Tíminn - 13.06.1974, Síða 4
4
TÍMINN
Firamtudagur 13. júní 1974
ár safnað póstkortum. Fyrir 25
árum átti hún eina skúffu fulla
af kortum, en nú eru þau orðin
40 þúsund talsins. Elsa safnar
sérstaklega kortum með mynd-
um af bæði sænskum og útlend-
um kirkjum, og sennilega á
Elsa eitt stærsta kortasafn i Svi-
þjóð. Hún hefur einnig byrjað að
safna kortum með myndum af
þjóðbúningum, styttum, járn-
brautarstöðvum, köstulum og
herragörðum. — Annars verður
maður að takmarka sig við
ákveðið svið, segir hún, — þvi
safnið vex manni fljótlega yfir
höfuð. Hún á nú 450 albúm full af
kortum, og þessi albúm fylla
heilt herbergi heima hjá henni.
Þetta mikla safn kostar Elsu
bæði mikla peninga og mikinn
tima. Hún vinnur i verksmiðju á
daginn, en á kvöldin fer hún i
gegnum kortasafnið sitt og
skrifast á við aðra kortasafn-
ara, sem hún sendir kort og fær
kort frá i staðinn. Til er
félagskapur kortasafnara, og
heitir hann Nordstjarnan, og i
þvi félagi er Elsa virkur þátt-
takandi.
*
Settir á
myndsegulband
Hér er verið að taka mynd af
nokkrum ungum og efnilegum
knattleiksdrengjum. Myndin er
sett á myndsegulband, og siðan
er ætlunin að sérfræðingar i
þessari iþróttagrein virði hana
vel fyrir sér og reyni að finna
einhverjar stjörnur framtiðar-
innar ur þessum hópi. Isknatt-
leikur i Þýzkalandi er i
nokkurri lægð, og er ætlunin að
reyna að bæta úr þvi með þvl að
fá nýtt blóð inn i iþróttaliðin.
Myndin er frá ísknattleiks-
keppni i Frankfurt am Main i
Þýzkalandi
<0
vinkonu
Filipus prins
Hún heitir Louse Melnikoff og er
22ja ára gömul rússnesk
prinsessa. Hún kallar prinsinn
alltaf með fornafni, svo náið er
samband þeirra, eftir þvi sem
heimildir segja. Opinberlega er
hún talinn vera einkaritari
prinsins. Þau hittust á dansleik
og Louise sýndi prinsinum bréf
frá föður sinum, en hann er
gamall vinur Filipusar. Hún var
þegar gerð að einkaritara
prinsins, og tilgangurinn var
sagður sá, að hún ætti að kenna
honum rússnesku. Þau fara oft
út að borða saman, og þá aðal-
lega á rússnesk veitingahús.
Fólk i Englandi er nú farið að
velta þessu sambandi fyrir sér,
og þykir það ekki sem bezt.
Fyrir 25 árum
átti hún eina skúffu
af kortum
Elsa nokkur Johansson-Kittel i
Landskrona i Sviþjóð hefur i 25
★
— Þetta verður áreiðanlega greiðsludegi....
slæmur dagur hjá mér i dag....
sjáðu hvernig ég skar mig við
raksturinn i morgun!
DENNI
DÆMALAUSI
Viltu sjá svolitið agalegt? Littu á
Margréti I gegn um gleraugun
hennar.