Tíminn - 13.06.1974, Side 7
Fimmtudagur 13. júni 1974
TÍMINN
7
Ófrúlega lágt verÖ
^Bcvuun SLÆR
OLL
MET
Einsfök
gaeði
BARUM
BREGST EKKI simi uss.
EINKAUMBOÐ: TÉKKNESKA BIFREIDAUMBODID Á ÍSLANDI
SoLUSTAÐIR:
Hjólbaröaverkstæðið Nýbarði, Garðahreppi, simi 50606.
Skodabúðin, Kopavogi, simi 42606.
Skodaverkstæðið á Akureyri h.f. simi 12520.
Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstööum,
Páll Pétursson, bóndi
Höllustöðum.
völd? Fyrir siðustu kosningar hét
það ábyrgðarlaust kjaftæði að
ætla sér að færa út landhelgina i
50 milur.
Þeir gerðu þessa endemis
samninga við Breta og Þjóðverja,
sem verið hafa til mikils trafala
við þessa siðustu útfærslu.
Reynslan hefur hins vegar sýnt,
að landhelgin verður ekki færð út,
nema Framsóknarflokkurinn eigi
sæti i rikisstjórn.
Þetta hefði allt verið auðveld-
ara, ef ekki hefði verið samið
svona 1961, en þó hefur þetta tek-
izt að miklu leyti, og ástandið i
landhelginni og á fiskimiðunum
er allt annað en það var, þótt
lokatakmarkinu sé auðvitað ekki
náö ennþá. Við höfum i aðalatrið-
um komið á 50 sjómilna land-
helgi, sem ekki verður aftur af
okkur tekin, að þvi er séð verður.
Það er fyrir öllu.
Við fáum 200 milna
fiskveiðilandhelgi
— Auðvitað fáum við 200 milna
landhelgi. Sjálfstæðisflokkurinn
vildi biða eftir úrslitunum á haf-
réttarráðstefnunni, sem ekki er
ennþá farið að haída. Útfærslan
hér við land hefur án efa mótað
hug margra þjóða og virðist vera
stefnumótandi. Það skyldi enginn
hafa mikla trú á að Sjálfstæðis-
flokkurinn hafi einurð i sér til að
koma þessum 200 milum á hér við
land, þótt þeir telji það sigur-
stranglegt að vera að tala um það
núna, þvi auðvitað er þeim það
Um smáflokka og
flokksbrot: Það er að
visu ekki einn
Glistrup hjá okkur,
heldur margir
,, vasa ”-Glistrupar..
Flestir munu snúa
aftur til sinna gömlu
flokka.
Ijóst, eins og öðrum Islendingum,
að vinstri stjórnin hefur unnið af-
rek.
Spá min er, að það muni koma i
hlut Framsóknarmanna og Al-
þýðubandalagsins að færa út, al-
veg eins og það var stjórn Her-
manns Jónassonar, sem færði út i
12 milur og stjórn Ólafs Jó-
hannessonar, sem færði út i 50
sjómilur. fhaldið hefur ekkert
gert, nema siður væri, til að
stækka landhelgina. Það var aft-
ur á móti reynt að gera út-
færslurnar tortryggilegar. Það
vita allir.
Fólkið hefur fengið
trú á sina staði
— Þessari útfærslu i 50 sjómilur
fylgir ýmislegt annað, sem ekki
ber siður að nefna, þegar dæma
skal um stjórnarstefnuna. Við
getum farið hringinn i kringum
landið og séð uppbygginguna, þar
sem áður rikti kyrrstaða.
A ég þar við togarakaupin og
önnur atvinnutæki, sem útrýmt
hafa fólksflótta og atvinnuleysi.
Útflutningur á fólki hefur stöðv-
azt, þvi menn þurfa ekki lengur til
útlanda i atvinnuleit. Fólkið hefur
fengið trú á sina staði, á sina
heimabyggð, og eignir verða
verðmætari, þvi nú strekkja
menn ekki lengur út og suður.
Þá getur þetta fólk nú látið sig
dreyma um að menntunarað-
staða verði bætt heimafyrir,
þannig að ekki þurfi að sækja allt
framhaldsnám út fyrir héruðin.
Það er meginmálið, þegar
stjórnarstefnan er skoðuð og
áhrif hennar. Strjálbýlið er allt
öðruvisi á vegi statt en áður,
vegna vinstri stjórnarinnar.
Ástand
atvinnuveganna.
— Nú er atalsvert rætt um að
atvinnuvegirnir standi illa, þrátt
fyrir öll nýju tækin, skuttogara og
aðra fjárfestingu i fiskiðnaði.
Hver er orsökin?
— Það er alveg rétt. Vinstri
stjórnin hefur margt og reyndar
flest gert vel. Hitt er svo eigi að
siður staðreynd, að mörg nýstofn-
uð fyrirtæki i atvinnulifinu standa
ekki traustum fótum. Það þýðir
ekki að loka augunum fyrir þvi.
Og þvi fer fjarri, að þau þoli við-
reisnarmöruna yfir sig núna
strax. Það þarf að hafa vinstri
stjórn i mörg ár ennþá, áður en
atvinnuvegirnir eru færir um aö
taka við gengisfellingagreifunum
á ný I stjórnarstólana. Við meg-
um ekki hætta við hálfkarað verk.
Við verðum að hafa áfram vinstri
stjórn til þess að treysta grund-
völl þessara fyrirtækja, og það
verður að halda áfram að byggja
upp.
Þetta sem við nú höfum fyrir
augunum, eru aðeins vorverkin,
það nauðsynlegasta, sem hér
þurfti að gera til að fá hjólin til að
snúast.
Verðbólgan
og stjórnin
— Hvað segirðu um verðbólg-
una og verðbólguvandann? Er
verðbólgan afleiðing stjórnar-
stefnunnar?
— Það má kannski segja það,
að stjórnin hafi farið nokkuð
geyst. Það hefur verið staðið i
stórframkvæmdum um allt land.
Það er ég samt viss um, að við
vildum ekki fyrir nokkurn mun
missa af þessum framkvæmdum,
jafnvel þótt við verðum að þola
verðbólgu. Ráðherrarnir voru
bjartsýnir og treystu á gott ár-
ferði, sem reyndar hefur nú verið
að sumu leyti. Þeir hafa lika
treyst á dugnað fólksins, sem
einnig hefur staðið i stykkinu.
Hins vegar reiknaði rikisstjórnin
ekki með eldgosi i Vestmannaeyj-
um, eða oliukreppunni, og það eru
fleiri þjóðir en við, sem eru i
vandræðum með efnahagsmálin,
vegna oliukreppunnar og gifur-
legra verðhækkana á heims-
markaðinum. Svo til allt, sem við
þurfum að kaupa erlendis frá,
hefur stórhækkað, en afurðir okk-
ar hafa ekki hækkað neitt i likingu
.við þetta. Þarna er orsakanna að
leita fyrst og fremst. Þjóð með
einhæfa framleiðslu, eins og við,
hlýtur að lenda i örðugleikum,
þegar nauðsynjar hennar og
munaður fara upp úr öllu valdi,
meðan annað stendur i stað.
Stjórnarandstaðan
og dýrtiðin
— Hvað segirðu um þátt
stjórnarandstöðunnar i umræðu
um dýrtiðarmálin?
— Þáttur stjórnarandstöðunnar
er siður en svo glæsilegur, eða
eftirbreytniverður. Rikisstjórnin
mannaði sig nú upp i það, já nema
éinn smáaðili, að leggja fram
Útgerð og fisk-
vinnslufyrir-
tækin:.... Þvi fer
fjarri, að þau þoli
viðreisnarmöruna
yfir sig núna strax...
Það þarf að hafa
vinstri stjórn i mörg
ár ennþá, áður en at-
vinnuvegirnir eru
færir um að taka við
gengislækkunar-
greifunum....
frumvarp, tillögur um viðnáms-
aðgerðir gegn verðbólgunni.
Rikisstjórnin bauð upp á viðræð-
ur við stjórnarandstöðuna um
hugsanlegar breytingar á frum-
varpinu, en þeir vildu ekkert
heyra né sjá. Það var ekkert ver-
ið að hlusta á eitt né neitt, heldur
allt kapp lagt á að drepa allt i
hvelli. Það mátti ekki einu sinni
fletta þingskjölunum.
Það var kona að vestan, sem
talaði um leikhús, þriðja leikhús
þjóðarinnar, eins og hún orðaði
það.
Ég held að mörgum hafi þótt
þetta nokkuð vel sagt, því liklega
hefur Gylfa fundizt þetta vera
leikhús, þegar hann lagði til at-
lögu með Hannibal. En málin
snerust bara öðruvisi en þeir
ætluðust til, og það verður þjóðin,
sem dæmir um aðgerðirnar en
ekki þeir sem töldu alþingi vera
leikhús.
Þeir fella gengið
og valda kreppu,
ef þeir komast að
Það þarf enginn að halda, að
stjórnarandstaðan geti leyst verð-
bólguvandann. Þeir leggja enga
einlæga tillögu fram til lausnar
vandanum. Þeir fella auðvitað
gengið, ef þeir komast að. Það er
ráð, sem þeir hafa margprófað,
draga úr öllu og valda kreppu,
framkvæmdakreppu og vantrú á
þjóðina og landið, og um leið oftrú
á útlendinga og erlent fjármagn,
sagði Páll Pétursson á Höllustöð-
um að lokum. JG
FÉLA GSMENN
OGAÐRIR
VIÐSKIPTAVINIR
*
Reynslan Jiefur sannað og mun sanna yður framvegis,
að hagkvæmustu viðskiptin geíið þér hjá kaupfélaginu.
'jV Seljum allar fáanlegar nauðsynjavörur
á hagstæþu verði.
i
^ Kaupum. islenzftár framleiðsluvörur.
*
•fo Tryggingarumboð fyrir Samvinnu-
tryggingar og Andvöku.
•fo Greiðum hæstu fáanlegu vexti af spari- .
fé i innlánsdeild vorri.
«
Það eru hyggindi sem í hag
koma að skipta við
kaupfélag Berufjarðar
DJÚPAV0GI