sem litið hefur ver-
ið borið I af möl og eru viðast
lægri en umhverfið i kring. Má
þvi öllum ljóst vera, að á slikan
veg safnast snjór og vatn allt eftir
þvi, hvernig veðrátta er hverju
sinni. Um 12 km af áðurnefndri
leið voru byggðir á áratugunum á
milli 1930 og 1950, að sjálfsögðu
með handverkfáerum, og eru
þessar brautir öldungis ófærar
um að gegna þvi hlutverki, sem
vegir nú þurfa að gera, vegna
þess hve lágar og mjóar þær eru.
Einnig má geta þess, að heldur
hefur verið litið viðhald á þessum
vegaspottum að undanförnu. Það
eru þvi aðeins 11 km, sem hafa
verið lagðir siðan 1950, og er það
eini vegurinn, sem hægt er að
segja, að beri nútimaumferð. Af
framansögðu má sjá, hve vega-
samband er hér afleitt, og ég
%gg, að nokkuð langt þurfi að
leita til að finna sambærilega
vegleysu i einni sveit.
Hér með heiti ég á alla alþingis-
menn kjördæmisins að bregðast
nú vel við og standa saman um að
útvega myndarlega fjárveitingu i
vetur, þegar vegaáætlun verður
endurskoðuð, til að bæta úr þess-
um vegleysum og reka þar með
slyðruorðið af Skagavegi, að hann
sé lakastur allra vega i kjördæm-
inu.
Ljóst er, að ekki hefur vegagerð
á Skaga alltaf verið svo langt á
eftir sinni samtið, sem nú er. Þvi
hér er enn i góðu gildi elzti vegur
sýslunnar, sem lagður var af
framtakssömum bónda hér i
sveitinni fyrir rúmum 100 árum.
Nú finnst mér mikils við þurfa, að
ekki verði öllu lengur reynt á þol-
rif ibúanna, svo ekki endurtaki
sig hér sama sagan og gerðist
handan við flóann haustið 1971.
Sannfærður er ég um, fleir
um en mér lætur illa i eyrum
hjal það um jafnvægi i byggð
landsins, sem er i þvi fólgið að
bæta fyrsta aðstöðu þeirra, sem
fleiri eru og betri höfðu hana fyr-
ir, svo sem virðist helzta lögmál
þeirrar byggðastefnu, sem nú er
rekin. Eða hvernig hyggjast for-
ráðamenn þjóðarinnar rétta
baggann á merinni? Með þvi að
bæta stöðugt við farminn á það
borðið, sem hún hallast á.
Byggðajafnvægi, eins og það hef-
ur verið framkvæmt til þessa er
innantómt orðagjálfur og óraun-
hæft, nema til að gylla skálaræð-
ur. Sem dæmi um það vil ég
nefna, að óverjandi er að moka
hundruðum miljóna i að byggja
brú yfir fjörð, sem hægt er að
komast fyrir með góðu móti, þeg-
ar aðrir hafa alls engan veg til að
fara eftir.
Vonandi læra ráðamenn þjóð-
arinnar eitthvað af reynslu nýlið-
ins kuldakafla, er við lá, að stór
hluti landsbyggðarinnar yrði raf-
orkulaus. Þótt ekki væri sú
reynsla, er þá fékkst, sú lakasta,
sem hægt er að gera sér i hugar-
lund, að upp gæti komið með
þeirri kynlegu ráðstöfun i byggð
landsins, að staðarval allra stór-
virkjana skuli vera I sama lands-
hluta, og það á hættulegasta jarð-
skjálftasvæðinu. Ekki mun það
heldur styrkja búsetuna úti á
landsbyggðinni, að þessi vand-
fengna' og dýrmæta orka er þar
seld af rafveitum rikisins á mun
hærra verði en á stór-Reykja-
vikursvæðinu.
Ég læt þessi þrjú dæmi nægja,
sem öll eru i höndum rikisvalds-
ins, og eru þvi hæg heimatökin að
hafa áhrif á, ef vilji væri fyrir
hendi. Mér finnst sama, hvar nið-
ur er borið, verkin tala alls staðar
á móti skruminu um jafnvægi i
byggð landsins. Ólygnasta vitnið
um það er, hvert fólksstraumur-
inn liggur. Varla trúa boðberar
þesss skrums þvi sjálfir, að fólkið
geti ekki metið lifsskilyrðin sjálft
og stritist við að safnast þangað,
sem þau eru lakari.
Það ætti að vera öllum mönnum
ljóst, að hér er vandasamt verk
að leysa og hlýtur að kosta mikið
átak, sem óumflýjanlega verður
að koma við þá, er á stór-Reykja-
vikursvæðinu búa.
Fullvist er, að ekki stöðva
stjórnvöld þá þróun, sem nú er,
með þvi einu að láta fjölmiðla
predika, að nú séu þessi mál
leyst. Það er sama lausnin og hjá
strútnum, að stinga höfðinu i
sandinn.
Tjörn i jan. 1974
Sveinn Sveinsson
Deildartæknifræðingur
Öryggiseftirlit ríkisins óskar að ráða
bygginga- eða véltæknifræðing.
Hann skal hafa umsjón með sérstöku
starfssviði i Reykjavik og úti á landi. Laun
samkvæmt kjarasamningi rikisstarfs-
manna.
Umsóknir; ásamt upplýsingum um mennt-
un og fyrri stör£ sendist til öryggiseftirlits
rikisins fyrir 1. april n.k.
Öryggismálastjóri.
Lyftaramenn
Viljum ráða nú þegar tvo menn til starfa á
lyftara.
Talið við Halldór i afgreiðslunni.
Kassagerð Reykjavikur
Kleppsvegi 33.