Tíminn - 14.05.1974, Blaðsíða 15

Tíminn - 14.05.1974, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 14. mai 1974. HINN 14. marz siðast liðinn birt- ist hér i blaðinu litil frétt um stórt mál. Þar var sagt frá ungum félagsskap, sem aðstandendur drykkjufóiks hafa myndað með sér. Það er full ástæða til þess að kynna þessa starfsemi ofurlitið nánar, og verður freistað að gera það i þeim linum, sem hér fara á eftir. Hingað er nú komin ein þeirra kvenna, sem áttu hlut að stofnun þessa merka félagsskapar. En nafn þessarar konu verður ekki birt, þvi að við fylgjum þeirri reglu AA-manna að segja ekki opinberlega frá nöfnum þeirra einstaklinga, sem að þessum málum vinna. Nafnleyndin er ein af grundvallarreglum AA-sam- takanna. Þar eru allir jafnir — Fyrst langar mig að spyrja: Hvenær voru Al-Anon samtökin stofnuð? — Þau voru stofnuð 18. nóvem- ber 1972, og eru þvi tæplega eins og hálfs árs nú, þegar þetta er tekið upp, i aprilbyrjun. — Voru stofnendur margir? — Á stofnfundinum voru um fimmtiu manns, og þeir hafa sið- an unnið sameiginlega að þessu. — Þið hafið auðvitað byrjað á þvi að kjósa ykkur formann og stjórn? — Nei. Þarna á enginn að ráða sérstaklega yfir öðrum, heldur eru allir jafnir. Við skiptum að- eins þannig með okkur verkum, að einn er svokallaður dagskrár- stjóri, annar ritari og hinn þriðji gjaldkeri. — En hvað um þennan fimmtiu manna hóp, sem sat stofnfundinn, voru það allt aðstandendur drykkjumanna? — Já, ég held, að flestir eða all- ir hafi átt við einhver vandamál að striða sökum drykkjuskapar vandamanna sinna eða vina. — Hversu oft haldið þið fundi? — Við höldum fundi annan hvern laugardag klukkan tvö eftir hádegi, i safnaðarheimili Lang- holtssafnaðar við Sólheima. Við höfum einnig simavaktir i Traðarkotssundi 6, og siminn þar er 19282.Þessi simavakter á milli klukkan þrjú og fjögur á mánu- dögum og fimmtudögum. t ráði er að breyta simavaktinni á fimmtudögum og hafa hana á milliklukkan fimm ogsex.svoað sem flestar konur geti tekið þátt i þessari starfsemi og að hún komi sem jafnast niður. En þessi skipulagsbreyting getur ekki komið til framkvæmda, fyrr en blöðin eru farin að koma út aftur, þvi aö við þurfum að auglýsa þessar simavaktir. — Er félagsskapur ykkar ekki aöeins fyrir þá sem þekkja ein- hvern, er hefur við áfengisvanda- mál að striða? — Nei, þetta er engan veginn bundið við slikt. Fólk getur haft áhuga á þvi að hjálpa öðrum, jafnvel þótt það þekki ekki per- sónulega neinn, sem á við áfengisböl að búa. Og við neitum ekki neinum um að kynna sér þessi mál, þvi ekki mun af veita, að sem flestir leggi þar hönd að verki. Við léttum á hjörtum okkar með samræðum — Þú nefndir áöan dagskrár- stjóra. Hvað gerið þiö á þessum fundum? — Það er alltaf einn sem stjórnar fundi Við hin ræðum mál okkar, og hver sem stendur upp til þess að tala, ber einn ábyrgð á orðum sinum. Það er skilyrði, sem allir verða að beygja sig und- ir, að gagnrýna aldrei það sem aðrir kunna aö segja i ræðustóln- um. Við ræðum þessi vandamál, eins og þau lita út hjá hverjum um sig, og léttum þannig byrðar okkar. Það er nú einu sinni þannig, að þótt drykkjumaðurinn sé oftast illa farinn á sál og lik- ama, vegna sinnar óreglu, þá er heimili hans, kona og börn, þaö ekki siður. — Eru einkum konur drykkju- manna i þessum félagsskap? — Enn sem komið er, hefur verið mjög litiö af karlmönnum i okkarhópi,en þó er ekki fyrir það brennt. Þannig voru til dæmis bæði konur og karlmenn á stofn- fundinum. Auðvitað geta bæði kynin jafnt unnið að þessum mál- um, og sizt höfum við á móti þvi. Sama er að segja um unglinga. Ef þeir vilja kynna sér þessi mál, þá eru þeir velkomnir i okkar hóp. — Eru ekki vandamál ykkar næstum eins margvisleg og þið eruð margar? — Jú, sannarlega eru þau það, en þó er alltaf eitthvað sameigin- legt. Meginvandinn er einn og hinn sami, þvi að i eðli sinu er vandamálið eitt. Það á til dæmis við um alla jafnt, að þegar mað- urinn er drukkinn, getum við ekk- ert gert, bókstaflega ekki neitt. Það er, jú, að visu hægt að kalla á lögregluna, ef ástæða er til þess, en við sjúklinginn sjálfan þýðir yfirleitt ekki að tala, þegar hann er i þessu ástandi. Oft reynir drykkjumaðurinn að koma af staðrifrildi, en annars er það óút- reiknanlegt, hver áhrif vin- drykkja hefur á menn. Sumir verða eins og brjálaðir menn eftir örskamma stund, aðrir eru alltaf eins og ljós, og aldrei fremur en þegar þeir eru drukknir. Hreinskilin frásögn af biturri reynslu Ég vil ekki hlifast við þvi að segja hér mina eigin reynslu, þvi að sá veit bezt, sem reynt hefur. Maðurinn minn drakk mikið, og hann reyndi jafnan að erta mig og koma illindum af stað, þegar hann var drukkinn. Lengi vel svaraði ég honum, og þar með var tilgangi hans náð. En svo fór ég aðhugsa ráð mitt, hvað ég gæti gert, og tók það þá i mig að svara alls ekki, hvað sem við mig væri sagt. Þetta gerði ég, en þá varð hann hálfu reiðari, að ég skyldi voga mér að taka ekki undir, þeg- ar hann talaði við mig. Það getur þannig orðið harla vandlifað og erfitt að vita, hvernig maður á að haga sér. En svo erfitt sem þetta er fyr- irkonurnar, þá er það hálfu verra fyrir börnin. Hvað á móðir að segja, þegar börnin spyrja: „hvar er pabbi?” eða „hvenær kemur pabbi heim?” Hverju get- ur konan svarað? Hún hlýtur, ósjálfrátt og oftast óafvitandi, að sogast inn i lygavefinn. Við hjónin áttum dreng i gagn- fræöaskóla. Honum þótti i'nnilega vænt um pabba sinn, og honum féll mjög illa drykkjuskapur hans. Einn daginn kom hann heim úr skólanum og sagði: Nú er ég hættur i skólanum. Við spurð- um hann auðvitað, hvernig stæöi á þvi að hann ætlaði að hætta á miöjum vetri. Þá sagði hann sér væri stritt svo mikið á drykkju- skap föður hans, að hann héldist ekki lengur við innan um félaga sina i skólanum. Þegar við höfð- um heyrt þetta, kvaðst faðir hans skyldu fara með honum i skólann og tala við skólastjóra og kenn- ara. En sonur okkar sagði: Nei, pabbi minn, það er orðið of seint. Og hann fór ekki i þennan skóla oftar. Hann útvegaði sér sjálfur vinnu, seinna komst hann i iðn- skóla, og honum hefur gengið ágætlega i lífinu fram að þessu. Ef til vill verður þetta honum að- eins til góðs, ég veit það ekki, — við vitum svo litið. En vin hefur sonur minn aldrei bragðað. Ég hef verið viðstödd, þegar verið var að bióða honum vin. já. TÍMINN meira að segja að halda þvi að honum, svo að hann „gæti verið með”, en hann svaraði: Nei, ég er búinn að sjá alveg nóg af þessu um dagana. — Heldur þú, að þetta hafi orð- ið föðúr piltsins hvatning til þess að hætta að drekka, þegar hann sá son sinn hrekjast úr skóla fyrir þessar sakir? — Ég geri ráð fyrir að það hafi haft mikil áhrif á hann, en þó dugði það ekki til þess að fá hann til þess að hætta. Hann drakk lengi eftir þetta. En seinna tók hann sjálfur þá ákvörðun að hætta, og hefur haldið það vel sið- an. Hann hefur ekki bragðað vin i mörg ár. — Voru það AA-samtökin, sem björguðu honum? — Já, það voru þau. Hann ákvað sjálfur að ganga i samtök- in, og vitanlega hefur það haft heillavænleg áhrif fyrir hann, að þetta skyldi gerast fyrir frum- kvæði hans sjálfs, en ekki vegna áhrifa frá öðrum. Bezt er, að menn komi af sjálfsdáðum — En svo við snúum okkur frá þessum persónulegu málum og að félagsskapnum ykkar: Eru ekki margar drykkjumannakonur bældar og eiga erfitt með að tjá sig? — Jú, vitanlega er það algengt. En ég hef séð konur hressast al- veg ótrúlega mikið við að hittast og spjalla saman á þessum fund- um, jafnvel þótt ástandið heima hjá þeim hafi ekki batnað svo ýkjamikið. Svo lærum við hver af annarri og getum notfært okkur hver annarrar reynslu. Sem sagt: Við notum það sem fram kemur á fundunum og við höldum aö við getum haft not af, en látum hitt eiga sig. — Leitið þið uppi fólk, sem þið teljið að þurfi á liðsinni að halda, eða verður hver og einn að koma af sjálfsdáðum? — Það er ákaflega mikilvægt að menn komi sjálfir, hvort sem um er að ræða konur eða karl- menn. Þar er þó sá stóri þröskuldur i vegi, að mjög margir eiga erfitt með að viöurkenna, að þeir eigi við þennan vanda að glima. Oft þarf þvi að hjálpa við- komandi persónu fyrstu sporin. En ég held, að árangurinn verði mestur, þegar maðurinn kemur sjálfur, eftir að hafa viðurkennt það bæöi fyrir sjálfum sér og öðr- um, að hann eða hún þurfi á and- legum styrk að halda. Það er eng- inn efi á þvi, að konur verða hæf- ari til þess að glima við sin vandamál, eftir að hafa rætt sam- an. Eitt er enn, sem mig langar að koma á framfæri, ef það skyldi verða einhverjum, sem hlut á að máli, að liöi: Svo erfitt sem það er að umgangast drykkjumann á meðan áfengisneyzlan stendur sem hæst, getur það verið ennþá erfiðara eftir að hann hefur tekið þá stefnu að sigrast á veikleika sinum. Þetta er ákaflega eðlilegt. Það getur enginn maður drukkið að staðaldri árum saman, án þess að biða við það likamlegt og and- legt heilsutjón á einhvern hátt. Það má þvi ekki búast við neinni sældartið, á meðan likaminn er að venjast af eitrinu " og maður- inn að venja sig af þeirri huesun að hann megi til með að fá sér glas. — Það er einmitt þetta, sem við ræðum mjög á fundum okkar: Hvernig eigum við að fara að þvi að hjálpa manninum okkar — eða maðurinn konunni — á meðan hann eða hún eru að venja sig af þvi að drekka. Það er ekki neitt smáræðisátak að hætta að drekka, eftir að hafa stundað drykkju árum eða áratugum saman. En það er áreiðanlegt — og um það get ég borið af eigin reynslu — að það er gifurlega mikill styrkur fyrir báða aðila, ef maki hins drykkjusjúka einstakl- ings tekur frá upphafi fullan þátt i viðleitni hans til þess að iosna undan þrældómsoki vinsins. Ofdrykkja er ekki einka- mál neins Þvi miður er það algengt, að drykkjumenn — og konur liti á 15 það sem einkamál sitt, hvort þau drekka eða ekki. Þetta er að sjálf- sögðu hinn mesti misskilningur. Hverjum kemur það við, ef ekki maka og börnum, hvort hinn aðil- inn drekkur eða ekki? Jafnvel þótt menn eigi hvorki heimili né maka, þá er það ekki einkamál eins eða neins, hvort hann spillir umhverfi sinu meðofdrykkju, eða iætur það ógert. Það er meðal annars af þessari ástæðu, að ég held þvi fram, að maki og venzla menn hins drykkjusjúka eigi að taka þátt i viðleitni hans, þegar hann fer að sjá að sér, þvi að drykkjuskapur er ekki siður vandamál umhverf- isins en þess einstaklings sem drekkur. Þetta er þeim mun nauðsynlegra af þvi að það er staðreynd, að eitt hið fyrsta, sem drykkjusjúklingurinn áttar sig á, þegar stefnubreytingin er að verða hjá honum, er einmitt þetta, að honum komi það ekki einum við, hvort hann drekkur eða ekki. Eitt með þvi hreinskilnislegasta og heiðarleg- asta, sem ég hef heyrt af mann- legum vörum, eru orð drykkju- manna, sem eru að rétta við og lita með fullu raunsæi yfir farinn veg. y — Við förum nú senn að slá botninn i þetta, en viltu ekki að lokum segja mér eitthvað um félagsskap ykkar? Til dæmis hvað kostar að gerast félagsmað- ur? — Inngöngu i Al-Anon félags- skapinn fylgja ekki neinar kvaðir. Það er kannski ekki beinlinis rétt að tala um að „ganga i” þennan félagsskap. Menn geta komið á fundi eins oft og þeir vilja og sið- an hætt þvi, ef þeim sýnist svo. Árgjöld eru engin, en við höfum körfu á fundunum, og i hana lát- um við aura, sem nægja til þess að kaupa kaffi, en það drekkum við alltaf að fundi loknum. Með sama hætti greiðum við kostnað af útgáfustarfsemi og þýðingum. En i félagsskap okkar eru ekki neinar kvaðir. Þar er enginn sem skiparneinum neitt, heldur ræður hver einstaklingur sjálfur gerð- um sinum. — VS. Fjármálaráðuneytið 13. mai 1974. Tilkynning til söluskattsgreiðenda Vegna breytinga á lögum um söluskatt, er hér með vakin sérstök athygli á nokkrum ákvæðum laga og reglugerða um söluskatt. NÚMERAÐIR REIKNINGAR: Sérhver sala eða af- hending á vörum, verömætum og þjónustu skal skráð i fyrirfram tölusettar frumbækur eöa reikninga, sem skulu bera greinilega með sér, hvort söluskattur er innifalinn i heildarfjárhæð eða ekki. SJÓÐVÉLAR: (stimpilkassar). Staögreiðslusala smá- söluvöruverslana er undanþegin nótuskyldu, en sé hún ekki færð á númeraðar nótur eða reikninga, skal hún annaö hvort stimpluö inn i lokaðar sjóðvélar eða færð S sérstök tölusett dagsöluyfirlit. BÓKHALD: Bókhaldi skal þannig hagað, að rekja megi, á hverjum tima, fjárhæöir á söluskattskýrslum til þeirra reikninga i bókhaldinu og annarra gagna, sem söluskattskýrslur eiga að byggjast á. I VIÐURLÖG: Sé söluskattur ekki greiddur á tilskildum tima, sætir aðili viðurlögum, i stað dráttarvaxta áður, sem eru 2% fyrir hvern byrjaðan dag eftir eindaga allt aö 10%, en siðan 11/2% á mánuði til viðbótar, taliö frá 16. næsta mánaðar eftir eindaga. AÆTLUN A SKATTI: Söluskattur þeirra, sem ekki skila fullnægjandi söluskattskýrslu á tilskildum tima, verður áætlaöur. Einnig er heimilt aö áætla söluskatt aðila, ef i ljós kemur, að söluskattskýrsla styöst ekki við tilskilið bókhald skv. bókhaldslögum og lögum og reglugerö um söluskatt. ÖNNUR ATRIDI: Söluskattskyldum aðilum er bent á, að kynna sér rækilega lög og reglugerðir um söluskatt og er sérstaklega bent S nýmæli söluskattslaga og ákvæði IV. kafla reglugerðar nr. 69/1970 um söluskatt um tilhögun bókhalds, reikninga og önnur fylgigögn, sem liggja eiga söluskattskýrslum til grundvallar. m Svo skal böl bæta........... Rætt við ónefnda eiginkonu fyrrverandi drykkjumanns

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.