Tíminn - 28.02.1974, Blaðsíða 9
V
TÍMINN
8
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
Fimmtudagur 28. febrúar. 1974.
TÍMINN
9
birtir hér i
heild kjarasamninga þá
sem náðust í gær, ramma-
samning, sem nær til kjara
aðildarsambanda Alþýðu-
sambands Islands svo sem
frá er greint i inngangi
samningsins. Auk ramma-
samningsins gerðu hinir
ýmsu aðilar margskonar
sérsamninga um kaup og
kjör.
SAMNINGUR milli Alþýðusam-
bands Islands vegna félaga, er
beina aðild eiga að sambandinu,
Verkamannasambands tslands,
Málm- og skipasmiðasambands
íslands,, Sambands byggingar-
manna, Rafiðnaðarsambands ts-
lands, Landssambands vöru-
bifreiðastjóra, Landssambands
iðnverkafólks, allt samkvæmt
sérstökum félagaskrám og enn-
fremur vegna Iðnnemasambands
Islands og Vinnuveitendasam-
bands Islands, Vinnumálasam-
bands sam vinnufélaganna,
Félags Isl. stórkaupmanna,
Kaupmannasamtaka Islands,
Verslunarráðs Islands og
Reykjavikurborgar.
1. gr.
Siðast gildandi samningar aðila
framlengjast með þeim breyting-
um, sem þessi samningur og sér-
samningar fela i sér.
2. gr.
1. Mánaðarlaun, kr. 35.000.00 eða
lægri (K-visitala 149.89 er inni-
falin og umsamdar láglauna-
hækkanir), hækki frá undir-
skrift samninga um 8% og kr.
1.200.00. Laun, sem hærri eru
en kr. 35.000.00, hækki um sömu
krónutölu og laun kr. 35.000.00
þ.e. kr. 4.000.00.
2. Laun samkvæmt lið 1 skulu
hækka um 3% frá 1. desember
1974 og þau laun skulu hækka
um 3% þann 1. júni 1975.
3. önnur laun, svo sem viku- og
timakaup hækki tilsvarandi.
3. gr.
Núgildandi laun, miðað við
visitölu 149.89 að viðbættum þeim
breytingum sem 2. gr. ákveður
skulu vera grunnlaun og kaup-
greiðsluvisitala sett = 100. Um K-
vísitölu fer að öðru leyti sam-
kvæmt ákvæðum síðustu samn-
inga, með þeirri breytingu, sem
leiðir af yfirlýsingu samninga-
nefnda Alþýðusambands Islands,
Vinnuveitendasambands tslands
og Vinnumálasambands sam-
vinnufélaganna dags. 19. febrúar
1974 um útreikninga K-visitölu á
samningstimabilinu.
4. gr.
Samkomulag um kaup-
tryggingu verkafólks í
fiskvinnu.
Þegar starfsfólk i fiskvinnu
hefur unnið samfellt hjá sama at-
vinnurekanda i 4 vikur skal þvi
gefinn kostur á að gera sérstakan
ráðningarsamning, sem feli i sér
eftirfarandi atriði:
1. Starfsfólk skal halda dagvinnu-
kaupi fyrstu 3 atvinnuleysis-
daga i viku hverri. Frá 1. mars
1976 skal starfsfólk halda dag-
vinnukaupi fyrstu 4 atvinnu-
leysisdaga i viku hverri og frá
1. mars 1978 5 atvinnuleysis-
daga.
Starfsfólk, sem ráðið er til
hálfsdagsvinnu, nýtur hlut-
fallslega sömu réttinda.
2. Starfsfólki ber að vinna öll al-
geng störf i fiskvinnsluhúsum
samkvæmt fyrirmælum verk-
stjóra.
3. Starfsfólki ber að hlýða útkalli,
nema lögmæt forföll hamli.
4. Neiti starfsfólk vinnu sam-
kvæmt tölulið 2 eða komi ekki
til vinnu, þegar vinna er fyrir
hendi, falla réttindi þau, sem
samningur þessi gerir ráð fyr-
ir, úr gildi þá viku
5. Með samfelldri fjögurra vikna
vinnu er átt við, að unnið hafi
verið hjá sama vinnuveitanda
full dagvinna i fjórar vikur,
enda jafngildi fjarvistir vegna
veikinda, slysa, hráefnisskorts
eða sambærilegra orsaka fullri
vinnu.
6. Heimilt er að segja kaup-
tryggingu verkafólks upp með
viku fyrirvara, ef fyrirsjáanleg
er vinnslustöðvun. Eftir að
vinnsla hefst á ný nýtur yerka-
fólk áunninna réttinda.
7. Sextiu af hundraði greiðslu,
sem vinnuveitendur greiða
vegna þessarar tryggingar,
skal Atvinnuleysistrygginga-
sjóður endurgreiða viðkomandi
fyrirtæki mánaðarlega, enda
hafi triínaðarmaður og annar
launþegi, er trúnaðarmaður
eða stéttarfélag velur, staðfest
framlögð gögn með daglegri
uppáskrift.
Þann 1. mars 1979 lækkar
greiðsluhlutfail Atvinnuleysis-
tryggingasjóðs i 50% og siðan
um 10% á ári næstu 5 ár, þann-
ig, að greiðsla sjóðsins fellur
niður frá og með 1. mars 1984.
8. Samkomulag þetta tekur gildi
við undirskrift samnings þessa,
enda hafi rikisstjórnin lofað að
beita sér fyrir, að breyting á
lögum um Atvinnuleysis-
tryggingasjóð verði gerð á Al-
þingi þvi, er nú situr, er heimili
greiðslu til vinnuveitenda sbr.
tölulið 7 hér að framan.
Reglugerð um framkvæmd og
eftirlit verði gerð i samráði við
Alþýðusamband tslands og
Vinnuveitendasamband Is-
lands.
Yfirlýsing
Rikisstjórnin mun beita sér fyr-
ir að breytt verði á yfirstandandi
þingi iögum um Atvinnuleysis-
tryggingasjóð þannig, að greiðsl-
ur skv. framanskráðu samkomu-
lagi geti farið fram.
Reykjavik, 25. febrúar 1974.
Lúðvik Jósepsson sign.
Björn Jónsson, sign.
Halldór E. Sigurðsson, sign.
5. gr.
Tryggingar
Skylt er vinnuveitendum að
tryggja launþega þá, sem
samningur þessi tekur til, fyrir
dauða eða varanlegri örorku af
völdum slyss i starfi eða á eðli-
legri leið frá heimili til vinnustað-
ar og frá vinnustað til heimilis.
Ef launþegi hefur vegna starfa
sins viðlegustað utan heimilis,
kemur viðlegustaður i stað
heimilis, en tryggingin tekur þá
einnig til eðlilegra ferða milli
heimilis og viðlegustaðar.
Dánarslysabætur verða:
1. Ef hinn látni var ógiftur og læt-
ur ekki eftir sig barn og hefur
ekki séð fyrir öldruðu foreldir
(67 ára eða eldri)
kr. 200.000.00
2. Ef hinn látni var ógiftur en
lætureftirsig barn (börn) und-
ir 17 ára aldri og/eða hefur
sannanlega séð fyrir foreldri
eða foreldrum (67 ára eða
eldri)
kr. 500.000.00
3. Ef hinn látni var giftur, bætur
til maka
kr. 700.00000
4. Ef hinn látni lætur eftir sig barn
(kjörbarn, fósturbarn) innan
17 ára aldurs/fyrir hvert barn
kr. 100.000.00
Bætur greiðast aðeins skv. einum
af töluliðum nr. 1, 2 eða 3. Til
viðbótar með töluliðum nr. 2 og
nr. 3 geta komið bætur skv.
tölulið 4.
Rétthafar dánarbóta eru:
1. Lögerfingjar.
2. Viðkomandi aðilar að jöfnu.
3. Eftirlifandi maki.
4. Viðkomandi börn, en greiðist til
eftirlifandi maka, ef hann er
annað foreldri, ella til skipta-
ráðanda og/eða fjárhalds-
manns.
Bætur vegna varanlegrar ör-
orku greiðast i hlutfalli við vá-
tryggingarfjárhæðina , kr.
1.000.000, þó þannig að hvert ör-
orkustig yfir 75% verkar tvöfalt,
og geta heildarbætur þvi orðið kr.
1.250.000 við 100% örorku, en fyrir
varanlega örorku 5% og minni
greiðist ekkert.
Ákvæði þessi valda I engu
skerðingu á áður umsömdum
hagstæðari tryggingarrétti laun-
þega en þeim, sem um getur i
rammasamningi milli Alþýðu-
sambands Islands og Vinnuveit-
endasambands Islands frá 4.
desember 1971.
Tryggingin tekur gildi um leið
og tryggingarskyldur launþegi
hefur störf (kemur á launaskrá),
en fellur úr gildi um leið og hann
hættir störfum (fellur af launa-
skrá).
Skilmálar séu almennir skil-
málar, sem i gildi eru fyrir at-
vinnuslysatryggingar launþega
hjá Sambandi islenskra
tryggingafélaga, þegar sam-
komulag þetta er gert, með með
breytingum skv. neðanskráðum
drögum.
Verði vinnuveitandi skaðabóta-
skyldur gagnvart launþega, sem
slysatryggður er skv. samningi
þessum, skulu þær slysabætur,
sem greiddar kunna að verða
vegna samnings þessa koma að
fullu til frádráttar þeim skaða-
bótum, er vinnuveitenda kann að
verða gert að greiða.
Hlutaðeigandi samtök vinnu-
veitenda lýsa þvi yfir, að þau
muni beita áhrifum sinum fyrir
þvi, að félagsmenn þeirra tryggi
alla launþega sina og haldi
tryggingunni i gildi. Framan-
greind trygging taki gildi við
undirskrift samnings þessa.
Samkomulag er um að á
samningstimabilinu skuli endur-
skoða vátryggingarupphæðir með
tilliti til verðlagsþróunar. Slika
endurskoðun skal miða við ára-
mót.
Drög að breytingum á
vátryggingaskilmálum
fyrir atvinnuslysatrygg-
ingar
(launþegatryggingar).
1.
Við 1. gr., 3. mgr.
Málsgreinin orðist svo:
Bætur greiðast þvi aðeins, að
slysið sé aðalorsök þess, að sá,
sem tryggður er, missir lifið eða
verður fyrir varanlegum starfs-
orkumissi að hluta eða að öllu
leyti.
II.
Við 6. gr.
Orðin ,,eða sá sem tryggður er”
falli brott i 2. mgr.
7. gr. falli niður, en inn komi ný 7.
gr. þannig:
Takmarkanir á bótaskyidu vegna
náttúruhamfara.
Ef jarðskjálfti, eldgos, flóð,
skriðuföll eða aðrar náttúruham-
farir valda slysi i einum og sama
atburði á fleiri en 50 einstakling-
um, sem vátryggðir eru i at-
vinnuslysatryggingu launþega,
takmarkast bætur við meðal-
dánabótaupphæð 50 einstaklinga.
Meðaldánarbætur eru þær dánar-
bætur, sem iðgjald er reiknað af
ár hvert. Bætur skiptast hlutfalls-
lega á milli bótaþega.
Takmörkun sú á bótaskyldu, sem
um getur i 1. málsgrein þessarar
greinar, gildir sameiginlega fyrir
öll vátryggingarfélög i Sambandi
slysatryggjenda. Skiptir þvi ekki
máli þótt hinir slösuðu séu ekki
allir slysatryggðir hjá sama
félagi innan sambandsins.
IV.
Við 8. gr.
1) Siðarimálsliðuristafliða) falli
niður. (I staðinn kæmi hin nýja
7. gr.).
2) Orðin „eða vátryggðs” falli
burt úr staflið c).
6. gr.
Samningsaðilar eru sammála
um, að fá á samningstimabilinu
starfi fastanefnda með sama
hætti og á liðnu samningstima-
biii. Gerð verði sérstök skrá yfir
þau mál, sem samkomulag er
orðið um, að nefndin taki til með-
ferðar .vegna núverandi
samningsgerðar.
7. gr.
Samningur þessi gildir frá
undirskriftardegi til 1. april 1976
og er uppsegjanlegur með eins
mánaðar fyrirvara. Sé
samningnum ekki sagt upp fram-
lengist hann um sex mánuði i
senn með sama uppsagnarfresti.
Verði veruleg breyting á gengi
islensku krónunnar er
samningurinn uppsegjanlegur
með eins mánaðar fyrirvara
hvenær sem er.
Reykjavik, 26. febrúar 1974
Það var mikill fjöldi plagga, sem undirrita þurfti, en þess var vel gætt, að allir rituðu nöfn sín,þar sem
þeim var ætlað.
Samtals voru það um 50 manns, sem staöfestu samningana með undirritun, og hér er yfirlitsmynd af hópnum. Viö vinstri væneinn sitia fulltrúar ASt en
við þann hægri fulltrúar VSÍ.
Sáttanefnd með óundirritaðan samningahlaðann fyrir framan sig, t.f.v. Halldór Jakobsson, Torfi
Hjartarson og Ólafur Björnsson.
Undirritun er hafin, en á myndinni eru talið frá vinstrhSnorri Jónsson, forseti ASl, Eðvarð Sigurðsson,
form. samninganefndar ASÍ, sáttasemjararnir Halldór Jakobsson, Torfi Hjartarson og Ólafur Björns-
son, Jón H. Bergs, formaður VSt og Ólafur Jónsson.framkvstj. VSt.
Tirfi H3artarson,aðalsáttasemjari,er hér brosleitari en marga undanfarna daga enda einum erfiðustu,
lengstu og fjölmennustu samningaviðræðum lokið. Hann og Snorri Jónsson takast ihendur.
AAyndir: Gunnar V. Andrésson