Fréttablaðið - 10.12.2004, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
FÖSTUDAGUR
ÍR mætir Gróttu KR Þrír leikir verða á Ís-
landsmóti karla í handbolta. ÍR tekur á
móti Gróttu KR, Selfoss mætir Víkingi og
Valur sækir ÍBV heim. Leikirnir hefjast
klukkan 19.15.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
10. desember 2004 – 337. tölublað – 4. árgangur
FÓR EKKI NIÐUR AF SVÖLUM
Maður sem komst út úr brennandi húsi á
Sauðárkróki á laugardag hefur fengið rétt-
arstöðu grunaðs manns. Maðurinn fór ekki
niður af svölum hússins eins og áður var
talið. Sjá síðu 2
DÆMDUR MORÐINGI FALSAÐI
SKULDABRÉF Hæstiréttur hefur stað-
fest tveggja og hálfs árs fangelsi yfir
Þórhalli Ölveri Gunnlaugssyni fyrir að falsa
skuldabréf í nafni þess sem hann myrti.
Sjá síðu 2
HROSSIN BRENND Búið er að brenna
hrossin sem sýktust af miltisbrandi á
Reykjanesi. Sýni úr tjörn eru til rannsóknar
en litlar líkur eru á því að upptök sýkingar-
innar finnist. Sjá síðu 4
Gjaldahækkanir gagnrýndar Samfylkingin
segir gjaldahækkanir upp á átta milljarða
vega upp tekju- og eignaskattslækkanir rík-
isstjórnarinnar. Sjá síðu 6
Kvikmyndir 62
Tónlist 56
Leikhús 56
Myndlist 56
Íþróttir 42
Sjónvarp 64
● jólin koma ● matur ● tilboð
Búa til jólakort
ár hvert
Steingrímur og Edda:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
nr. 49
2004
SJÓ
NV
AR
PS
DA
GS
KR
ÁI
N
10
. d
es
. –
1
6.
de
s.
fólk glamúrkjólar jólaplötur stjörnuspá persónuleikapróf
JÓLABIRTA Í MIÐJU BLAÐSINS
ungskáldin » leggja orð í belg «
BLÆS Í LÚÐRANA
Leggja
orð í belg
Ungskáldin:
▲
Fylgir Fréttablaðinu í dag
● jólabirta ● glamúrkjólar
Jólalest
kemur
á
morgun!
VÍÐA SLYDDUÉL EÐA ÉL Bjartast og
þurrast austan- og suðaustan til. Annars
fremur skýjað. Hiti 0-4 stig syðra en vægt
frost nyrðra. Sjá síðu 4
Veffang: visir.is – Sími: 550 5000
www.postur.is
13.12.
Síðasti öruggi skiladagur
á jólapökkum
til Evrópu!
LÖGREGLA Maður gjöreyðilagði lög-
reglubíl með hjólaskóflu og er grun-
aður um að hafa reynt að kveikja í
íbúðarhúsi sínu í Saurbæjarhreppi í
Dölum um klukkan tvö í gær. Sýslu-
maður, lögmaður og lögregla voru
stödd á bænum vegna uppboðs sem
halda átti á eigninni. Ekki varð
manntjón vegna berserksgangs
mannsins.
Maðurinn brást hinn versti við
uppboðsaðgerðunum og velti lög-
reglubílnum tvær til þrjár veltur
með stórri hjólaskóflu sem hann
hafði til umráða. Maðurinn lokaði
sig einnig inni í íbúðarhúsinu og er
hann grunaður um að hafa kveikt
eld þar. Slökkviliðið var kallað á
staðinn og þurfti að slökkva í glæð-
um og reykræsta húsið. Samkvæmt
heimildum blaðsins kveikti maður-
inn eld á tveimur stöðum í húsinu, í
svefnherbergi á efri hæð og á neðri
hæð hússins. Brunatjón varð ekki
mikið í húsinu en talsverðar reyk-
skemmdir urðu. Lögregla náði að
yfirbuga manninn sem var fluttur
til Reykjavíkur og undir læknis-
hendur. Lögreglan í Borgarnesi hef-
ur lánað lögreglunni í Búðardal lög-
reglubíl þar til annar bíll fæst í stað
þess sem skemmdist. - hrs
Quarashi:
Semur við
Sony
TÓNLIST Rapprokksveitin Quarashi
hefur skrifað undir nýjan samn-
ing við útgáfufyrirtækið Sony í
Japan. Nýjasta plata sveitarinnar,
Guerilla Disco, kemur út í Japan
þann 23. febrúar og í kjölfarið fer
sveitin þangað í tónleikaferðalag.
Að sögn Sölva Blöndal, aðal-
lagasmiðs sveitarinnar, eru þreif-
ingar einnig hafnar í Bandaríkj-
unum um útgáfu plötunnar.
Quarashi hefur áður gert garð-
inn frægan í Japan því platan Jinx
seldist þar í um 150 þúsund ein-
tökum fyrir tveimur árum.
Sjá nánar síðu 52
VIÐ SJÓNARHÓL Á VATNSLEYSUSTRÖND Slökkvilið Suðurnesja brenndi í gær fjögur hræ miltisbrandssýktra hrossa. Ekki er vitað
hvaðan sýkingin barst í þau en sýni úr tjörn er til rannsóknar. Sjá bls. 6
SVEITARSTJÓRNARMÁL Eðlilegt er að
ríkið greiði fasteignagjöld af eign-
um eins og aðrir, segir Halldór
Halldórsson, bæjarstjóri Ísafjarð-
arbæjar og einn þriggja fulltrúa
sveitarfélaga í tekjustofnanefnd,
sem ræðir skiptingu tekna ríkis og
sveitarfélaga. Rætt hafi verið um
að sveitarfélögin fái hlutdeild í
veltusköttum svo sem trygging-
agjaldi, bensíngjaldi og hugsanlega
virðisaukaskatti, sem þau hafi
hingað til ekki haft tekjur af.
Guðjón Bragason, formaður
tekjustofnanefndar og skrifstofu-
stjóri í félagsmálaráðuneytinu,
segir að hugmyndum um fækkun
undanþága til greiðslu fasteigna-
gjalda hafi verið vel tekið af full-
trúum ríkisins í nefndinni. Hve
langt eigi að ganga liggi ekki
fyrir. Til greina komi að kirkjur
og sjúkrahús greiði þau. Hann
segir ómögulegt að ræða á þessu
stigi hverjar endanlegar tillögur
tekjustofnanefndar verði. Það
skýrist í lok janúar.
Halldór segir að ekki sé ein-
blínt á að útsvar sveitarfélaganna
verði hækkað þó um það hafi
verið rætt. Breyting af því tagi
nægi ekki til að bæta hag minni
sveitarfélaga:
„Við erum að tala um að þeir
sem standi verst fái enn frekar
tekjur í gegnum jöfnunarsjóð
sveitarfélaganna,“ segir Halldór.
Undir það tekur Guðjón og segir
að til dæmis sé verið að ræða um
400 milljóna aukafjárframlag til
sjóðsins á þessu ári.
Fjölmargir sveitarstjórnar-
menn hafa sett sig í samband við
Halldór og greint frá erfiðleikum
með að láta fjárhagsáætlanir
næsta árs stemma. Staða sveitar-
félaganna sé slæm en ekki sé
hægt að stóla á leiðréttingu tekju-
stofnanna við gerð fjárhagsáætl-
ana næsta árs. Fyrstu breyting-
arnar gætu í fyrsta lagi gengið
í gegn á komandi hausti, segir
Halldór:
„Kröfur okkar eru þær að
leiðrétta stöðu sveitarfélaganna
þannig að þau verði ekki rekin
með þriggja og hálfs milljarðs tapi
eins og var árið 2003. Við höfum
rætt um að það sé lágmarkskrafa
okkar að jafna þetta tap.“ - gag
Sveitarfélög fá hærri tekjur
af kirkjum og sjúkrahúsum
Sveitarfélögin vilja að ríkið greiði fasteignagjöld af eignum sínum. Um það hefur náðst sam-
komulag í tekjustofnanefnd. Hlutdeild í veltusköttum er einnig talin líkleg leið til að færa tekjur
frá ríkinu til sveitarfélaganna. Þau krefjast að lágmarki 3,5 milljarða króna frá ríkinu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI
14 dagar til jóla
Opið
10-22 í dag
fylgir blaðinu í dag
QUARASHI
Nýjasta breiðskífa sveitarinnar verður gefin
út í Japan í byrjun næsta árs.
STÓRSKEMMDUR LÖGREGLUBÍLL
Lögreglubílnum var velt með hjólagröfu.
Maður gekk berserksgang í Dölum:
Velti lögreglubíl með hjólaskóflu
01 Forsíða 9.12.2004 21:31 Page 1