Tíminn - 28.02.1974, Qupperneq 3
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
TÍMINN
3
Fjórir unnu
Forintos á
Akranesi
UNGVERSKI stór-
meistarinn Forintos tefldi
fjörtefli á Akranesi á
þriðjudaginn á vegum Tafl-
félags Akraness.
Forintos vann 17 skákir,
gerði 6 jafntefli og tapaði 4
skákum. Hann hafði hvitt
gegn helmingi keppenda, en
svart gegr. hinum.
Þeir, sem unnu
meistarann voru Guðmund-
ur Guðnason, Þráinn
Sigurðsson, Páll Leó Jónsson
og Leó Jóhannesson.
HÆTTA A, AÐ HOLSFJOLL
FARI SENN í EYÐI
— verði ekki spornað gegn því í tæka tíð
„HIN sérstæða byggð á Hólsfjöll
um I Norður-Þingeyjarsýslu og á
Efra-Fjalli I Norður-Múlasýslu á
sér merka sögu að baki. Um lang-
an aldur hafa myndarleg fjárbú
verið rekin þar, svo að sögur fóru
af. Bændurnir þar hafa nytjað og
helgað sér hin viðáttumiklu,
kjarngóðu heiðalönd, sem liggja
að baki annarra byggðarlaga...
Byggingar, búfé f högum og
mannlif í Fjallabyggðinni hefur
frá öndverðu vakið öryggiskennd
þeirra fjölmörgu vegfarenda,
sem lagt hafa leið sina um hina
löngu öræfaleið mitli sveita og
landsfjórðunga. Margur þreyttur
ferðalangur hefur þegið þar húsa-
skjól og beina.”
Þannig var upphaf greinar-
gerðar sem fylgdi ályktun, er
búnaðarþing samþykkti nokkru
áður en þvi var slitið.
Þeir Þórarinn Kristjánsson og
Sigurjón Friðriksson höfðu lagt
fram erindi um stuðning við
byggð á Hólsfjöllum, og bar
erindi þetta þann árangur, að
búnaðarþing skoraði á Landnám
rikisins að hlutast til um, að
Reykjavíkurborg:
Erlend milljónalán vegna
hitaveitu og rafveitu
BH—Reykjavik. — Samþykkt
hefur verið í borgarráði Reykja-
vfkur að heimila borgarstjóra að
taka lán að upphæð 9 milljónir
dollara vegna hitaveitunnar og
4.8 milljónir doilara lán vegna
rafmagnsveitunnar, en lán þessi
hefur viðskiptaráðuneytið heimil-
að, að tekin verði í Bandarikjun-
um.
Lánin verða til allt að 15 ára og
boðin út á fjármagnsmarkaði til
valinna aðila með milligöngu
First National City Bank og
Smith Barney & Co I New York, i
samráði við Landsbanka Islands
og með þeim skilyrðum, sem
Seðlabanki Islands setur.
Lán hitaveitunnar er m.a til
lagnar hitaveitu i Kópavog,
Hafnarfjörð og Garðahrepp, og
(j lán rafmagnsveitunnar er til þess
að greiða eignarframlag til
Landsvirkjunar og breyta
greiðslutima áður tekinna er-
lendra skammtima lána.
treyst verði til frambúðar búseta
á Hólsfjöllum, i Möðrudal og
Viðidal. Fór þingið þess á leit, að
hafizt yrði handa um heildar-
aætlun, um það, hvernig búseta
yrði þarna bezt tryggð, og henni
lokið svo fljótt, að hún yrði
fullgerð áður en næstu fjárlög
verða samin.
Fjögur atriði benti búnaðarþing
sérstaklega á: Að býlin verði raf-
vædd og orka seld á liku verði og
frá samveitum, hraðað gerð nýs
vegar frá Grimsstöðum i
Mývatnssveit og öxarfjörð, stór-
aukið óendurkræft framlag til
byggingar ibúðarhúsa á þessum
stað og viðurkennd i verki
nauðsyn byggðarinnar til aukins
öryggis fyrir ferðamenn og
bættrar þjónustu við þá.
í Fjallahreppi eru ibúar nú
tuttugu og sex á fjorum bæjum.
en i Möðrudal og Viðidal, eiga að-
eins fimm menn heima. Hefur
fólki þarna i fjallabyggðinni
fækkað hin siðari ár og vofir sú
hætta yfir, að hún fari i auðn, ef
ekki verður gripið til sérstakra
ráðstafana af hálfu samfélagsins.
Við slikar ráðstafanir þarf þó að
taka hið fyllsta tilit til vilja fólks-
sin, sem enn býr þarna.
Þakfauk á
Fáskrúðsfirði
Klp—Reykjavík. 1 fyrradag gerði
sunnanstorm á Fáskrúðsfirði og
vindhviðurnar allkrapDar. 1 einni
hviðunni fauk hálft þakið af
söltunarstöðinni Hilmi og lenti á
þrem bifreiðum.
Eyðilagðist ein þeirra með öllu,
en hinar tvær skemmdust litið.
Engin slys urðu á fólki, en tjónið
varð mikið. Er það lauslega áætl-
að nema þrem milljónum króna.
BII-Reykjavik. — Borgarráð
Reykjavikur hefur samþykkt að
gefa færeyska sjómannaheimil-
inu kost á lóð fyrir félagsmiðstöð
við Brautarholt norðan Skipholts,
en sjómannaheimili fyrir Fær-
eyinga hefur verið starfrækt um
margra ára skeið við Skúlagötu.
Viðlagasjóðsgjaldið:
Sumir kaupstaðir
skulda milljónir
Fimm hafa ekki borgað neitt
Asgeir Bjarnason, formaður Búnaðarfélags tslands, slær fundar-
hamrinum iboröið: Búnaðarþingi er slitið. — Timamynd: Gunnar.
Búnaðarþingi slitið í gær:
37 mál afgreidd
á stytzta þinginu
SP—Reykjavik. — Búnaöarþingi,
hinu 56. i röðinni, iauk laust fyrir
klukkan tvö i gærdag að Hótel
Sögu, þar sem það hefur farið
fram, og sleit formaður Búnaðar-
félags tslands, Ásgeir Bjarnason
þinginu. Þakkaði Ásgeir þing-
fulltrúum og starfsmönnum þings
vel unnin störf.
Gisli Magnússon I
Eyhildarholti i Skagafirði lét þess
getið, að liklega yrði þetta siðasta
þingið, sem hann sæti. Þakkaði
Asgeir honum sérstaklega vel
unnin störf gegnum árin, en Gisli
hefur verið fulltrúi á búnaðar-
þingi 3 kjörtimabil, auk þess sem
hann hefur nokkrum sinnum setiö
það sem varafulltrúi. Asgeir
minnti einnig á hið feikimikla
starf, sem Gisli hefur innt af
hendi i sambandi við félagsmál i
heimahéraði sinu og utan þess.
Fram kom, aö þetta er stytzta
búnaðarþing sem haldið hefur
veriðtil þessa, enda þótt það tefð-
ist vegna þess, að nokkrir fulltrú-
anna urðu veðurtepptir nokkra
daga fyrir norðan og vestan. 40
mál voru á dagskrá þingsins, og
voru 37 þeirra afgreidd. Sagöi
Asgeir, að mörg þeirra væru
þýðingarmikil, eins og tillögur
um orkumál, jarðræktarmál,
bættar sauðfjárveikivarnir, til-
laga um stuðning við byggð á
Hólsfjöllum og tillaga um kjöt-
rannsóknastöð og fleira.
Klp-Reykjavik. Mjög erfiðlega
hefur gengið að fá sveitarfélögin
til að standa I skilum við Viðlaga-
sjóð á viðlagasjóðsgjaldinu, sem
lagt var á brúttótekjur manna i
fyrra.
Bæjar-og sveitarfélögin áttu að
innheimta gjaldið fyrir sjóðinn,
en þau námu alls 674 milljónum
króna. Um áramótin höfðu aðeins
borizt 169 milljónir af þessari
upphæð, þrátt fyrir þrjá greiðslu-
daga. Eftir áramótin hefur aðeins
komizt skriður á málið, en þó er
langt frá þvi að bæjar- og
sveitarfélögin standi sig vel.
Af 13 kaupstöðum, sem eiga að
greiða 513 milljónir, hefur aðeins
borizt greiðsla frá 8 stöðum, eöa
samtals 245 milljónir. Fimm
kaupstaðir hafa enn ekki greitt
krónu, en það eru Neskaupstaður,
Seyðisfjörður, Ólafsfjörður,
Sauðárkrókur og Isafjörður.
Hreppsfélögin hafa ekki staðið
sig betur. Mörg þeirra hafa enn
ekkert greitt inn á skuldina, þótt
þau séu búin að innheimta gjaldið
af ibúunum eins og önnur opinber
gjöld.
Þarna er um 217 hreppsfélög að
ræða, en aðeins 33 þeirra hafa
greitt sina skuld að fullu. Þarna
er ekki um eins stórar upphæðir
að ræða og hjá kaupstöðunum, en
þó skipta þær sums staðar nokkur
hundruð þúsundum króna. Lægsti
greiðandinn er Selvogshreppur
með fjóra gjaldendur, sem eiga
að greiða til Viðlagasjóðs sam-
tals 21.200 krónur.
Cargolux flytur áhöld og vistir:
BORAÐ EFTIR VATNI Á
ÞURRKASVÆÐUM EÞÍÓPÍU
S.l. mánudag sendu Hjálpar-
stofnanir kirkna á Noröurlöndum
tvær fullhlaðnar flugvélar til
Eþiópiu með nýstárleg hjálpar-
gögn til hjálpar fórnarlömbum
þurrkanna þar. Tveir stórir borar
voru i þessum flutningum, með
þeim verður freistað að ná vatni
úr iðrum jarðar tii svölunar lang-
hrjáðum ihúum og eftirlifandi bú-
peningi.
Það eru Hjálparstofnarnir
kirkna i Sviþjóð, Danmörku, Nor-
egi og íslandi er hafa samvinnu
um þetta verkefni, sem er liður i
umfangsmiklum hjálparaðgerð-
um Lúterska heimssambandsins
á þurrkasvæðunum i Norður-
Eþiópiu.
Flugvélarnar fóru frá Stokk-
hólmi og Osló. Frá Stokkhólmi
voru fluttir tveir stór jarðborar,
sem borað geta niður á allt að 250
metra dýpi. Vonir standa til, að á
næstu 2-3 mánuðum verði unnt að
ná vatni upp á 20-30 stöðum i
Wollo-héraði, þar sem milljónir
þjást nú vegna þurrkanna undan-
farin ár. Sænskur verkfræðingur
frá framleiðanda mun hafa
umsjón með uppsetningu og
tilfærslu boranna jafnframt þvi
að kenna innfæddum,m.eðhöndlun
þéirra. Frá Osló fóru einnig
tæknimenn, ásamt miklum mat-
vælum o.fl. nauðsynjum til þessa
verkefnis, i flugvél frá Cargolux
undir stjórn islenzkrar áhafnar.
Þessi hjálparaðgerð er nýmæli
og tilraun þarna, sem fylgzt verð-
ur með i eftirvæntingu. Ef vel
gengur má vænta þess, að unnt
verði á næstu árum að bjarga
þúsundum og jafnvel að ,;oma i
veg fyrir hörmungar eins og
þarna eiga sér stað nú.
Heildarkostnaður Hjálpar-
stofnananna vegna þessa verk-
efnis næstu 2-3 mánuði mun nema
u.þ.b. 13 milljónum islenzkra
króna.
Heilsuræktar-
miðstöð
Heimir Hannesson, lögfræð-
ingur, ritar grein i Dag á
Akureyri 20. þ.m. um heilsu-
ræktarmiðstöð á Akureyri. t
grein sinni segir Heimir m.a.
um málið:
„Eins og menn vita, hefur
lengi verið brýn þörf heiisu-
hælis á Norðurlandi, þar sem
fullkomin aðstaða væri til
endurhæfingar þeirra er veik-
indihafa hrjáð, sem og alhliða
heilsuræktar fyrir almenning.
Forystumenn Náttúrulækn-
ingafélaganna ganga hér i far-
arbroddi, og er þegar fyrir-
huguð slik heilsuhælisbygging
I nágrenni bæjarins og upphaf
framkvæmda áætlað á þessu
ári. Þrátt fyrir mikla vinnu og
lofsverðan áhuga eru sjóðir af
skornum skammti og hrökkva
skammt. Hér skal i þessu
samhandi komið fram með þá
hugmynd, hvort ekki beri að
skoða það sem fyrst og ræða i
fullri alvöru við stjórnvöld og
áhugamannasaintök, hvort
ekki geti komið til greina að
sameina átökin á þann hátt er
lýst hefur verið hér að framan
og reyna þannig að gera
draumana töluvert fyrr að
veruleika en ella hcfði orðið,
eða jafnvel aö gera þá
drauma að veruleika sem
annars hefðu ekki rætzt. Að
sjálfsögðu skal ekkert um það
sagt hér, hvort þetta er hug-
mynd sem slik áhugamanna-
samtök gætu sætt sig við, en
ekki sakar að ræða máiin og
kanna hvort slikur grundvöll-
ur er fyrir hendi. Það hefur þá
að minnsta kosti verið kannað.
Að sjálfsögðu cr skylt að
leggja á það áherzlu, að af
hálfu stjórnvalda hefur enn
engin ákvörðun verið tekin um
neina stefnumörkun i þessum
málum i heild, en að þvi mun
koma innan tiltölulega
skamms tima að þau verða að
gera upp sinn hug um hvaða
leiðir skal fara. Varla þarf að
skýra það nánar, að enginn
staður utan Reykjavikur hefur
nú þegar upp á jafn góða að-
stöðu að bjóða og Akureyri og
nágrenni að þvi er þessi mál
varðar. Skiptir þar mestu
máli sú margvislega þjónusta,
sem þegar er fyrir hendi, og
nægir þar að minna á sam-
göngur, gisti- og veitingaað-
stöðu, margra ára reynslu á
fjölmörgum sviðum, fullkom-
ið sjúkrahús og margt fleira
svo scm landfræðilega stöðu
bæjarins á miðju Norðurlandi.
Tímabært að
hefjast handa
Ymsum kann e.t.v. að finn-
ast, að þessar hugleiðingar
beri meiri keim af framtiðar-
hugmyndum en tilhlýðilegt sé
i dag, þegar erfitt cr að maitna
bátana og fá fólk i frystihúsin.
Það er rétt, svo langt sem það
nær. En þvi má ekki gleyma,
að ennþá búum við islcnding-
ar við mjög einhæft atvinnulif
og grundvöll þess þarf að
breikka og þróa á næstu árum
og áratugum. Og hvort
tvcggja i senn, þurfa lands-
menn og gestir þeirra i vax-
andi mæli, að njóta hvildar og
heilsuræktar og kemur þar
bæði til aukinn skilningur og
vaxandi þörf samfara aukinni
spennu hraðaþjóðfélagsins.
Og á meðan þróunin cr sú aö
tómstundunum fjölgar, verður
þörfin enn brýnni. Með þvi að
tcngja uppbyggingu þessa að
hluta við innlenda og erlenda
ferðamenn skapazt fjárhags-
legur grundvöllur, en allt ntál-
ið i heild er að sjálfsögðu háð
stærð þess og framkvæmda-
lengd. Að mfnu mati væri eðli-
leg timaröð þannig, að að þvi
yrði miðað að taka ákvörðun á
þessu ári, framkvæmdir hæf-
ust á þvi næsta, og að þvi mið-
að að Ijúka þeim áður en ára-
tugurinn er á enda.”— TK.