Tíminn - 13.06.1974, Page 8
Miðvikudagur. 12. júni 1974
Skag<
firzka
söngsveit-
in heldur
hljóm-
leika
SKAGFIRZKA söngsveitin er að
ljúka sínu 4. starfsári, og heldur
samsöng i Austurbæjarbiói kl.
23,30. fimmtudaginn 13. júni fyrir
styrktarfélaga. Sem fyrr
stjórnar frú Snæbjörg Snæ-
bjarnardóttir kórnum, en hann
skipa 60 konur og karlar. Ein-
söngvarar verða Guðrún Tómas-
dóttir og Margrét Matthiasar-
dóttir. Undirleikari er Ólafur
Vignir Albertsson
Þann 20. júni fer kórinn i söng-
för til Norðurlands og syngur
fyrst á Hvammstanga, Akureyri,
Skjólbrekku, Húsavik og á þjóð-
hátið að Hólum i Hjaltadal, en að
lokum að Höfðaborg, Hofsósi, en
þetta er þriðja söngför kórsins til
Norðurlands.
t dagskrá hljómleikanna segir
m.a. svo um söngsveit þeirra
skagfirðinga:
„Skagfirska söngsveitin” var
stofnsett i september árið 1970 að
tilhlutan nokkurra. söngáhuga-
manna innan Skagfirðingafélags-
ins i Rvik. Skagfirðingar eru
söngelskir menn, sem unnað hafa
sönggyöjunni hvar sem þeir eru
staddir á gleðifundum og i góðra
vina hópi. Þótt ekki hafi áður
verið stofnaður kór Skagfirðinga,
á Suöurlandi, höfðu þó áður
komið fram á vegum Skag-
firðingafélagsins fámennir söng-
hópar, svo sem karlakvartett
undir leiðsögn Ragnars
Jóhannessonar, sem fyrrum bjó á
Vatnsleysu i Viðvikursveit,
ásamt konu sinni Margréti
Jósefsdóttur frá Hólum. Þau hjón
hafa lagt skagfirzku sönglifi gott
lið, og má i þvi sambandi nefna,
að Ragnar stofaði og stjórnaði
„Karlakór Skagfirðinga” á Akur-
eyri, er hann átti þar heima fyrir
u.þ.b. 20 árum
Vafalaust má telja það til ein-
stæðra atburða sins tima, þegar
Siguröur Skagfield bóndi á Páfa-
stööum, hverfur frá búskapnum
og fer til Þýzkalands til að læra
að syngja. Hann var virðulegur
merkisberi norðlenzka tenórsins,
ásamt þeim Haraldi á Völlum og
Þorbirni frá Veðramóti (siðar
bónda á Geitaskarði), að
ógleymdum Benedikt á Fjalli
þeim mikla bassamanni.
Ekki verður þó á neinn hallað,
þótt Skagfirðingar telji sig
standa i mestri þakkarskuld við
Stefán tslandi fyrir hans framlag
á fögrum tenórsöng. Þessar fögru
minningar höfum við að vega-
nesti á samsöngvum okkar nú
vorið 1974. Markmið kórsins er
m.a. að kynna lög eftir skagfirzk
tónskáld, og hefur kórinn sungið
inn á eina hljómplötu, lög eftir
Eyþór Stefánsson, Pétur Sigurðs-
son og Jón Björnsson. „Skin við
sólu”.
Nú á þessu þjóðhátiðarári
stendur 60 manna blandaður kór
á söngpalli Skagfirzku söng-
sveitarinnar undir stjórn frú Snæ-
bjarnar Snæbjarnardóttur söng-
konu, sem hefur stjórnað hefur
kórnum frá upphafi.
Fyrsta söngför kórsins var
farin á 100 ára afmælishátið
Sauðárkróks i júli 1971.
Frú Sigriður Auðuns hefur að-
stoðað kórinn með hljóðfæra-
slætti frá upphafi.
Guðmundur Gilsson hefur
annazt tónfræðikennslu hjá
kórnum i vetur.
Að þessu sinni kemur fram á
sviðið með kórnum nýr
einsöngvari Margrét Matthiasar-
dóttir, sem stundað hefur söng-
nám hjá Snæbjörgu söngstjóra i 4
ár.
Guðrún Tómasdóttir söngkona
nam söng i Bandarikjunum, hún
er fædd að Hóium i Hjaltadal.
TÍMINN
Hæst ber á mynd þessari persónurnar frú Þóreyju I Odda, Meistarann f Skálholti, Sæmund sjálfan og loks séra ögmund heiga, en af honum er
sú mcrkilega saga, að hann hafi farið út I Svartaskóla til þess að finna Sæmund, sem búinn var að týna sjálfum sér þar. Framan við persón-
urnar stendur mannfólkið Kjartan, Margrét, Guðmundur, Sverrir, Kristin og Böövar.
BH-Reykjavik. — t kvöld verður
nýstárlegur, íslenzkur atburður á
Listahátið. Þá verður frumsýning
i Iðnó á vegum Leikfélags
Reykjavikur á þáttum, er nefnast
„Af Sæmundi fróða”. Þessi sýn-
ing er sérstaklega gerð vegna
listahátíöar og byggð á efnivið
Sldturfélag Suðurlands:
Rekstrarágóðinn
þrjár
mmionir
AÐALFUNDUR Sláturfélags
Suðurlands var á Hótel Sögu s.l.
þriðjudag 11. þ.m. Formaður fé-
lagsins, Gisli Andrésson á Hálsi,
og forstjóri Jón H. Bergs, fluttu
skýrslur um starfsemi Sláturfé-
lagsins. Heildarsala vöru og þjón-
ustu nam á árinu 1973 rúmlega
1.700 milljónum króna og hafa
vaxiö um rúmlega 490 milljónir,
sem er 40.5% aukning. Rekstrar-
ágóði var kr. 2.950.000.00, og
höfðu þá eignir fyrirtækisins ver-
ið afskrifaðar um 18.4 milljónir
króna og aröur af stofnfé félags-
manna 4.3 milljónir verði frátek-
inn af tekjuafgangi. Vinnslu-
stöðvar Sláturfélagsins tóku á
móti meira afurðamagni en
nokkru sinni fyrr. Slátraö var
168.500 kindum og um 12.000 naut-
gripum og svinum. Meðalfall-
þungi dilka var mjög hár haustið
1973, 14.28 kg, og var þvi kinda-
kjötsmagnið meira hjá Sláturfé-
laginu en fyrr hefur veriö.
Sláturfélagið starfrækti á árinu
1973, auk 7 sláturhúsa og frysti-
húsa, pylsugerð, niöursuðuverk-
smiðju, ullarverksmiðju, sút-
unarverksmiðju og 12 matarbúö-
ir, og var fast starfsliö félagsins
470 manns, en I sláturtiðinni var
flest starfandi hjá félaginu 1.050
manns, og námu launagreiðslur á
árinu alls um 250 milljónum
króna.
Undanfarna mánuði hafa farið
fram endurbætur á húsnæði og
vélakosti verkámiðju Sláturfé-
lagsins viö Skúlagötu i Reykja-
vik, og munu nýjar kjötvörteg-
undir, i sérstökum neytendaum-
búöum, verða til sölu frá verk-
smiðjunni á næstunni.
A aðalfundinum hafði Helgi Jó-
hannsson á Núpum lokið kjörtima
sinum I stjórn, en var endurkjör-
inn.
A stjórnarfundi eftir aðalfund-
inn skipti stjórnin með sér verk-
um. Formaður var kjörinn GIsli
Andrésson á Hálsi, varaformaö-
ur, Sigurður Tómasson á Barkar-
stöðum, og ritari Sigurður
Sigurðsson i Stóra-Lambhaga.
Aðrir I stjórn eru: Helgi Jóhanns-
son á Núpum og Siggeir Lárusson
á Kirkjubæjarklaustri.
þjóðsögunnar um Sæmund fróða.
Er mjög til sýningarinnar vand-
að, og þar koma fram leikarar,
upplesarar, söngvarar og leik-
brúður.
Sæmundur fróði er forvitnilegt
efni til flutnings, og ekki er að efa,
að dagskrá af þvi tagi, sem hér
um ræðir, er góð skemmtun. Er
hér fléttað saman söngvum, sög-
um og brúðuleik, en flytjendur
eru Margrét ólafsdóttir, Guð-
mundur Pálsson, Kjartan Ragn-
arsson, Kristin ólafsdóttir,
Böðvar Guðmundsson og Sverrir
Hólmarsson, en það er nú i tizku,
að gagnrýnendur stigi upp á fjal-
irnar. Annar er nú I Þjóðleikhús-
inu.
Böðvar Guðmundsson samdi
tónlistina og hluta af kveðskapn-
um, annars eru flutt þarna kvæði
Einars Benediktssonar, i Svarta-
skóla, og Daviðs, Vinnumaðurinn
i Odda.
Þá koma þarna fram leikbrúð-
ur, en Leikfélagið fékk Leik-
brúðuland til að annast þá hlið
sýningarinnar, og eru það þær
Bryndis Gunnarsdóttir, Erna
Guðmarsdóttir, Hallveig Thorla-
cius og HelgaSteffensen, sem
bera allan veg og vanda af þeim
sögupersónum, sem látæðið ann-
ast, — að ógleymdri Guðrúnu
Svövu Svavarsdóttur, sem annað-
ist leiktjöldin og brúðurnar af
mikilii snilld.
„Af Sæmundi fróða” verður
frumsýnt i kvöld, og eru siðan
ráðgerðar þrjár sýningar á lista-
hátið.
Veitingaskálinn að Brú I Hrútafirði er vclsettur á krossgötum.
Veitingaskólinn að Brú:
LEIÐIR í FJÓRAR ÁTTIR
VEITINGASKALINN Brú, sem
er á vegamótum Norðurlands-
vcgar og Strandavegar hjá sim-
stöðinni Brú i Hrútafirði, er starf-
ræktur yfir sumarmánuðina
júní/sept. Opnað var siðast i mai
siðastliðinu. Þetta er þriðja sum-
arið, sem hann er rekinn. Aður
var þarna litil feröamannaverzl-
un. Kaupfélag Ilrútfirðinga á
Boröeyri sér um reksturinn. í
veitingaskálanum er niu manna
starfslið yfir hásumarið, en
nokkru færra i júni og sept. 1
sumar sér Guðný Þorsteinsdóttir
um hinn daglega rekstur en mats-
eld annast Þórhalla Snæþórsdótt-
ir matreiðslumaður.
Mikil viðskipti urðu strax við
Veitingaskálann sumarið 1972,-og
jukust þau verulega s.l. sumar.
Höfuðáherzla er lögð á hreinlæti i
hvivetna, og hefur sú viðleitni
borið góðan árangur og vakið
eftirtekt ókunnugra. Umgengni
gesta er i bezta lagi, enda var
húsið strax vel úr garði gert og
vel búið tækjum.
Starfssemin er, eins og heiti
hússins bendir til, veitingar:
smáréttir — grillréttir — m.a.
kjúklingar, steyktar kartöflur,
salat og sósur til bragðbætis. Þá
kaffi, te, mjólk, smurbrauð og
kökur. Einnig er að hafa ódýra
saðningu, svo sem samlokur og
pylsur.
Sæti eru fyrir um 50 manns i
einu. Þá eru innan veggja þessa
húss ýmiss konar vörur, er henta
ferðafólki. M.a. vörur til uppfyll-
ingar i nestið, viðleguútbúnaður
er til að jafnaði, svo sem tjöld,
svefnpokar og hitunartæki. Gas
er selt á kútum og fyllt á gashylki
fólks. Essobensin og oliur eru
seldar i Brú. Þvottaplan er einnig
á átaðnum, sem er mikið notað.
Afgreiðslutimi Veitingaskálans
er frá kl. 9 til kl. 23,30.
Vitað er, að fólk þarf i sumum
tilvikum á meiri þjónustu að
halda en þarna er að fá. Þá sér-
staklega með tilliti til bila sinna.
Reynt er að leiðbeina fólki og að-
stoða eftir föngum. Bifreiðaverk-
stæði er á Borðeyri i 10 km fjar-
lægð frá Brú. Þá er póstur og simi
i næsta nágrenni, þar sem sim-
stöðin Brú er.
Mjög mikil umferð er orðin um
Strandaveginn. Fólk á leið norður
Strandir og jafnvel ekki siður um
Laxárdalsheiði á leið til og frá
Vestfjörðum um Daii og Snæfells-
nes. Að visu er fremur litið gert
fyrir veginn yfir heiðina, en hann
er fær öllum bilum, ef veðrátta er
ekki mjög votviðrasöm. Eftir er
að brúa eina á á þessari leið, en
hún er að jafnaði mjög litil. Vega-
lengdin yfir Laxárdalsheiði er um
15 km á milli bæja.
frói?:mundi Leikbrúður og mannfólk á listahótíð