Tíminn - 24.03.1974, Qupperneq 24

Tíminn - 24.03.1974, Qupperneq 24
24 TÍMINN* Sunnudagur 24. marz 1974. Blómleg byggö Chiliying samyrkjubúsins Samyrkjubúskapurinn Nokkrir akuryrkjusérfræðingar kanna maisuppskeruna. hefur orðið fólkinu í Chiliying til góðs Menningarbyltingin hefur haft miklar breytingar i för með sér fyrir fólkið i Kina. Afkoma þess hefur batnað mikið, ef trúa má frásögnum þaðan, og fólkið litur framtiðina mun bjartari augum, en það gerði fyrir byltinguna. Mao formaður kom i heimsókn til nýstofnaðs samyrksjubús i ágúst 1958. Samyrkjubúið nefnist Chili- ying og er I Honan-héraði. Mao gladdist yfir stofnun búsins, og óskaði fólkinu góðs gengis. Rúm fimmtán ár eru liðin frá þessari heimsókn, og breyting- arnar i Chiliying hafa orðið ótrú- legar. Efnahagur ibúanna hefur breytzt mjög til batnaðar, og framleiðslan hefur margfaldazt. Agæti samyrkjubúskaparins hef- ur komið betur og betur i ljós með hverjum deginum, sem liðið hef- ur. Gestur i Chiliying sér, hvert sem litið er, græna trjátoppa, blómlega akra og vatnsveitur, sem færa ibúunum nægilegt vatn, hvenær sem þess er þörf. Allt er þetta mun betra heldur en það var fyrir menningarbyltinguna, og þessi áfangi hefur einungis náðst vegna samvinnu ibúanna allra. Alls staðar má sjá mais vaxa, hrisgrjóna- og bómullar- ekrunar ná einnig yfir stór land- svæði, og uppskeran hefur verið einhver sú bezta, sem um getur i öllu Kinaveldi. Chiliying er við Gulu ána, og jarðvegur er þar siður en svo góð- ur. Þar eru oft miklir þurrkar, en þó kemur einnig fyrir, að þar rigni svo mikið, að uppskeran sé i hættu, ekki siður vegna vatns- flaumsins en þurrkanna. Haustið 1956 rigndi til dæmis samfleytt i tuttugu daga. Afleiðingin var sú, að bómullarframleiðslan fór i hundana það árið. Einhverju hefði þó mátt bjarga, ef samvinna fólksins i þorpum og sveitum hefði verið nægileg, en það var hún ekki orðin þá, þvi samyrkju- búið var ekki komið til sögunnar. Þess vegna dró mikið úr heildar- framleiðslunni, og það hafði áhrif á afkomu fólksins. Þegar samyrkjubúið var svo stofnað árið 1958, var ibúunum, sem eru um 50 þúsund talsins, skipt niður i 38 framleiðslueining- ar, sem hver um sig hafði yfir að ráða miklu ræktunarlandi. Ræktunareiningarnar eru mjög misjafnar, og landið er viða lé- legt, eins og áður segir. Þó hefur hver eining innan samyrkjubús- ins gert sitt til þess að auka og bæta framleiðsluna, og það hefur sannarlega tekizt. Land hefur verið rutt, og akrar komið i stað óræktarlandsins. Til þess að hægt sé að rækta landið þarf vatn, og þess vegna hefur orðið að koma vatnsveitu- málum Chiliying i rétt horf. Vatn hefur alla tið verið fengið úr Gulu ánni, en til þess að það megi takast, þarf áveituskurði um landið þvert og endilangt. í upphafi var nokkuð um áveitu- skurði i Chiliying, en þeir nýttust engan veginn til fulls. Dag nokkurn voru hvorki meira né minna en 10 þúsund menn settir i það að styrkja'áveituskurðina og lagfæra þá, eins og þurfti. Menn- irnir grófu 320 minni áveituskurði út frá heildaráveitukerfinu, og einnig mikinn fjölda smáskurða. Eftir það var hægt að veita vatni svo til hvert sem var yfir land samyrkjubúsins. Einnig var grafinn mikill fjöldi brunna. Nú er svo komið, að 90% landsins er ræktanlegt, og það hvort sem ekki kemur dropi úr lofti i 100 daga samfleytt eða þótt úrkoman komist i 200 mm á einum einasta degi. Það er jafnt hægt að veita vatni yfir landið i þurrkatið sem dreifa þvi af hágkvæmni, þegar of

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.